Vilja endurskipuleggja íbúðalán/feikilega góð ræða Formansins,en við skoðum hana betur!!!

Vilja enduBjarni Benediktsson við setningu 41. Landsfundar...rskipuleggja íbúðalán Innlent | mbl | 21.2.2013 | 18:02 „Það þarf að örva atvinnulífið, lækka skatta og vinda ofan af flækjustiginu.

Við munum byrja á tryggingagjaldinu og halda svo áfram að greiða fyrir fjárfestingum í atvinnulífinu, og taka til í ríkisfjármálunum – hætta skuldasöfnun,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. í setningarræðu sinni á 41. Landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst á sjötta tímanum í dag. „Við þurfum aðgerðir til að minnka hagsveiflur og draga úr verðbólgu.

Þannig hefjum við nýtt framfaraskeið,“ sagði Bjarni og að leiðin væri ekki að leggja sífellt auknar byrðar á það sem vel gangi. „ Við höfum fjölmörg dæmi um að útgerðarfyrirtæki þurfi að standa skil á hærra veiðigjaldi en sem

nemur heildarhagnaðinum. Alvarleg hugsanavilla hrjáir þá sem reyna að réttlæta slíkt,“ sagði Bjarni.

„Þetta er leið Sjálfstæðisflokksins“ „Við munum skapa íslensku efnahagslífi og atvinnuvegum hvetjandi, örugg og traust starfsskilyrði og við ætlum að eyða pólitískri óvissu um grunnatvinnuvegina. Þá tekur atvinnulífið við sér „eins og jurt sem stóð í skugga en hefur aftur litið ljós“ – eins og Björgvin Halldórsson syngur svo fallega.

Á grundvelli þessara hornsteina hefst nýtt og kraftmikið framfaraskeið í þágu heimila landsins þar sem stöðugleiki og vöxtur verða aðalsmerkin. Þetta er leið Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Bjarni.

„En bráðum er biðin á enda“ „Það sem stendur fjölskyldum og fyrirtækjum fyrir þrifum, er ekki skortur á tillögum, heldur aðgerðarleysi þeirra sem ráða för í þinginu.

En bráðum er biðin á enda. Þá loksins gefst tækifæri til að stíga fram og létta undir með heimilunum í landinu.

Við ætlum að ráðast að rót vanda heimilanna með skulda- og skattalækkunum. Við ætlum að lækka tekjuskattinn að nýju og einfalda skattkerfið, hætta með þriggja þrepa kerfi.

Til að létta greiðslubyrðina og auðvelda fjölskyldum að lækka húsnæðislánin munum við veita sérstakan skattaafslátt vegna afborgana af lánum til eigin íbúðakaupa og við munum nýta skattkerfið til að hjálpa fólki að lækka húsnæðislán sín.

Skattaafsláttur er í dag veittur til að leggja fyrir í séreignarsparnað. Ég vil veita þeim sem frekar kjósa að greiða inn á húsnæðislánin sín þennan sama afslátt – varanlega. Það mun létta áhyggjum af fjölmörgum um hver mánaðamót,“ segir í setningarræðu Bjarna.

Fólki verði gert heimilt að skila lyklum „Við ætlum að gera fleira í húsnæðismálunum. Við munum endurskipuleggja íbúðalánamarkaðinn og tryggja fólki val um lánakerfi.

Markmiðið er að fólk geti fengið sambærileg lán og hjá nágrannaþjóðunum, sanngjarna vexti til langs tíma, óverðtryggt, segir Bjarni og einnig: „Við viljum ekki að fólk sé gert upp vegna skulda sem það hefur stofnað til vegna eigin íbúðarhúsnæðis.

Sjái skuldari sér engan veginn fært að standa undir rekstri húsnæðis síns, jafnvel með ofangreindum úrræðum, á honum að vera heimilt að skila lyklunum og losna undan skuldum sínum, án þess að það leiði til gjaldþrots,“ Sagði Bjarni.//////////////////Þetta er mjög góð ræða og yfirgripsmikil og farið yfir eiginlega allt,nema andstæðingum okkar fannst hann ekki tala um hrunið,auðvitað ekki þar búið að gera á síðustu tveim landsfundum með honum og okkur flestum,og í fjögur ár hefur þessi vinstri stjórn ekki talað um annað!!það er komin tími á að tala um framtíðina,og vel það!!enda er nóg að gera í því!!en um þessa ræðu sem ég þarf ekki að endurtaka er margt sem verður um rætt þarna á Landsfundinum og ýmislegt sem hann sagði, verður skoðað vel ,og rætt ekki veitir af,að taka betur en þetta um skuldir heimilan og fleira en þetta verður allt rætt!!!!og vonandi gengur vel!!!/Halli gamli


mbl.is Vilja endurskipuleggja íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband