Sterkir hliðarvindar/vonanadi síðasta krappa lægðin sem kemur í sumar!!!!

Sterkir hliðarvindar
Innlent | mbl.is | 28.4.2011 | 11:32

Lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega á Reykjanesbrautinni. Lögregla brýnir fyrir ökumönnum að fara varlega á Reykjanesbrautinni en þar blása nú sterkir hliðarvindar sem gætu reynst hættulegir//////a' er vonandi að þetta sé síðasta krappa lægðin sem yfir okkur gengur i sumar!! það er ekker  grín að fá þetta aftur og aftur,en sem betur fer er ekki önnur á leiðninni og vonandi  ekki fyrr en i haust ,en þa´gæti blásið Norðan átt í sumar sem önnur en ekki svo hvöss ,en þá með sól hér fyrir sunnan/Halli gamli

mbl.is Sterkir hliðarvindar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaxtabótakerfið hverfi inn í sólarlagið/það er löngu komin tími á að breyta þessu !!!

Vaxtabótakerfið hverfi inn í sólarlagið
Innlent | Morgunblaðið | 28.4.2011 | 10:30

Mynd 556662 Í skýrslu sem samráðshópur um húsnæðisstefnu skilaði velferðarráðherra í vikunni eru lagðar til viðamiklar breytingar á ýmsu því sem lýtur að húsnæðismálum.

Hópurinn sem taldi alls 20 manns, m.a. alþingismenn, embættismenn, fulltrúa stéttarfélaga og atvinnurekenda, leggur m.a. til að hætt verði að greiða vaxta- og húsaleigubætur en þess í stað verði greiddar húsnæðisbætur.

Tilgangurinn er sá að útrýma misræmi milli þess opinbera stuðnings sem fólk fær eftir því hvort það leigir húsnæði eða hefur tekið lán til að kaupa sér húsnæði.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var formaður samráðshópsins. Hún bendir á að par sem er samtals með 500.000 króna heildartekjur og leigi sér íbúð eigi ekki rétt á húsaleigubótum. Ef þetta sama par hefði keypt sér íbúð fyrir 20 milljónir og skuldaði 16 milljónir, fengi það á hinn bóginn 27.000 krónur í vaxtabætur á mánuði. Á sama tíma fái fólk með háar tekjur vaxtabætur. Sigríður segir þetta ósanngjarnt. „Ef við ætlum að gera búsetuformum, það er að segja, leigu, eign eða búseturétti, jafnhátt undir höfði, verðum við að draga úr þessu misræmi.“ Fólk verði að geta valið um hvort það leigi til langs tíma eða taki þá áhættu að taka lán fyrir fasteign.

Aflagt á nokkrum árum

Hópurinn leggur til að á þessu ári verði fyrsta skrefið tekið, þ.e. að tekjuskerðingamörk húsaleigubóta verði hækkuð til að fólk geti haft hærri tekjur áður en húsaleigubætur byrja að skerðast. Á næsta ári verði lögum breytt þannig að hætt verði að greiða vaxtabætur eða húsleigubætur og einungis greiddar húsnæðisbætur en upphæð þeirra verði óháð búsetuformi.

Starfshópurinn metur ekki hvort auka eigi heildarfjárhæð bóta heldur ganga tillögurnar út á að skipta þeim með öðrum hætti. Það þýðir að minna mun koma í hlut þeirra sem skulda í eigin húsnæði en þeir sem leigja fá hærri fjárhæð. Sigríður leggur áherslu á að breytingarnar megi ekki ganga í gegn of hratt, m.a. vegna þess að taka verði tillit til þeirra sem hafa reiknað með vaxtabótum þegar þeir festu kaup á íbúð. Afleggja þyrfti vaxtabótakerfið með einhvers konar sólarlagsákvæði, þ.e. að þeir sem hafa fengið vaxtabætur muni hætta að fá þær á nokkrum árum en nýir muni hvorki bætast inn í vaxta- né húsaleigubótakerfið frá og með árinu 2013.

Meðal annarra tillagna er að ríkið leiti leiða til að efla markað með langtímaleiguhúsnæði og fjölga íbúðum með búseturétti. Þá leggur hópurinn til að mótuð verði húsnæðisáætlun sem skilgreini markmið ríkisstjórna í húsnæðimálum. Með henni eigi að tryggja húsnæðisöryggi, félagslega samheldni og stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Sigríður bendir á að til að slík áætlun sé möguleg verði að byggja á nákvæmum upplýsingum um húsnæðismarkaðinn, s.s. um eftirspurn og þörf, en slíkar upplýsingar séu ekki til staðar nú.

Skortur á upplýsingum hafi komið mörgum í koll. Víða um land hafi verið reist hús, m.a. með lánum frá Íbúðalánasjóði, sem nú standi tóm og í mörgum tilfellum sé ekki fyrirséð að breyting verði á.

Koma verði í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.///////það er löngu komin tími til að breyta þarna ekki spurning þetta kerfi hefur gengið sér til húðar, að mörgu leyti það ekki öll það er ekki hægt að fyrirbyggja eignarkerfið, en að hafa bæði er gott ,leigukerfið er einnig gott að vissu marki en það eru einnig svo að þar er gert út að gróða það er ekki hægt að hafa hemil á því ,vegna þessa að þeir sem byggja svo til að leigja vilja hafa sitt ,og svo að setja þeim mörk að langtímaleiga er verst ,segi að ekki er hægt að segja upp fólki nema á löngum tíma sem ekki borgar eða brýtur samninga!!!þetta er óskostur,en formið sem kallast kaupleiga er betra að mínu áliti það eignast þú það með löngum tíma,og sinan kauprettur af því ef ekki semst!! það er svo margt sem ber að athuga þarna,svo og tekjutengja hlutina ,það er oft erfitt og vel það ,það er maður á að ekki hefur tekist með launin ,sem aldrei hefur tekist,svo við hækkum með réttri vistölu sem er alltaf röng!!svo þegar upp er staðið er þetta mjög víðsjávert allt og þarf að skoða mikið betur ekki setja þetta á strax,skoða hertri leiðir/Halli gamli

mbl.is Vaxtabótakerfið hverfi inn í sólarlagið

Hallgrímskirkja meðal þeirra fallegustu/það er svo að þarna getum við slegið okkur upp,og verið stoltir mjög!!!

Hallgrímskirkja meðal þeirra fallegustu
Innlent | mbl.is | 27.4.2011 | 18:26

Hallgrímskirkja. Hallgrímskirkja er ein af tíu fallegustu kirkjum heims, að mati ferðavefjarins Budget Travel. Það er einnig stafkirkjan í Noregi, sem talin er vera reist árið 1180.

Á vefnum segir um Hallgrímskirkju, að hún blasi við hvar sem fólk sé statt í Reykjavík enda hæsta byggingin í borginni og hæsta kirkjan á Íslandi.

Aðrar kirkjur, sem taldar eru meðal þeirra fallegustu, eru La Sagrada Família í Barcelona, Saint Michel d'Aiguilhe kapellan í Frakklandi, dómkirkjan í Mílanó, Las Lajas kirkjan í Kólumbíu, Kirkja hins úthellta blóðs í St. Pétursborg, Ely dómkirkjan á Englandi, Upprisukirkjan í Slóveníu og Thorncrown kapellan í Arkansas í Bandaríkjunum///////þetta eru stór tíðandi !!!og við getum verið stolt mjög enda fallag kirkja með afbrygðum,og þar er ekki að undra þá maður sjái margan ferðamanninn taka þarna myndi og stoppi þarna til að skoða /Halli gamli

mbl.is Hallgrímskirkja meðal þeirra fallegustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

12% hækkun felst í atvinnuleið//það verður ekkert hækkað ef engin hagvöxtur verður,það hljóta allir að sjá !!!

% hækkun felst í atvinnuleið
Innlent | mbl.is | 27.4.2011 | 17:54

Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins í húsi ríkissáttasemjara.Verði atvinnuleiðin farin og kjarasamningar gerðir til þriggja ára, eins og Samtök atvinnulífsins berjast fyrir, myndi launakostnaður atvinnulífsins í heild hækka um 12%, að sögn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA.

„Við erum á fullri ferð að reyna að bjarga atvinnuleiðinni og teljum það okkar skyldu að reyna algjörlega til þrautar hvort ekki er hægt að fara þá leið. Það er það besta og skynsamlegasta í stöðunni að snúa bökum saman og reyna að komast út úr kreppunni,“ segir Vilhjálmur.

Samtök atvinnulífsins leggja áfram mikla áherslu á að gengið verði frá samkomulagi um kjarasamninga til þriggja ára. Forystumenn SA hafa átt óformleg samtöl seinustu daga við ráðherra og fulltrúa ríkisstjórnarinnar.

Sjávarútvegsmálið stendur enn í veginum. „Staðan er einfaldlega sú að það er óhugsandi að Ísland komist upp úr kreppunni ef helsta útflutningsgreinin er í fullkominni óvissu um sína rekstrarstöðu og framtíð,“ segir Vilhjálmur. „Við höfum verið að velta upp ýmsum möguleikum svo hægt sé að ná sátt um sjávarútveginn,“ segir hann. Vilhjálmur segist telja að ákveðinn vilji sé til staðar hjá fjármálaráðherra að leysa þetta mál, „en það þarf meiri vilja og frá fleirum,“ segir hann.

„Okkur finnst mjög hrapalegt ef við þurfum að hrökkva frá þessu. Þær launahækkanir sem við erum að taka á okkur ef atvinnuleiðin verður farin og byggt verður á þriggja ára samningi, eru mjög dýrar fyrir atvinnulífið, sérstaklega fyrir þann hluta þess, sem er með fólk með lægri tekjur í vinnu. Það er útilokað að hægt verði að standa undir þessum launahækkunum nema við séum á leið út úr kreppunni. Þess vegna erum við að leggja þetta ofurkapp á að þessi leið verði farin. Allt annað er neyðarbrauð,“ segir hann.

Launahækkanir sem SA er tilbúið að standa að ef samið verður til þriggja ára fela í sér að meðaltali hátt í 12% launakostnaðarhækkun fyrir atvinnulífið í heild og mun meiri hækkun fyrir fyrirtæki sem eru með margt lágtekjufólki í vinnu, að sögn Vilhjálms. Auk þess myndi lágmarkstekjutryggingin hækka um rúm 20%.

4�½% atvinnuleysi 2013 

Vilhjálmur bendir á að þetta séu miklar hækkanir sem verði væntanlega umtalsvert umfram verðbólgu á þessu þriggja ára tímabili en aðal kaupmáttaráhrifin verði vegna aukinnar vinnu, minna atvinnuleysi, hærri starfshlutföll og meiri yfirvinnu, sem fylgi atvinnuleiðinni. Auk þess myndu launalækkanir sem fyrirtæki hafa þurft að grípa til ganga til baka þegar fyrirtækjunum færi að ganga betur.

„Það er því eftir miklu að slægjast að fara atvinnuleiðina,“ segir Vilhjálmur. Samtök atvinnulífsins hafa spáð því að atvinnuleysið yrði komið niður í 4,5% á árinu 2013 ef atvinnuleiðin verður farin.///"það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja" segir máltækið,en þarna kemur það í ljós aftur og aftur að undirstaða atvinnu er að gera eitthvað til þessa!!!  ein og staðan er í dag er það engin von að hækka laun nem mjög svo litið ef engin hagvöxtur verður,en það er ekki inn i myndinni að gera neitt því,þar stendur á Ríkisstjórn vorri ekki spurning um það,að far svo i verkfall i þessu árferði er ekki hægt,að sja´allir sem vilja nema kommar á borð  við Guðmund Gunnars og fleiri,var að hlusta á hann i sjónvarpi áðan og það var sami þvergirðingsháttur og á Jóhönnu og Steingrími að það stæði bara á S.A. það er ekki það a´bara að ganga frá útgerðinni og ekkert annað þar eru menn samtaka,kommarnir en "það kostar klofað ríða röftum" eins og máltækið segir,og ef fólki' vill eyðileggja það sem komið er þá verður bara stríð,því útgerðin gefur sig ekki án samninga!!!Halli gamli

mbl.is 12% hækkun felst í atvinnuleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostnaður ykist um 692 milljónir/þetta er maður sammála um,ef margar ákvarðanir væru teknar svona værum við í betri málum!!!

Kostnaður ykist um 692 milljónir
Innlent | mbl.is | 27.4.2011 | 16:22

Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar.Fjármálaráðgjöf Deloitte áætlar, að rekstrarkostnaður Landhelgisgæslunnar muni aukast um tæpar 692 milljónir króna á ári verði starfsemi stofnunarinnar flutt á Miðnesheiði.

Þá muni kostnaður við flutningana sjálfa nema 452,5 milljónum og þá er ekki tekið tillit til kostnaðar vegna standsetningar á húsnæði fyrir Landhelgisgæsluna. Að auki muni breyting á hafnaraðstöðu í Njarðvík kosta 251,3 milljónir króna og því er samtals vert ráð fyrir 703,8 milljóna króna kostnaði vegna flutninganna. 

Þetta kemur fram í skýrslu um hagkvæmnisathugun, sem Deloitte hefur gert fyrir innanríkisráðuneytið.

Fram kemur í skýrslunni að hærri rekstrarkostnaður skýrist af tveimur þáttum: ferðakostnaði og áhrifum af viðveruvaktarfyrirkomulagi og nauðsynlegri fjölgun starfsmanna áhafna þyrla.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í dag að  skýrslan sýndi að flutningur Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja væri ekki skynsamleg ráðstöfun til skamms tíma litið.///þetta er að mínu mati rétt ákvörðun og færi betur ef það væri oftar sem ekki er þvi miður!!!/Halli gamli 

mbl.is Kostnaður ykist um 692 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir nauðsynlegt að auka hagvöxt/ það sjá allir sem vilja en ekki Jóhanna og Steingrímur !!!

Segir nauðsynlegt að auka hagvöxt
Innlent | mbl | 27.4.2011 | 15:33

Mynd 538001 Endurreisn hagkerfisins verður að vera forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda en meira hefur þó farið fyrir orðum en gerðum í þeim efnum að undanförnu að mati Viðskiptaráðs Íslands.
Viðskiptaráð bendir á að frá bankahruninu haustið 2008 hafi landsframleiðsla dregist saman um tæplega 11% sem jafngildi samdrætti í verðmætasköpun hagkerfisins upp á 165 milljarða króna á aðeins tveimur árum.

Viðskiptaráð leggur áherslu á að lífskjör Íslendinga ráðist af þeim verðmætum sem hagkerfið skapi og hagvöxtur sé því undirstaða stöðugt bættari lífsgæða. Skjótur bati hagkerfisins sé forsenda þess að kostnaður vegna kreppunnar verði lágmarkaður og það sem tapaðist verði endurheimt eins og kostur sé.

Kaupmáttur nátengdur hagvexti

„Íslendingar eru vanir því að kaupmáttur aukist um 1% til 3% árlega og til þess að viðhalda slíkri árlegri kaupmáttaraukningu þarf kröftugt atvinnulíf sem skapar verðmæti. Ef horft er til þróunar kaupmáttar undanfarna tvo áratugi, má sjá að kaupmáttaraukning helst í hendur við hagvöxt á mann líkt og meðfylgjandi mynd ber með sér. Frá árinu 1990 hefur verðmætasköpun hvers Íslendings vaxið um 32% en á sama tíma hefur kaupmáttur aukist um 31%. Því má segja að markmið um aukinn hagvöxt feli í sér markmið um bætt lífskjör,“ segir í tilkynningu Viðskiptaráðs.

Verði hagvöxtur veikur á næstu árum eins og spár geri ráð fyrir segir Viðskiptaráð að uppsafnað velferðartap vegna tapaðs hagvaxtar geti orðið allt að 3.400 milljarðar króna fram til ársins 2020. „Í þessu samhengi er rétt að benda á að landsframleiðsla Íslands var rétt rúmlega 1.500 milljarðar árið 2009. Fjárhæðirnar sem hér um ræðir eru gríðarlega háar þar sem áhrif veikari vaxtar koma betur í ljós eftir því sem fram í sækir,“ segir í tilkynningunni.///Ef þau ekki skilja þetta Jóhanna og Steingrímur,hvað þá ?? ekki er hægt að liða þetta lengur við getum ekki stoppað allt sem kemur okkur i hagvöxt.ríkisstjórnin varð að fara frá!!!!/Halli gamli

mbl.is Segir nauðsynlegt að auka hagvöxt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílastæðagjald hækkað um 50%/er þetta ekki bara mynna en Orkuveitan og Borgin okkar er að gera ???

Bílastæðagjald hækkað um 50%
Innlent | mbl.is | 27.4.2011 | 11:48

Mynd 561622Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), segir að verðskrá Icepark, sem reki langtímabílastæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, hafi hækkað um tæplega 50% þann 15. apríl sl.

Á vef FÍB segir að gjald fyrir 10 daga afnot af langtímabílastæði sé nú 7.400 kr., en hafi áður kr. 5.010 kr. fyrir 10 daga samkvæmt upplýsingum starfsmanns Icepark.  

„Gjaldið hefur því verið hækkað um tæplega 50% á einu bretti! Það er ljóst að vertíð ferðalaga til útlanda er að hefjast og líklegt að margir munu ætla að geyma bíla sína á umræddum bílastæðum.  Það er því ástæða til að vekja athygli bíleigenda á ósvífinni hækkun Icepark á leigu fyrir langtímabílastæði og öðrum valkostum í þessu sambandi,“ segir FÍB.

Þá segir að fréttavefur FÍB hafi sett sig í samband við Icepark ehf. nú í morgun til að kalla eftir skýringum fyrirtækisins á þessari miklu hækkun.

„Sá sem fyrir svörum varð vildi engar upplýsingar gefa um forsendur hækkunarinnar. Hann neitaði ennfremur að gefa upp hver hann sjálfur væri og hvaða stöðu hann gegndi innan fyrirtækisins og þaðan af síður hver væri framkvæmdastjóri eða forstjóri og hvar og hvernig hægt væri að ná í hann en endurtók í sífellu að við gætum sent tölvupóst á icepark@icepark.is. Síðan sleit þessi talsmaður Icepark ehf samtalinu með því að leggja á,“ segir FÍB.////þarna eigum við þá val að nota þetta ekki !! en það eigum við ekki hjá Borginni okkar sem hækkar og hækkar og Orkuveitu sem hefur hækkaði mikið meira en þetta i allt,við eigum það engan kost annað en þetta að borga eða flýja íbúðirnar okkur og búa í kytrum ef það væru til ,við venjulegir borgara og lífeyrisþegar eigum að búa eins legi og hægt er heima ,en hvað það er verið að gera okkur það ókleift,þetta er vilja okkur allt !!!að það hálfa væri nóg,var að fá reikning núna um fráveitugjald sem hækkaði um 45% svo og rafmagn og hita sem hækkað núna aftur en als hækkað um 38+10% er þetta til að lífa okkur að vera heima en ekki fara a´stofnun sem er mikið dýrara fyrir Borgina,þessir andskotar eru ekki mennskir það verður að segjast/Halli gamli

mbl.is Bílastæðagjald hækkað um 50%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld svara ESA á mánudaginn/er þetta aðalmál málana!!!,þegar allt er í hnút her innanlands/Ríkisstjórnin heldur að ser höndum að gera það sem þarf,ekkert gert til að koma framkvædum og atvinnu af stað ,og margir svelta!!!!!

Stjórnvöld svara ESA á mánudaginn
Innlent | Morgunblaðið | 27.4.2011 | 5:30

Skrifstofur EFTA í Brussel. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að ráðuneytið muni svara áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna Icesave á mánudaginn, þegar svarfrestur rennur út.

Svarbréfið verði væntanlega gert opinbert um leið og ESA hafi fengið það í hendur.

Ef andsvör stjórnvalda duga ekki til að breyta áliti ESA er næsta skref ESA í málsmeðferðinni að senda rökstutt álit til íslenskra stjórnvalda. Að síðustu gæti ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins sem kvæði endanlega upp úr um hvort Ísland hefði brotið gegn ákvæðum tilskipunarinnar og jafnræðisreglu EES-samningsins. ///það var okur sagt að þetta bréf væri löngu til svo er verið að telja þetta,,ÞEGAR ALLT ER Á VONARVÖL HÉR INNANLANDS!!!Hvað er að þarna alþingi ennþá í fríi geta þeir ekki unnið vinnuna sína,"eftir höfðinu dansa limirnir" segir maltækið,það bókstafalega allt i hakanum hér hjá Ríkisstjórn vorri ekki spurning bara veriðað leika sér og láta tímann líða og biðla til flokka um samstarf,og engin atvinna i nánd svo og engin framkvæmt bara verið að refja geimið allt  til að við bara bölvum íhaldinu fyrir að koma okkur i þessa kreppu,en er fólk virkilega það vitlaust að að gengu rekki lengur að tala bara um fortíð,.að er framtíðin sem gyldir ekkert annað koma stað verkefnum sem löngu ættu að vera kominn gang ,en það má ekki það er hættulegt að þeirra mati kommana ekki spurning það sem hangira´spýtunni er ESB og ekkert annað,það  á að bjarga öllu*/Halli gamli

mbl.is Stjórnvöld svara ESA á mánudaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband