22 á ráðherralaunum/ekkert bruðl !!!!!!

Innlent | Morgunblaðið | 15.5.2009 | 5:30
Frá Alþingi. Töluverður kostnaður lendir nú á skattgreiðendum vegna ríkisstjórnaskipta. Samtals eru 22 á ráðherralaunum, þar af tíu ráðherrar í fyrri ríkisstjórnum.

SAMTALS þiggja nú 22 ráðherralaun, samkvæmt svari skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins, Óðins Helga Jónssonar, við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Þar af eru átta á biðlaunum til sex mánaða. Þeir eru Árni M. Mathiesen, Björn Bjarnason, Einar Kristinn Guðfinnsson, Geir H. Haarde, Guðlaugur Þór Þórðarson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Þá eru tveir fyrrverandi ráðherrar á biðlaunum til þriggja mánaða, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir.

Til viðbótar þessum tíu fyrrverandi ráðherrum sem nú þiggja biðlaun eru tólf ráðherrar í nýskipaðri ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Óðinn Helgi sagði ekki vera hægt að segja nákvæmlega hver kostnaðurinn yrði af þessu.

Sé mið tekið af launatöflu Kjararáðs, sem ákvarðar laun ráðherra, ætti kostnaður við greiðslu mánaðarlauna til þeirra sem eru á biðlaunum að nema tæplega 54 milljónum króna.

Mánaðarlaun ráðherra eru samkvæmt launatöflu 992 þúsund krónur en forsætisráðherra er með tæplega 1,1 milljón á mánuði.///þerna verður ekki sparað,svo mikið er vist/en þetta er ekki gott að hafa þetta svona/Dýrt er þetta og við veðum að spara/Halli gamli


mbl.is 22 á ráðherralaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Biðlaun ráðherra eru bara eins og með þegar launþegi þarf að hætta starfi og fær greidd laun út uppsagnatímabilið. þeir sem þiggja biðlaun og eru áfram þingmenn fá mismuninn greiddan. Ásta Ragnheiður hefði þar með ekki fengið nein biðlaun þar sem laun forseta alþingis eru þau sömu og ráðherra. Þannig finnst mér það ekki frétt og ekki rétt að segja að ásta hafi afsalað sér biðlaunum þar sem það er ekki rétt.

Helgi Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045617

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband