Ár frá hruninu/upprifjun á þvi ekki par falleg/ mjög svo umdeilt allt!!!!!

Innlent | mbl.is | 28.9.2009 | 7:14
Mynd 506309Breska dagblaðið Guardian fjallar ítarlega um stöðu Íslands í tilefni þess að senn er liðið ár frá efnahagshruninu. Rifjuð eru upp orð Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra, sem blaðið segir að hafi leitt til þess að sett voru hryðjuverkalög á Ísland

Breska dagblaðið Guardian segir að ummæli Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra, í sjónvarpsþætti fyrir tæpu ári, um að Íslendingar geti ekki og ætli ekki greiða erlendar skuldir ábyrgðarlausra manna og leggja skuldaklafa á börn sín og barnabörn, hafi verið ein ástæða þess að Alistair Darling fjármálaráðherra Bretlands beitti hryðjuverkalögum til að frysta eigur Landsbankans, stofnanda Icesave reikninganna, í Bretlandi.

Við höfum mikla samúð með þeim sem töpuðu fé á Icesave reikningum, en við getum ekki greitt meira en við getum,“ er haft eftir Ögmundi. Segir hann Íslendinga vilja standa við skuldbindingar sínar á alþjóðavettvangi, þar á meðal Icesave. „En við erum hér að tala um upphæð sem nemur helmingnum af þjóðarframleiðslu landsins,“ segir Ögmundur og tekur fram að þurfi hann að velja milli þess að standa við skuldbindingar þjóðarinnar annars vegar og vörð um almannaheill hins vegar velji hann seinni kostinn.

„Sem stjórnmálamaður á vinstri vængnum sem þarf að velja milli þess að gæta réttinda auðmanna eða þeirra sem ekkert eiga þá hef ég tilhneigingu til þess að standa með seinna hópnum. Almenningur skammast sín fyrir hvernig mál þróuðust, en eigum við að skera niður á krabbameinsdeild í Reykjavík til þess

 

Íslensk stjórnvöld hafi verið sett á sömu hillu og ráðamenn í Búrma, Norður-Kóreu sem og liðsmenn al-Kaída. Guardian fjallar um ársafmæli bankahrunsins á Íslandi, og stöðu IceSave málsins, í tveimur greinum í dag.

Að sögn blaðsins eru Íslendingar í miklum vanda. Þannig hafi landsframleiðsla þegar dregist saman um 9% í ár og gera megi ráð fyrir að hún dragist saman um 1-2% til viðbótar á næsta ári. Atvinnuleysi verði líklega 10 prósent í vetur og þeir sem haldið hafi vinnunni hafi lækkað í launum. Framundan séu skattahækkanir og niðurskurður. Bent er á að Icesave deilan sé í hnút.

Bresk og hollensk stjórnvöld gera kröfu á Íslendinga fyrir hönd innistæðueigenda Icesave-reikninganna í fyrrgreindum löndum, þeirra á meðal eru einstaklingar, sveitarfélög, góðgerðarfélög og stéttarfélög, að jafnvirði 700 milljarða króna.Haft er eftir Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, að það komi alltaf að skuldadögum. Segist hann áætla að 15-20% heimila landsins séu í alvarlegum greiðsluvanda vegna þess að lánin hafi hækkað og að þessi hópur þurfi að fá fjárhagsaðstoð.


Bæði Wall Street Journal og Bloomberg vitna í dag í nýja skýrslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þar sem hann metur eigin frammistöðu í fjármálakreppunni. Þar segir að þrjár þjóðir glími við mun meiri erfiðleika en aðrar í Evrópu og hafi þannig nokkra sérstöðu, þ.e. Lettar, Úkraínumenn og Íslendingar. Lettar vegna tengingar gjaldmiðils þeirra við evruna, sem útiloki gengisfellingu; Úkraínumenn vegna glundroða og óvissu í stjórnmálum og Íslendingar vegna gríðarlegra erlendra skulda////svona þegar þetta kemur svona frá andstæðingum okkar Bretum og Hollendingum þarna eru þetta eini réttu rökin,nei þau eru það ekki,alls ekki þetta hefði áttað fara .þannig að við ættum aldrei að borga þessar skuldir einkabanka,svo mör eru þessu  orð og ekkert meira/Halli gamli


mbl.is Guardian fjallar um hrunið á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband