Kynna frumvörpin kl. 16:Þetta er að ske og ég bara skrifa það sem við höfum frétt!!!


Frá fundi í Hörpu í haust þar sem Sigmundur Davíð og Bjarni...
Frétt af mbl.is Kynna frumvörpin kl. 16 Innlent | mbl.is | 26.3.2014 | 11:38 Frá fundi í Hörpu í haust þar sem Sigmundur Davíð og Bjarni... Forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra boða til blaðamannafundar í Iðnó klukkan 16:00 í dag.
 
Efni fundarins er kynning á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til lækkunar höfuðstóls húsnæðisskulda.Efni fundarins er kynning á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til lækkunar höfuðstóls húsnæðisskulda. Ítarlega verður fjallað um fundinn á mbl.is í dag.
 
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum eru tvískiptar, annars vegar um 80 milljarða niðurfærsla verðtryggðra íbúðalána og hins vegar 70 milljarða lækkun höfuðstóls íbúðalána með nýtingu séreignarsparnaðar.
 
Upphaflega átti að færa verðtryggð íbúðalán niður um fjárhæð sem samsvarar verðbótum umfram 4,8% sem féllu til á tímabilinu desember 2007 til ágúst 2010. Iðnó. Iðnó. mbl.is/Jim Smart Var það sagt samsvara um 13% leiðréttingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar.
 
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur sú breyting orðið á aðferðinni við útreikninga niðurfærslunnar að nú er miðað við almanaksárin 2008 og 2009. Til upprifjunar var 5,8% verðbólga í janúar 2008, 18,6% verðbólga í janúar 2009 og 7,5% verðbólga í desember 2009.
 
Áfram miðað við 80 milljarða Herma heimildir blaðsins að áætluð heildarupphæð niðurfærslu verðtryggðra lána sé nánast sú sama og boðuð var á kynningu forystumanna ríkisstjórnarinnar í Hörpu 30. nóvember sl., eða um 80 milljarðar króna.
 
Er það talið til hæginda við útreikninga að miða við almanaksár. Þá er það talinn kostur að ríkisskattstjóra verði falið að annast umsóknir um skuldaleiðréttingu. Þar sé á ferð miðlæg stofnun, ólíkt því þegar sækja þurfti um 110%-leiðina til einstakra fjármálastofnana.
 
Niðurfærsla höfuðstóls verðtryggðra lána nær til lána vegna íbúðakaupa til eigin nota, skv. reit 5.2 á skattframtali, og afmarkast niðurfærslan við tímabilið frá 1. jan. 2008 til 31. des. 2009. Miðað er við að lánin myndi stofn til vaxtabóta.
 
Falli í réttan reit á framtali Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þarf að meta hvort verðtryggð lán sem tekin voru til að endurfjármagna fyrri íbúðalán og greiða upp lausar skuldir, svo sem vegna bílakaupa, endurbóta á húsnæði eða kaupa á sumarbústað, falli að öllu leyti undir leiðréttinguna.
 
Hér er átt við þann hluta nýja lánsins sem er ekki nýttur gagngert vegna fasteignar sem tengist upphaflega láninu. Sá hluti getur fallið utan vaxtabóta og munu umsækjendur þurfa að rökstyðja að allt lánið skuli færast úr lið 5.5 á skattframtali í lið 5.2, þannig að allt lánið myndi stofn til leiðréttingar. Hér er um að ræða almenna athugasemd við skattframtal og eiga umsækjendur fullan rétt á að sækja um að lán sé fært úr lið 5.5 í 5.2, að því er heimildir blaðsins herma.
 
Almenn athugasemd á framtali Samkvæmt heimildum blaðsins gæti það sama gilt um lán hjá fólki sem fær ekki vaxtabætur vegna skerðingarákvæða vaxtabóta, þ.e. vegna hárra tekna eða sterkrar eiginfjárstöðu í fasteign. Má ætla að umræddir lántakar geti óskað þess að lánið sé fært úr lið 5.5. í lið 5.2. Er hér líka um að ræða almenna athugasemd og ætti afgreiðsla hennar að jafnaði að vera auðsótt, eftir því sem Morgunblaðið kemst næst.
 
Upplýsingar um hversu margir tilheyri hópunum sem ofangreint á við lágu ekki fyrir í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum blaðsins er sá hópur sem fellur undir lið 5.5. mikill minnihluti af heildarfjöldanum í lið 5.2. Það séu enda mjög fáir eingöngu með íbúðalán í lið 5.5.
 
Nýtist við kaup á fyrstu eign Hægt verður að nýta séreignarsparnað upp á 1,5 milljónir kr. að hámarki við kaup á fyrstu eign, ásamt því að lækka höfuðstól lána. Þetta sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun.
 
Frumvörp um skuldaniðurfellingu og nýtingu séreignarsparnaðar til að greiða niður húsnæðislán voru kynnt ráðherrum í gær. ,,Við erum búin að samþykkja þetta í ríkisstjórninni,“ sagði Bjarni. Áðurnefnd séreignarsparnaðarleið til íbúðarkaupa kemur til viðbótar upphaflegum tillögum. „Séreignarsparnaðurinn getur nýst til öflunar húsnæðis á næstu fimm árum fyrir þá sem eiga ekki húsnæði í dag.
 
Að þeir geti nýtt sér þann skattaafslátt sem séreignarsparnaðarleiðin býður upp,“ sagði Bjarni. Eins og fram hefur komið verður skuldaniðurfellingin að hámarki 4 milljónir króna fyrir hverja fasteign.
 
Heildarumfang aðgerðanna er áætlað um 150 milljarðar króna og segir Bjarni áætlað að kostnaður ríkissjóðs verði um 80 milljarðar af niðurfellingu verðtryggðra lána.
 
Hlutur séreignarlífeyrissparnaðarins verði hins vegar 70 milljarðar. Á aðgerðin að ná til um 70.000 heimila. Frumvörpin fara til umfjöllunar í þingflokkunum í dag og verða síðan lögð fyrir þingið.
 
Fram kom í máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra að sérstök vefgátt yrði opnuð á vefsvæði ríkisskattstjóra hinn 15. maí næstkomandi þar sem hægt verður að sækja um þessar leiðréttingar.
 
Opið verður fyrir umsóknir í þrjá mánuði. „Þetta á að vera aðgengilegt og ekki erfitt fyrir fólk að sækja um niðurfellingu,“ sagði hann./////////////Þetta er lélegra en maður hélt og lífeyrissjóðirnir sleppa alveg,ekki tætla ég að hrópa húrra fyrir þessu,væntingar hafa kannski verið of miklar,en  við náttúrlega ,skoðum þetta nánar og reiknum,en semsagt fjallið varð að Mús segir maður bara,bankarnir sleppa vel þetta bara smá brot af þeirra uppbótum af kreppuna keyptu skuldirnar á tombóluverði og fá svo þetta margfalt til baka margfalls verðtryggt og alles með allskonar uppbótum!!en við skulum bara segja að þetta sé áfangi,af lengri baráttu um að leiðrétta misréttið,og það veði í okkar höndum restin að  hætta bara að versla við banka sem ekki vill leiðrétta þetta lánafyrirkomulag!!!Það kemur því miður alltaf í ljós ,hvað þetta er borgað við sem tókum þetta lán og settum ekki á skattskírslna viðhaldið klæðningu og nýtt þak hvar stöndum við,segjum við bara???það er löngu hætt að veita manni frádrátt af gjörðum til viðhalds eigna!!!  Þetta með virðisauka kom mikið seinna!!!en við tölum um þetta meira eftir að hafa heyrt af fundinum í Iðnó,og fengið þetta beint í æð///Halli gamli

mbl.is Kynna frumvörpin kl. 16
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband