30.9.2012 | 14:20
Nýtt skipulag fyrir eldri höfnina okkar,mjög svo umdeilt!!!!!!!
Á ljósmyndum sést að miðborg Reykjavíkur var hafnarborg lengst af á 20. öldinni. Þar áður hafnlaust sjávarpláss.
Götur og sund teygja sig alveg að sjónum og húsin standa á hafnarbakkanum. Landfyllingar, plássfrek hafnsækin starfsemi og hönnun Geirsgötu sem hraðbrautar rufu þessi tengsl borgar og hafnar.
Breytt skipulag hafnarstarfseminnar, aukinn áhugi borgarbúa og ferðamanna á hafnarsvæðinu og breytt viðhorf til borgarumhverfisins hafa á undanförnum árum myndað ný tengsl.
Segja má að nú sé stöðugur straumur fólks niður að höfninni við verbúðirnar í Suðurbugt og að Hörpu yst á Austurbakka. Gamla hafnarsvæðið er að verða ný þungamiðja í borginni. Núna síðast var opnað þarna Hótel Marina í gamla Slippfélagshúsinu.
Flestir eru sammála um að þar hafi tekist vel til. Þetta er endurnýting eins og hún gerist best. Útlit hússins hefur lítið breyst nema það er allt frísklegra og fallegra en það hefur lengi verið.
Með nýju rammaskipulagi fyrir hafnarsvæðið, sem kynnt var í borgarstjórn í síðustu viku, er snúið frá þeirri stefnu, sem ríkti hér of lengi, að rífa allt sem fyrir er og byggja allt nýtt frá grunni.
Rammaskipulagið tryggir að gömlu verbúðirnar við Suðurbugt halda sér, allar sem ein, og spilhúsin í Slippnum.
Og Slippurinn sjálfur verður fyrst um sinn áfram á sínum gamla stað. Stungið hefur verið upp á að stígurinn norðan hússins fái nafnið Spilhúsastígur. Er það ekki samþykkt hér og nú? Ný hafnarhverfi Nýja rammaskipulagið skiptir svæðinu milli Sjóminjasafns og Hörpu í fjögur hafnarhverfi sem kallast Vesturbugt, Suðurbugt, Miðbakki og Austurbakki.
Skipulagið leggur áherslu á að hvert þessara hverfa hafi sinn karakter. Götur er hafðar fremur þröngar, eins í Grjótaþorpinu, og inn á milli húsanna eru hér og hvar lítil og nett torg.
Húsin eru stölluð og höfð í klassískum reykvískum skala: 3 til 5 hæðir. Form þeirra minnir svolítið á gamla netagerðarhúsið, Nýlendugötu 14, gegnt Hótel Marina. Það er 2 og 4 hæðir. Gert er ráð fyrir blandaðri byggð: Íbúðir, verslanir, handverkstæði, skrifstofur, hótel, slippur, ferðaþjónusta, söfn, kaffihús, gallerí, veitingastaðir, fiskmarkaður og jafnvel útisundlaug.
Þarna verða greiðar leiðir fyrir fótgangandi vegfarendur og hjólandi. Bílastæði eru nær alfarið í bílakjöllurum og kveðið er á um að þau skuli vera að hámarki eitt á íbúð. Fyrirhuguð uppbygging er áfangabundin.
Reiknað er með að vestasta svæðið, milli Slipps og Sjóminjasafns, það er að segja Vesturbugtin, byggist fyrst upp. Þar gætu risið allt að 250 íbúðir.
Í fyrsta áfanga verður þó aðeins byggt að Slippnum, það er að segja í vestari hluta Vesturbugtar. Suðurbugt verður mikið til óbreytt. Þó er gert ráð fyrir að hægt sé að þétta það svæði örlítið með því að byggja hús á bílastæðinu milli Hafnarbúða og austasta hluta verbúðarinnar.
Það er í takt við nýja tíma að byggja hús fyrir fólk á afgangslóðum sem hafa verið nýtt sem bílastæði. Reiknað er með að ekki komi til uppbyggingar á Miðbakka fyrr en eftir að Vesturbugtin hefur byggst upp, eða er að minnsta kosti komin vel af stað. Þá hafa borgarbúar reynslu af þeirri tegund byggðar og geta betur dæmt um hvort þeir vilja halda áfram á sömu braut.
Vegna áforma erlendra aðila að byggja hótel samkvæmt gildandi deiliskipulagi á austasta svæðinu, Austurbakka, var ákveðið að taka það svæði út fyrir sviga. Þar verður til að byrja með áfram gildandi deiliskipulag.
Ekkert snobbhill Eitt mikilvægasta verkefnið í þeirri vinnu sem nú tekur við er að finna leiðir sem tryggja að nýju hafnarhverfin einkennist af félagslegum fjölbreytileika. Þetta mega ekki verða hverfi þar sem eingöngu sterkefnað fólk hefur efni á að búa. Markaðurinn, sem krefst auðvitað hámarksarðs af sölu lóða og íbúða, má ekki ráð ferðinni einn.
Samkvæmt nýsamþykktri húsnæðisstefnu eiga leiguíbúðir að vera að lágmarki 20% íbúða í nýjum hverfum. Ég tel að það hlutfall eigi að vera hærra í Vesturbugt. Rammaskipulaginu er ætlað að tengja aftur saman borg og höfn.
Til að það takist er lykilatriði að Geirsgötu verði breytt úr fráhrindandi hraðbraut í aðlaðandi borgargötu með rólegri umferð. Sú umbreyting ein og sér er mikilvægur liður í því að byggja upp borg fyrir fólk frekar en bíla. Hún er mikilvæg yfirlýsing um nýja stefnu í skipulagsmálum borgarinnar.
Uppbygging nýju hafnarsvæðanna samkvæmt þessu skipulagi sem hér hefur verið lýst fellur vel að markmiðum endurskoðaðs aðalskipulags borgarinnar til ársins 2030. Þar er gegndarlausri útþenslu borgarinnar snúið við. Borgin á ekki lengur að byggjast út á við heldur inn á við. Til baka/////////Var að lesa þetta og sé að mestu einn maður kommi eða allaballi fyrv. sem þykkst vera mikill skipuleggandi sennilega ættlar að ráða þessu meira og minna einn,og vinstra fólkið saman,sem er bílfjansamlegt T.D ein af m´+inum mönnum Gísli marteinn, og hjólandi 101 kaffilebjandi listafólk af stórum hluta,aldrei migið í saltan sjó en vill hertaka höfina okkar og allt þar í kring,semsagt ekkert tekið mark í hækkun sjáfar og norðan foráttubimi sem engu eyrir!!!það vill ekkert vernda jú loksins part af slippnum sem er annað elsta hlutafélag á landinu,stofnað 1902,því reddaði bara hótel marína!!!en þetta með Geirsgötu og bifreyðar það bara gengur als ekki upp!!!!,Miklabrautin er orðin ofhlaðin Sæbrautin einnig!!!hvað varð um að taka Geirsgötu og part af sæbraut niður við hörpuna og hótelið,það var um það talað upphaflega!!en við sem erum bílandib eigum okkar rétt ekki spurning??þetta veður að hanna uppá nýtt,og það með vilja okkar gamlingjanna einnig//Halli gamli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2012 | 13:10
Sunnudagsuleiðing um einræði í landsmálum og Borginni!!!!!!!!!!
30.9.2012 | 12:30
Mikil sala á bílum í september////þetta á sér skíringar:bílar munu hækka,og bílaleigubílar kom á markaðin í miklu mæli!!!!!
Mikil sala á bílum í september Innlent | mbl.is | 30.9.2012 | 11:43 514 nýir bílar voru seldir í september en það er 65% aukning miðað við sama mánuð fyrir ári.
Heildarsala nýrra bíla fyrstu 9 mánuði ársins er nú 6.757 bílar en til samanburðar voru 5.431 bíll seldur allt árið í fyrra. Þetta kemur fram á blogg-síðu Egils Jóhannssonar, forstjóra Brimborgar.
Þrátt fyrir þessa aukningu er bílasala enn lítil í sögulegu samhengi og til samanburðar er árleg meðalsala undanfarin 40 ár tæpir 10 þúsund bílar. Líklegt er að heildarsalan á árinu verði um 7.600 bílar.////////Þetta bara á sér skíringar,bílar munu hækka og svo eru fjöldi bilaleigubíla að fara í sölu núna////Halli gamli
![]() |
Mikil sala á bílum í september |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hafa ekki rætt saman Innlent | mbl.is | 30.9.2012 | 12:00 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Höskuldur Þórhallsson, þingmaður flokksins, hafa ekki enn farið yfir þá stöðu sem komin er upp í NorðausturkjördæmiBáðir setja þeir stefnuna á að fara fyrir framboðslista flokksins í kjördæminu.
Í Vikudegi er haft eftir Höskuldi að þeir Sigmundur Davíð hafi ekki náð að hittast, en geri það væntanlega á næstu dögum.
Í Vikudegi segir að svo virðist sem Höskuldur njóti víðtæks stuðnings á Norðurlandi, sérstaklega á Eyjafjarðarsvæðinu, en stuðningur við Höskuld sé ekki eins afgerandi á Austurlandi. Höskuldur hefur lýst því yfir að ekki komi til greina að gefa fyrsta sætið eftir til Sigmundar Davíðs.///////Þetta er ekki gott,fyrir flokkinn og gæti haft afeiðingar,einmitt þegar hann er í uppgangi??? samt finnst mér formðaðurin styrkja sína stöðu þarna,en það kemur í ljós,þessi flokkur er í oddaðstöðu núna!!!!/Halli gamli
![]() |
Hafa ekki rætt saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |

![]() |
Ekki boðleg vinnubrögð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2012 | 21:31
Varar við snörpum vindhviðum///Við skulum nú taka á þessu mark!!!!

![]() |
Varar við snörpum vindhviðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2012 | 16:02
Svona smáhugleiðing um framhald í Pólitikinni,:og hvernig fer?????
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.9.2012 | 14:40
Lýsti yfir framboði á fundinum///Flott að Vigdís ættlar í 1 sætið!!!!!
Lýsti yfir framboði á fundinum Innlent | mbl.is | 29.9.2012 | 12:15 Í morgun hófst almennur félagsfundur hjá Framsóknarfélagi Reykjavíkur og er fundurinn haldinn í Framsóknarhúsinu. Á meðal þeirra sem sækja fundinn er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, form
aður Framsóknarflokksins, og þingmaðurinn Vigdís Hauksdóttir. Hér er mjög mikill samhugur ríkjandi og jákvæðni. Ég hef nú formlega lýst yfir framboði mínu, segir Vigdís Hauksdóttir í samtali við mbl.is en nú stendur yfir stutt hlé.
Að hléi loknu hefjast svo lokaðar umræður þar sem farið verður yfir framboðsmál. Með framboðsyfirlýsingu sinni sækist Vigdís eftir fyrsta sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður og segist hún finna fyrir miklum meðbyr með framboði sínu. Meðal þess sem rætt var í morgun var stjórnmálaástandið í landinu, framtíðarsýn og helstu stefnumál flokksins en Vigdís segir flokkinn áfram ætla að leggja áherslu á atvinnumál, heimilin í landinu og auðlindamál.
Þetta er því í raun áframhaldandi keyrsla á okkar góðu stefnuskrá. Svo leggja Reykvíkingar hér á þessum fundi mikla áherslu á að við beitum okkur í samgöngumálum innan borgarinnar, segir Vigdís.
Tengdar fréttir Þingkosningar 2013 Stefnir á 1. sæti hjá VG í Suðurkjördæmi Í gær, 18:12 Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum, hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða framboð VG í Suðurkjördæmi í næstu kosningum. Meira Unnur Brá stefnir á 2. sætið Gunnlaugur Snær sækist eftir 6. sætinu Jón sækist eftir 2. sæti Ragnheiður sækist eftir 2. sæti ////////Já manni lýst vel á að Vigdís taki sæti í R.vík baráttukona og flott fyrir okkur Reykvíkinga að fá hana þana ,en sínist manni hún að mörgu leiti lík mági sínum Guðna Ágútssyni og er kannski heldur hlynt okkar miðhlægri stefnu og mundi ábyggilega vilja stafa með sjálsftæðusflokk,og Sigmundir einnig!!! en okkur vantar baráttufólk orðið í Borgina á ekkert síður en landsbygðina/Halli gamli
![]() |
Lýsti yfir framboði á fundinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2012 | 14:27
Grunaður um sauðaþjófnað/þetta var jú stundað dáltiðí gamla daga!!!!!
Grunaður um sauðaþjófnað Innlent | mbl.is | 29.9.2012 | 14:13 Embætti lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum er að rannsaka sauðaþjófnað.
Frístundabóndi sunnan Skarðsheiðar í Borgarfirði er grunaður um að hafa tekið þrjú lömb ófrjálsri hendi.
Í frétt á vef Skessuhorns er haft eftir Theodór Þórðarsyni yfirlögregluþjóni að maðurinn sé grunaður um að hafa tekið þrjú lömb annars bónda. Atvikið uppgötvaðist þegar fjárglöggur maður bar kennsl á lömbin þar sem þau voru í girðingarhólfi og kom ábendingu á framfæri til lögreglu.
Sauðaþjónaður var talsvert algengt vandamál á fyrri öldum, en er fátíður seinni tíð. Þetta er þó annað málið af þessu tagi sem embætti lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum rannsakar á fáum árum./////þetta er þá stunað !!!ennþá en sjalfgæft mjög!!! en mikið stundað hér á öldum áður en þetta er þá ekki alveg dautt,þvi miður!!!/Halli gamli
![]() |
Grunaður um sauðaþjófnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2012 | 14:21
Brýnt að vinna í trúnaðarbresti/Stormirin í vatnsglasini lægir ekki,þetta er algjör della!!!!
Brýnt að vinna í trúnaðarbresti Innlent | mbl.is | 29.9.2012 | 13:56 Það varð ákveðinn trúnaðarbrestur á milli fjárlaganefndar og Ríkisendurskoðunar vegna þessarar vinnu varðandi fjárhags- og bókhaldskerfi ríkisins og það er skoðun okkar að nauðsynlegt sé að vinna í þeim trúnaðarbresti áður en lengra er haldið
segir Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður.
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur ákveðið að senda ekki frumvarp til fjáraukalaga til umsagnar Ríkisendurskoðunar en embættið fær á ári hverju sent til sín fjárlagafrumvarp og fjáraukalagafrumvarp til umsagnar áður en þau eru lögð fyrir þingið.
Sigmundur Ernir segir ákvörðun meirihluta fjárlaganefndar vera skýr skilaboð um mikilvægi þess að fullur trúnaður ríki á milli nefndarinnar og embættis Ríkisendurskoðunar.
Þó hún [Ríkisendurskoðun] sé sjálfstæð stofnun þá verður hún að geta tjáð sig með einhverjum hætti við fjárlaganefnd um þau efni sem hún er að taka fyrir hverju sinni, segir Sigmundur Ernir og bætir við að öðruvísi geti embættið ekki uppfyllt eftirlitshlutverk sitt. Spurður hvað þurfi að koma til þess að trúnaður myndist á nýjan leik segir Sigmundur nauðsynlegt að gott samtal eigi sér stað auk þess að skipt sé á hugmyndum um nýtt vinnulag.
Þar finnst mér frumkvæðið ekki síður þurfa að koma frá Ríkisendurskoðun heldur en fjárlaganefnd. Spurður hvernig hann meti stöðu ríkisendurskoðanda í ljósi þess máls sem nú hefur komið upp segist Sigmundur Ernir ekki vilja persónugera hlutina.
Núverandi ríkisendurskoðandi fékk þetta mál í fangið á sínum tíma og ég er ekki gefinn fyrir að persónugera svona hluti enda er fyrst og fremst um verklag og verklagsreglur Ríkisendurskoðunar að ræða. Þá segir hann nefndina ætla að gefa sér ákveðinn tíma til þess að ræða stöðu mála við embætti Ríkisendurskoðunar og eftir atvikum forystu Alþingis. Það er í sjálfu sér eðlilegt að staldra við á þessum tímamótum og allir aðilar hugsi sinn gang.///////Hverjum hefði dottið í hug að þessi maður sem var nú nokkuð góður sjónvarpi!!! yrði svo afar slæmur Alþingismaður,og segist einnig ver skáld það er ekki það fyrir minn smekk als ekki!!! en samt að þessir menn Hann og Björn Valur skuli voga sér að setja allt á anann endann út af engu ,eftir þvi sem best verður séð,þeir ættu bara að skammast sín þesssi meirihluti fjarlagaráðs og látta þetta í endurskoðun Ríkisendurs koðunar strax,ekkert komuið fram SEM KEMUR ÞEIM TIL AÐ FARA SVONA AÐ ÞESSU!!!!bara verið að sverta sjalfstæðisflokk, að mínu mati en tóks ekki sníst uppí andhverfu sína//Halli gamli
![]() |
Brýnt að vinna í trúnaðarbresti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.7.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar