9.7.2014 | 22:00
Ofbeldi að skemma húsið:Nei öðru nær þetta er bara einskisvirði!!!!
Ofbeldi að skemma húsið Innlent | mbl.is | 9.7.2014 | 20:38 Soffía Vagnsdóttir - Soffía telur sorglegt að svona hafi... Þetta er afskaplega léleg afsökun fyrir svona ofbeldisaðgerð, sagði Soffía Vagnsdóttir, íbúi í Bolungarvík sem hafði lagt fram tilboð til kaupa á Aðalstræti 16.
Ég kalla það ekkert annað en ofbeldi að ganga yfir eigur með þessum hætti. Soffía telur mikil menningarleg verðmæti fylgja húsinu.Í dag steig Valdimar Lúðvík Gíslason, íbúi í Bolungarvík, fram og játaði verknaðinn.
Hann sagðist í samtali við mbl.is hafa ákveðið að taka málin í eigin hendur vegna þess að staðsetning hússins skapaði slysahættu. með vinnuvél aðfaranótt mánudags. Aðalstræti 16 í Bolungarvík - Vinna að deiliskipulagi fyrir reitinn hafði staðið í nokkra mánuði ... Aðalstræti 16 í Bolungarvík - Vinna að deiliskipulagi fyrir reitinn hafði staðið í nokkra mánuði þegar skemmdarverkið átti sér stað.
Af vef Bæjarins besta Valdimar fór því með vinnuvél í skjóli nætur og braut húsið niður að hluta. Deiliskipulag var ókomið Ég kalla það ekkert annað en ofbeldi að ganga yfir eigur með þessum hætti í þeirri viðleitni að fá sínu fram.
Það er ekki í höndum einstaklinga að ganga yfir eigur þótt okkur finnist hlutir ljótir eða hættulegir eða almennt ekki eins og við viljum hafa þá, sagði Soffía. Valdimar taldi húsið ómerkilegt og staðsetningu þess skapa slysahættu þar sem það þrengdi að götunni. Bæjaryfirvöld hafa undanfarna mánuði unnið að deiliskipulagi fyrir reitinn.
Sá sem játaði á sig verknaðinn talar um aðgengi að ráðhúsinu og fleira en það er einmitt hluti af því sem er verið er að leysa í deiliskipulaginu. Bæjarfélagið er að vinna að deiliskipulagi í kringum þetta hús með það markmið að vernda það einsog lögin gera ráð fyrir. Menningarleg verðmæti Það eru svo fá gömul hús eftir í Bolungarvík, því flest þeirra hafa verið rifin.
Sagan hefur glatast mjög mikið, því með sögu húsanna glatast ákveðin samfélagssaga, sagði Soffía, sem er að eigin sögn mikill talsmaður þess að gömul hús séu varðveitt. Soffía var ein tveggja sem lögðu fram tilboð í húsið.
Við gerðum tilboðið aðallega í þeirri viðleitni að vernda húsið. Okkur langaði að skapa húsinu tilgang. Við vildum draga fram landnámssögu Bolungarvíkur og höfðum hugsað okkur að reyna að nýta húsið í tengslum við það í einhverskonar safn. Soffía hefur beðið í marga mánuði eftir svörum við tilboðinu.
Margir bæir hafa áttað sig á menningarlegu verðmæti þessa þáttar samfélags okkar en Bolvíkingar hafa því miður komið auga of seint á þessi verðmæti.
Sem betur fer eru komin lög í landinu sem hjálpa okkur í þessu tilliti.///////////Lög eða ólög segir maður bara,að setja öll hús 100 ára og eldri er ekki í lagi,þessu verður að breytaekki líður á löngu þar til tugir eða hundruðir komast á þennan aldur,svona gamla kofa sem hafa ekkert sögulegt gyldi nema að vera gamlir kofar,er ekki hægt að verja til friðunar,þetta er að ganga sér til húðar fljótt og bara til að gera þetta að auka kostnað og eg tala nú ekki um ef þetta er af slysahætta,eitthvað annað er hægt að dunda sér annað en þetta//Halli gamli
Ofbeldi að skemma húsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:03 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég verð að benda þér á að Valdimar L. Gíslason í Bolungarvík er krati - var flokksbundinn Alþýðuflokksmaður hér áður fyrr, muni ég rétt. Þú, sjálfstæðismaðurinn ætlar þó varla að taka undir með krata??
Gunnar (IP-tala skráð) 9.7.2014 kl. 23:50
Sennilega alveg rétt, henda bara svona gömlu drasli, ásamt leiðinda fuglum sem hafa allt á hornum sér, kunna ekki að skrifa bloggpistla öðruvísi en copy/paste alla fréttina, eins og maður hafi núekki lesið hana áður.
Já sennilega bara rétt, hvoru tveggja með afbrigðum leiðinlegt.
Þetta er alversta liðið í bloggheiminum, svartsýnt og niðurdrepandi, með sand í píkunni.
Guðjón Guðvarðarson (IP-tala skráð) 10.7.2014 kl. 11:22
Þakka ykkur innltið en ég bara blogga svona það hafa ekki allir lesið þetta als ekki,ég fer ekki í manngeinarálit um það sem segja eða hvar í Pólitik þeir eru,Þakka samt!!!
Haraldur Haraldsson, 10.7.2014 kl. 11:52
Víst er þetta ofbeldi og alveg botnlaus frekja. Það skiptir engu máli hvort búsið er nýtt eða gamalt, ljótt eða fallegt. Það væri þokkalegt ef aðrir Bolvíkingar hugsuðu eins og réðust á þær eignir sem sem þeir álitu að væru eitthvað fyrir þeim. Það stæði þá varla steinn efir yfir steini.
Bergljót Gunnarsdóttir, 12.7.2014 kl. 13:22
Hér ætla ég að vera sammála síðasta ræðumanni. Það væri nefnilega glæsilegt ef einhverjum væri t.d. í nöp við gamla skólahúsið á Bíldudal og réðist því á það með gröfu. Ég veit að B.G. þekkir til á Bíldudal og tek því eþtta dæmi....
Gunnar (IP-tala skráð) 12.7.2014 kl. 13:39
Þetta viðrkenni ég að geti farið úr böndum!!!!!kveðja Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 13.7.2014 kl. 15:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.