Hvað sagði amma um Icesave?/Jóhanna og Steingrímur við erum ábyrg!!!!

Hvað sagði amma um Icesave?
Innlent | mbl.is | 28.11.2009 | 16:33

Icesave-málið hefur verið rætt á þingi í allan dag.Ragnheiður Elín Árnadóttir alþingismaður sagði að gera ætti þá kröfu til stjórnarþingmanna að þeir útskýrðu afstöðu sína til Icesave-málsins. Þeir ættu að gera það fyrir börn sín og barnabörn.

Ragnheiður Elín sagði að málið væri það stórt að menn ættu að útskýra afstöðu sína, þó ekki væri nema fyrir barnabörnin sín. "Amma þú varst á þingi þegar Icesave-málið leyst. Hvaða sagðir þú? Það væri pínlegt ef maður segði við barnabörnin sín. "Æ, ég hafði bara ekkert um þetta mál að segja,"" sagði Ragnheiður í ræðu sinni.

Fimmtán þingmenn eru enn á mælendaskrá um Icesave-málið, en það hefur verið rætt í allan dag á Alþingi. Einungis þingmenn stjórnarandstöðunnar eru á mælendaskrá.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, lauk ræðu sinni um kl. 16. Hann sagði þegar forseti þingsins hafði slegið í bjölluna til merkis um að ræðutíminn væri liðinn, að hann hefði ekki náð að ljúka yfirferð sinni yfir málið og óskaði eftir að hann yrði settur aftur á mælendaskrá.

Eftir að Sigurður hafði lokið ræðu sinni kom Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, upp í andsvör og spurði Sigurð m.a. hvað hann teldi ráða afstöðu þingmanna Vinstri grænna til frumvarpsins um Icesave.

Sigurður sagðist telja að afstaða þingmanna Samfylkingar væri tengd afstöðu þeirra til aðildar að Evrópusambandsins. Erfiðara væri að átta sig á afstöðu þingmanna VG. Hann skoraði á þingmenn flokksins að útskýra afstöðu sína til málsins////mælirinn er löngu orðin fullur hjá þessu skötuhjúum Jóhönnu og Steingrími og c/o ,þetta er komið i sögubækur!!!! og það ljótt ef samþykkt verður,er hægt að komast lengra i glæpnum ,nei segjum við,sem eru ekkert að skafa heldur utan af því sem komu okkur i þetta,þeir eiga það skilið að taka afleiðingunum og það verður einnig vonandi gert,hvar i flokki sem þeir standa,engin greinamunur á því,við eigum ekki að borga skuldir óreiðumenna eins og maður hefur alltaf sagt,annað er ekki lögum samkvæmt/Halli gamli


mbl.is Hvað sagði amma um Icesave?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband