Stjórnarskrárfrumvarpið lagt fram////Þetta feigðarflan skal reynt !!!!!

Stjórnarskrárfrumvarpið lagt fram Innlent | mbl.is | 16.11.2012 | 17:37 Frumvarp til stjórnskipunarlaga byggt á tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá var formlega lagt fram á Alþingi í dag og er nú komið inn á vef þingsins, en eins og fram hefur komið er stefnt að því að frumvarpið verði tekið til efnislegrar umfjöllunar á Alþingi í næstu viku. og standa vonir stjórnarmeirihlutans til þess að hægt verði að klára fyrstu umræðu um málið fyrir jól.

Þá er stefnt að því að frumvarpið verði afgreitt sem lög frá Alþingi fyrir lok þessa þings í vor og að ný stjórnarskrá taki gildi að loknum næstu kosningum með samþykkti nýkjörins þings í samræmi við núgildandi stjórnarskrá.

Óvíst er hvort sú tímaáætlun eigi eftir að standast þar sem málið er bæði mjög umdeilt innan Alþingis auk þess sem frumvarpið hefur verið alvarlega gagnrýnt af ýmsum sérfræðingum sem hafa tjáð sig um það að undanförnu.//////////þetta er svona að þessu skal komið í verk hvað sem tautar og raular,ég skil þetta ekki,þessar kosningar voru þær furðulegustu sem fram hafa farið í að ég held heiminum i frjálsu ríki,það er svo að þetta er búið að að valda okkur sköm og ekkert annað,og þessir sem fylgja þvi mest eftir eru efrópusinnar og ekkert annað,þessu verður lengi í mynnum haft þegar það er um garð gengið,og fellt,þvi það er næsta víst ,allavega næsta Alþingi og ríkisstjórn gerir og  það ekki spurning,þetta er feiðarflan!!!/Halli gamli


mbl.is Stjórnarskrárfrumvarpið lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frestar atkvæðagreiðslu um verkbann/Auðvitað þarf að endurskoða skiptaregluna!!!

Frestar Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ.atkvæðagreiðslu um verkbann Innlent | mbl.is | 16.11.2012 | 14:22 Stjórn LÍÚ ákvað á fundi sínum í dagað fresta atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um verkbann í kjaradeilu útvegsmenna og sjómanna.

Fram kemur í tilkynningu frá LÍÚ, að viðræður hjá ríkissáttasemjara um nýjan kjarasamning hafi verið árangurslausar.

Þann 5. nóvember samþykkti stjórn Samtaka atvinnulífsins að atkvæðagreiðsla um boðun verkbanns færi fram. Það hafi verið gert í samræmi við samþykkt aðalfundar LÍÚ að ef samningar um endurskoðun kjarasamnings útvegsmanna og sjómanna næðust ekki skyldi efnt til slíkrar atkvæðagreiðslu.

„Það er mjög afdrífaríkt skref að fara í verkbann. Á sama tíma og mikill efnahagssamdráttur er í mörgum viðskiptalöndum okkar fyrir sjávarafurðir er framboð frá helstu samkeppnisþjóðum okkar að aukast verulega.

Staðan á mörkuðum er því óvenjuviðkvæm um þessar mundir,“ segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í tilkynningunni.

Þá segir að Adolf ítreki að um frestun sé að ræða. „Því miður kann verkbann að vera óumflýjanlegt síðar. Ekki verður komist hjá því að endurskoða tekjuskiptinguna á milli útvegsmanna og sjómanna og margföldun veiðigjaldsins er kornið sem fyllti mælinn,“ segir Adolf ennfremur.

Fram kemur í tilkynningunni, að útgerðarmenn og sjómenn deili kjörum í hlutaskiptakerfi þar sem laun og launatengd gjöld vegna sjómanna séu tæp 40% að meðaltali.

„Þegar samið er um hlutfallsskiptingu af 100 krónum og ríkið tekur 15 er ljóst að þeir sem eftir sitja þurfa að skipta 85 krónum en ekki 100. Hvaða fyrirtæki eða heimili sem er þyrfti að grípa til ráðstafana ef tekjur þeirra lækka skyndilega um 15% og það sama á við um útgerðarfyrirtæki,“ segir Adolf að lokum í tilkynningunni./////////////Enn og aftur, eru útgerðamenn settir upp við vegg að mínu mati!!Það er þessi ríkisstjórn situr sem varðar ekkert um þjóðarhag bara sprengja allt upp!!!Þetta mál er auðunnið að taka á og þar er skattmann manna grimmastur ekki spurning!! en þeir sem alltaf eru að tala um stærstu fyrirtækin i útgerð það sem gróðin er einhver,verða einnig að tala um þau mynni,sem berhast i bökkum jafnvek undan skuldum sem hækkuðu hjá öllum bæði til sjós og lands,það er svo að það er alið á að allir útgerðamen séu þjófar og bóvar,og þessu er stymlað inn í fólkið,og það trúir þessu!!þetta er ekki rétt auðvitða hafa alltaf verið í öllu menn sem hafa verið að réttu megin við lögin en það er þvi miður til alstaðar,en það er ekki heildin ,þetta eru bara flestir grandvarir menn sem vilja gera allt rétt!! svo kemur að þvi að þjóðfégið þolir ekki stoppið og þar verða menn að landa þessu en það gerir ríkkistjórnin ekki,hvað varðar henni og þessu fólki sem vill bylta þessu öllu, um þjóðarhag engu sínist manni,en útgerðamenn eru þarna að gera það,og samt sjá allir að þessi skipti eru komin úr böndum!!!/Halli gamli

 


mbl.is Frestar atkvæðagreiðslu um verkbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víkur- og Hólahverfi lækkað mest í verði/ég mótmæli þessu það er Breiðholtið,sem sett er niður alla daga!!!

Víkur- oÍbúðaverð hefur lækkað um 2-16% í Reykjavík og nágrenni síðan 2008.g Hólahverfi lækkað mest í verði Viðskipti | mbl.is | 16.11.2012 | 14:13 Fermetraverð í fjölbýli hefur lækkað um 2 til 16% á höfuðborgarsvæðinu síðan 2008, en mest lækkun er í Víkur- og Hólahverfi.

Miðbærinn er ekki lengur dýrastur, heldur er Haga- og Melahverfið dýrast, auk þess sem verð í Sjálandi í Garðabæ og á Seltjarnarnesi er einnig hærra en í miðbænum.

Þetta kemur fram í tölum sem hagfræðideild Landsbankans birtir í dag.

Í hagsjá bankans segir að um miðjan síðasta áratug hafi allt verið á fleygiferð á fasteignamarkaði á Íslandi.

Í kjölfar kosninganna 2003, með loforðum um 90% húsnæðislán, innkomu bankanna á húsnæðislánamarkaðinn og mikilli samkeppni af hálfu Íbúðalánasjóðs, jókst velta á markaðnum mikið, verð hækkaði og byggingastarfsemi jókst mikið.

Á þessum tíma var líka mikil umræða um þéttingu byggðar og uppbyggingu miðborgarinnar. Einnig varð veruleg uppbygging í úthverfum höfuðborgarsvæðisins. Verðmunur á milli dýrustu og ódýrustu hverfanna jókst á milli 2005 og 2007.

Árið 2008 tók sá munur að minnka, m.a. vegna fyrirsjáanlegs samdráttar í efnahagslífinu og mikils umframframboðs á húsnæði. Árið 2008 var verð hæst í miðborginni, en þegar komið er fram til ársins 2011 hefur miðborginni verið velt úr sessi sem dýrasta hverfinu. Árið 2011 var verðið hæst í Mela- og Hagahverfi, í Sjálandi í Garðabæ og á Seltjarnarnesi.

Verðið var lægst í Breiðholtshverfunum og Vöngum og Álfaskeiði í Hafnarfirði. Að Sjálandi undanskildu er greinilegt að hæsta fermetraverðið er í gömlum og grónum hverfum í Reykjavík, hið sama má segja um Seltjarnarnes. Hagfræðideildin segir að þegar litið sé á breytingu á verði milli áranna 2008 og 2011 sjáist að verð hefur lækkað í öllum hverfum.

Verðlækkunin er á bilinu 2-16%, en meðalverðlækkunin í öllum hverfunum er 10%. Verðið var hæst í miðborginni á árinu 2008, en verðið þar gaf töluvert eftir og lækkaði um 13% fram til ársloka 2011.

Verðlækkunin var minnst á Seltjarnarnesi, þar lækkaði verð einungis um 2%, þar á eftir komu Teigar og Tún og Grandar með 3% lækkun. Mesta verðlækkunin var í Víkurhverfi, en þar á eftir komu Hólar, Hraunbær og Vogar./////////////Svona er endalaust hægt ,að leika sér að tölum en við, sem eigum heima hér í Breiðholti förum ekki frá þvi að þessar tölur segja ekki allt,við vitum að leynt og ljóst er verið að tala þessi hverfi hér í Breiðholti niður og það hefur áhrif og það mikil,við fylgjumst vel með þessu eldri borgara sem langar til að skipta en getum ekki selt fyrir mynni íbúðir annasrsatðar,svo eigum við auðvitað að borga fasteygnaskatt eftir þessi tölum en það i liggur svidlið það á ekki að vera fyrst þetta er svona sem staðreynd!!!/Halli gamli


mbl.is Víkur- og Hólahverfi lækkað mest í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það skal gera þetta og hitt fyrir kosningar eða hvað,er bara nokkuð að marka þetta,er ekki hægt að stoppa þessa vitleysu??

Það sem á að gera núna ,á þessu síðasta setu þessa Alþingis í næstu mánuðum er ekki í lagi!!ég segir það hiklaust!! með þessum litla meirihluta á að keyra allt í gegn Stjórnaskrá + Ramaáættlun og Fiskveiðistjórunun og útgerð og svo á seðlabanki að koma okkur endanlega á hausinn,sé ekkert annað í stöðunni,ef þetta gengur alltí gegn er allt til fjandans farið!!Að mínu mati og næsta stjórn hver sem hin verður verður að vinda ofan af þessu!!ég og flestir með einhverju viti skiljum ekki svona vaðal,stoppið þetta bara ekkert annað að gera/Halli gamli

Ástandið sérstaklega slæmt í október//Spara spara það er málið er .það ekki???

Ástandið 165 milljóna kr. halli er á rekstri LSH fyrstu 10 mánuði...sérstaklega slæmt í október Innlent | mbl.is | 16.11.2012 | 11:00 Landspítalinn hefur verið undir miklu álagi að undanförnu en ástandið var sérstaklega slæmt í október.

„Þann mánuð fór rúmanýting á spítalanum upp í 93% sem er of mikið þar sem við þurfum að geta tekist á við sveiflur í veikindum og slysum,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans.

Björn fjallar um stöðu sjúkrahússins í vikulegum pistli sem er að finna á vef LSH.

Fram kemur að komum á bráðamóttöku kvennadeilda Landspítala hafi fjölgað um 6,9% fyrstu tíu mánuði ársins 2012, komum á bráðamóttöku geðdeilda um 6,6%, komum á Hjartagátt um 8% og komum á bráðadeildina í Fossvogi um 1,9%.

Legudögum á spítalanum hafi fjölgað og meðallegutími lengst. Björn Zoëga, forstjóri LSH. mbl.is/Árni Sæberg „Helstu tölur fyrir Landspítala fyrstu tíu mánuði ársins liggja nú fyrir.

Það kemur í ljós, eins og ég hef áður sagt, að mjög mikið hefur verið að gera á spítalanum allt árið þó að það hafi verið sérlega slæmt síðastliðinn mánuð.

Þann mánuð fór rúmanýting á spítalanum upp í 93% sem er of mikið þar sem við þurfum að geta tekist á við sveiflur í veikindum og slysum.

Það hefur verið töluvert um gangainnlagnir, eins og minnst var á síðastliðinn föstudag, og þó að við höfum fundið fyrir þeim allt árið þá hefur keyrt um þverbak síðustu tvo mánuði. Við höfum engar snöggar lausnir á því máli en verið er að vinna að mörgum atriðum til þess að leysa þann vanda,“ skrifar Björn. 165 milljóna króna halli á rekstrinum „Það kemur í ljós að fyrstu tíu mánuði ársins hefur komum á bráðamóttökur okkar fjölgað um meira en 2%.

Til dæmis hefur komum á bráðamóttöku kvennadeilda fjölgað um 6,9%, komum á bráðamóttöku geðdeilda um 6,6%, komum á Hjartagátt um 8% og komum á bráðadeildina í Fossvogi um 1,9%.

Það sem einnig kemur í ljós í helstu tölum um starfsemi spítalans er að legudögum hefur fjölgað (+1,8%) og meðallegutími hefur lengst um 2,7%. Hann er nú 7,1 dagur,“ skrifar Björn ennfremur. Þá segir hann, að samkvæmt bráðabirgðauppgjöri spítalans fyrir fyrstu tíu mánuði ársins „þá erum við nú 165 milljónir í mínus fyrir árið.

Er það mest vegna viðhalds og bráðakaupa á tækjum en einnig vegna mikils álags á legudeildir og þar af leiðandi aukins launakostnaðar.

Í tillögum ríkisstjórnarinnar og meirihluta fjárlaganefndar til breytinga á fjáraukalögum fyrir árið 2012 er framlag til tækjakaupa spítalans aukið um 150 milljónir, eins og ég hefur áður nefnt.

Það mun aðstoða okkur við að ná spítalanum á rétt ról aftur auk þess sem við getum styrkt tækjakost spítalans að einhverju leyti síðustu vikur ársins.

Útkomuspár okkar fyrir árið 2012 benda til þess að við munum verða réttu megin við strikið í lok árs en það verður auðvitað hörð barátta að ná því markmiði, þriðja árið í röð.“///////////Er þetta það sem við viljum sætta okkur við að kera niður miskunnarlaust í heilsugeiranum!! þetta er löngi komið að þolmörkum og manni dettur i hug að þetta sé gert með vitund um að þetta reki á eftir nyjum spítala,sitt sýnist hverjum um það og hann er ekki komin strax,og þaðer nokkur ár í það!! en þetta er merkilegt að þreita stafsfólkið dag eftir dag og hæla sér svo að sparnaði,hvar endar þetta?? það er svo að ef fólk væri ekki verleikafyrt að þetta verður að laga,og það ekki seinan en strax,það má laga til og kaupa tæki þau eru þá notuð i nýrri spítala þegar og ef hann verður byggður,það hafa komið svo margar útgáfur af þvi að það hálfa væri nóg,á meðan deyja fjöldi mans af þessa völdum ef þetta verður látið drabbast svona!!En ef þarna á spítalin að vera er hægt að hafa hann bara á lóðinni sem fyrir er ekki spurning byrja á þvi sem fyrst að stækka og byggja þarna uppá hæðir ekki flatt og dreypt,og áð tekur bara sin  tíma og þessa vegna verður að flíta þvi að nota þau sjúkrahús sem til eru til langlegu Hafnafjörður Vifilstaðir og Landakotspítali og fleiri húsnæði!!!Engin þarf að segja manni sem hefur legið á spítala einhvern tíma að það má,að þessar stærri einingar og séu betri als ekki ,það er kannski ódyrara ,en verður bara svo ómannúðlegt að mínu mati,læknar margir eru þarna ekki á sama máli,og það er sama sagan og með okkur sjúklingana,við viljum hlýju og góða aðhlyningu, og lækna sem hjúkrunarfólk ,sem ann sýnu starfi en er ekki haft sem vinnudýr!!!!/Halli gamli


mbl.is Ástandið sérstaklega slæmt í október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Mark Zlatans ekki fyrir meðalmanninn//þetta það flottasta ever!!!

Wenger: Mark Zlatans ekki fyrir meðalmanninn Íþróttir | mbl.is | 16.11.2012 | 9:41 Arsene Wenger, kWenger fannst markið töluvert flottara en Drillo.nattspyrnustjóri Arsenal, segir að aðeins framúrskandi íþróttamenn geti skorað mörk á borð við hið ótrúlega mark sem Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði gegn Englandi á miðvikudaginn.

„Ég held við séum öll dolfallin,“ segir Frakkinn á heimasíðu Arsenal en Zlatan fór á kostum í leiknum og skoraði fjögur mörk.

„Stundum þegar leikmaður þrumar boltanum í samskeytin af 30 metra færi segja menn að það sé frábært mark.

En einhvernveginn heldur maður að maður sjálfur geti skorað þannig mark, þó ekki reglulega.“

„En svona mark skorar ekki hvaða meðalíþróttamaður sem er. Þú þarft að vera framúrskandi íþróttamaður til að skora svona mark,“ segir Arsene Wenger.///////////Ég held að allir geti verið sammála um þetta,þó Fífa sé það ekki!!þetta er í einu orði frábært!!!og við sjáum þetta ekki gert á næstunni??en við knattspyruaðdáendur erum í skíunum!!/Halli gamli


mbl.is Wenger: Mark Zlatans ekki fyrir meðalmanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kirkjan þjónusti ferðafólk/Hvaða vitleysa er þetta,er hún ekki að berjast í bökkum!!

KirkjaKirkjuþingið er haldið í Grensáskirkju í Reykjavík.n þjónusti ferðafólk Innlent | mbl.is | 15.11.2012 | 22:30 Fjármál þjóðkirkjunnar voru talsvert til umræðu á Kirkjuþingi sem staðið hefur yfir í Grensáskirkju frá laugardegi.

Nokkrar tillögur lágu varðandi fjármál og var meðal annars samþykkt að aðstoða kirkjur sem vilja finna leiðir til að afla frekari fjár, til dæmis í tengslum við þjónustu við ferðafólk. Alls hafa 43 þingmál verð lögð fyrir kirkjuþing sem er það 49. í röðinni.

Meðal annars var samþykkt var að sameina tvö prestaköll á Vestfjörðum, Patreksfjarðarprestakall og Tálknafjarðar- og Bíldudalsprestakall.

Heiti hins sameinaða prestakalls verður Patreksfjarðarprestakall. Sameiningin tekur gildi 1. janúar 2013 Þá var samþykkt að kynna tillögu að sameiningu Garða- og Saurbæjarprestakalla, Vesturlandsprófastsdæmi. Akranes er í Garðaprestakalli.

Ekki var kveðið á um gildistöku. Af öðrum skipulagsmálum má nefna tillögur um stórfelldar breytingar á skipan prestakalla á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal sameiningar fjölmennra prestakalla.

Því máli var vísað til kirkjuráðs til frekari skoðunar. Tillaga um sameiningu prófastsdæma á höfuðborgarsvæðinu verður send í hérað og aflað umsagna.

Af öðrum málum sem fyrir lágu voru tillaga um að færa Þorláksbúð. Hún var felld. Fyrir þinginu lá einnig tillaga varðandi miðaldadómkirkju í Skálholti.

Kirkjuþing hvatti til þess að deiliskipulagsvinnu í Skálholti yrði haldið áfram og mikilvægt væri að skuldbinda kirkjuna ekki með nokkrum hætti nema eftir víðtæka kynningu og sátt.

Ef af slíkri byggingu yrði væri mikilvægt að ásýnd staðarins og andblær haldist og að rekstrarlegur ávinningur staðarins verði tryggður. Þinghlé var svo gert á störfum kirkjuþings í kvöld. Það kemur saman að nýju á næstu mánuðum.///////////Það er ekki verið að lítilsvirða Kirkjuna né þjóna hennar með því að spara þarna,það er kreppa og við eigum að þjappa okkur saman og vera,góð við þá sem mynna hafa og þar inn er ágætt að hafa kirkjunar menn,en þessi yfirbygging Kirkjunnar má hvarfa að skaðlausu ,við verðum ekkert trúaðri fyrir það ,eins að  sameina prestaköll mikið meira!! og svo er eitt aðalmálið að ganga frá þessu með Ríkið og Kirkjuna !!og hækka bara sóknargjöldin og lofa þeim að reka þetta sjálfum,það í liggur hundurinn grafin!!!svo þegar og ef við náum okkar upp úr þessum áföllum!! er það auðvitað hægt að fela Kirkjunni ýmis góðgerða störf og þá höfum við meiri pening til að borga sóknargjöldin öll,eins og við gerum í Fríkirkjunum!! En þetta kirkjuþing er ágætt og getur starfað þótt ríkið borgi þetta ekki!!!Ef maður talar um þetta mál er maður miskylin og sagt að maður sé ekki kristinn að tala svona!!Það er ekki rétta ég met þetta fólk flest mikils og störf þess,en við eigum ekki að vera hrædd við breytingar þarna,láta þetta bara fara með i næstu kosningum aðskilnaðin,söfnuðurin má heita þjóðkirkja fyrir það/Halli gamli


mbl.is Kirkjan þjónusti ferðafólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálka á höfuðborgarsvæðinu//Farið varlega gangandi og akandi!!!

HálkaHálka er á höfuðborgarsvæðinu. á höfuðborgarsvæðinu Innlent | mbl.is | 15.11.2012 | 21:59 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við éljagangi á suðvesturhorni landsins í kvöld og nótt ásamt því sem hiti fer undir frostmark.

Við þær aðstæður myndast mikil hálka á vegum og þykir vert að vera ökumenn við henni, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Víða er skafrenningur norðan- og norðaustanlands og blint, einkum á fjallvegum.

Veður fer kólnandi einkum um vestanvert landið og hálka myndast þegar frystir aftur, fyrst á Vestfjörðum. Víða er éljagangur á Suður- og Suðvesturlandi. Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum - og hálka eða hálkublettir austur eftir Suðurlandi.

Eins eru hálkublettir á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesbraut. Á Suðurnesjum er sumstaðar töluverð hálka.

Nokkur hálka er Vesturlandi, einkum við Faxaflóa, hálka er m.a. í Borgarfirði, á Bröttubrekku og Fróðárheiði en hálkublettir á Holtavörðuheiði og víðar.

Á Vestfjörðum er víða hálka. Hálkublettir eða hálka er víða á Norðurlandi, einkum austan til. Á Öxnadalsheiði er snjóþekja og skafrenningur.

Laxá í Aðaldal flæðir inn á veg við Garðsnúp og eru vegfarendur beðnir að sýna þar varúð. Á Austurlandi er hált á flestum vegum norðan Reyðarfjarðar en frá Reyðarfirði er autt með ströndinni suður um. Breiðdalsheiði og Öxi eru ófærar.

Á Suðausturlandi eru hálkublettir eða jafnvel hálka frá Skeiðarársandi og vestur í Vík.////////Vetur konungur er að taka völdin og við bara tökum þvi,við höfum sloppið vel hér sunnanlands og það kemur nú aðeins snjókorn og frost um helgina,sem betur fer ekki ein og fyrir Vestan  Norðan og Austan,,en samt allur er varin góður og við,bara tökum mark á veðurspám!!!!/Halli gamli


mbl.is Hálka á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deilan enn í hnút/Þessi deila er ekki um kvótakerfið,ef menn vilja skilja það!!

Deilan enMynd 595789n í hnút Innlent | mbl | 15.11.2012 | 15:32 Enginn árangur varð af fundi sjómanna og útgerðarmanna hjá ríkissáttasemjara í morgun.

Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir mikið bera á milli og er uggandi vegna kjaradeilunnar.

Í sama streng tekur Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannafélagsins. Á morgun mun stjórn Landssambands íslenskra útgerðarmanna, LÍÚ, fjalla um verkbann á sjómenn, en á aðalfundi LÍÚ í síðasta mánuði var samþykkt að ef ekki tækjust samningar um skiptingu aflaverðmætis á milli sjómanna og útgerðar, skyldi efnt til atkvæðagreiðslu.

Ástandið skýrist á morgun „Þarna kom nákvæmlega ekkert nýtt fram og ástandið er óbreytt. Menn ítrekuðu kröfur sínar en töluðu annars ekkert saman. Mín skoðun er sú að þessi fundur hafi verið haldinn að undirlagi sáttasemjara vegna þess að honum ber skylda til þess,“ segir Sævar.

„Kröfurnar standa og engar hreyfingar á því. Ástandið skýrist ekkert fyrr en á morgun, þegar LÍÚ fundar og ákveður með þessar aðgerðir sem búið er að boða.“ Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands

. Sverrir Vilhelmsson „Þetta var stuttur fundur og skilaði engri niðurstöðu. Við höfum ekki ákveðið annan fund,“ segir Friðrik. Grafalvarlegt ástand „Það ber mikið á milli. Við höfum farið þess á leit að það verði tekið tillit til margföldunar á veiðigjöldum sem hafa verið lögð á með þessum nýju lögum.

Núna tekur ríkið stóran hluta af aflaverðmætinu og það er varla hægt að ætlast til þess að við borgum laun samkvæmt hlutaskiptakerfinu af tekjum sem við ekki höfum,“ segir Friðrik.

„Þetta er að okkar sjónarhóli stærsta málið í þessu öllu.“ Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. mbl.is „Við höfum áhyggjur af ástandinu.

Það er grafalvarlegt, það er alveg augljóst,“ segir Friðrik. „Auðvitað hef ég áhyggjur, ég held að það gildi um alla sem málið varðar og málið þekkja,“ segir Sævar.

„Það er alveg sama hvort það er verkfall af okkar hálfu eða verkbann útgerðarmanna, þetta er stór aðgerð og getur verið afdrifarík, bæði fyrir greinina og þjóðina.“////////////////Það er svo þegar menn deila er reynt að semja,það byrjað þetta þras á sjómnnafslættinum,sem tekin var af í áföngum,og sjómenn ekki sáttir við,en skattmann ekki!!svo kemur aðvitað vegna hækkunar á öllu viðkomandi útgerð hefur hækkð mikið,og olían þó mest,svo útgrðamenn vilja breyta skiptareglunni eitthvað,en þarna er aðvitað happafengur þeirra!! sem vilja bylta öllum veiðum og útgerðum,semsagt taka veiðiheimildir og fá að láta nyjliða veiða fiskin á þessi breyting að taka einkver x ár ,þetta er búið að innprenta fólki að við getum,þvi við öll eigum auðlindina!!sem við eigum,engin á móti því !! en það eru til eins og er nóg skip til að veiða þetta,og útgerðir skulda,bara eins og flest fyritæki og einstaklingar eftir kreppuna,þegar allt hækkaði um40-50% samt er það svo að ef þetta nýja fiskveiðifrumvarp verður að veruleika ,fer þetta allt meira og mynna á hausinn og hver borgar þá launin,byrja bara á 0 uppá nýtt eða hvað??það er svo önnur saga að ýmislegt má lagfæra,ekki spurning!!og það verður gert,en ekki með þessum aðferðum að semja ekki!!!////Halli gamli


mbl.is Deilan enn í hnút
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur stór ráðherra telur sig ómissandi,sagði þetta í fréttum í dag!!!

Þó svo manni bregði oft,gerðst það vel í hádegi í dag,er Steingrímur var að lýsa endurkomu sínu í framboð í sýnu kjördæmi norðaustur,það hafði kvarlað að honum að hætta!! fyrst Jóhanna fosætisráðherra ættlað að gera það!!en fór að endurskoða þetta og fann að engin gæti þetta nema hann!!sagði það reyndar öðruvísi,að engin gæti skylað þessu verki sem þau höfðu unnið,nema hann ,engin annar hefði slíka reynslu og færni til þessa!!og þar með fer hann í framboð til að bjarga landinu okkar blessaður karlinn saðist vera með hestaheilsu og í góðu standi!!ég er en að jafna mig á þessu,hvað meinar hann þarna,svari hver fyrir sig,ég er en að melta þessa firru hans/Halli gamli

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband