Ökumenn áminntir fyrir að skafa ekki//það er svo að menn verða að hafa úsýnið í lagi og fara varlega!!!

ÖkumennTöluvert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru... áminntir fyrir að skafa ekki Innlent | mbl.is | 26.1.2013 | 7:17 Töluvert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu í nótt og varar lögreglan við því að mikil hálka leynist undir snjónum á götum og göngustígum.

Er fólk því hvatt til að fara varlega af stað út í umferðina í dag. Víða um land er hálka eða hálkublettir á vegum. Er fólk því hvatt til að fara varlega af stað út í umferðina í dag.

Tvö umferðaróhöpp urðu í höfðunum í Reykjavík í nótt. Ekki urðu slys á fólki, en lögregla telur hálku líklega orsök.

Lögreglan þurfti að áminna nokkra ökumenn í nótt sem skófu ekki eða illa snjóinn af hliðarrúðum, afturrúðu, fram- og afturljósum bílsins.

Vill lögregla því minna fólk á að skafa vel snjóinn af bílum sínum. Víða hálka eða snjóþekja Að sögn Vegagerðarinnar eru hálkublettir á Reykjanesbraut en hálka og snjókoma á Hellisheiði og í Þrengslum.

Hálka er einnig á flestum vegum á Suðurlandi. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og í Bröttubrekku sem og á Snæfellsnesi og víðar á Vesturlandi.

Á Vestfjörðum er víðast hvar hálka eða hálkublettir en þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp.

Á Norðurlandi er hálka víðast hvar en þó er snjóþekja á Víkurskarði. Það er sömuleiðis vetrarfærð á Austur- og Suðausturlandi, víða hálkublettir eða hálka, jafnvel snjóþekja á fáfarnari vegum.//////////////////það er okkur kennt mjög vel í ökukennslu ,að gera þessa hluti og það vel!!við getum ekki gleymt því útsýnið er númer eitt í keyrslu!! trassaskapur er þarna alsráðandi ekkert annað!!en svona aðferðir eru slysavaldandi mjög,annað er að fara einnig verlega,þegar færð er hálka og snjór,en þetta er og á að vera okkur aðvörun um að halda okkur í lagi og bílunum!!!!!/Halli gamli


mbl.is Ökumenn áminntir fyrir að skafa ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kærður fyrir frétt um dagforeldri//"aðgát skal höfð í nærveru sálar"segir máltækið,og hafa það sem sannara reynist!!

Kærður fFrá Akureyri.yrir frétt um dagforeldri Innlent | mbl.is | 26.1.2013 | 9:33 Ritstjóri og blaðamaður vikublaðsins og Akureyri vikublaðs, Björn Þorláksson, hefur verið kærður til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands vegna fréttar sem birtist á vefmiðlinum þann 17. janúar og síðar sem forsíðufrétt í vikublaðinu daginn eftir með fyrirsögninni „Sýknaður af níði passar börn.

“ Í fréttinni sagði að karlmaður sem sýknaður hefði verið af kynferðisbroti bæði fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra og í Hæstarétti árið 2011 ynni sem dagforeldri.

Samkvæmt heimildum mbl.is byggir kæran til siðanefndarinnar á því mati kæranda að fyrirsögnin „Sýknaður af níði passar börn“ sé til þess eins fallin að gefa misvísandi upplýsingar og ærumeiðandi

Fréttin hafi valdi miklum sársauka og vanlíðan, sem hafi ekki síst birst hjá börnum og aðstandendum mannsins. Kæran byggir á 3. og 5. grein siðareglna Blaðamanna Íslands þar sem segir m.a. að blaðamaður skuli forðast allt sem valdið geti saklausu fólki óþarfa sársauka eða vanvirðu.

og að í frásögnum af dóms og refsimálum skuli blaðamenn virða þá meginreglu laga að hver maður sé talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.

Fréttin sem birtist þann 17. janúar mun þegar hafa valdið manninum umtalsverðum fjárhagsskaða auk æru- og atvinnumissis.

Kæran var send siðanefnd Blaðamannafélagsins við upphaf síðustu viku.////////////////þetta er mjög svo vítavert,eiginlega óafsakanlegt,og af blaðamanni als ekki,en við eigum öll eitthvað þarna inni ekki dæma fólk fyrirfram ,það er okkur mjög tamt og einnig sumum fjölmiðlum ,því miður!!! en við verðum að taka okkur öll á hérna,og hætta að dæma fyrirfram!!!!//Halli gamli


mbl.is Kærður fyrir frétt um dagforeldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan varar við tröllum//þetta er rétt þetta er mjög svo leiðgjant að gera,sammála Lögreglu og Fl.


Tröllin leynast víða á internetinu eins og lögreglan bendir...Lögreglan varar við tröllum Innlent | mbl.is | 26.1.2013 | 9:55 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er ekkert mannlegt óviðkomandi.

Í dag fjallar hún á facebok síðu sinni um svo nefnd „tröll“á netinu og hvetur netverja til að láta þau ekki eyðileggja samskipti sín.

Sjálf hefur lögreglan getið sér gott orð fyrir framkomu sína á facebook síðustu misseri. Lögreglan gerir að umtalsvefni á morgun það háttalag sumra á internetinu að „trolla“ en í því felst að reyna að æsa fólk upp.

„Því miður er þetta íþrótt sem margir stunda með því að kasta inn óviðeigandi innleggjum í annars málefnalega umræðu til að eyðileggja hana.

Á íslensku mætti kalla þessa einstaklinga „tröll“ enda reyna þeir að haga sér tröllslega og valda æsingu og leiðindum,“ segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í dag.

„Upp á ensku er oft sagt „don't feed the trolls“ eða „ekki fóðra tröllin“ sem þýðir í raun að því meira sem rifist er við slíka einstaklinga, því mun meira njóta þeir sín við iðju sína.

Ekki leyfa tröllum að eyðileggja samskipti okkar á netinu,“ segir í pistli lögreglu./////////////////þetta eru orð í tíma töluð,eins og þetta er góð samskiptasíða má ekki eyðileggja hana með  skítkasti til manna sem vilja koma sínum skoðunum fram,málefnalega,þau mega einnig vera það andsvörin!!en skítkast og hótanir eiga ekki inni þarna,góð samskipi með ólík mál mjög þarfleg,svo ég tali nú ekki í frændsemi og gamla kunningja og eignast nýja,og að löggæslan sé með okkur hinum ,og komi með jafnvel húmor með!!!!!/Halli gamli 

 

 


mbl.is Lögreglan varar við tröllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir sig úr Vinstri grænum/Manni finnst þetta ekki nein frétt,það yfirgefa allir svona flokka!!!

SeHjörleifur Guttormssongir sig úr Vinstri grænum Innlent | mbl.is | 25.1.2013 | 20:51 Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, sagði sig úr Vinstri hreyfingunni grænu framboði í kvöld. Hjörleifur er einn stofnfélaga flokksins.

Í kveðjuræðu á flokksráðsfundi VG í kvöld sagði hann flokkinn hafa vikið af leið. og gagnrýndi forrustuna harðlega.

Hjörleifur sagði vegferð flokksins hafa gengið vel framan af og félagsmenn hafa lagt mikið á sig við að byggja undir stefnuna og bæta við nýjum stoðum. Minnti hann í því samhengi á Græna framtíð vorið 2007 og Hafið, bláa hafið 2009.

Hann sagði endurreisn efnahagslífsins sömuleiðis hafa gengið að ýmsu leyti vonum framar í ríkisstjórnartíð VG eftir hrun. Valdboð og brotin loforð „Gjörbreyting hefur hins vegar orðið á störfum flokksins til hins verra,“ sagði Hjörleifur

. Sagði hann starfið að mestu takmarkast við að uppfylla lágmarks formkröfur. Ágreiningi hafi verið ýtt til hliðar með valdboði og ítrekað brotið gegn yfirlýstri stefnu og kosningaloforðum. „Afleiðingarnar blasa við okkur. Þingmenn hafa gengið úr flokknum eða hætt störfum og fjöldi óbreyttra félagsmanna.

Í þessum hópi er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forystukraftur í fremstu röð, og nú nýverið Anna Ólafsdóttir Björnsson, fyrrverandi þingkona Kvennalistans,“ sagði Hjörleifur þegar hann ávarpaði flokkssystkin sín í kvöld. Ákvörðun um aðildarumsókn óverjandi og siðlaus

„Ég ætla ekki að þreyta ykkur á langri upptalningu á hrapalegum mistökum og óverjandi ákvörðunum síðustu fjögur ár. Nú í ársbyrjun sendi ég þingflokki VG bréf og gerði að umtalsefni vinnubrögðin við aðildarumsókn að ESB og ákvarðanir um úthlutun sérleyfa til olíuvinnslu á Drekasvæði. Að vanda komu engin viðbrögð.

En þau eru reyndar fleiri stóru málin sem hrúgast hafa upp, nú síðast vinnubrögðin í stjórnarskrármálinu,“ sagði Hjörleifur.

Ákvörðunin um aðildarumsókn að Evrópusambandið er þó stærst að hans mati. „Það er göróttasti kokteill sem blandaður hefur verið um langt skeið, óverjandi, siðlaus og eitraður fyrir flokkinn.

“ Hjörleifur sagði ómerkilegast að láta líta svo út sem verið væri að sækja um ESB-aðild „til að þjóðin gæti tekið ákvörðun um málið“.

Hér var ekki verið að sækja um aðild þjóðarinnar vegna, heldur til þess eins að halda ríkisstjórninni á lífi.“ Þurfti ekki að þróast svona Hjörleifur sagði ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar um stuðning við leitar- og olíuvinnsluleyfi með möguleika um framlengingu til 30 ára vera í hrópandi mótsögn við umhverfissjónarmið flokksins og hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar í auðlindanýtingu.

„Góðir fundarmenn. Svona þurfti þetta ekki að þróast, ef allt hefði verið með felldu. Því miður sé ég þess engin merki að Eyjólfur hressist. Þvert á móti er siglt hraðbyri upp í fjöru, með sömu áhöfn við stýri, forystu sem komið hefur flokknum í þessa dapurlegu stöðu.

Ég kveð Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, hér og nú, með blendnum tilfinningum, reynslunni ríkari, og þakka um leið mörgum ykkar fyrir langa og um margt ánægjulega samfylgd. Lifið heil.“ Kveðjuávarp Hjörleifs Guttormssonar//////////////Hver sem er getur orðið hissa en ég er það ekki als ekki,þetta er komið á flótti sem ekki endar nema á einn veg,og hann er það sem nú tíðkast að stofan nýjan flokk,og það er svo að það er talað um það á fullu að svona flokk einangrunar og algjörrar stöðvunar og friðunar vanti,eru ekki komin þó nokkur, bara Þarna sem hafa hætt í mörgum flokkum og rekast ekki í svona Flokkum eins og fjórflokkurinn er kallaður,en þetta er svo og verður svo því miður,ef ekki kemst hér á hægri stjórn og miðju er þetta glatað allveg!!!,við getum ekki staðið í að borga skuldir og haft vinni og lofað fólkinu neinu nema að nota auðlindir okkar,eftir þessi 4 ára ættu menn að vita þetta,annað er ekki  hægt,en far vel V.G. og það verður jarðað í kyrrþey!!!!//Halli gamli


mbl.is Segir sig úr Vinstri grænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný og litrík íbúðabyggð mun rísa///þetta fábært,en þétting byðar, er einnig varhugaverð!!!

Ný og litSvona mun hverfið líta út á byggingarreitnum sem markast af...rík íbúðabyggð mun rísa Innlent | mbl.is | 25.1.2013 | 17:01 Nýtt deiliskipulag á reitnum Einholt-Þverholt var samþykkt á fundi borgarráðs Reykjavíkur í gær.

Á milli 200-230 íbúðir verða reistar á reitnum og gerir deiliskipulagið ráð fyrir uppbyggingu fjölbreytilegrar og litríkar íbúðabyggðar á 3-5 hæðum. á suðurhluta reits, en norðurhluti reitsins verður að mestu óbreyttur.

Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að gert sé ráð fyrir fjölbreyttum gerðum íbúða og bílageymslum á tveimur hæðum í kjallara.

„Á reitnum er gert ráð fyrir fjölbreyttri hönnun og útfærslu nýbygginga þar sem um er að ræða byggingar í grónu hverfi.

+Yfirbragð byggðarinnar verður ljóst og skal hver stigagangur hafa mismunandi yfirbragð til að stuðla að fjölbreytni.

Mikilvægt er að byggingarnar myndi ekki einsleitan og samfelldan vegg en það næst fram með því að brjóta upp húsliðar með litum, efni og útbyggingum,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Reiturinn afmarkast af Einholti, Háteigsvegi, Þverholti og Stórholti. Deiliskipulagið er unnið á vegum Búseta svf. og Reykjavíkurborgar./////////////////það er flott að byggja þarna,þetta er gott hverfi og maður þekkir það vel,átti þarna heima stutt frá lengi!!en það einnig gott að hafa magar stærðir,og hæðir misjafnar,en þétting byggðar ber að varast um of við eru ekki svo landlaus að það þurfi!!við verðum að fara bil beggja í þessu við viljum rími ekki kaos!!! en þetta hverfi er á mörkunum of þröngt,að mínu áliti!!!/Halli gamli


mbl.is Ný og litrík íbúðabyggð mun rísa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukaályktun VG um ESB/á þetta að vera björgunarleið!!!!!!!!!

AukaSteingrímur J. Sigfússon á flokkstjórnarfundi VG sem nú fer...ályktun VG um ESB Innlent | mbl.is | 25.1.2013 | 17:26 Flokksráðsfundur VG samþykkti fyrir stundu aukaályktun um ESB.

Ályktunina er ekki að finna í prentuðum kynningargögnum um ályktanir. Undir hana rita Steingrímur J. Sigfússon formaður og Katrin Jakobsdóttir varaformaður, auk þess sem Hildur Traustadóttir og Sóley Tómasdóttir rita undir hana.

Í ályktuninni er lýst stuðningi við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að stöðva frekari vinnu við mótun samningsafstöðu vegna viðræðna við Evrópusambandið.javascript:tmc.toggle()

„Flokksráð beinir því til landsfundar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem haldinn verður í febrúar að taka afstöðu til þess hvernig flokkurinn skuli standa að framhaldi málsins...

Flokksráð telur mikilvægt að m.a. verði lagt fyrir landsfund að taka afstöðu til þess hvort gera eigi það að skilyrði fyrir því að VG standi að frekari viðræðum við Evrópusambandið á nýju kjörtímabili að þjóðin hafi áður veitt samþykki sitt til slíks í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir m.a. í ályktuninni.///////////þarna er að koma að skuldadögum um að þurrka ekki flokkinn út!!það er að hrökkva eða stökkva!!!en er ekki of seint í rassinn gripið,það er spurning!!en allt skal gert,en ekki kvikað frá friðunum það halda þeir að muni styrkja þá,en gerir ekki ,als ekki því eina sem okkur bjargar frá gjaldþroti er að nota auðlindirnar/Halli gamli


mbl.is Aukaályktun VG um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun standa af sér slæma niðurstöðu///ég veit ekki hvert við ættum að viðurkenna dómin verði hann okkur í óhag!!!!

Mun standa af séFranek Rozwadowski sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi.r slæma niðurstöðu Innlent | mbl.is | 25.1.2013 | 13:30 Ísland mun geta staðið við verstu mögulegu niðurstöðu Icesave dómsins, jafnvel þótt það muni kosta um 20% af landsframleiðslu.

Þetta er haft eftir Franek Rozwadowski sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi í viðtali við Bloomberg fréttaveitunaSegir hann að greiningar leiði það í ljós að hækkun skulda sem þessu nemur muni þrátt fyrir allt halda skuldastigi ríkissjóðs innan viðráðanlegra marka.

Á mánudaginn næstkomandi mun EFTA-dómstóllinn fella dóm í Icesave málinu. Dómnum er ætlað að kveða úr um hvort Ísland braut gegn skyldum sínum samkvæmt regluverki EES-svæðisins þegar innstæðueigendum Icesave-reikninga Landsbankans í Hollandi og Bretlandi voru ekki greiddar út lágmarkstryggingar á tilsettum tíma eftir fall bankans.

Í frétt Bloomberg segir að dómurinn geti leitt til þess að Ísland þurfi í versta falli að greiða 335 milljarða króna í bætur til Hollands og Bretlands, en það er samkvæmt mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á verstu mögulegu niðurstöðunni.

„Þrátt fyrir högg af þessari stærðargráðu, þá væri fjárhagsstaðan enn sjálfbær“ segir Rozwadowski í viðtalinu.

Segir hann að þrátt fyrir svona mikla aukningu skulda, þá myndi skuldahlutfallið enn halda áfram að lækka á komandi árum. /////////////////Ég er ekki sannfærður að við eigum að borga þetta þó svo við töpum þessu,sem eg vona ekki,en sumir eru mjög vissir um að við gerum það,það byggt á lögum gamalla kúganaríkja!!en síðan mundi ég als ekki hlíta dómnum þetta verður að vita fyrir víst að þetta var ekki í ábyrgð þjóðarinnar,heldur einstaklinga,og þannig er þetta og verður!!!!!!/Halli gamli


mbl.is Ísland mun standa af sér slæma niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófkjör í tveimur kjördæmum hjá Sjálfstæðisflokki//nú verður tekið á því við viljum þaran inn 4-5!!! Norðuland einnig 3-4!!!

Prófkjör í tMynd 644164veimur kjördæmum hjá Sjálfstæðisflokki Innlent | Morgunblaðið | 25.1.2013 | 7:17 Sjálfstæðisflokkurinn efnir til prófkjörs í tveimur kjördæmum á morgun, laugardag, vegna alþingiskosninganna í apríl n.k., í Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi.

Lesa Í Suðurkjördæmi er búist við fyrstu tölum um kl. 22 á laugardagskvöld.

Vefur morgunblaðsins mbl.is mun fylgjast með talningunni og einnig verða tölurnar birtar á www.xd.is.

Í Norðausturkjördæmi verða atkvæði talin á sunnudag og úrslit verða kunngjörð á Hótel KEA klukkan 15 þann dag.

Í Suðurkjördæmi er kosið á 21 stað. Atkvæði verða talin í Sandlækjarskóla á Selfossi./////////////við sjáfstæðismenn eru á ham að fá þerna inn meira en við höfum haft mikið mög!!!erum þarna með duglegt fólk með afbrygðum í framboði,ég á ættir til að rekja þarna undan  Eyjafjöllum og verið á þar og Tungunum Landeyjunum og Grímsnesi og Túnunum!!!á kunningja þarna um  allt suðurland,var meira  að segja í Laugardælum eitt sumar,og þar kynntist é mörgum á Selfossi!!en við eigum fullt erindi þarna sjalstæðismenn og vinnum þarna stór sigur!!!en einnig fyrir Norðan of Austann við verðum að stór vinna þar á ekki spurning að vitað er þetta prófkjör en mælikjörið er það!!!/Halli gamli


mbl.is Prófkjör í tveimur kjördæmum hjá Sjálfstæðisflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðan dag kæra fólk og karlar góðan Bóndadag,og konur !!sem eiga þá eða búa með þeim blessuðum!!!

Það er bjartur dagur og fallegur heyskírt og fullt tungl,og við Karlar fáum hamingjuósir vegna Bóndadags,en það þökkum við fyrir ,blessaðar konurnar hvað værum við án þeirra ,þær eru sumar meira að seigja Bóndinn á Heimilinu og það bara gott þessar elskur eru eiginlega allar frá bærar!! en í dag eru þær samt okkur mjög kærar þær eru að þakka okkur sem eigum það skilið og við eru þá auðvitað stoltir sem mest og bíðum bara konudags til að endurgefa þeim heilla óskir og gefa þeim eitthvað,en svona erum við inn við beinið fletir treystum á ykkur blessaðar!!!!!Þökkum fyrir okkur/Kveðja/Halli gamli

Gert ráð fyrir að viðræður haldi áfram///nú skal bara beitt hótunum,ef ekki þá???


Enda Kenny, forsætisráðherra Írlands, forseti...Gert ráð fyrir að viðræður haldi áfram Innlent | mbl.is | 24.1.2013 | 15:30 Evrópumálaráðherra Írlands, LucindaCreighton, segir að Evrópusambandið geri ráð fyrir að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum að kosningum í apríl loknum og ætlist til þess að viðræðunum verði lokið.

Að draga aðildarumsókn Íslands til baka á þessu stigi kann að vera skaðlegt fyrir samband Íslands!!!! við ESB,!!! segir Creighton í viðtali við Bloomberg fréttastofuna og bætir því við sambandið búist við því að Ísland taki ákvörðun um ESB aðild að samningaviðræðum loknum.///////////////Þarna sjáum við svart á hvítu,að það eru hótanir í gangi,reyndar vinsamlegar ,en samt,ef þið hættið,mun það þíða??þetta ríki Írland er bara eitt af 27 svo þetta er ekki bara þeir sem þetta segja það eru hin einnig,sáu þið í sjónvarpi snobbánægjan og undirgefninguna í augum okkar manna þarna!!!við viljum góð viðskipti við þessar þjóðir,en ekki undirgefni,og undirlægju hátt,bara EES og það endurskoðað!!!!/Halli gamli


mbl.is Gert ráð fyrir að viðræður haldi áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Jan. 2013
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband