Þeir eyðilögðu kapítalismann/Kanski ekki alveg en næstum????

Þeir eyðilögðu kapítalismann
Innlent | Morgunblaðið | 9.9.2009 | 6:39

Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði.Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, talar ekki vel um nýfrjálshyggjuna. Hann gagnrýnir fjármálafyrirtækin og öfgarnar, sem leiddu til yfirstandandi fjármálakreppu í heiminum. Hann heimsótti Ísland í upphafi aldarinnar og komu fremur fáir að hlýða á hann. Þegar hann talaði á fundi í Öskju á mánudag var fullt úr úr dyrum og komust færri að en vilduHefðu menn lagt eyrun við ráðum Stiglitz þá, hefði mátt afstýra ýmsu. Nú eru að minnsta kosti margir að hlusta. Hann ræddi bæði við þingmenn og ráðherra í byrjun vikunnar og kveðst reiðubúinn að veita ráð, en ekki vera ráðgjafi.

Áherslan á efnisleg gæði

Stiglitz segir að ekki megi gleyma því að hagkerfið sé ekki markmið í sjálfu sér, heldur leiðin til að skapa það þjóðfélag, sem menn kjósi sér.

„Augljóslega er til fólk sem leggur meiri áherslu á efnislega hluti og það myndi vilja að samfélagið endurspeglaði slíka efnishyggju,“ segir hann. „Ég held að það eigi hins vegar ekki við um meirihluta fólks. Þetta er fólk, sem hefur glatað áttum og heldur að efnislegir hlutir séu allt. Ein fullyrðingin er sú að þessi minnihluti, sem heldur að það sé markmið í sjálfu sér að safna hlutum, hafi ákveðið hverjar áherslurnar væru. Ég held hins vegar að nær lagi sé að segja að sumir í það minnsta noti þessar áherslur sjálfum sér til framdráttar, til að auka efnislega velferð sína. Þannig er til dæmis sagt að einkavæðing leiði til aukinnar skilvirkni, en að auki fær viðkomandi tækifæri til að komast yfir tiltekin gæði. Ekki er gefið hvort viðkomandi trúi því í raun að skilvirknin verði meiri, en hann veit að hann mun eignast meiri gæði.“

Er þá skoðun Stiglitz að umræðan um einkavæðingu sé blekking?

„Ég held að í versta tilfelli hafi nokkrir trúað því, en þeir fóru ekki mjög djúpt,“ segir Stiglitz. „Þetta var ekki fólk, sem lagðist í djúpa greiningu. Þær athugasemdir, sem ég geri, hafa verið kunnar lengi. Herbert Simon, sem fékk Nóbelsverðlaunin fyrir um 25 árum, benti á að í flestum nútímafyrirtækjum væru flestir einstaklingar starfsmenn og það sama ætti við hjá ríkisfyrirtækjum. Stofnanir ríkisins gætu verið með góðar aðferðir til hvatningar eða slæmar. Það sama ætti við um einkafyrirtæki. Hann benti á að það gæti verið að þegar á heildina væri litið væri annað hvort – einkageirinn eða hið opinbera – betra, en það gæti ekki verið viðtekin hagfræðikenning. Ef horft er á reynsluna eru sumar ríkisstofnanir mjög skilvirkar, til dæmis stjórn ellilífeyrismála í Bandaríkjunum, sem er skilvirkari en nokkurt einkarekið tryggingafyrirtæki.“///Það er mikið til þessu og ekki ný kenning en samt vel ígrunduð og ber að taka þetta alvarlega/það má eyðileggja allt og öfgarnar  eru alstaðar fyrir hendi til hægri vinstri og allt þar á millum,en okkur ber að læra af þessu og það verður vonandi gert en ekki með öðrum öfgum,kapp er best með forsjá!!!!Halli gamli


mbl.is Þeir eyðilögðu kapítalismann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband