Jóhanna: Þolinmæðin á þrotum/ þó fyrr hefðin verið !!!!!!

Innlent | mbl.is | 29.9.2009 | 6:36
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.Íslendingar geta ekki beðið mikið lengur eftir endurskoðun lánsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem greiða mun fyrir frekari lánveitingu, að því er haft er eftir Jóhönnu Sigurðardóttur á fréttavef Bloomberg. Hún segir endurskipulagningu bankanna og lækkun stýrivaxta í uppnámi vegna tafar

Þolinmæði Íslendinga sé því á þrotum.

Bloomberg er mikið lesinn viðskiptafréttavefur en þar segir í viðtaliÓmars R. Valdimarssonar við forsætisráðherra að frekari lánveiting frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum strandi á afgreiðslu Icesave-deilunnar við Breta og Hollendinga.

„Við vonumst enn til að lánsáætlunin verði endurskoðuð í október. Það er hins vegar ljóst að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill sjá lausn í Icesave-málinu, áður en kemur að endurskoðuninni fyrir Ísland,“ segir Jóhanna.

Hún bætir því við að lausn Icesave-málsins samkvæmt skilyrðum Alþingis hafi reynst erfiðari og tímafrekari en búist var við. Hún væntir formlegs svars frá Hollendingum og Bretum við nýju skilyrðunum innan skamms svo hægt sé að þoka málinu áfram.  

Vilja standa við skuldbindingar

Jóhanna minnir Hollendinga og Breta á að Íslendingar vilji standa við skuldbindingar sínar en að á sama tíma geti hún ekki fallist á niðurstöðu sem kallar mikla erfiðleika yfir íslensku þjóðina.

Það þjóni engum hagsmunum ef Íslendingar taka á sig meiri byrðar en þeir geta axlað.

Forsætisráðherra bendir svo á að Seðlabankinn endurskoði næst stýrivexti hinn 5. nóvember næstkomandi. Þá sé áríðandi að vextir verði lækkaðir, enda ljóst að erfitt verði að halda stöðugleika á vinnumarkaði undir jafn háu vaxtastigi.////Hvað út úr þessu kemur er ekki vist/það verður að semja aftur eða malið fari dómsleiðina,samningar standa og það er ekki annað i stöðunni/engin von á að herveldin láti sig,þau hlusta ekki á okkur!!!/Halli gamli

,

mbl.is Jóhanna: Þolinmæðin á þrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband