Ánægjulegt hve margir hafa skoðun á málinu/því miður flestir rangar hugmyndir!!!

ÁnægjuMynd 668571legt hve margir hafa skoðun á málinu Innlent | mbl.is | 21.6.2013 | 7:40 Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, segir ánægjulegt að svo margir hafi skoðanir á veiðigjaldinu líkt og raun ber vitni en rúmlega 30 þúsund manns hafa ritað undir áskorun til Alþingis að breyta ekki lögum um veiðigjald.

Hann segir að skoðanir verði hins vegar að byggja á réttum upplýsingum. Til að mynda standi ekki til að leggja niður veiðigjaldið. Þetta kom fram í máli Sigurðar Inga í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.

Hann segir að tekjur ríkissjóðs af atvinnugreininni sé að aukast þrátt fyrir að veiðigjaldið lækki. Sigurður Ingi ætlar að ræða við forsvarsmenn undirskriftarsöfnunarinnar í dag og hann vill heyra sjónarmið þeirra. Hann segir að breyta verði lögunum þar sem þau standist ekki.

Ekki sé hægt að svara því já eða nei hvort setja eigi málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að frumvarpið feli einkum í sér breytingar á hinu sérstaka veiðigjaldi og kveður það bæði á um hækkanir og lækkanir í því samhengi.

Þannig stendur til að lækka sérstaka veiðigjaldið í bolfiski úr 23,20 krónum á hvert þorskígildiskíló (ÞÍKG) niður í 7,38 kr./ÞÍKG og hækka sérstaka veiðigjaldið í uppsjávarfiski úr 27,50 kr./ÞÍKG upp í 38,25 kr./ÞÍKG.

Engin breyting er þó gerð á almenna veiðigjaldinu sem verður áfram 9,5 kr./ÞÍKG. Eins og Morgunblaðið greindi frá síðastliðinn laugardag þá munu þessar breytingar hafa í för með sér hæ

kkanir fyrir sumar útgerðir en lækkanir fyrir aðrar og hlaupa þessar breytingar á hundruðum milljóna fyrir stærstu útgerðirnar. Óframkvæmanleg lög Í umræðum um frumvarpið á Alþingi í síðustu viku sagði Sigurður Ingi Jóhannsson að núverandi lög um veiðigjöld væru óframkvæmanleg sökum bæði tæknilegra og efnislegra galla.

Morgunblaðið sendi fyrirspurn á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og óskaði eftir svörum við því hvað nákvæmlega það væri sem gerði það að verkum að ekki væri hægt að framfylgja núverandi lögum um veiðigjöld.

Í svari ráðuneytisins segir: „Sjálfstæðri nefnd, veiðigjaldsnefnd, er falið að annast útreikning á sérstöku veiðigjaldi. Það er forsenda að starfi nefndarinnar er að hún ráði yfir nauðsynlegum upplýsingum til starfa sinna, en á því hefur reynst misbrestur.

Það hefur sýnt sig að lögin eru ekki nægilega afdráttarlaus um heimildir til nauðsynlegrar öflunar upplýsinga, einkum um verðmæti rekstrarfjármuna, og miðlunar þeirra frá embætti ríkisskattstjóra, til Hagstofu Íslands og þaðan til veiðigjaldanefndar.

Þetta er til að mynda skýr afstaða Hagstofu Íslands. Veiðigjaldanefnd vakti athygli ráðuneytisins á þessu í lok mars og síðan hefur verið leitað leiða til úrlausnar.

Sú vinna hefur ekki skilað tilætluðum árangri og útséð er um að ekki er unnt að leggja á sérstakt veiðigjald samkvæmt lögunum fyrir komandi fiskveiðiár 2013/2014.

Engu að síður er hægt að leggja á almennt veiðigjald samkvæmt lögunum, sem nemur 4,9 milljörðum skv. áætlun fjármálaráðuneytisins.“

Í Morgunútvarpinu kom fram í máli Sigurðar Inga að smærri útgerðir standi höllum fæti fjárhagslega á meðan stóru fyrirtækin gangi vel, greiði niður skuldir og greiði tekjuskatt af hagnaði.

Hann segir að breytingin sé einungis til eins árs því vonandi verði komið nýtt kerfi við upphaf fiskve

iðiársins 2014./////////////////////það hlaut að koma að þessu að þetta fólk sem geri upphlaup,það er virkjað núna eins og það var fyrir 4.5 árum útgerðamenn eru kallaðir allskonar nöfnum og stríð er komið á móti þeim,engin að segja að gjaldið eigi ekki að vera þegar vel árar,og það sanngjarnt,en misjafn eftir útgerðum!!!,en þetta mál sem fjármál eða skattur á ekki að fara í þjóðaratkvæði,frekar en önnur fjármál!!!þetta verður bara endurunnið og sett á sanngjarnt og láta stóru fyrirtækin borga meira!!!30 þus mans og kannski helmingur af því fólki veit hvað útgerð er,við breytum ekki þessa ágæta kerfi,við höfum um  allt annað að þrasa,og standa við!!!/Halli gamli


mbl.is Ánægjulegt hve margir hafa skoðun á málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú segir: "...þetta mál sem fjármál eða skattur á ekki að fara í þjóðaratkvæði,frekar en önnur fjármál..." en má ég minna þig á að Icesave fór 2var í þjóðaratkvæði og þú varst því samþykkur, er það ekki? Var það ekki líka fjármál? Annars finnst mér þetta ekki heldur mál fyrir þjóðaratkvæði...

Skúli (IP-tala skráð) 21.6.2013 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 1045454

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband