St. Jósefsspítala lokað hægt og hljótt/betra svoleiðis loka rólega"!!!!!!!!

St. Jósefsspítala lokað hægt og hljótt
Innlent | Morgunblaðið | 20.9.2009 | 8:55

Mynd 444297„Ögmundur notar aðra leið til að hætta starfsemi St. Jósefsspítala með því að loka á fjármögnun læknisverka. Rétt fyrir sumarfrí var 14 skurðlæknum spítalans sagt upp án frekari fyrirvara. Á meltingarsjúkdómadeild liggur fyrir að starfsemin verði skert um tæp 35% á árinu,“ segir Sigurjón Vilbergsson, sérfræðingur í lyflæknisfræði og meltingarsjúkdómum við Morgunblaðsgrein í dag segir Sigurjón fjármagn til læknisverka spítalans á þrotum og framtíð spítalans í algjörri upplausn. Í greininni segir hann að lítið hafi heyrst af áætlun heilbrigðisyfirvalda varðandi St. Jósefsspítala.

Mikið var fjallað um starfsemi spítalans á sínum tíma þegar fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, ætlaði að gera spítalann að öldrunarstofnun og loka göngudeild meltingarsjúkdóma og skurðstofum.

„Bjargvættur spítalans var öflug mótmæli almennings og ekki síst Hafnfirðinga. Ný ríkisstjórn með nýjan heilbrigðisráðherra, Ögmund Jónasson, tók við og öllu var slegið á frest og engar stórar ákvarðanir teknar. Nú liggur hins vegar ljóst fyrir að starfsemi spítalans í núverandi mynd verður ekki söm. Ögmundur notar aðra leið til að hætta starfsemi St. Jósefsspítala með því að loka á fjármögnun læknisverka,“ segir Sigurjón í grein sinni.

Hann segir að uppsagnir 14 skurðlækna spítalans og sú skerðing sem þær hafa í för með sér þýði að af 3000 speglunum sem gerðar hafa verið árlega verði um 1000-1200 speglanir í uppnámi. Á göngudeild meltingarsjúkdóma standi því ónýtt fjárfesting í tækjum og mannafla.

Sigurjón spyr hvar eigi að veita sjúklingum þjónustu. Að meðaltali greinist 3 sjúklingar á viku með ristilkrabbamein á Íslandi eða ca. 136 einstaklingar á ári.

„Verða þessir sjúklingar greindir annars staðar? Er Landspítali - háskólasjúkrahús tilbúinn að taka við þessu verkefni án tafar? Þar á að spara og algert ráðningarstopp. Á að flytja verkefnin á stofu sérfræðinga? Þar á niðurskurðarhnífurinn örugglega eftir að sverfa til stáls á næstu misserum. Er þetta sparnaður?,“ spyr sérfræðingurinn í Morgunblaðsgrein sinni.

„Síðast þegar leggja átti niður starfsemi St. Jósefsspítala lofaði heilbrigðisráðherra víðtæku samráði og óskertri þjónustu. Nú virðist hins vegar vera ætlunin að leggja starfsemina niður hægt og hljótt,“ segir Sigurjón Vilbergsson, sérfræðingur í lyflæknisfræði og meltingarsjúkdómum við St. JósefssSt. Jósefsspítala////Aðferðir Ögmundar eru svona svæfa málin og loka svo Kommar eru svona ,þeir þykjast vera á móti en gera hlutina svona/Ögmundur er að flippa út eftir það sem hafast er eftir honum um Icesave er þetta svona allir vondir og verstir eru stórkranstaðan!!!!!!,lepja öllu en semsagt allir vondir nema V.G. svo aðfarir eru þeirra og engara annarra/Halli gamli


mbl.is St. Jósefsspítala lokað hægt og hljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband