Ráðherrakapall lagður á morgun///Kannski ekki allir sáttir þarna????

Nú sér fyrir endann á stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar... Formenn Samfylkingar og Vinstri grænna hófu í dag að ræða við þingmenn sinna flokka um ráðherraskipan í nýrri ríkisstjórn. Þingflokkar og æðstu stjórnir flokkanna hafa verið boðaðar til fundar á sunnudag til að ræða stjórnarsáttmála. Ekki er gert ráð fyrir miklum breytingum á ráðherraskipan. Líklegt er að ráðuneytum verði fækkað um eitt í upphafi og tveir eða þrír nýir ráðherrar taki sæti í þeirri ríkisstjórn sem væntanlega tekur við vLitlar breytingar í upphafi

 

Þó ætlunin sé að gera umfangsmiklar breytingar á stjórnskipan Íslands á kjörtímabilinu er ekki gert ráð fyrir miklum breytingum strax. Þar ræður bæði að umfangsmeiri breytingar kalla á aðkomu Alþingis og þá þykir ekki rétt að róta upp í embættismannakerfinu meðan greitt er úr þeim risavöxnu vandamálum sem við er að eiga.

Starfshópur um breytingar á stjórnskipan, sem skipaður var í upphafi stjórnarmyndunarviðræðnanna, hefur nú skilað tillögum til formanna Samfylkingar og VG. Lykilorðið í endurskipulagningu ráðuneyta er skilvirkni. Ráðuneytin eru nú 12 og ráðherrarnir 10.

Líklegt er að ráðuneytum verði fækkað um eitt í upphafi, verkefni verði færð milli ráðuneyta og tveir eða þrír nýir ráðherrar taki sæti í þeirri ríkisstjórn sem væntanlega tekur við völdum á sunnudag.

Skilvirkari verkaskipting ráðuneyta

Hugmyndin er að nýtt atvinnumálaráðuneyti, sem færi með sjávarútvegs- og landbúnaðarmál og verkefni sem nú heyra undir iðnaðarráðuneyti taki strax til starfa. Þar með fækkar ráðuneytum úr 12 í 11.

Þá er ætlunin að skerpa á utanumhaldi efnahagsmála með því að færa þau verkefni sem lúta að málaflokkunum, frá forsætis- og fjármálaráðuneytum til viðskiptaráðuneytis sem yrði þá efnahags- og viðskiptaráðuneyti. Þar yrði eingöngu um tilflutning verkefna að ræða.

Loks er ætlunin að efla umhverfisráðuneytið og færa undir þess hatt auðlindamál, hverju nafni sem þau nefnast. Þar með færðust verkefni frá sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneytum til hins nýja auðlinda- og umhverfisráðuneytis.öldum á sunnudag

Ekki er gert ráð fyrir miklum breytingum á ráðherraskipan til að byrja með. Jóhanna Sigurðardóttir mun áfram fara með verkstjórn og sitja í forsætisráðuneytinu. Össur Skarphéðinsson heldur trúlega utanríkisráðuneytinu og Kristján L. Möller samgönguráðuneytinu. Þá er ekki talið líklegt að hróflað verði við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu að sinni.

 

Svandís Svavarsdóttir. mbl.is

hjá VG er næsta víst að Steingrímur J. Sigfússon heldur fjármálaráðuneytinu og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðuneytinu. Ögmundur Jónasson þykir líklegur til að halda áfram setu í heilbrigðisráðuneytinu en Kolbrún Halldórsdóttir er hins vegar á leið úr umhverfisráðuneytinu og er nafn Svandísar Svavarsdóttur helst nefnt í hennar stað.

Þá er mikill vilji fyrir því hjá Samfylkingunni að Gylfi Magnússon, sitji áfram í viðskiptaráðuneytinu og takist áfram á við þau risavöxnu verkefni sem við blasa. Þá þykir ekki heldur verra að hafa utanflokkamann í ráðuneyti efnahags- og viðskiptamála meðan rannsókn sérstaks saksóknara á efnahagshruninu stendur yfir.

 

Árni Páll Árnason mbl.is/Frikki

Ragna Árnadóttir er að líkindum á leið úr ríkisstjórn og er nafn Árna Páls Árnasonar títt nefnt sem næsta dóms- og kirkjumálaráðherra.

Meiri óvissa ríkir með hverjir setjast í iðnaðarráðuneytið og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Nafn Atla Gíslasonar, oddvita VG í Suðurkjördæmi er gjarnan nefnt, Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, oddvita VG í Suðvesturkjördæmi og Jóns Bjarnasonar oddvita VG úr Norðvesturkjördæmi.

Kynjakvótar eða hæfni?

Fjölmargt ræður vali flokksformanna við skipan ráðherra. Kynjakvótar hafa verið áberandi í báðum flokkum en mál manna er að við þær aðstæður sem uppi eru núna þurfi fyrst og fremst að finna hæfasta einstaklinginn í hvert ráðuneyti, innan þings eða utan. Formenn Samfylkingar og VG ljúka viðræðum við þingmenn sína á morgun. Í kjölfar þess leggja þeir ráðherrakapalinn á borðið, hvor í sínu lagi, fyrir æðstu stofnanir flokka sinna.//Það  er gaman að velta sér uppúr þessu,en spyrjum að leikslokum,þetta getur allt breyst og sennilega allt aftur um áramót ef þessi stjórn lifir svo lengi/Halli gamli


mbl.is Ráðherrakapall lagður á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045621

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband