Wenger: Stuðningsmennirnir í fullum rétti/svo uppskerum sem við sáum segir máltækið!!!

Wenger: Stuðningsmennirnir í fullum rétti
Íþróttir | mbl.is | 15.5.2011 | 19:43

Arsene Wenger.Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal sagði eftir tap sinna manna gegn Aston Villa á heimavelli í dag að stuðningsmenn félagsins hafi verið í fullum rétti að láta ónægju sína ljós með því að púa á leikmenn þegar gengu af velli.

Arsenal á nú á hættu að missa Manchester City upp fyrir sig í þriðja sæti deildarinnar en City er tveimur stigum á eftir Arsenal en á leik til góða gegn Stoke á þriðjudaginn. Liðið sem endar í fjórða sætinu þarf að fara í undankeppni Meistaradeildarinnar.

,,Það er okkar vinna að þakka stuðningsmönnunum og þú þarft aldrei að vera vandræðalegur þegar þú vinnur þína vinnu. Á hverju sem á gengur þarftu að virða stuðningsmennina. Þeir athuga ekki hversu miklu fé við eyðum heldur vilja þeir vinna leikina.

Þegar við gerum það ekki þá eru þeir ekki ánægðir og það er fullkomlega eðlilegt. Við munum að sjálfsögðu reyna að styrkja liðið okkar en besta leiðin til að halda stuðningsmönnum góðum er að vinna leiki,“ sagði Wenger eftir tapið gegn Villa.////þetta er hár retta hjá Wenger ,og mundi ég segja eins og máltækið " svo uppskerum sem við sáum"En það þýðir ekki að gráta Björn Bónda ein og sagt er i sögunni heldur safna liði og gera betur næst,Jafnvel þó M.C. fari uppyfir sem ekki er víst tökum við okkur á  í umspilinu/en samt í endann viljum við Arsenal aðdáendur óska M.U.N. með hamingju með titilinn,ekki spurning þeir áttu hann skilið/Halli gamli 


mbl.is Wenger: Stuðningsmennirnir í fullum rétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelar skila Palestínumönnum skattfé/Össur segir Össur segir allt með að þakka!!!

Ísraelar skila Palestínumönnum skattfé
Erlent | AFP | 16.5.2011 | 14:36

Forsvarsmenn Fatah og Hamas skrifa undir samvinnusamning...Ísraelar afhentu í dag palestínskum yfirvöldum jafnvirði rúmlega 11,5 milljarða króna af skatttekjum sem Ísraelsmenn höfðu fryst eftir að Fatah og Hamas-hreyfingarnar skrifuðu undir samkomulag um sameiginlega bráðabirgðastjórn.
Ísraelsmenn safna greiðslum á sköttum og tollum fyrir hönd Palestínumanna. 

Segjast Ísraelar hafa affryst fjármunina vegna þess að þeir hafi fengið á hreint að samkomulagið milli Fatah og Hamas hafi engin áhrif og að öryggissamvinna milli ísraelskra og palestínskra yfirvalda haldi áfram. Útiloka þau þó ekki að gripið verði aftur til sambærilegrar frystingar í framtíðinni.

Vakti ákvörðun Ísraela um að fyrsta skattféð hörð viðbrögð víðar. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, skorar þannig á ísraelsk yfirvöld fyrir helgi að leysa þegar í stað skattfé Palestínumanna til palestínskra stjórnvalda, svo þau gætu veitt borgurum þjónustu og greitt opinberum starfsmönnum laun. ///það er skrítið oft að Ísraelar skuli líðast að haga sér svona og komast upp með það.,í skjóli Bandaríkjamanna og fleiri,það er ljot  og ekki til að bæta heiminn!! en svo er að vara kjarnorkuveldi eins og Pakistanar eru einnig,það ber vist að bera fyrir þeim virðingu er það ekki??? en Össur gerðir það ekki!!!!/Halli gamli


mbl.is Ísraelar skila Palestínumönnum skattfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja opinn fund um kvótamálið/að sjálfsögðu er það leiðin,þetta varðar allt landið og miðinn!!!

Vilja opinn fund um kvótamálið
Innlent | mbl.is | 16.5.2011 | 16:50

Frá Alþingi. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sjávarútvegsnefnd Alþingis hafa óskað eftir því við formann nefndarinnar að haldinn verði opinn nefndarfundur á miðvikudag um ný frumvörp sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða.

Fara þingmennirnir fram á það, að á  fundinum verði kynnt áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnarlögunum, sem sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hafi gert grein fyrir á blaðamannafundi og á fundum með hagsmunaaðilum. 

Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra og  hagsmunaðilar í sjávarútvegi verði boðaðir á fundinn.///að sjálfsögðu er þetta leiðin þetta varðar allt landi og miðinn!!! það er svo að það' er komið nóg af þessu kjaftæði um þetta leysa þetta á þann hátt sem er okkur fyrir bestu en ekki ESB,það er malið/Halli gamli 


mbl.is Vilja opinn fund um kvótamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gert að greiða húsfélagsgjöld/Vonandi að hæstiréttur breyti þessu þetta eru ólög og ekkert annað!!!

Gert að greiða húsfélagsgjöld
Innlent | mbl.is | 16.5.2011 | 16:33

 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt eigendur íbúðar í fjölbýlishúsi til að greiða 3,6 milljónir króna í húsfélagsgjöld, Um er að ræða deilu, sem hefur verið lengi til umfjöllunar í dómstólum og Hæstiréttur hefur m.a. vísað kröfunni frá einu sinni.

Málið snýst um þak á fjölbýlishúsi við Prestbakka í Breiðholti í Reykjavík. Hafa lengi staðið deilur á milli Herberts Þ. Guðmundssonar, sem á íbúðina, og húsfélagsins vegna viðgerða á þaki hússins. Voru hann og fyrrverandi eiginkona hans nú dæmd til að greiða húsfélagsgjöldin. 

Herbert dró ekki í efa lögmæti húsfunda þar sem teknar voru ákvarðanir um framkvæmdirnar. Hins vegar taldi hann að ákvarðanir, sem þar voru teknar, brytu í bága við jafnræðisreglu félagaréttar. Þessu hafnaði fjölskipaður héraðsdómur.////þetta er að vara mjög svo  skrítinn málrekstur,svo ekki sé meira sagt!!! það er búið að dæma og þessi lög sem sett voru eru ólög og ekkert annað og verður að breyta,það er svo að ef þetta verður ekki felt i Hæstarétti er málið bara einfaldlega ekki í lagi að mínu áliti það þarf að skoða þetta mjög vel og taka upp á stjórnlagþingi ekki spurning,þessu lög um fjölbyli og einbyli  eru ekki i lagi als ekki/Halli gamli 


mbl.is Gert að greiða húsfélagsgjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirvarar í kvótamálunum/sjá ekki allir sem það vilja :að stefnt er í ESB og ekkert annað!!!!

Fyrirvarar í kvótamálunum
Innlent | mbl | 16.5.2011 | 16:18

Togarar að veiðum á Íslandsmiðum. Frumvörp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til nýrra laga um stjórn fiskveiða voru samþykkt í þingflokkum stjórnarflokkanna eftir hádegið í dag, með fjölmörgum fyrirvörum um breytingar Samfylkingarmegin. Meiri samstaða var um málin í þingflokki VG.

Frumvörp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til nýrra laga um stjórn fiskveiða annars vegar og hins vegar til breytinga á gildandi lögum um stjórn fiskveiða, voru samþykkt í þingflokki Samfylkingarinnar eftir hádegið í dag.

Að sögn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, formanns þingflokks Samfylkingarinnar, voru frumvörpin samþykkt með fyrirvörum þingmanna um fjölmörg atriði og er því ljóst að þau munu þurfa að taka miklum breytingum í meðförum Alþingis til að hljóta brautargengi þar.

Báðir stjórnarflokkarnir, Samfylkingin og Vinstrihreyfingin grænt framboð, héldu sína þingflokksfundi eftir hádegið og luku þeim fyrir þingfundinn sem hófst núna klukkan 15:00.  

Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri þingflokks VG, staðfestir einnig að frumvörpin hafi verið samþykkt í þingflokki VG nú í eftirmiðdaginn. Segir Bergur að ekki hafi verið settir neinir stórir fyrirvarar við málin af hálfu þingmanna VG og að nokkuð góð sátt hefði verið um þau á fundinum. Þingmenn átti sig hins vegar á því og reikni með því að málin geti þurft að taka einhverjum breytingum í meðförum þingsins.///skammsyni fólks á þetta er með ólýkindum,það er svo að alir hljota að skilja sem við' hafa á að þarna er verið að fjalla um  fjöregg þjóðar vorar!!! og Láta V.G. sér þetta linda sem ekki vilja ganga i ESB ekki hvað er þarna undir!!! það er engin vandi að laga það sem þarna er að engin og var búið að því en það var ekki nóg fyrir samfylkingu sem ætlar bara að láta ESB þetta eflir það sjá allir sem  vilja að það er reyndin og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Fyrirvarar í kvótamálunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnrýnir kvótafrumvörp/hver gerir það ekki nema fókiðsem vill koma okkur í ESB og fólk sem gerir sér ekkert grein fyrir að þetta er undistaða,velferðar ásamt fleiru!!!

Gagnrýnir kvótafrumvörp
Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2011 | 5:38

Gunnar Bragi Sveinsson. Formaður þingflokks Framsóknarmanna, Gunnar Bragi Sveinsson, segir að sumt í kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar sé í anda ályktunar um fiskveiðistjórnun sem samþykkt var á síðasta þingi flokksins, annað ekki. En honum líst almennt ekki vel á hugmyndirnar.

„Það eru þarna atriði sem ganga hreinlega ekki upp og eru ekki í samræmi við ályktun okkar, eins og að ekki sé tryggð framlenging nýtingarsamninga, framsal og fleira,“ segir Gunnar Bragi.

„Veðsetning til fjárfestingar í greininni verður líka að vera til staðar, verðmæti skipsins er lagt að veði og verðmæti þess er auðvitað tengt aflaheimildunum. Mér finnst mikilvægast að bæði stjórnvöld og aðrir haldi ró sinni, hafi samráð um að finna bestu leiðina. Það er það sem hefur vantað í þetta.“

Hann segir að þótt segja megi að byggt sé á þeirri vinnu sem fram fór í sáttanefndinni sé gengið mun lengra í ákveðnum atriðum, önnur ekki kláruð. „Ég sé ekki að eins og þessi frumvörp líta út núna sé þetta greininni eða þjóðinni til góðs. Það þarf að laga þetta töluvert.“

Margt hangir á kvótaspýtunni. Sjómenn hafa verið samningslausir frá áramótum og hafa útgerðarmenn ekki viljað semja meðan kvótamálin séu í óvissu. Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, er svartsýnn á að úr rætist á næstunni. Hann bendir m.a. á að nú sé rætt um að afgreiðsla stóra frumvarpsins geti dregist fram á haustið.////allir sem bara eitthvað vit a´Fiskveiðum og útgerð eru algjörlega hissa á þessu brölti ,það eru bara fólk sem heldur að öllu sé hægt að snúna við og haaf sina hentisemi á ´eins og það heldur að sé hægt!!!!,þetta er ekki svona þó svo að margt megi laga als ekki,það er sáralítið mal að laga vankantana af að bylta öllu kerfinu er ekki hægt nema löngum tíma ef svo bara þar f sem ég held ekki,það er önnur saga ,.að er dýrt að reka útferð og er ekki gert nema hægt se´að veðsetja kvóta,það er engin svo ríkur að geta keypt´alt án þessu og  byrja að veiða hagkvæmt!!! það vita allir sem hafa við á fiskveiðum,en samt skal þetta tekið burt,það er ekki hægt!!! svo þetta með að hætta þá ma´það fara i pott,ekki slæmt hitt var það að selja kvótann ekki gott þegar hætt er!!! svo leigan hún verður að vara til hagræðis lengur en milli ára,en eins og maður segir er þetta ekki hægt og verður bara til  þessa að menn bara hætta og sigla i land með flotann og það,eiga eirt að gera,þessu vitleysingar skilja ekkert annað !!/Halli gamli


mbl.is Gagnrýnir kvótafrumvörp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefðum átt að breyta holunni í fangelsi/sammála Pétri þarna !!!!!

Hefðum átt að breyta holunni í fangelsi
Innlent | mbl.is | 15.5.2011 | 14:10

Pétur Blöndal. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í Silfri Egils í dag að hann hefði ekki enn komið í tónlistarhúsið Hörpu og hann langaði ekkert sérstaklega mikið þangað því húsið væri allt of dýrt.

„Þjóðin hafði ekki efni á þessu. Við erum að segja upp fólki út um allt land, við glímum við gífurlegan skuldavanda og á meðan erum við að glíma við svona dæmi. Fyrir utan það, að þetta er ekki list sem höfðar til stórs hluta þjóðarinnar. Það má vel vera að það breytist. En þetta er óskaplega dýrt hús og ég held að það hefði verið betra að hækka bætur til öryrkja eða atvinnulausra eða skapa atvinnu annarstaðar."

„Við hefðum þá átt að moka ofan í þessa holu?" spurði Egill Helgason, stjórnandi þáttarins, þá. „Nei, við hefðum átt að breyta henni í fangelsi," sagði Pétur.//   það er kannski ljót að segja sina meiningu,en ég er bara sammála Pétri þarna að mestu við hefum bara ekki átt að hald a.þessu áfram nóg var við peningana að gera,og mikið meir en það !!!!eins og allir vita ,og fangelsi vantar og verður byggt,ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Hefðum átt að breyta holunni í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilboð send fyrir 1. júní/engin trúir þessu allvega ekki nema parti af þessu,því miður!!!

Tilboð send fyrir 1. júní
Innlent | mbl.is | 14.5.2011 | 14:57

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að stjórnvöld hafi rekið mjög á eftir bönkum síðustu mánuði varðandi skuldaúrvinnslu fyrirtækja. Sá árangur hafi náðst að þorri þeirra fyrirtækja, sem falla undir samkomulag um skuldaúrvinnslu lítilla og meðalstórra fyrirtækja fái tilboð um endurskipulagningu skulda fyrir 1. júní.

„Vonandi erum við nú að ná auknum krafti í þessa endurskipulagningu skulda þannig að fyrirtækin fái fast land undir fætur. Það gefur þeim allt aðrar forsendur til að hafa fólk í vinnu og þess vegna ráðast í ný verkefni. Þessi kyrrstaða hefur verið mjög erfið og það skiptir miklu máli að rjúfa hana og finna framtíð fyrir þau fyrirtæki, sem hafa rekstrargrundvöll," sagði Árni Páll á blaðamannafundi í dag.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið birti í dag nákvæmar tölur yfir þau fyrirtæki, sem falla undir samkomulag um skuldaúrvinnslu lítilla og meðalstórra fyrirtækja en  tölurnar komu fram í grófum dráttum í ræðu, sem Árni Páll flutti á Alþingi á fimmtudag.

Um er að ræða fyrirtæki, sem skulda á bilinu 10 milljónir til 1 milljarð en um er að ræða um 90% fyrirtækja landsins. Ekki liggur fyrir hve margir starfa hjá þessum fyrirtækjum en Árni Páll sagði að það væru tugir þúsunda. Þá liggur heldur ekki fyrir hve heildarskuldir fyrirtækjanna eru og hve mikið verður afskrifað.  

Samkvæmt upplýsingum frá fjórum stærstu fjármálafyrirtækjunum er staða mála í heild hjá fyirtækjunum í lok mars þessi:

Fjöldi fyrirtækja: 5977
Fyrirtæki sem ekki eru í greiðsluvanda: 1974
Fyrirtæki í skuldavanda: 4003
Leyst með Beinu brautinni: 973
Leyst án afskrifta: 672
Leyst með afskriftum vegna gengislána: 280
Úrlausn ekki ákveðin, í skoðun: 526
Innheimta/gjaldþrot: 1552

Árni Páll sagði, að fjármálafyrirtæki hafi einnig boðið skuldaaðlögun fyrir þau fyrirtæki, sem skulda meira en milljarð króna og hafi bankarnir sett sér markmið um að ljúka þeirri vinnu að mestu fyrir árslok.

Sagði, að ráðuneytið muni ganga mjög ríkt eftir því að þessi markmið náist en það sé unnið í samvinnu við Fjármálaeftirlitið, sem fylgist með skuldaúrvinnslu bankanna, og Samkeppniseftirlitinu, sem fylgist með því að fyrirtækin séu raunverulega það hóflega skuldsett, að í endurskipulagningunni felist ekki að þau séu áfram undir virkum yfirráðum banka.

„Við erum að vinna áfram að þessu og gera erfiðara og dýrara fyrir bankana að halda á vanskilalánum þannig að það verði aukinn hvati fyrir þá að vinna þetta hratt," sagði Árni Páll.////Árni segir Árni segir bráðum koma blessuð jól,!!!maður er orðin þreyttur á þessum sögum hanns um bjargannir á heimilum og fyrirtækjum,þetta eru orðin tveggja ára lygi og ekkert annað,svo er talað um að útgerðin skuldi svo mikið ,eru það ekki meir en hálf þjóðin sem skuldar og bankannir mjólka og ríkið einnig,þetta er svo að litið sem ekkert hefur verið gert fólk er að missa sin heimili og fyrirtækin a hausinn i röðum,en svona yfirlýsingar eru einskis virði eftir því sem a´undan er gengið,þessu trúir engin,nema kannski hann sjálfur???/Halli gamli


mbl.is Tilboð send fyrir 1. júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonast eftir lögfestingu fyrir árslok/vonum að þessi ríkisstjórn verði farin fyrir árlok!!!!

Vonast eftir lögfestingu fyrir árslok
Innlent | mbl.is | 14.5.2011 | 12:04

Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, á blaðamannafundi í dag. Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, segist gera sér vonir um að frumvarp um gerbreytta fiskveiðistjórnun, sem nú er til meðferðar hjá þingflokkum ríkisstjórnarinnar, verði að lögum á Alþingi fyrir lok ársins.

„Síðan getum við farið að vinna að framkvæmdalegum þáttum þess, sem eru töluvert miklir, og þeir verði þá komnir til framkvæmda 1. september 2012 (þegar nýtt fiskveiðiár hefst)," sagði Jón á blaðamannafundi í dag. 

Jón kynnti í dag tvö ný frumvörp, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt og hafa verið til umfjöllunar í þingflokkum í vikunni. Annað frumvarpið gerir ráð fyrir breytingum á núgildandi lögum um stjórn fiskveiða og gerir m.a. ráð fyrir auknum strandveiðum og að allir aflamarkshafar leggi í svokallaða potta. Þá er gert ráð fyrir að veiðigjald hækki um 70% og það skiptist í ákveðnum hlutföllum milli ríkis og sveitarfélaga.

Jón sagðist vonast til þess að þetta frumvarp gæti orðið að lögum í vor og ákvæði þess taki að mestu gildi á næsta fiskveiðiári, sem hefst 1. september í haust. Hann sagði gríðarlega þýðingarmikið, að ákvæði frumvarpsins komi sem fyrst til framkvæmda. 

Hitt frumvarpið gerir ráð fyrir grundvallarbreytingu á kvótakerfinu þar sem gildistími veiðiheimilda verður takmarkaður og framsal og veðsetning kvóta verði bönnuð. Jón sagðist gera sér grein fyrir því að þetta frumvarp þyrfti mikla umræðu og fyrsta skrefið væri að fá það afgreitt úr þingflokkum og lagt fram á Alþingi.

Jón sagði, að frumvarpið væri meðal annars byggt á hugmyndum og vinnu starfshóps, sem skipaður var árið 2009 og skilaði niðurstöðu haustið 2010. Samkvæmt því fá handhafar aflahlutdeildar og krókaleyfa heimild til að gera 15 ára samning um nýtingarleyfi og rétt til að leita eftir framlengingu þess samnings til næstu 8 ára.

Þá sé endi bundinn á varanlegt framsal aflaheimilda með 15 ára aðlögunartíma  og gildi tekur forleigu- og forkaupsréttur sveitarfélaga og ríkis. Nánar er fjallað um frumvarpið í minnisblaði, sem fylgir með hér að neðan.

Hörð gagnrýni

Útvegsmenn hafa gagnrýnt frumvarpið harðlega og í Morgunblaðinu í dag gera þrír þeirra, sem sátu í starfshópnum, það sömuleiðis. Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins, segir m.a. að tillögurnar séu slæmar fyrir útgerðina, bölvaðar fyrir sjómenn og risaskref aftur á bak fyrir þjóðfélagið. Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, segist spyrja sig hvers vegna starfshópurinn hafi verið skipaður á sínum tíma því frumvarpið virðist ganga út á að verið sé að slátra heilli atvinnugrein. Og Aðalsteinn Baldursson, formaður  Framsýnar á Húsavík, tekur í sama streng og segir að frumvarpið sé ekki í anda þess sem rætt var í starfshópnum.

Um þetta sagði Jón að tillögur og vinna starfshópsins hefði verið greining á málinu og grunntillögugerð. Starfshópurinn hefði ekki verið með útfærða tillögugerð í einstökum málum en frumvarpið gerði ráð fyrir blandaðri leið, annars vegar nýtingarsamningum  og hins vegar að aflaheimildum væri úthlutað með öðrum hætti. 

„Þegar við erum með auðlind eins og sjávarauðlindina, sem er takmörkuð auðlind og sveiflukennd frá ári til árs en samt svo mikilvæg í okkar samfélagi, efnahag og grunngerð, þá verðum við að geta sýnt fram á að við stundum líffræðilega sjálfbærni. Auðlindin verður einnig að vera rekstrarlega sjálfbær og samfélagslega sjálfbær. Það getur verið erfitt að vega þessa þrjá þætti saman og hver og einn horfir út frá sínu í þeim efnum en enginn þáttur getur án hins verið," sagði Jón. 

Hann lagði einnig áherslu á, að frumvarpið væri ekki komið í formlega dreifingu þar sem þingflokkar væru ekki búnir að afgreiða það og dreifa því í þinginu. Síðan ætti eftir að ræða málið í þaula á þinginu.///Hverjum hefði dottið að í hug fyrirfram að það ætti eftir að henda okkur sem var i gamla sovétt  ,að

Ríkisvæða alla hluti og taka i raun eignarnámi ,þetta er ekkert annað þarna, þessar aðfarir bara helvitis  komapungar

 i báðum flokkum sem ætla að taka allt eignarnámi!!!, það er engin að segja og hefur aldrei saft að fólkið eða þjóðin

 eigi ekki fiskin og við leigum hann,og engin mótmælt að borga meira fyrir leiguna,og minka framsal,og leifa

 einhverja nýliðun,allt hægt að semja um og tíminn er þarna of stuttur 15 ár með dyr skip skuldir og svo

 framvegið,sem verður að borga eða hvað???,skuldir útgerða eru milljarðar og ef þetta yrði að lögum erum þá  við

 sem eigum að borga skuldirnar??? á hvern kemur það ,bankarnir sem þeir skulda færu á hausinn,og ekki bara það

 við öll færum niður í mikið lægra plan,þetta er undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar sem þeir þessir Samfylkingar

 menn og V.G.  sem eru að meirihluta kommar vilja eyðileggja,við tökum þessu ekki sem höfum vit á peningum og

 fyrir hverju þeir standa,hitt er bara glapræði og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Vonast eftir lögfestingu fyrir árslok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Telur að forsetaembættið eigi að afhenda bréf/er þetta svo að Jóhanna Forsætisráðherra :veit alt betur en aðrir!!!

Telur að forsetaembættið eigi að afhenda bréf
Innlent | mbl.is | 13.5.2011 | 20:30

Jóhanna Sigurðardóttir. Forsætisráðuneytið telur, að embætti forseta Íslands eigi að afhenda fjölmiðlum þau bréf, sem þaðan hafa farið til forsætisráðuneytisins um setningu siðareglna fyrir forsetaembættið.

Þetta kemur fram í bréfi, sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi  forseta Íslands í mars og mbl.is hefur fengið aðgang að. Þar kemur fram að að það sé afdráttarlaus afstaða embættismanna forsætisráðuneytisins að afhenda beri Stöð 2 þau bréfaskipti sem óskað hefur verið eftir um málið. 

Ráðuneytið muni þó ekki, að svo stöddu, afhenda bréf sem forsetaembættið hafi sent þangað í ljósi þess að það embætti sé annarrar skoðunar um skyldu til afhendingar bréfanna. 

„Undirrituð telur því að embættin hafi ekkert val í þessu efni þar sem ekki sé um neina undanþágu heimild í núgildandi lögum varðandi skrifleg samskipti forseta og ráðherra hér á landi hvað sem líður fram komnum sjónarmiðum forseta um að slík undanþáguheimild eigi að vera til staðar," segir Jóhanna í bréfinu.

Fram hefur komið að embætti forseta Íslands hefur neitað að afhenda fjölmiðlum, þar á meðal mbl.is, bréf sem send hafa verið til forsætisráðuneytisins vegna málsins.

Afhendir aðeins eitt bréf//////það er svo að ég aðhillist því að Forsetin viti hvað hann er að gera,annars mundi hann afhenda bréfin,að mínu mati,en hefndin er sæt hjá henni Jóhönnu Forsætisráðherra að hefna fyrir afgreiðslu um Icesave sem forsetin neitað að skrifa undir 2 sinnum og sparaði okkur milljarða,en ein og við upplifum þessa ríkisstjórn sem höfum lifað' þær allar frá 1933 erum við ekkert hissa á þessi sé búin að syngja sitt síðasta,allvega  vonum við það þjóðarinnar vegna/Halli gamli


mbl.is Telur að forsetaembættið eigi að afhenda bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband