Evrópuríkin þurfa að efla varnir sínar/Þetta kostar fé er ekki þörf á að gera annað við peningana???


Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO.
Evróðuríkin þurfa að efla varnir sínar Innlent | mbl | 13.8.2014 | 19:01 Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, NATO, segir í samtali við mbl.is að framferði Rússlandsstjórnar í Úkraínu kalli á efldar varnir bandalagsþjóðanna, einkum í austurhluta Evrópu.
 
Hann tel­ur fram­ferði Rússa í ut­an­rík­is­mál­um kalla á breytt ör­ygg­is­mat í Evr­ópu.
 
Ríki álf­unn­ar muni þurfa að verja meira fé til varn­ar­mála en á und­an­förn­um árum, svo tryggja megi jafn­vægi í varn­ar­mál­um í Evr­ópu.
 
Þá nefn­ir hann frek­ari efna­hagsþving­an­ir sem mögu­legt úrræði gegn Rúss­um vegna aðgerða þeirra í Úkraín­íu.
 
Rasmus­sen gaf kost á viðtali í aðalsal ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins í kvöld, að lokn­um fundi með Gunn­ari Braga Sveins­syni ut­an­rík­is­ráðherra, sem lesa má um hér.
 
Viðbragðsget­an verður efld Rasmus­sen seg­ir að gerð verði grein fyr­ir frek­ari aðgerðum af hálfu NATO gagn­vart Rúss­um á leiðtoga­fundi banda­lags­ins í Wales 4.-5. sept­em­ber næst­kom­andi.
 
Lesa má um fund­inn hér. „Viðbrögð okk­ar við ólög­leg­um hernaðaraðgerðum Rússa í Úkraínu eru þríþætt.
 
Í fyrsta lagi höf­um við styrkt sam­eig­in­leg­ar varn­ir okk­ar til að tryggja skila­virk­ar varn­ir banda­manna okk­ar.
 
Má þar nefna eflda loft­rým­is­gæslu í Eystra­salts­ríkj­un­um þrem­ur [Eistlandi, Lett­landi og Lit­há­en], staðsetn­ingu her­skipa á Eystra­salti og Svarta­hafi og fjölg­un heræf­inga í Eystra­salts­ríkj­un­um og Póllandi.
 
Við mun­um grípa til frek­ari aðgerða á leiðtoga­fundi NATO í Wales í sept­em­ber og meðal ann­ars efla viðbragðsgetu hjá viðbrags­sveit­um NATO, þannig að banda­lagið geti brugðist hraðar við ef þörf kref­ur.
 
Jafn­framt mun meira bera á veru okk­ar í Aust­ur-Evr­ópu,“ seg­ir Rasmus­sen og nefn­ir fleiri dæmi um efld­ar varn­ir.
 
Byggi upp hernaðarmátt Úkraínu „Í öðru lagi aukið sam­starf við Úkraínu í varn­ar­mál­um. Við höf­um ákveðið að aðstoða Úkraínu hvað varðar um­bæt­ur og nú­tíma­væðingu á herafla lands­ins og byggja þannig upp hernaðarmátt Úkraínu.
 
Í þriðja lagi er það sam­band NATO við Rúss­land. Við tók­um þá ákvörðun í apríl sl. að hætta öllu sam­starfi við Rúss­land.
 
Svo lengi sem Rúss­ar fara ekki eft­ir grund­vall­ar­regl­um okk­ar get­ur sam­starf NATO við Rúss­land ekki fallið í eðli­legt horf.
 
“ Nán­ar verður rætt við Rasmus­sen um breytta stöðu í varn­ar­mál­um Evr­ópu í Morg­un­blaðinu á morg­un///////////////////////Þetta er svo að stríðsupphrópun er ekki okkur til góðs,við gengim ekki í þetta bandalag með þeim ósköpum sem á gengu 1949,als ekki þetta vara varnarbandalag,en ekki til stríðsundibúnings!!!,ég segi og skrifa að þetta tal um meiri vígbúnað er þarflaus að mestu,ef stríð brestur á er það kjarnorkuveldin sem blífa vi' sjáum þetta best með Ísraela þar dansa þjóðir lýðræðisþjóðir eins og Bandaríkjamenn og Kanada  sem styrkja þá í þessum slátrunum á fólki á Gasa,svo hvað erum við þá að vígbúnast gegn Rússum eða hvað,þetta er svo miklir stælar að það hálfa væri nóg/Halli gamli
 
.

mbl.is Evrópuríkin þurfa að efla varnir sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi maður talar í stríðstungum allan daginn, djöfull er hann leiðinlegur

Friðbjörn (IP-tala skráð) 13.8.2014 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband