FME rannsakar allsherjar markaðsmisnotkun banka/Hver rannsakar FME ????

Innlent | Morgunblaðið | 24.9.2009 | 5:50
Mynd 300009 Fjármálaeftirlitið hefur nú til rannsóknar hvort föllnu bankarnir; Landsbankinn, Glitnir og Kaupþing, hafi kerfisbundið reynt að halda verði eigin hlutabréfa uppi fyrir hrun bankakerfisins á síðasta ári og þannig sent misvísandi skilaboð til markaðarins, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins

Rannsóknin, sem hefur staðið yfir í nokkurn tíma og nær nokkur ár aftur í tímann, er lengst á veg komin í tilviki Kaupþings. Grunur leikur á að bankinn hafi stýrt verði á eigin hlutabréfum með því að útbúa stöðuga eftirspurn eftir bréfunum.

Rannsóknin beinist m.a. að því að kerfisbundið hafi verið reynt að hafa áhrif á verð hlutabréfanna og þar með dregin upp röng mynd af raunverulegu verðmæti, en mörg dæmi eru um lánveitingar hjá Kaupþingi til eignarhaldsfélaga þar sem lán voru nýtt til að kaupa hlutabréf í bankanum og einu veðtryggingarnar voru bréfin sjálf.

Dæmi um slíkt eru t.d. lánveitingar til Holt Investments Ltd., eignarhaldsfélags Skúla Þorvaldssonar, þar sem eini tilgangur láns virðist hafa verið hlutabréfakaup í Kaupþingi, og jafnframt lán til Kevins Stanfords. Heildarlán til Stanfords, sem var fjórði stærsti hluthafi Kaupþings, námu 374,8 milljónum evra (um 68,5 milljörðum króna). 45 prósent lánanna voru nýtt til hlutabréfakaupa í Kaupþingi og stór hluti veðtrygginga var bréfin sjálf.///Þetta er auðvitað nauðsinlegt að rannsaka vel og taka á og í gegn/en hver rannsakar FME sem var og átti að passa þetta allt,er ekki verið að þvi ????Halli gamli


mbl.is FME rannsakar allsherjar markaðsmisnotkun banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045594

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband