Mesta hættan mun vera lúfríki hafsins næsru ár ,og þa er 0kkka mál farin fyrir bí !!!!

Sjötta útrýmingaferli lífs á Jörðinni hafið Ný rannsókn sýnir fram á þetta - lífverum fækkar hratt Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is 08:28 › 20. júní 2015 Lífverum fækkar hratt samkvæmt nýrri rannsókn.

Jörðin Lífverum fækkar hratt samkvæmt nýrri rannsókn. Ný rannsókn þykir renna stoðum undir þá kenningu að sjötta stóra útrýmingaferli lífs á jörðinni sé hafið.

Að sögn vísindamanna er tækifærið, til að stöðva þessa þróun, óðum að renna mannkyninu úr greipum.

„Gögnin sýna án nokkurs vafa að sjötta útrýmingaferli lífs á jörðinni er hafið,“ er haft eftir Paul Erlich, prófessor við Stanford Háskóla. Rannsóknin, sem var nýlega birt í vísindatímaritinu Science Advances, sýnir þrátt fyrir varfærið mat að lífverum er að fækka 100x sinnum hraðar heldur en eðlilegt gæti talist.

Í gögnunum kemur fram að 16-33 prósent hryggdýra eru talin í útrýmingahættu og stærstu dýrunum fækkar hraðast, sem er í samræmi við það sem á að hafa átt sér stað í fyrri útrýmingaferlum jarðarinnar, dæmi um slíkt er útrýming risaeðlanna.

Gerrardo Ceballos, prófessor við Háskólann í Mexíkó, stýrði rannsókninni.

Hún fór þannig fram að fyrst þurfti lið hans að reyna að átta sig á hver væri eðlilegur fjöldi lífvera sem myndi deyja út yfir ákveðið tímabil.

Niðurstaðan var sú að eðlilegt gæti talist ef 9 tegundir hryggdýra hefðu dáið út frá árinu 1900.

Rannsókn þeirra leiddi hinsvegar í ljós að 69 spendýrategundir, 80 fuglategundir, 24 skriðdýrategundir, 146 tegundir froskdýra og 158 fisktegundir hafa dáið út á þessum tíma.

Alls 477 tegundir.

„Ef að útrýming lífvera heldur áfram með þessum hraða þá munum við tapa gríðarlega stórum hluta af fjölbreytileika lífs á aðeins 2-3 mannsöldrum.

Það getur tekið milljónir ára að snúa þessari þróun við þannig að

lífverum fari aftur að fjölga á jörðinni," segir Ceballos. Deila á Facebook Athugasemdi///////////////////:Ljótt er eg satt er og við skulum á verði vera mjög öll se, lifum á sj´farfangi meira og minna////Halli gamli550663


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045597

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband