United komst ekki á toppinn/jafntefli varð ,en Arsenal gerði einnig jafntefli!!!

United komst ekki á toppinn
Íþróttir | mbl.is | 9.1.2010 | 19:29

Cameron Jerome og Liam Ridgewell fagna marki þess fyrrnefndaManchester United tókst ekki að skjótast í efsta sætið í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið heimsótti Birmingham og varð að sætta sig við 1:1 jafntefli og eitt stig. Þrjú hefðu komið United upp fyrir Chelsea, en það tókst sem sagt ekki.

Chelsea er með 45 stig, Manchester United 44 og Arsenal 42 stig en United hefur leikið einum leik meira en keppinautarnir.

1:0Cameron Jerome skorar fyrir heimamenn á 39. mínútu.

1:1 Meistararnir búnir að jafna eftir þunga sókn 64. mínútu. Eftir skot utan teigs fór boltinn í varnarmann Birmingham og í netið. Aðstoðardómarinn veifaði á rangstöðu á Rooney, en dómarinn lét markið standa.

RAUTT Darren Fletcher, leikmaður United, fékk að sjá gula spjaldið öðru sinni á 84. mínútu og þar með rautt.///þetta setur pressu á deildina og M.U.N. hefur einum leik meira ,maður heldur en i vonina á mínir menn Arsenal fari ofar en spyrjum að leikslokum Chelsea getur unnið sinn nælsta leik  jafnvel tapað??og svo og Arsenal  þá veður fjörið meira,en veðrið þar í Bretlandi setur allt i uppnám/Halli gamli 


mbl.is United komst ekki á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvorki geta né eiga að borga/þetta er sennilega mjög fagleg skoðun!!!!!

Hvorki geta né eiga að borga
Innlent | mbl.is | 9.1.2010 | 20:31

Icesave er enn í kastljósi fjölmiðla víða um heim.Íslendingar geta ekki staðið undir þeim skuldbindingum sem Bretar og Hollendingar vilja leggja þeim á herðar, segir greinarhöfundur í The Times. Hann segir það jafnframt miklum vafa undirorpið hvort Íslendingum beri, skv. ESB reglum, skylda til að greiða Bretum og Hollendingum.

Bronwen Maddox, greinarhöfundur The Times, segir Íslendinga ekki hafa fjárhagslega burði til að greiða Bretum og Hollendingum til baka þann kostnað sem hinar síðarnefndu þjóðir urðu fyrir vegna falls íslensku bankanna. Því eigi Bretar og Hollendingar að slá á kröfur sínar - þeir muni hvort eð er aldrei fá upp í þær allar.

Jafnfram segir Maddox það vera miklum vafa undirorpið hvort Íslendingum beri, samkvæmt evrópskum lögum, skylda til að greiða til baka þá upphæð sem Bretar og Hollendingar lögðu út vegna landa sinna sem áttu innistæður í Icesave. Hann bendir á að íslenska innistæðutryggingakerfið hafi farið að reglum Evrópska efnahagssvæðisins, sem hafi ekki gert ráð fyrir afleiðingum kerfishruns.///þetta er sterk skoðun og mjög svo í tíma töluð og þetta er sannleikurinn sem þar fer alveg klár/Við getum ekki borgað enda orkar það tvímælis einsog hann og flestir komast að/Halli gamli


mbl.is Hvorki geta né eiga að borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill þýskan sáttasemjara/þetta ekki vitaus hugmynd!!!!!

Vill þýskan sáttasemjara
Innlent | mbl.is | 9.1.2010 | 19:50

LIlja MósesdóttirLilja Mósesdóttir segir ráð fá Joschka Fischer, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands, til að miðla málum í deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga vegna Icesave málsins. Hún segir þýska lánadrottna hafa sýnt málstað Íslendinga mikinn skilning.
 við erum með þessu að senda skilaboð út til Evrópuþjóðanna að við þiggjum hjálp og teljum okkur þurfa aðstoð þriðja aðila til að fá fram lausn sem íslenska þjóðin sættir sig við,“ segir Lilja í samtali við mbl.is. Með henni í viðtalinu var Ögmundur Jónasson, einnig þingmaður VG.

Lilja segir mjög við hæfi að fá Þjóðverja til að miðla málum, þar sem þýskir kröfuhafar hafi sýnt Íslendingum mikinn skilning, og verið viljugir til að afskrifa skuldir til þess að tryggja að Íslendingar geti staðið undir skuldbindingum sínum til langs tíma.

Skilning á skuldavanda þróunarlanda

 

„Hvað Fischer varðar voru Græningjar [flokkur Fischers] þekktir fyrir að hafa mikinn skilning á skuldavanda þróunarlanda, og hafa staðið vörð um náttúruperlur.“Til að standa undir skuldbindingum Icesave-samkomulagsins þarf að virkja íslenskar náttúruperlur, segir Lilja, sem Fischer muni hafa skilning á að sé ekki farsæl lausn.

Ekki hefur verið kannað hvort Fischer sé fáanlegur til verksins. 

„Ég sem borgari vil þjóðaratkvæðagreiðslu, en sem þingmaður VG tel ég að það gæti verið betra að fara samningaleiðina, og nota þá möguleikann á þjóðaratkvæðagreiðslu sem vopn í deilunni,“ segir Lilja.

Meti verðmæti áður en borgað er

 

Meðal þess sem Ögmundur segir í viðtalinu við Der Westen er að Íslendingar vilji standa við erlendar skuldbindingar sínar, en bætir við: „Icesave átti líka verðmæti á borð við hlutabréf. Áður en við borgum viljum við vita hve mikils virði þau eru.“

Haft er eftir Ögmundi að hann óttist að Norðurlöndin dragi til baka lánafyrirgreiðslu sem Ísland þurfi nauðsynlega á að halda. Hann hvetur ESB til að koma Íslendingum til hjálpar./////þessi hugmynd er ekki verri að margar aðrar og ber að skoða vel!!!þetta er gott að fá einhver utanaðkomandi til að tala okkar máli og vera milligöngumaður ekki mun af veita,allt á   reina/Halli gamli


mbl.is Vill þýskan sáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingritarinn hnippti í forsætisráðherrann///ekki er þetta gjæfulegur leiðtogi!!!!

Þingritarinn hnippti í forsætisráðherrann
Innlent | Morgunblaðið | 9.1.2010 | 5:30

Jóhanna Sigurðardóttir les upp forsetabréfið í gær. Skondin uppákoma varð við upphaf þingfundar á Alþingi í gærmorgun. Ásta R. Jóhannesdóttir forseti sló í bjölluna og setti fundinn en fyrst í stað gerðist ekki neitt.

Ásta hnippti þá í Vigdísi Jónsdóttur þingritara sem aftur ýtti í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Jóhanna átti að lesa forsetabréf um að þingið væri tekið til starfa en hún var svo niðursokkin í pappíra að hún áttaði sig ekki á því að hennar væri óskað í pontu.///þurfum við nokkuð að vera hissa þegar leiðtogar okkur eru svo ,er  von að vel gangi spyr sé sem vill fá svör/Halli gamli


mbl.is Þingritarinn hnippti í forsætisráðherrann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

60% andvíg Icesave-lögunum/já þetta er það sem þjóðin vill,en ekki stjórininn sem það kaus!!!

60% andvíg Icesave-lögunum
Innlent | mbl.is | 9.1.2010 | 7:09

Ólafur Ragnar Grímsson á BessastöðumUm 40 prósent þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja að lög um ríkisábyrgð á Icesave, sem forsetinn synjaði staðfestingar, haldi gildi sínu. Sex af hverjum tíu ætla að hafna lögunum.

Mikill munur er á stuðningi við lögin hjá stuðningsmönnum stjórnmálaflokkanna. Aðeins fimmti hver stuðningsmaður Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks styður lögin, en þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum Samfylkingarinnar, samkvæmt frétt Fréttablaðsins.

Ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að synja lögunum staðfestingar og vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu, nýtur stuðnings mikils meirihluta þjóðarinnar.

Alls sögðust 62,4 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni styðja ákvörðun forsetans, en 37,6 prósent sögðust henni andvíg.

Brot úr þættinum On the Edge með Max Keiser þar sem Íslendingar eru hvattir til að greiða ekki af þáttarhöfundi er nú sýnt á YouTube.

Gestur í þættinum, Stacy Herbert, stjórnmálafræðingur, leiðréttir Keiser um að Íslendingar ætli ekki að greiða en hann segir að heimildir hans á Íslandi hermi að Íslendingar muni aldrei samþykkja lögin. Hann hrósar Íslendingum fyrir að standa upp gegn bankamönnunum og láta ekki kúga sig. 

Herbert segir honum að Fitch hafi þegar lækkað lánshæfismat Íslands en Keiser segir að stjórnvöld í Bretlandi hafi sett hryðjuverkalög á Ísland. Ekki sé hægt að réttlæta slíkar gjörðir.sennilega fer þetta eitthvað á þessi leið,og þá falla lögin sem við erum að með en hin taka ekki við eldri nema Bretar og Hollendingar samþykki,en þá er bara eftir að semja betur !! eða láta þá sækja máið sem þeir geta tapað,og sterkar lýkur því,eftir því sem lögin segja,jafnvel þó við séum búnað lofa borgun,þá sleppum við/Halli gamli


mbl.is 60% andvíg Icesave-lögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni: Eigum aðra kosti/ekki spurning "sameinaðir vinnum við sundraðir föllum"!!!!

Bjarni: Eigum aðra kosti
Innlent | mbl.is | 9.1.2010 | 11:18

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á...Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að Íslendingar eigi ekki annan kost en að samþykkja Icesavelögin. Að sjálfsögðu eig þjóðin það í þeirri sterku lagalegu stöðu sem Íslendingar eru í. Það stenst ekki skoðun að hér fari allt á hliðina ef lögin fái ekki framgang.///komst því miður ekki á fundin !!!en hann var góður af fréttum  að sagt er maður er lasinn kallin og treysti mer  ekki/en þetta er rétt hjá Bjarna við eigum mikið i stöðunni áður en lotningin fer fram/Halli gamli


mbl.is Bjarni: Eigum aðra kosti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halda áfram með Íslandslánin/nei Danir og Finnar tauta um annað!!!!!

Halda áfram með Íslandslánin
Innlent | mbl | 8.1.2010 | 11:21

Steingrímur J. SigfússonNorðurlöndin, í það minnsta Noregur, og AGS, munu halda áfram með efnahagsáætlun sína með Íslandi, þrátt fyrir að forseti Íslands hafi neitað að staðfesta Icesave lögin. Þetta kom fram í norskum fjölmiðlum eftir fund Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra með norskum ráðamönnum í morgun.
Aftenposten.no greinir frá þessu í forsíðufrétt, þar sem segir í fyrirsögn að Íslendingurinn hafi fengið það sem hann vildi, í heimsókninni til Noregs.

Steingrímur eyddi morgninum í Noregi og fór þar á fund fjármálaráðherra Noregs, Sigbjörns Johnsen. Því næst hitti hann Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra, til að ræða þá stöðu sem upp er komin vegna synjunar forsetans á Icesave-lögunum.

Segir í frétt Aftenposten að Steingrímur sé afar þakklátur fyrir að lánveitingarnar raskist ekki fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni í febrúar. „Það er engin tilviljun að ég kom fyrst til Noregs," sagði hann eftir fundinn með Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra.

Hann var spurður hvers vegna Íslendingar ættu að borga fyrir mistök örfárra bankamanna. „Hvers vegna er heimurinn ekki réttlátur?" svaraði Steingrímur þá að bragði

Jonas Gahr Störe vildi eftir fundinn ekki tjá sig um það hvað Norðmenn gera í þessum lánamálum, ef svo fer að Íslendingar felli Icesave-lögin í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Steingrímur var spurður hvort ríkissstjórnin myndi sitja áfram ef svo færi. „Það er of snemmt að segja til um nú," svaraði Steingrímur því.

Ekki náðist í Steingrím eftir fundina en samkvæmt upplýsingum úr fjármálaráðuneytinu sagði Steingrímur að fundirnir hefðu verið mjög jákvæðir. Sérstaklega hefði verið gríðarlega mikill áhugi norskra fjölmiðla á að fjalla um Icesave-málið og Ísland, en eftir fundina með ráðherrunum hitti hann norska fjölmiðla.

Steingrímur er nú á leið til Kaupmannahafnar, þar sem hann mun hitta Claus Hjort Frederiksen fjármálaráðherra Danmerkur. Steingrímur er væntanlegur aftur til landsins seint í kvöld.///Steingrímur er ekki nógu harður,það verður að ver það i svona viðskiptum ekkert annað,þetta et bara linkind og ekkert annað og jafnvel fyrirsláttur að AGS stjórni þessu sem er alls ekki,vilji þeir seki hjálpa okkur gefum við bara skít i þá ekkert annað að gera fáum bara lán frá Kinverjum annað ekki i stöðunni,svo er mikill tviskynningur að elta ólar við ESB það i liggur einnig  þessi gunguskapur/Halli gamli


mbl.is Halda áfram með Íslandslánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Telegraph: Engin ástæða til að Íslendingar greiði,þarna lyggur hundurin grafin!!!!

Telegraph: Engin ástæða til að Íslendingar greiði
Innlent | mbl.is | 9.1.2010 | 7:37

InDefence á Bessastöðum„Ég held í fyrsta lagi að Brown hafi verið geggjaður þegar hann ákvað að skattgreiðendur ættu að greiða fyrir innistæður á reikningum Kaupþings og Landsbankans og ég sé enga ástæðu fyrir því að Íslendingar eigi að „endurgreiða" ríkissjóði," skrifar Vicki Woods dálkahöfundur hjá breska blaðinu Telegraph á vef blaðsins í dag.////það er margir á þessari skoðun og þeim fjölgar enn ekki fækkar,þetta er sennilegra bara rétt,en þetta ætti að vera gott veganesti i næsta samninga og ekkert annað ,við skulm borga er þar eins litið og hægt er og mynni vexti/Halli gamli  
mbl.is Telegraph: Engin ástæða til að Íslendingar greiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndir fagna þjóðaratkvæðagreiðslu/það renna á mann tvær grímur,þvi ekki sátt um nyjan samning!!!!

Frjálslyndir fagna þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent | mbl.is | 9.1.2010 | 7:42

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksinsFramkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins fagnar því að þjóðin fær tækifæri til þess að kjósa um mál sem varðar framtíð hennar um áratugi. Stjórnmálamenn á alþingi eiga að stíga skrefið til fulls og semja lög sem gefa þjóðinni rétt til þess að kveða upp sinn dóm í umdeildum málum, að því er segir íÞað á meðal annars við um íslenska kvótakerfið.
Allir stjórnmálaflokkar hafa á undaförnum árum lagt til, meðal annars í stjórnarskránefnd, að þjóðaratkvæðagreiðslur væru viðhafðar í auknum mæli, enda þjóðaratkvæðagreiðslur góður mælikvarði á lýðræðislegan vilja þjóðarinnar.
Þau auknu lýðréttindi ber að virða.
Það er óþolandi ósiður margra stjórnmálamanna hér á landi, að vera með hótanir um stjórnarslit ef framkvæma á þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeild mál.
Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins telur eðlilegt þegar mál eru svo umdeild sem Icesave málið hefur verið, að forseti Íslands taki ákvörðun um að vísa slíku máli til þjóðarinnar. Íslendingar eru hvattir til að sýna vilja sinn í verki með mikilli þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem væntanleg er."
 ályktun frá framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins///enn og aftur kemur maður að því að þetta er nátturlega þa sem  Forseti vor ætlaðist til ,en betra g-hefði verið að allir hefðu komið sér saman um a' senda sendinefnt að semja uppá nyt,annars malaferli bara/Halli gamli


mbl.is Frjálslyndir fagna þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppboð auglýst á 150 eignum//svo fer alþingi i frí til 1 Februar,ekkert gert fyrir þetta fólk!!!Bara Icesave ??

Uppboð auglýst á 150 eignum
Innlent | mbl.is | 9.1.2010 | 9:40

Uppboð hafa verið auglýst á fjölda fasteigna á höfuðborgarsvæðinu. Nauðungaruppboð á yfir 150 fasteignum eru auglýst í Morgunblaðinu í dag. Flest eru uppboðin að byrja og fara þá fram á skrifstofum sýslumannsembættanna í næstu viku. Nokkur framhalds uppboð fara þó fram á staðnum.

Flest uppboðin eru auglýst af sýslumanninum í Hafnarfirði, samtals 63, og ná til eigna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi. Meginhlutinn byrjar á skrifstofunni næstkomandi þriðjudag en þau sem fram fara á eignunum sjálfum næstu daga á eftir.

35 uppboð eru auglýst af sýslumanninum í Reykjavík, flest miðvikudaginn 13. janúar.

Sýslumaðurinn í Kópavogi auglýsir 48 uppboð, næstkomandi fimmtudag, 14. janúar.

Þá auglýsir sýslumaður Snæfellinga uppboð á sex fasteignum á fimmtudag.

Þess má geta að ekki eru aðeins fasteignir til sölu því sýslumaðurinn í Reykjavík auglýsir uppboð á þremur óskilahrossum að beiðni umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur. Uppboðið fer fram í Stóðhúsinu í Víðdal næstkomandi föstudag.

Þar geta menn meðal annars boðið í 3ja vetra brúnskjóttan graðhest./// .þarna er ekkert gert meira fyrir þessar þúsundi mann sem eru að missa sitt heimilin og fyrirtækin,bar röflað um Icesave og ekkert annað nu og ekkert gert þar heldur en að bið og láta kjósa,svo i frí frá þessu öllu,þetta er mikil skömm og ekkert annað,þetta er malið að fólkinu verði hjálpað sem hægt er ,en ekki láta þetta í hendur bankanna sem hugsa bara um sig/Halli gamli


mbl.is Uppboð auglýst á 150 eignum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1047689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband