Afgreiðslu AGS frestað/Fundur í kúgunarnefnd á mánudag!!!!!!

Innlent | mbl.is | 30.7.2009 | 15:45
Mynd 495747Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur frestað því að ræða málefni Íslands á mánudag vegna þess að ekki hefur verið gengið frá Icesave-samkomulaginu. Þetta hefur Bloomberg fréttastofan eftir talsmanni sjóðsins, Caroline Atkinson. Búið er að taka Ísland út af dagskrá sjóðsins á mánudag.

Yfirstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ætlaði á fundi sínum næstkomandi mánudag að ræða um fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar sjóðsins og íslenskra stjórnvalda og hvort forsendur séu fyrir því að sjóðurinn greiði út annan hluta lánsins til Íslands samtals 155 milljónir Bandaríkjadala.

Fyrsti hluti lánsins var 827 milljónir dala sem greiddur var út í nóvember á síðasta ári og restin átti að koma í átta jöfnum greiðslum sem verður hver að upphæð 155 milljónir dala.

Fyrsta endurskoðunin og annar hluti lánsins hefur dregist umtalsvert en upprunalega var hún á dagskrá í febrúar á þessu ári. Dráttur í endurskipulagningu bankanna, Icesave deilan, stjórnarskipti á Alþingi, tafir á  framlagningu langtímaáætlunar í ríkisfjármálum o.fl. mál hafa valdið töfum. Nú virðast hins vegar flest mál vera í höfn fyrir endurskoðun fyrir utan Icesave-samninginn.

Fyrr í vikunni kom fram í Morgunkorni Glitnis að verði ekki af afgreiðslu láns Alþjóða gjaldeyrissjóðsins nú mun hún tefjast a.m.k. um mánuð en öll töf í þessu er óhentug fyrir uppbyggingu á íslensku efnahagslífi.

Atkinson sagðist í dag á vefvarpi sjóðsins í Washington ekki eiga von á því að málefni Íslands verði tekin fyrir í næstu viku. Segist hún ekki vera viss um að gögn málsins séu tilbúin en það hafi verið góður gangur í að ljúka við endurskoðunina undanfarið svo hún eigi von á því að skýrslan verði tilbúin fljótt///Þarna sannast enn og aftur hverslags Kúgarana eru þarna á ferð,allt teng saman við ESB og allt klappið,þeir þeir sverji það af sér,þarna verðum við að vera harðir semjum ekki uppá þessi skipti ,alla ekki,það er sama hverslags viðauka vi' setjum i samningin ,það verður ekkert mark tekið á  því,Bara fellan ,og fara dómstólaleiðina  eins leiðin !!!! Manni er heitt i hamsi nú þegar við sjáum að við eru hafðir að fíflum og ekkert annað,svo vilja menn ganga til liðs við þennan glæpalýð/Halli gamli


mbl.is Afgreiðslu AGS frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Missti ég af einhverju? Sóttu ekki Íslendingar um lán til AGS? Það er enginn sem skipar okkur að biðja um lán ef við viljum ekki láta "kúga" okkur.

Gylfi (IP-tala skráð) 30.7.2009 kl. 17:51

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Já eins og fleiri hefður þú misst af þeim skiluðum sem þessu fylgja við vorum ekki upplyst um þau/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 30.7.2009 kl. 17:58

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gylfi, ef það skyldi hafa farið framhjá þér þá var SAMIÐ um ákveðna greiðsludaga á láninu, Íslendingar hafa staðið við sinn hluta samningsins en AGS kemur þá með nýjar "kröfur", hvað er það annað en kúgun?

Jóhann Elíasson, 30.7.2009 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband