Bjarni heldur áfram sem formaður/Þarna er ég og margur sáttur mjög!!!!!

BjBjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir á...arni heldur áfram sem formaður Innlent | mbl.is | 13.4.2013 | 11:34 „Ég er ekki þannig maður að ég gefi eftir í mótbyr,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á fjölmennum fundi sjálfstæðismanna í Garðabæ í morgun.

Hann sagði að það kæmi ekki annað til greina fyrir sig og Sjálfstæðisflokkinn en að halda áfram að berjast fyrir sigri í vor.

„Þessa fundar verður minnst fyrir að frá og með honum fór fylgi Sjálfstæðisflokksins að aukast,“ sagði Gunnar Einarsson fundarstjóri í upphafi fundar.

„Staða Sjálfstæðisflokksins er verri en við eigum að venjast,“ sagði Bjarni í upphafi fundar. Hann sagði að ýmsar ástæður væru því.

Hann vék að andstæðingum flokksins og sagðist telja að sumir ættu eftir að fara í lyfjapróf. Bjarni sagði að hann væri þakklátur sjálfstæðismönnum að hafa gefa sér svigrúm til að íhuga sína stöðu.

Hann sagðist hafa fengið mikil viðbrögð við viðtalinu á RÚV. Viðbrögðin við viðtalinu hefðu komið sér á óvart.

Hann hefði fengið mikla hvatningu frá flokksmönnum og einnig fólki sem stæði utan flokksins.

Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir við upphaf fundarins í Garðabæ í morgun. mbl.is/golli Bjarni sagði að þegar hann var að íhuga sína stöðu hefði hann leitað í grunninn og til þess hvers hann hefði boðið sig fram til formanns í upphafi.

Hann sagðist hafa gert það vegna þess að hann vildi vinna fyrir þjóðin og gera þjóðinni gagn. „Ég er ekki þannig maður að ég gefi eftir í mótbyr,“ sagði Bjarni. Fundarmenn mættu þessari yfirlýsingu með dúndrandi lófataki.

Hanna Birna ánægð með ákvörðun Bjarna „Ég er ánægð með þessa ákvörðun formannsins sem ég tel að sé farsæl fyrir hann og farsæl fyrir Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir varaformaður á fundinum.

Hún sagðist vonast eftir að flokksmenn gæfu sér tækifæri til að sinna því verkefni sem hún hefði verið kjörin til fyrir nokkrum vikum síðan, að vera varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Bjarni Benediktsson við upphaf fundarins í Garðabæ í morgun. mbl.is/golli Bjarni tilkynnti í viðtali við RÚV á fimmtudag að hann hefði íhugað að draga sig í hlé sem formaður Sjálfstæðisflokksins.

Í kjölfarið hafa honum borist stuðningsyfirlýsingar frá félögum í flokknum.

Auk Bjarna eru frummælendur á fundinum Hanna Birna Kristjánsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður og Vilhjálmur Bjarnason frambjóðandi flokksins í SV-kjördæmi. Fundurinn er fjölmennur, en fundarstjóri sagði að 700-900 manns væru á fundinum.

Bjarni Benediktsson og Hanna Birna á fundinum í Fjölbrautaskóla Garðabæjar í morgun. mbl.is/golli//////////////Stundum  þarf að hreinsa andrúmslofið og það vel í stórum flokki og þér er að takast núna nú göngum við sameinaðir til kosninga og ekkert heftir það og fylgið mun glæðast ekki spurning,Bjarni Ben Formaður kemur sterkari út og mun sameina flokkinn bíðum við afhroð sem ekki verður segir hann af sér sennilega og það er málið bara/Halli gamli


mbl.is Bjarni heldur áfram sem formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045595

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband