Þolinmæði á þrotum/hvað á fólkið að gera hætta að borga?????

„Mjög margir eru í sambandi við okkur og hafa lýst yfir áhuga á því að fara í einhvers konar greiðsluverkfall. Og sá hópur stækkar óðum,“ segir Þórður B. Sigurðsson, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Samtökin ásamt Húseigendafélaginu hafa lýst yfir eindregnum stuðningi við tillögu talsmanns neytenda um neyðarlög í þágu neytenda um eignarnám fasteignaveðlána og niðurfærslu þeirra samkvæmt mati lögbundins gerðardóms. Að baki stuðningsyfirlýsingunni eru ellefu þúsund félagsmenn samtakanna tvennra. Þórður segir að stjórnvöld verði að bregðast skjótt við, þolinmæði lántakenda sé á þrotum.

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur kynnt ráðherrum tillögu sína en ekki fengið viðbrögð. Gísli segir að mikið liggi við. Ríkisstjórnin hafi aðeins fáeinar vikur – jafnvel aðeins fáa daga – til að grípa til aðgerða. Hann segist ekki hvetja fólk til að hætta að borga af lánum sínum en viti að fjölmargir íhugi það. Ekki síst um þessar mundir þegar frysting lána rennur út.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra segir ríkisstjórnina meðvitaða um vanda heimilanna og hversu brýnt sé að bregðast við honum sem fyrst. „Hér vinnum við öllum stundum að þessum brýnu málum. Það þarf enginn að efast um það. Við gerum okkur grein fyrir því að vinna þarf hratt og örugglega að öllum þessum málum sem framundan eru.“

Ráðherrann hefur hins vegar ekki talið rétt að fara leið framsóknarmanna, þ.e. að færa skuldir niður.//það er ekkert gert þetta fólk er komið i eindaga og meira en það,þetta verður að gera eithvað i þessu strax,fólkið er að missa sitt og fast í þessum vanda/Halli gamli


mbl.is Margir íhuga greiðsluverkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Kæri Halli - AUÐVITAÐ eiga ca. 10-20.000 manns að HÆTTA strax að borga af lánum sínum og svo eigum við einnig að taka út alla okkar sparipening og setja frekar í bankahólf.  Með slíkum aðgerðum þá NEYÐUM við þessi ömurlega lélegu ríkisstjórn til að HLUSTA á okkur og koma með lausnir sem gera eitthvað GAGN fyrir okkur...!  Ég hætti að greiða í september 2008, ég vildi óska þess að fleirri hefðu haft vit á því að gera það sama og ég!  Ég sé fyrir mér miklu öflugri & kröftugri mótmæli í haust, þá verður allt brjálað...!

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 2.5.2009 kl. 10:18

2 identicon

Hverslags vitleysa er þetta?Fyrst eignirnar eru orðnar verðlausar,þá á ekki að borga!!Það er bara verið að moka í óseðjandi hít.Fyrst við erum orðin 11,000,þá eigum við,öll sem ein að hætta að borga og safna saman.Það er kominn leigumarkaður í fyrsta sinn á Íslandi og engin eftirsjá að verðlausum húskofa.Takið ykkur til í andlitinu og hífið ykkur upp á rassgatinu og takið til höndunum;okkar er valdið!!Hreinsið allt útúr húskofanum,sem eitthvert verð-mæti er í og annaðhvort komið því í geymslu eða seljið,ykkur og yklkar til góðs.Skiljið ekkert eftir,þetta er ykkar eign.Ef kemur til uppboðs,þá getið þið fresta því til októbers,og safnað á meðan.Langur aðdragandi er að fullnust uppboðs,eftir það og notið tímann til þess að safna.Búið ykkur til varasjóð.Þetta er ekkert annað en stríð,sem ríkisvaldið á sína sök á vegna þess að gera ekkert annað en mæta í lúxusveislur á vegum bankasóðanna.Sameinuð stöndum við,þessi 11,000 og þeir geta ekkert nema samið við okkur á okkar kjörum.Að lokum,Éttu það sem úti frýs,Sighvatur,aulakjaftur.

Ægir Geirdal (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045631

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband