SUS: Vilja Bandaríkjadal á Íslandi//það væri flott!!!!!


Mynd 492070 Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur til þess að nú þegar verði hafið samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að taka upp Bandaríkjadal í viðskiptum á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun frá SUS.

„Ungir sjálfstæðismenn telja því miður einsýnt að tilraunir til þess að halda íslensku krónunni séu líklegar til þess að mistakast með miklum tilkostnaði fyrir íslenskt efnahagslíf.

Nýsamþykkt gjaldeyrishöft, sem meðal annars banna útflytjendum að kaupa krónur í erlendum bönkum til heimflutnings, undirstrika hversu vonlaus staðan er. Á meðan gengi gjaldmiðilsins fær ekki að ráðast á markaði munu stjórnvöld þurfa að grípa til sífellt harðari aðgerða til þess að verja gervigengið í Seðlabankanum. Þær aðgerðir fela annars vegar í sér höft og hins vegar fjárútlát.

Í ljósi fyrri reynslu Íslands sem og annarra þjóða af gjaldeyrishöftum gátu stjórnmálamenn sagt sjálfum sér að óumflýjanleg afleiðing þeirra er myndun tvöfalds gengis. Gengi íslensku krónunnar á Íslandi er of hátt skrifað, og erlendis er gengi hennar of lágt. Seðlabankinn niðurgreiðir þannig krónuna á íslenskum markaði. Mismunurinn sem myndast milli þessara tveggja, fölsku gengisskráninga er sóun.
Ungir sjálfstæðismenn skora á stjórnmálamenn allra flokka að láta lokið baráttu við vindmyllur. Annað hvort þarf að gefa viðskipti með krónuna frjáls og taka þeim afleiðingum sem það hefur í för með sér, eða að taka upp annan gjaldmiðil sem nýtur trausts í alþjóðlegum viðskiptum. Sú leið að taka upp annan gjaldmiðil er líklegri til árangurs heldur en áframhaldandi og síaukin höft í viðskiptum og stórkostleg fjárútlát Seðlabankans og ríkissjóðs//Þetta lyst mér vel a´og fleirum gerum bara þetta kaldir og látum reyna á það við getum þetta ekki spurning/ESB kemur þetta ekkrt við,hlustum loksins a unga fólkið.þeirra er framtíðinn/Halli gamli


mbl.is SUS: Vilja Bandaríkjadal á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband