Krafist efnda þjónustusamnings/alvöru mál þarna á ferð !!!!!

Krafist efnda þjónustusamnings
Innlent | mbl.is | 19.10.2009 | 9:47

SÁÁ. Lögmaður Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ) hefur sent heilbrigðisráðherra bréf þar sem þess er krafist að íslensk stjórnvöld standi við gerðan þjónustusamning og greiði SÁÁ það sem upp á vantar fullar efndir á þessu ári. Jafnframt að staðfet verði að staðið verði við samninginn til loka samningstímans, nema samið verði um annað.
Heilbrigðisráðherra lækkaði framlögin einhliða og án samráðs við SÁÁ. Hann tilkynnti samningsaðila ekki um lækkunina og hefur ekki gert honum grein fyrir því með hvaða lagaheimild hann telji sig geta vanefnt samninginn að þessu leyti. Umbj. m. telur heilbrigðisráðherra ekki hafa neina heimild að lögum eða samkvæmt samningi til að breyta þjónustusamningi aðila einhliða á þann hátt sem lýst er að framan,“ segir í bréfi Ragnars Aðalsteinssonar lögmanns.

Umsamin framlög á árinu 2009 lækkuðu um 3,4% og boðuð hefur verið 6-7% lækkun á næsta ári.

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, hefur m.a. sagt að til að ná fyrirhuguðum sparnaði, sem þarf að vera um 100 milljónir króna, er ekki nóg að minnka umsvifin almennt heldur verði að leggja niður meðferðardeildir á Vogi eða meðferðarþætti.

„Flatur niðurskurður sem bitnar á Vogi er ósanngjarn þar sem SÁÁ hefur þegar sparað og tekur verulega þátt í að minnka kostnað ríkisins. Flatur niðurskurður er líka óviturlegu þegar hann minkar þjónustu sem sannanlega mun auka kostnað miklu meira en sparast á öðrum sjúkrahúsum. Það er að öllum líkindum ólöglegt að rifta þjónustusamningum einhliða til að ná fram flötum niðurskurði,“ segir í pistli Þórarins á///þetta er alvöru mál fyrir okkar þjóðfélag,það er oft verið að tala þetta niður!!því miður en þeir sem hætta og gerst nytir og beri menn er gróði þjóðfélagsins og svo maður tali nú ekki um viðkomandi og fjölskyldur þeirra,það er mikið sem þetta hefur verið millum tanna á fólki að þetta skili ekki þeim árangri sem skyldi,en þetta hefur samt borið mjög skilvirkum árangri ,þó oft þurfi að endurtaka leikin,nokkuð oft,það er þetta þessa virði að áliti flestra,þetta er sjúkdómur  og hann slæmur ,það þýðir ekki að vera ávalt að deila um það/Halli gamli


mbl.is Krafist efnda þjónustusamnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045572

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband