90% upp í forgangskröfur/set mikkla fyrirvara við þessu gjörð!!!!!!

90% upp í forgangskröfur
Viðskipti | mbl.is | 12.10.2009 | 18:16

 Skrifað hefur verið undir samkomulag á milli íslenskra stjórnvalda, skilanefndar Landsbanka Íslands og Nýja Landsbankans (NBI) um uppgjör á eignum og skuldum vegna skiptingar bankans. Skilanefndin segir að gera megi ráð fyrir að tæplega 90% fáist upp í forgangskröfur í bú gamla Landsbankans, sem eru aðallega vegna Icesave-reikninganna í Bretlandi og Hollandi.

Samkomulagið gerir ráð fyrir að NBI gefi út skuldabréf til gamla bankans að fjárhæð 260 milljarðar króna til 10 ára. Skuldabréfið er gengistryggt og tryggir Landsbankanum þannig erlenda fjármögnun. Þá er gert ráð fyrir að gefin verði út hlutabréf til gamla bankans að fjárhæð 28 milljarðar króna sem svarar til um 20% heildarhlutafjár NBI.

Skilanefnd Landsbankans segir, að með samningnum sé umtalsverðri óvissu eytt og grunnur lagður að markvissari vinnu bankans í þeim tilgangi að hámarka verðmæti eigna hans kröfuhöfum til hagsbóta. Þá megi ætla, að endurheimtuhlutfall hækki nokkuð miðað við það sem áður hefur verið gert ráð fyrir. Miðað við samninginn og það eignamat sem stuðst sé við megi gera ráð fyrir að tæplega 90% fáist upp í forgangskröfur að óbreyttu. Áætlað virði eigna sé þó háð óvissu, m.a.vegna þróunar í efnahagsmálum bæði innanlands og utan sem getur haft áhrif á framtíðarvirði undirliggjandi eigna.

Að sögn fjármálaráðuneytisins samsvarar heildarfjárhæð skuldabréfsins og hlutabréfanna mati NBI á yfirteknum eignum umfram skuldir, en er lágmarksverðmæti eignanna að mati skilanefndar og ráðgjafa hennar. Fari svo að verðmæti yfirfærðra eigna reynist meira en mat NBI gerir ráð fyrir mun bankinn gefa út viðbótarskuldabréf til gamla bankans sem gæti numið um 90 milljörðum króna en þess í stað fengi ríkissjóður áðurnefnd hlutabréf að fjárhæð 28 milljarðar til sín að miklu leyti. Lokamat verður lagt á eignirnar í árslok 2012.

Með samkomulaginu verður eignarhlutur ríkissjóðs í NBI ekki lægri en  80% en gæti orðið töluvert hærri ef efnahagsþróun reynist hagstæð fram til loka ársins 2012 sem yrði til þess að nýi bankinn gæfi út viðbótarskuldabréf.

Áætlanir gera ráð fyrir að hlutafé  NBI verði um 155 milljarðar króna og mun ríkissjóður leggja fram 127 milljarða króna í formi ríkisskuldabréfa. Áður var áætlað að ríkissjóður þyrfti að leggja fram 140 milljarða króna í hlutafé og verður fjárþörf ríkisins vegna endurreisnar Landsbankans því heldur minni en áætlað var. Um er að ræða bráðabirgðatölur en Fjármálaeftirlitið á eftir að leggja mat sitt á eiginfjárþörfina á grundvelli uppfærðra viðskiptaáætlana bankans///maður flyttu þér hægt segir maður bara ,það er ekki hægt að teysta þessu alveg að þetta gangi svona upp,allvega gerir maður það ekki sjálfur og fl. þetta útspil er það sem þeir telja lýklegt að gersit ef þetta gengur upp ,en þetta a ef er annþa´og við eigum að gempla með það,væri gott ef rétt væri en þetta ber að taka með goðum fyrirvara!!! menni finnst verð þarna að kaupa köttinn i seknum!!! það er spanna að vitað hvað kemur þarna ut þegar þetta verður rætt/Halli gamli


mbl.is 90% upp í forgangskröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er bara "lymskubragð" frá hendi Heilagrar Jóhönnu og Steingríms Joð.  Það er verið að undirbúa það að "ríkisstjórn fólksins" leggi fram "nýtt" Ices(L)ave-frumvarp fyrir þingið og það er áætlað að bæði þingið og þjóðin sætti sig frekar við Ices(L)ave ef eignir gamla Landsbankans eru hærri.

Jóhann Elíasson, 13.10.2009 kl. 11:09

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Rétt hjá ykkur alveg augljóst áróðurs bragð.

Sigurður Haraldsson, 14.10.2009 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045631

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband