Spá hefur áhrif á olíumarkaði//Vonandi þetta haldi áfram:þá kemur að Íslandi að lækka????

SMynd 637921pá hefur áhrif á olíumarkaði Viðskipti | AFP | 10.10.2012 | 7:56 Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað í morgun vegna versnandi horfa í hagkerfum heimsins.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti svarta skýrslu um horfur í efnahagsmálum í gær. Í New York lækkaði verð á hráolíu um 37 sent og er 92,02 Bandaríkjadalir tunnan.

Um er að ræða framvirka samninga um olíu til afhendingar í nóvember. Í London hefur verð á Brent Norðursjávarolíu lækkað um 44 sent og er 114,06 dalir tunnan.///////Þetta er að verða þreitanadi að okkar Olíufélög skuli ekki fylgja þessa eftir ogþað bara skömm!!þeir hækka um leið og hækkanir koma en læka ekki fyrr en í fulla hnefana,þar eru svo að samkeppnin sem átti að vera er að verða engin!!Atlndsolía, og Orkan, sem er bara SHELL, eru að myndast við að vera lægri!! en læka ekkert fyrr en hinar!!!Við Bifreiðareigendur eigum  bara að refsa þeim með þvi að versla þar ekki,ég sé ekki annað,þetta er rán á miðjum degi alla daga og nætur ekkert annað!!!!/Halli gamli


mbl.is Spá hefur áhrif á olíumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rok og rigning á Suður- og Vesturlandi///Við erum heppin að þetta er ekki snjór!!,hitastigið bjarar því!!!

Rok og riMynd 622385gning á Suður- og Vesturlandi Innlent | mbl.is | 10.10.2012 | 9:15 Hálkublettir eru á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Suðaustan10-18 m/s og rigning eða talsverð rigning sunnan- og vestanlands, hvassast við ströndina, en hægari síðdegis, samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands.

Gengur í suðaustan 8-13 með dálítilli rigningu norðaustan- og austanlands undir hádegi, en heldur hvassara og úrkomumeira í nótt og í fyrramálið./////////Flott að hitasigið er ekki í hag og við fáum ekki þetta sem snjó!!!Það væri sko allt í kafi!! en "það er fátt svo með öllu íllt að ekki boði gott"!! segir máltækið,það er svo í spilunum að það er ekki að kólna mikið svo langt sem sést,og það gott fyrir bændur að þurfa ekki að vera með fénað á gjöf ,ekki mun af veita það er víða of litið af heyjum,og við erum einnig sæl að hafa bara vætuna heldur en norðan bál og kulda!!!!/Halli gamli

 


mbl.is Rok og rigning á Suður- og Vesturlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumvarp um bann við mismunun///Þetta bara gott mál,:en það eru ekki öll mál sem verið er að fjalla um þarna þessa dagana!!!

FrumFrá Alþingi

varp um bann við mismunun Innlent | mbl.is | 10.10.2012 | 9:38 Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi sem er ætlað að tryggja réttarstöðu transfólks þannig að refsivert verði fyrir aðila í atvinnurekstri eða þjónustustarfsemi að neita manneskju um vöru eða þjónustu vegna kynvitundar hennar og að sama skapi verði refsivert að ráðast opinberlega með háði, smánun, ógnun eða á annan hátt á manneskju vegna kynvitundar hennar.//////Þessi mál ekki síður en samkynhneiðgðra !!!eiga að vera saman,og er þetta ábygilega þarft að gera og vel það!!!En það eru ekki öll mál nún hjá hinu Hátvitrta? Alþingi þessa dagana ,það er svo að þarna er allt í hasar !!og þessir vinstri menn sem hafa verið að tala um samvinnu!! eru bara að hundsa minnihlutan alveg eins og hægt er og þar eru Forseti Alþingis ekki undanskorin,og nokkrir Alþingismenn þarna bara til þessa að hefna sín á minnihlutanum fyrir að hafa skoðanir,segja svo hvar eru ykkar framfarir heyra það dag eftir dag en hundsa það bara að halda áfram að eyðileggja allt sem til heyrir atvinnu og friða allt landi engin má gera neitt,Ferðaiðnaður lagður í rúst,Fikveiðar skal eyðieggja og skattmann í nyjum sköttum daglega/Hvernig er hægt að þola þetta öllu lengur????/Halli gamli

 


mbl.is Frumvarp um bann við mismunun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur vill ESB-kosningu í vor/Við skulum bara vona það standist!!!!

ÖgmunduÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra.r vill ESB-kosningu í vor Innlent | mbl | 9.10.2012 | 23:15 „Mín afstaða er alveg skýr.

Ég tel að okkur beri lýðræðisleg skylda til að veita þjóðinni aðgang að þessu máli áður en kjörtímabilið er úti,“ segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu í vor um hvort halda beri viðræðum við ESB áfram.

„Þannig að ég hef verið því fylgjandi og hef beitt mér fyrir því innan stjórnarmeirihlutans að sú afstaða verði ofan á.

Í öðru lagi er það svo að þótt menn hafi komist að tiltekinni niðurstöðu í upphafi kjörtímabilsins að þá taka slíkar skuldbindingar til þessa kjörtímabils og renna því út við lok þess. Það var aldrei ætlunin að fara inn í margra kjörtímabila skak um þetta mál,“ segir Ögmundur .

Ljóst er að taka þarf ákvörðun um þjóðaratkvæði á næstu vikum eigi slík kosning að fara fram fyrir þingkosningarnar í apríl, líkt og Ögmundur vill, í ljósi lagalegrar skyldu um fyrirvara þar um. Má fræðast um þá fyrirvara í 4. grein laga um þjóðaratkvæðagreiðslur hér. Verður vægt til orða tekið erfitt mál - Verður umsóknin erfið fyrir VG ef málið fer opið inn í kosningar?

„Það er mjög vægt til orða tekið.“ - Er verið að ganga lengra í þessum málum en þið í VG féllust á? „Það var aldrei meiningin að fara með þetta inn í mörg kjörtímabil, aldrei meiningin. Ekki heldur að undirgangast aðlögunarferli í þeim mæli sem krafa hefur verið gerð um.

Síðan er það hitt að aðstæður hafa gjörbreyst frá því við lögðum upp í þessa för. Evrópusambandið hefur lent í gríðarlegum hremmingum og hér innanlands hafa svo aftur komið upp aðstæður sem gera okkur ekki einu sinni kleift að framfylgja EES-samningnum varðandi fjármagnsflutninga.

Íslenskir hagsmunir leyfa ekki afnám gjaldeyrishafta - og þar með frjálsa fjármagnsflutninga við þær aðstæður sem við búum við. Það er mjög holur tónn í því að sitja við samningaborð þar sem það er sett fram sem forgangsverkefni Íslendinga að taka upp evru og aflétta gjaldeyrishöftum. Við hljótum að horfa til aðstæðna og hvernig þær hafa breyst. Það höfum við gert í öðrum málum sem stjórnarsáttmálinn kveður á um.

Það hefur aldrei þótt heilsusamlegt að berja höfðinu við steininn.“ Össur sannfæri Íslendinga um kosti evrunnar - Hvernig bregstu við þeim ummælum Össurar í gær að evran sé að styrkjast? „Ef þetta er hans skoðun þá talar hann væntanlega fyrir henni í þjóðaratkvæðagreiðslu og aðdraganda hennar. Ef Össuri Skarphéðinssyni þykir evran spennandi valkostur fyrir Ísland þá reynir hann væntanlega að sannfæra okkur um að svo sé.

Ég held hins vegar að róður hans gæti orðið nokkuð þungur. En ég spyr hann og aðra sem telja sig hafa svona fínan málstað að verja:

Hvað er að óttast við að þjóðin komi að málinu og kveði upp úr með hvað er rétt að gera í þessu deilumáli sem þjóðin ein hefur umboð til að leiða til lykta?“

- Viltu þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB samhliða þingkosningum? „Ég hefði helst viljað fá hana fyrr. Ég hefði talið það heppilegra og ég hef talað fyrir því innan stjórnarmeirihlutans.“////////////það er svo að Ögmundur vill um þetta kjósa hvort almenningur vill þetta og það fyrir næstu kosningar helst ,en ef ekki þá um kosningar,ekki seinna það er svo að við eigum að ráða þessu en ekki eyða bara meiri peningum í ekki neitt!!!þetta verður þá stoppað í langan tíma eða alveg!!!!Heirr fyrir því!!!/Halli gamli


mbl.is Ögmundur vill ESB-kosningu í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

870 milljónir glíma við hungur/////væri ekki nær að þetta þotulið,sem kom til íslands,snéri sér að gefa þessum að borða,ásamt friði!!!!

870 mJarðarbúar sitja ekki allir við sama matarborð.illjónir glíma við hungur Erlent | AFP | 9.10.2012 | 9:46 Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) segir að hungraðir í heiminum séu færri en áður hafi verið talið.

Hins vegar sé ljóst að það sé algjörlega óviðunandi að 870 milljónir jarðarbúa glími við hungur. Þá segir FAO að dregið hafi úr baráttunni gegn hungursneyð í heiminum.

„Næstum því 870 milljónir þjást af stöðugri vannæringu árin 2011-2012; það er óviðunandi hversu margir í heiminum eru hungraðir,“ segir í nýrri skýrslu stofnunarinnar um fæðuöryggi.

Bent er á að einn af hverjum átta jarðarbúum glími við hungursneyð. Jose Graziano da Silva, yfirmaður stofnunarinnar, segir það algjörlega óviðunandi að í dag séu yfir 100 milljón börn, sem eru yngri en fimm ára, undir kjörþyngd.///////////Það er von maður spyrji hvort það væri ekki nauðsinlegra,fyrir þetta blessað þotulið sem boðar frið í heiminum,hvort það ætti ekki meðfram því !!að gefa eiitvað af þessum milljöðum handa sveltandi fólki og börnum,eða hvað á þetta ekki saman???Þessi sýnig er dýr og eins og bara sjó til að sýnast og ekkert annað!!!!!/Halli gamli


mbl.is 870 milljónir glíma við hungur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðarverðlaun afhent í Hörpu/Þetta snobb hyski kemur á einkaþotum og talar um frið????

FriðarverðlaYoko Ono með þeim sem tóku við verðlaununum í Hörpuun afhent í Hörpu Innlent | mbl.is | 9.10.2012 | 15:37 Yoko Ono veitti fimm alþjóðlegum friðarsinnum viðurkenningu úr LennonOno-friðarsjóðnum í dag.

Lady Gaga er meðal þeirra sem hlutu verðlaun í ár en í fréttatilkynningu kemur fram að hún sé einn mikilvægasti listamaður okkar tíma. „Hún er ekki aðeins listamaður heldur einnig baráttukona sem notar list sína sem miðil til að efla samskipti og koma boðskap sínum á framfæri við heiminn.

Hún fær viðurkenningu fyrir baráttu sína og hvernig platan hennar „Born This Way“ hefur lagt sitt af mörkum til að breyta þankagangi í heiminum og hvernig við tökumst á við framtíðina sem þegar er hafin,“ er haft eftir Yoko Ono í fréttatilkynningu.

Frá verðlaunaafhendingunni mbl.is/Marta María Lady Gaga tók við LennonOno-friðarverðlaunum í eigin persónu en einnig framlagi til góðgerðarmála sem hún mun veita stuðningssamtökum Eltons Johns fyrir alnæmissjúka og HIV-smitaða.

Rachel Corrie, 23 ára friðarsinni frá Olympiu í Washington, lést þegar ísraelsk jarðýta ók yfir hana hinn 16. mars 2003, er hún reyndi með friðsamlegum hætti að stöðva eyðileggingu ísraelska hersins á heimili palestínskrar fjölskyldu á Gaza

. Í anda Rachel Corrie og baráttu hennar fyrir málstað Palestínu hafa samtök, sem stofnuð voru í kringum hugsjónir hennar, Rachel Corrie Foundation for Peace and Justice, haldið áfram á þeirri braut sem hún hóf að feta.

Samtökin hafa unnið að mannúðarmálum og fræðsluverkefnum sem mynda tengsl milli fólks, stuðla að auknum skilningi og virðingu og fagna fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð. Samtökin hvetja og styðja grasrótarsamtök í viðleitni þeirra til hvers konar friðarumleitana, baráttu fyrir mannréttindum og réttlæti á öllum sviðum, sem að þeirra mati er grundvallarforsenda friðar í heiminum. Foreldrar Rachel Corrie tóku við viðurkenningunni í Hörpu í dag.

Rithöfundurinn og friðarsinninn John Perkins dró að sér athygli heimsins með útgáfu bókarinnar Confessions of an Economic Hit Man sem tróndi á toppi metsölulistans í New York Times í meira en heilt ár, segir í fréttatilkynningu. „Bókin ljóstrar á magnaðan hátt upp um hina alþjóðlegu spillingu sem hann segir soga að sér auðlindir vanmáttugra þjóða. John Perkins er stofnandi félagasamtakanna Dream Change and The Pachamama Alliance, sem hafa helgað sig umbótum á fjölmörgum sviðum.

Perkins hefur einnig flutt fyrirlestra um skyld efni við háskóla í fjórum heimsálfum og undirbýr nú útgáfu nýrrar bókar,“ segir í tilkynningu. John Perkins tók sjálfur á móti viðurkenningunni. Christopher Hitchens var rithöfundur og blaðamaður. Ferill hans spannar meira en 40 ár en hann skrifaði fyrir marga áhrifaríka fréttamiðla s.s. The Atlantic, The Nation, Vanity Fair, The Daily Mirror og marga fleiri, samkvæmt tilkynningu.

„Hann var höfundur tólf bóka og greinasafna auk þess sem hann var tilefndur til National Book Award árið 2007 fyrir metsölubókina sína God is not Great þar sem hann setti fram hugmyndir sínar um skipulagða trúarstarfsemi sem „rót alls ills í heiminum“. Hitchens tók reglulega fyrir viðfangsefni eins og trúmál, stríðsrekstur, þekkta einstaklinga og alþjóðastjórnmál, var þekktur fyrir ögrandi stíl og varð því afar umdeildur maður,“ samkvæmt fréttatilkynningu. Carol Blue Hitchens, ekkja Christophers Hitchens, tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd.

„Róttæku femínistarnir í pönkhljómseitinni Pussy Riot stigu fram á alþjóðasviðið í febrúar 2012 með ögrandi framkomu sinni í Cathedral of Christ the Saviour í Moskvu. Í gjörningi við altari kirkjunnar fóru þær með pönkbæn til Maríu guðsmóður og báðu um lausn Rússlands undan valdi Vladimírs Pútíns, forseta landsins.

Eftir að myndband af gjörningnum var birt á netinu voru þrír meðlimir hljómsveitarinnar handteknir og ákærðir fyrir að stofna til óeirða. Stúlkurnar voru nýlega fundnar sekar eftir margra mánaða fangelsisvist og hafa verið dæmdar í tveggja ára fangelsi. Niðurstaða dómsins hefur vakið hörð viðbrögð í alþjóðasamfélaginu og hefur opinber stefna Rússlands er varðar frelsi til orða og athafna verið mjög vefengd.

Pussy Riot á vísan stuðning fjölmargra friðarsinna í heiminum sem margir hverjir hafa mótmælt því óréttlæti sem þær hafa þurft að þola. Yoko Ono veitti - í samstarfi við Amnesty International - Pussy Riot viðurkenninguna í New York hinn 21. september síðastliðinn í von um að þær verði leystar úr haldi sem fyrst,“ segir í tilkynningu.////////Og hvað kemur svo þarna út,ekki neitt,þetta snobb hyski sem þykist vinna fyrir friði er á einkaþotum og berst á sem milljaramæringar og svo sveltur stór hluti heimsins,svo býr þetta fólk við alnægtir og gistir á flottustu hótelum,það er fallegt að tala um frið og fylgja þvi eftir í skrifum og gera það þar sem ófriðurin er,en ekki endilega með einhverjum friðarsúlum og húllum hæ,þetta er svo í minni hugmynd nýju fötin keisarans!!! lítið annað,eða hvað finnst ykkur um það,!!!!/Halli gamli


mbl.is Friðarverðlaun afhent í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rök fyrir því að aðlögunartími sé of stuttur/Þessi ógæfusama ríkisstjórn vill ganga af öllu dauðu!!!!

Rök fySteingrímur J. Sigfússon.rir því að aðlögunartími sé of stuttur Innlent | mbl.is | 9.10.2012 | 15:00 Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að málefnaleg rök hefðu verið sett fram fyrir því að aðlögunartími vegna fyrirhugaðrar hækkunar virðisaukaskatts á gistingu væri of stuttur enda væri búið að gefa út verðskrá fyrir næsta sumarSteingrímur sagðist hins vegar telja fráleitt, að hækkunin væri rothögg á ferðaþjónustu, eins og látið hefði verið að liggja, og margt mælti með því að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr lægra skattþrepi í það hærra.

Vísaði hann til þess, að árið 2007 hefðu stjórnvöld í rausnarskap sínum lækkað virðisaukaskatt á hótelgistingu og veitingahúsum í 7%.

Árið eftir hefði gengi krónunnar hrunið og við það myndast geysilega hagstæð starfs- og samkeppnisskilyrði fyrir þessa atvinnugrein, sem hún hefði búið að síðan. „Og ég er ekki viss um að það hafi allt skilað sér í verðlækkun til kúnnanna,“ sagði Steingrímur.

Disney-væðing Rætt var um stöðu ferðaþjónustunnar á Alþingi í dag að frumkvæði Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði m.a. að fram hefði komið á fundi atvinnuveganefndar þingsins í morgun, að fyrirhuguð skattahækkun á ferðaþjónustu myndi valda 1,9% hækkun á heildarkostnaði erlendra ferðamanna hér færi hún öll út í verðlagið.

Sagði Þór að hans upplifun á því að ferðast um Ísland væri að okurverð væri á gistingu og þjónustu. Ferðaþjónustan fengi að auki hundruð milljóna árlega af skattfé til auglýsinga. Þá væri fjöldi ferðamanna orðinn allt of mikill og væri að svipta Íslendinga þeirri upplifun, sem þeir ættu að hafa af eigin landi.

„Það er verið að Disney-væða og þar með afskræma landið í þjónustu við erlenda ferðamenn,“ sagði Þór. Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokks, lýsti furðu á orðum Þórs. Hann sagði að heildarframlegð 30 stærstu hótelanna á landsbyggðinni væri aðeins um 600 milljónir króna. „Hvernig getum við rökstutt að þessi atvinnugrein geti tekið meira á sig?“ spurði Gunnar Bragi.///////Gaman eð hitt þá heldur að sjá skattmann Steingrím ,standa í pontu eins og honum er einum lagið ,byrsta sig eins og þið sjáið á myndinni,það er svo að þessi maður er ekki i lagi orðið als ekki,það er talað um þvermóðsku Jóhönnu,en Steingrímur er að vera hálfu verri,bara skattleggja allt í botn og gera alla óvíga og hvað svo,ESB á að bjarga öllu manninum sem er þar á móti !!!,þegar það á við!!,það er nóg komið af svona skattpíningarmálum,þetta fólk hlýtur að sjá að það vantar framkvæmdir og atvinnu virkjanir og meiri atvinnu svo fólk geti lifað og borga skatta sem því ber,er þetta ekki auðskilið eða hvað???/Halli gamli


mbl.is Rök fyrir því að aðlögunartími sé of stuttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstvirtur allsherjarráðherra"/Er nema von að maðurin sé kallaður þetta!!!

„HæstviPétur Blöndal. rtur allsherjarráðherra" Innlent | mbl.is | 9.10.2012 | 14:12 Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,

fékk tiltal hjá Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, eftir að hann kallaði Steingrím J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, „allsherjarráðherra" í umræðum um störf þingsins í dag.

Pétur ræddi um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrármálefni og sagði síðan: „Í tilefni af því að hæstvirtur allsherjarráðherra sagði í gær, að hann gæfi ekki upp hvaða skoðun hann hefði á málinu; hann víst orðinn skoðanalaus, blessaður maðurinn, þá vil ég geta þess að ég mun fara á kosningastað og greiða atkvæði en ég mun greiða atkvæði gegn, ég mun segja nei við fyrsta liðnum.

" „Ég hvet háttvirta þingmenn að kalla hæstvirta ráðherra réttum nöfnum," sagði Ásta Ragnheiður þá./////Ég hefir verið að hluta á Alþingi núna í dag, svona í milli stunda og þar er manni mjög brugðið,það er svo að þetta fer orðið bara í skrípaleik þessarara ríkisstjórnar með naumum meirihluta allskonar þingmanna flokksbundna og ekki!!!ekki bara þetta tilfelli hjá Pétri Blöndal nei það var ekki púðrið,en samt gert ,það vara málið sem allt í einu var breytta að meirihlutanum um um í raun atvinnumál sem flutningasmaður Bjarni Benidiktsson var frummælandi af yfir í umkverfisnefnd,til að geta stoppað allt af eins og þar er gert!!!en Mörður Árnasson reif þarna kjaft eins og venjulega og kallaði menn þetta og hitt en var ekki hirtur!!!Álfheiður og Guðríður Lilja og Ólína sammála um að stoppa þetta allt og gera okkur að fíflum ekkert annað,ég sé núna hvenig þessi viðsnúningur sem átti að vera á Alþingi að vera með meiri samvinnu er farið,bara versnar og ekkert annað,er mál að linni,það gersit ekki fyrr en fólkið í landinu kís annað stjórnarfar yfir sig svo fljótt sem auðið er!!!!/Halli gamli


mbl.is „Hæstvirtur allsherjarráðherra"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri mengun af rafmagnsbílum/ótrúlegt en samt ber að skoða vel!!!!

 

Skoða þarf allan líftíma bíls frá framleiðslu til förgunar...

 Meiri mengun af rafmagnsbílum Bílar | mbl.is | 9.10.2012 | 11:35

Í háskólanum í Osló hafa menn kafað djúpt til að finna út hvort venjulegir bílar mengi meira en rafmagnsbílar og komist að þeirri niðurstöðu að svo er ekki í mjög mörgum tilvikum.

Í rannsókn þeirra kom í ljós að brennsla á kolum var víða helsta aðferðin til að búa til rafmagn og mengun af því mjög mikil. Verksmiðjur sem framleiða rafmagnsbíla menga að auki miklu meira en hefðbundnar bílaverksmiðjur.

Norðmennirnir rannsökuðu allt ferlið frá framleiðslu til förgunar og komust að því að rafmagnsbíll mengar um það bil helmingi meira en venjulegur bíll ef allur líftími hans er skoðaður.

Við framleiðslu rafhlaða í rafmagnsbíla er notað mun meira af hættulegum og mengandi efnum en notað er við framleiðslu annarra bíla.

Öllu máli skiptir þó hvar rafmagnsbíllinn verður notaður í heiminum og í mörgum löndum Evrópu kemur það betur út fyrir náttúruna að nota rafmagnsbíla. Líklega á það best við um Ísland þar sem rafmagn er að öllu leiti framleitt úr endurnýjanlegri orku.///////Þetta er svo að við framleiðum rafmang með umhverfisvænum hætti að flestra mati!! en þetta bar samt að skoða,Ef það skyldi nú beygslast svo að þessir ESB sinnar kæmu okkur þarna inn,með kænsku og svikum,það yrði rafmagnið okkur dýrt það yrði lagður strengur út og við látin borga sama verð og þeir eða margfalt meira,þetta er þeirra mottó að segja að allt sé svo gott þarna!!auðvitað þurfum við annan gjaldmiðil og hefðum átta að taka hann upp fyrir löngu,hefðum þessa vegna átt að gera það á striðsárunum,þegar Kaninn kom her með Dollarana,en það er önnur saga og er hægt ennþá,að sjá bara evruna eins og  ástanda er ekki í lagi,als ekki,en við verðum að vera á verði!!!/Halli gamli


mbl.is Meiri mengun af rafmagnsbílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óverðtryggð lán sækja verulega á///Og seðlabankin mun hækka stýrivexti næst!!!

Óverðtryggð lán sækja verulega á Viðskipti | mbl.is | 7.10.2012 | 22:34

Samsetning skulda heimilanna hefur breysÍ ágúst síðastliðnum voru 75% nýrra íbúðalána bankanna...t síðustu misseri, vægi verðtryggðra og gengisbundinna lána hefur lækkað stöðugt á meðan hlutur óverðtryggðra lána hefur aukist. allt frá árinu 2010.

Horfur eru almennt jákvæðar fyrir heimilin, en búist er við meðal annars áframhaldandi hagvexti, aukningu ráðstöfunartekna og minna atvinnuleysi, segir í Fjármálastöðugleika, riti Seðlabanka Íslands.

Aukin vanskil hjá Íbúðalánasjóði Vanskilahlutföll heimilanna hafa lækkað sé horft 6 eða 12 mánuði aftur, en haldist óbreytt frá apríl sl. en þá þróun má að mestu rekja til aukinna vanskila hjá Íbúðalánasjóði. Eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram má ætla að dragi úr vanskilum.

Skuldir heimila hafa lítið breyst frá því að síðasta rit um fjármálastöðugleika var gefið út í byrjun júní. Skuldir urðu mestar á fyrsta og öðrum ársfjórðungi ársins 2009 eða um 132% af landsframleiðslu (VLF). Skuldirnar hafa minnkað nokkuð stöðugt frá árinu 2009 og voru í árslok 2011 áætlaðar um 112% af VLF og í lok ágúst 2012 um 109% af áætlaðri landsframleiðslu, en hlutfallið var um 115% í lok ágúst 2011. Minnka væntanlega við endurútreikning „Líklegt er að skuldir heimilanna minnki enn frekar en ljóst er að endurreikna þarf á nýjan leik alla gengistryggða lánasamninga sem fela í sér ólögmæta gengisbindingu í kjölfar dóms Hæstaréttar frá febrúar sl. um gildi fullnaðarkvittana.

Fjármálafyrirtæki hafa þegar gert varúðarniðurfærslu eða afskrifað alls 22 ma.kr. vegna þessa, en eftir er að minnka útlán heimila til samræmis. Ekki er ljóst hver endanleg afskrift fjármálafyrirtækja verður og hvenær hún mun eiga sér stað, en hagsmunaaðilar hafa komið sér saman um 11 prófmál til að láta reyna á þau álitaefni sem upp hafa komið í kjölfar dómsins,“ segir í Fjármálastöðugleika.

Samsetning skulda heimilanna hefur breyst síðustu misseri, vægi verðtryggðra og gengisbundinna lána hefur lækkað stöðugt á meðan hlutur óverðtryggðra lána hefur aukist. Verðtryggðu skuldirnar 87% af heildinni Í lok ágúst 2012 námu verðtryggðar skuldir heimilanna 87% af VLF, gengisbundin lán 3% af VLF, óverðtryggð lán 13%, yfirdráttarlán 5% og eignaleigusamningar 1%.

„Eftirspurn heimila eftir óverðtryggðum lánum hefur verið mikil og viðleitni bankanna hefur einnig verið sú að auka hlut óverðtryggðra útlána þar sem verðtryggingarmisvægi þeirra hefur verið jákvætt. Áhrifin má sjá í því að á þremur árum hefur hlutfall óverðtryggðra skulda heimila að yfirdráttarlánum undanskildum 4,5-faldast.

Á síðustu mánuðum hefur eftirspurn heimila eftir óverðtryggðum lánum þó minnkað eitthvað í kjölfar vaxtahækkana Seðlabankans síðastliðið vor, en almennt hafa vextir óverðtryggðra íbúðalána bankanna hækkað um 1% frá byrjun apríl sl. og er hækkunin í takt við vaxtahækkanir Seðlabankans.

Í ágúst síðastliðnum voru 75% nýrra íbúðalána bankanna óverðtryggð en hlutfallið var t.d. 92% á fyrstu 4 mánuðum ársins,“ segir í Fjármálastöðugleika. Yfirdráttarlán heimila að teknu tilliti til sameininga fjármálastofnana og breyttrar flokkunar hafa verið óbreytt að nafnvirði frá ársbyrjun 2011.

Á sama tíma hafa laun að nafnvirði hækkað um 13%. Yfirdráttarlán aukast Opinberar tölur sýna að mæld yfirdráttarlán heimila hafa aukist frá hruni bankakerfisins. Sé þróunin skoðuð frá ársbyrjun 2011 má sjá að töluverð aukning varð á mældum yfirdráttarlánum seinni hluta ársins 2011 og síðan í apríl 2012. Aukninguna seinni hluta árs 2011 má rekja til sameiningar Íslandsbanka og Byrs, en yfirdráttarlán voru flokkuð með mismunandi hætti hjá þessum stofnunum og aukast mæld yfirdráttarlán við leiðréttingu. Aukninguna í apríl má rekja til sameiningar Íslandsbanka við Kreditkort hf., en við það flokkast kreditkortaskuldir við Kreditkort sem yfirdráttarlán við innlánsstofnanir.

Séu yfirdráttarlán heimilanna skoðuð frá árslokum 2003 í hlutfalli af heildarskuldum, landsframleiðslu og ráðstöfunartekjum, minnkuðu yfirdráttarlán heimilanna jafnt og þétt frá árinu 2003 til 2009. Kaupmáttarrýrnun og neikvæð raunávöxtun Eignir heimila án lífeyrissparnaðar jukust umtalsvert á árunum fyrir fall fjármálakerfisins.

Mestar urðu þær árið 2007, en þá er áætlað að heildareignir heimilanna samkvæmt skattframtölum hafi verið um 260% af landsframleiðslu. Frá árinu 2009 hafa heildareignir heimilanna í hlutfalli við landsframleiðslu minnkað nokkuð jafnt og má helst rekja það til minnkunar innstæðna frá árinu 2009 og lækkunar húsnæðisverðs milli áranna 2009 og 2010.

Samdrátt í innlánum heimila má m.a. rekja til kaupmáttarrýrnunar fram að miðju ári 2011 og neikvæðrar raunávöxtunar innlánsreikninga sem ætla má að hafi hvatt heimilin til að auka neyslu. Minnkun innlána má jafnframt rekja til niðurgreiðslu skulda, fjárfestingar í íbúðarhúsnæði og að einhverju marki til tilfærslu, samkvæmt því sem fram kemur í Fjármálastöðugleika.///////Lesið þessa grein alla og sjáið þið hvað er þarna sagt!!!allt á sömu bókina lært allt á uppleið!! og fólk farið að taka óvertryggð lán og svo kemur Seðlabankin og hækkar stýrivexti mjög fljótt!! en hin lánin vertryggð eiga nátturlega ekki að vera til nema hjá Lifeyrsissjóðunum,og verðtrygging almennt tekin af,þá er það farið,það rekur á eftir að verðbólka hækki ekki sem er nauðsin ,en allt sem er sagt þarna að skuldir heimilanna hafi minkað út að hækkun húsnæðis,það sé ég ekki,bara als ekki þær hafa aukist ekki spurning,þetta hækkaði svo i hafi við kreppuna að það hálfa væri nóg,og bankarnir fitna eins og púkin á fjósbitanaum,þetta er allt á sömu bólkina lært þeir eru bankarnir með belti og axslabönd við borgum þeim okurlán þeirra og höfum ekkert valt á öðru,við verðum en ekki viljum vorum veidd í þetta og svo látin bjarga eða missa allt,en Bankarnir safna ekki bara peningum þeir safna eignum og húsnæði sem fólk missir,og það er þeirra besta eign ef hún hækkar er það ekki??? semsagt þegar upp er staðið og þið lesið þetta eru þið tilbúin að samþykkja þetta sem sagt er þarna svari hver fyrir sig!!!!/Halli gamli


mbl.is Óverðtryggð lán sækja verulega á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband