Ekkert liggur á stjórnarsáttmála/eru þeir komnir á róandi?????

mbl Steingrímur J. Sigfússon segir ríkisstjórnina hafa traustan þingmeirihluta og því liggi ekki á að klára nýjan stjórnarsáttmála. Ríkisstjórnin situr því óbreytt í einhvern tíma en þrír ráðherrar hennar eru ekki á þingi. Formlegar stjórnaÞað er þó óvíst að ,,norræna velferðarstjórnin,” hittist í Norræna húsinu því þar er allt fullbókað.

Steingrímur segir ríkisstjórnina hafa traustan þingmeirihluta og því liggi ekki á að klára stjórnarsáttmálann. Það sé mikill misskilningur að það eina sem hlutirnir snúist um þessa dagana sé ESB. Mörg stór og erfið verkefni bíði ríkisstjórnarinnar.

Forsætisráðherra hefur þó sagt að Evrópumálin verði sett á oddinn í stjórnarmyndunarviðræðum en þau séu  það eina sem ósamkomulag er um. Steingrímur neitar því ekki að þetta mál sé fremst í röðinni en fleiri starfshópar verði skipaðir í kvöld um fjármál. efnahagsmál, atvinnu og auðlindarmál.

Hann segir ekki ákveðið hvort stokkað verði upp í ríkisstjórninni en oftast sé farið yfir verkaskiptinguna í lokin. Þrír ráðherrar sitja ekki á þingi, utanþingsráðherrarnir Ragna Árnadóttir og Gylfi Magnússon og Kolbrún Halldórsdóttir sem féll út af þingi. Gylfi Magnússon útilokaði ekki að sitja áfram ef til hans yrði leitað en sagðist ekki gráta það þótt hann þyrfti að snúa aftur í prófessorsstöðu í Háskólanum.

Kolbrún Halldórsdóttir væri mjög til í að gegna embætti umhverfisráðherra áfram. Hún útilokar ekki að hún hafi klúðrað sínum pólitíska ferli vegna ummæla sinna um olíuleit á Drekasvæðinu. Hún hafi staðið föst á sinni sannfæringu um að horfa ætti til heildarhagsmuna þegar teknar væru ákvarðanir um auðlindanýtingu. Hugmyndir um sjálfbæra þróun ættu að vera leiðarljós og því ætti að stefna að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.

rmyndunarviðræður hefjast aftur klukkan fimm//þetta er með eindæmum að flýta þessu ekki þegar allt er á vonarvöl/þetta einfaldlega gengur ekki lengur/Halli gamli


mbl.is Ekkert liggur á stjórnarsáttmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband