Sjálfstæðisflokkurinn stærstur á ný/#Batnandi mönnum er best að lifa# segir mátækið!!!

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur á ný
Innlent | mbl.is | 18.9.2009 | 15:16
Bjarni Benediktsson, formaður SjálfstæðisflokksinsStuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 43,9% í könnun sem MMR hefur gert á fylgi flokkanna og stuðningi við ríkisstjórnina. Er þetta viðsnúningur frá því í apríl 2009 þegar 51,5% sögðust styðja þáverandi ríkisstjórn sömu flokka og nú sitja í ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tæpum 8% frá síðustu kosningum og mælist nú stærsti stjórnmálaflokkurinn á þingi, en 31,6% segjast myndu kjósa flokkinn væri gengið til kosninga í dag.

Fylgi Samfylkingarinnar dalar aftur á móti nokkuð og mælist nú 24,1% en var 29,8% við síðustu kosningar. Fylgi Vinstri grænna mælist 19,8, fylgi Framsóknarflokksins mælist 16,6% og Borgarahreyfingin mælist með 3,1% fylgi. 4,8% segjast myndu kjósa aðra flokka, að því er segir í fréttatilkynningu frá MMR.

Andstaða við ríkistjórnina mælist nú svipuð (56,1%) og mældist við ríkisstjórn Geirs H. Haarde í október strax eftir bankahrun (54,8%).///Maður segir bara #batnandi mönnum er best að lifa# segir máltækið,þetta hlaut að koma að þessu að menn færu að sjá að Sjálfstæðismenn láta sér mistökin að kenningu verða,en það er ekki  hægt að segja um Samfylkinguna og nú alls ekki heldur um V.G. allt niður á við og ekkert að viti gert,bara reddast eitthverveginn stefna!!!Þetta mun en herðast og þesssi stjórn falla fljótt/Halli Gamli


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að sjá að einhver af þessum blessuðu moggabloggurum er með vit !

Hilmar Freyr (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 16:56

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Foruysta Sjálfstæðisflokksins veit ekkert hvað hún vil annað en völdin. Því miður yrði sá litli ávinningur sem náðst hefur að engu hafður. Ætli það yrði ekki fyrsta verk Bjarna Benediktssonar hins ístöðulausa formanns að reka Evu Joly og alla saksóknarna og gefa þessum vandræðamönnum upp allar sakir?

Það væri slæmt ef sú þróun yrði. Frjálshyggjan er ein sú versta sending sem við höfum fengið. Þar er ábyrgðarleysið, spillingin, sérhagsmunapotið og allt svínaríið. Er það sem við viljum Halli?

Ekki eg.

Þessir þokkapiltar eiga að bera samfélagslega ábyrgð á bankahruninu. Við megum aldrei verðlauna skussana.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 18.9.2009 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband