Andlát: Arinbjörn Guðmundsson/Blessuð sé myning hans,góður skákmaður fallin frá!!!

Andlát
Arinbjörn Guðmundsson við taflborðið á Ólympíuskákmótinu í...Andlát: Arinbjörn Guðmundsson Innlent | mbl.is | 9.8.2014 | 10:55 Arinbjörn Guðmundsson við taflborðið á Ólympíuskákmótinu í... Arinbjörn Guðmundsson skákmeistari er látinn, 82 ára að aldri. Arinbjörn var á meðal bestu skákmanna Íslands á árunum 1955-1970 og keppti fjórum sinnum á Ólympíuskákmótum fyrir Íslands hönd.

Hann tefldi skákir við meðal annars Bobby Fischer og Mikhail Tal.Á vefsíðu Hróks­ins seg­ir frá ævi Ar­in­björns.

Hann fædd­ist 22. maí árið 1932 á bæn­um Efstu-Grund und­ir Eyja­fjöll­um.

Hann var 17 ára þegar hann lærði mann­gang­inn, og er það at­hygl­is­vert fyr­ir þær sak­ir að sjald­gæft þykir að skák­menn sem læra mann­gang­inn svo seint, nái ár­angri.

Ar­in­björn keppti á Ólymp­íu­skák­mót­inu í Moskvu árið 1956 sem 2. varamaður og keppti hann síðar á sama móti 1958, 1960 og 1962.

Um hríð á 6. ára­tugn­um sat hann í stjórn Tafl­fé­lags Reykja­vík­ur.

Árið 1960 keppti hann á fimm manna móti þar sem hann mætti ung­um og efni­leg­um Banda­ríkja­manni að nafni Bobby Fischer.

Vakti Fischer at­hygli fyr­ir leik sinn sem hann sigraði og þykir skák­in svo eft­ir­minni­leg að Fischer valdi hana í bók sinni: My 60 memorable games.

Árið 1970 flutt­ist hann ásamt fjöl­skyldu sinni til Ástr­al­íu og bjó hann þar til æviloka. Sjá um­fjöll­un Hróks­ins

um ævi Ar­in­björns./////////////Manni er hugsað um gamla daga er við vorum að leika okkur á vellinum við Skúlagötuna,voru þeir bræður og tvíburar Arinbjörn og Eyþór þar með  okkur og plötuðu okkur inn til þeirra,í skák og var meira að segja Friðrik Ólafsson þá þar stundum,þeir höfðu þá strax mikla yfirburði,og þetta gaman samt,Við Sammi bróðir hafðu ekkert í þá,en þeir áttu heima í Eignaríbúðum fyrir neðan undirganginn,Foreldrar þeirra unni bæði úti,Manni fannst Eyþór þá betri en svona samt varð Arinbjörn ákafari og hélt í víking!!Eyþór kynntist ég aftur er hann varð málameistari og harmonikkusnillingur einnig,og verslaði mikið við okkur í slippmálninguna,hrókur als fagnaðar,hann heimsótti bróðir sinn til Ástralíu og hafði gaman af/En blessuð sé minning  Arinbjörns!!!/Halli gamli


mbl.is Andlát: Arinbjörn Guðmundsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Falleg orð sem þú lætur falla þarna um æskufélaga þinn Haraldur. Þú nefnir þarna Eignaríbúðir, í hvernig íbúðum bjugguð þið?

Þorsteinn H. Gunnarsson, 9.8.2014 kl. 22:31

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ég bjó þá á Skulgötu 70 sem voru bæjaríbúðir,Mamma fékk þetta sem einstæð móðir me 4 börn Babbi fórst með B7V Jóni OLafssyni,kveðja

Haraldur Haraldsson, 10.8.2014 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband