Icesave afgreitt út úr nefnd/það er verið að nauðga réttlætinu !!!!!

Icesave afgreitt út úr nefnd
Innlent | mbl.is | 16.11.2009 | 20:13

Frá fundi fjárlaganefndar. Mynd úr safni.Fjárlaganefnd Alþingis hefur samþykkt frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinga og afgreitt málið út úr nefndinni. Frumvarpið verður því tekið til annarrar umræðu á Alþingi á næstu dögum. Fjárlaganefnd kom saman til fundar til 19 í kvöld og lauk fundinum um kl. 20.
Þetta var afgreitt með [6] atkvæðum meirihlutans gegn [5] atkvæðum minnihlutans,“segir Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar, í samtali við mbl.is.

Hann segir að stjórnarflokkarnir séu samstíga í málinu. „Meirihlutinn gerir ekki breytingar við frumvarpið eins og það er lagt fram og telur það vel ásættanlegt í því formi sem það er. Og hvetur til þess að það verði afgreitt sem slíkt,“ segir hann.

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins sem á sæti í nefndinni, segir að málið hafi verið samþykkt í miklum ágreiningi. Hann segir að minnihlutinn hafi verið mjög ósáttur við að þetta skyldi vera gert núna. 

„Við í minnihlutanum fórum fram á það að álit efnahags- og skattanefndar yrðu rætt í fjárlaganefnd,“ segir Höskuldur. Hann segist jafnframt hafa óskað eftir því að málið í heild yrði rætt í fjárlaganefnd, því nefndin hafi aldrei sest niður til að fara yfir efnahagsfyrirvarana. 

Ásmundur Einar Daðason, Björn Valur Gíslason, Guðbjartur Hannesson, sem er formaður nefndarinnar, Oddný G. Harðardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Þuríður Backman samþykktu ríkisábyrgðina.

Ásbjörn Óttarsson, Höskuldur Þórhallsson, Kristján Þór Júlíusson, Ólöf Nordal og Þór Saari greiddu atkvæði gegn ábyrgðinni.///það er verið að nauðga réttlætinu þarna við þessar samþykktir/þessi nöfn prentast vel sem samþykktu þetta inni huga mans og skriftir!!!sesstaklega Ásmundar og Sigmundar sem maður helt að hefði sjálfstæðar skoðanir ,en lengi skal manninn reyna/þetta er i raun ófyrirgefanlegt að gera þetta og samviskulaust að mínu áliti/Halli gamli


mbl.is Icesave afgreitt út úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég hef aldrei ritað á þína síðu fyrr. Ég hef ekki þrek í bráð að skrifa á eigið .,því tölvurellan er svo þunglamaleg. En það á að mótmæla á  Austuvelli kl 13.30.  Þeir rumpa öllu af,taka ekkert tillit til meirihluta þjóðarinnar,þeir eru orðnir handgengnir bákninu í austri.

Helga Kristjánsdóttir, 17.11.2009 kl. 04:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 1045626

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband