Áform um orkuskatt endurskoðuð/hvað þíðir það???????

Áform um orkuskatt endurskoðuð
Innlent | mbl.is | 28.10.2009 | 15:22

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon.Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa fyrir hönd ríkisstjórnarinnar sent frá sér yfirlýsingu um framgang stöðugleikasáttmálans frá 25. júní sl. Kemur þar meðal annars fram, að áform um nýja skatta, sem tengjast orku-, auðlinda- og umhverfismálum, verði tekin til endurskoðunar.
 í Mey sjstað þeirrar skattheimtu sé að hluta til horft til þess að atvinnulífið taki á sig nauðsynlega hækkun á atvinnutryggingagjaldi eða aðra skattheimtu til að afla sömu heildarskatttekna.

Þá kemur fram, að ríkisstjórnin standi við fyrri heit sín um að greiða götu þegar ákveðinna og áformaðra stórframkvæmda á Suðurnesjum og í Straumsvík. Auk þess sé unnið að útboðum ýmissa vegaframkvæmda, viðhaldsverkefna og hafnaframkvæmda á vegum ríkisins.

Kapp verði lagt á atvinnusköpun og að greiða fyrir fjárfestingum í atvinnulífinu. Stjórnvöld muni hraða  úrvinnslu mála sem tengjast þegar ákveðnum og fyrirhuguðum stórframkvæmdum eftir því sem efni máls og lögbundnir lágmarkstímafrestir leyfi. Ríkisstjórninni sé ljóst, að mikilvægar ákvarðanir hjá viðkomandi fyrirtækjum um stórframkvæmdir séu framundan fyrir lok nóvembermánaðar.

Í yfirlýsinginni segir einnig, að engin breyting hafi orðið varðandi þann sáttafarveg sem endurskoðun fiskveiðistjórnunarinnar hafi verið sett í með skipun nefndar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í sumar, þar sem forsenda nefndarstarfsins sé að skapa sjávarútveginum góð rekstrarskilyrði til langs tíma.

Samtök atvinnulífsins hafa m.a. krafist þess að áform um fyrningar aflaheimilda og endurúthlutun þeirra verði lögð á hilluna.

Í yfirlýsingu oddvita stjórnarflokkanna segir, að gerð stöðugleikasáttmálans síðastliðið vor hafi verið sögulegur og sameiginlegur áfangi til að hefja endurreisn efnahagslífsins og auka tiltrú þjóðarinnar á framtíðina. Það sem þegar hafi áunnist við framfylgd sáttmálans gefi ótvírætt til kynna að það sé þjóðarnauðsyn að halda því verki áfram.  Þrátt fyrir skamman tíma og óvenjulegt ástand í þjóðfélaginu hafi árangur náðst á fjölmörgum sviðum frá því skrifað var undir sáttmálann í júní.//"mey skal að morgni lofa " segir maltækið ,það er nú það hvað felst i þessu að endurskoða,við erum að vona hið besta með það,að þeir  falli frá þessum umkverfisköttum,einnig að taka þessi sáafarútvegsmál alveg í  gegn svo flestir verði sáttir/einnig að farmkvæma i réttum forgangi eitthvað sem skilar okkur arði en ekki einhverja bruðl menningu sem við getum gert þegar betur árar/en skoðum málin og spyrjum að leikslokum/Halli gamli


mbl.is Áform um orkuskatt endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 1045625

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband