Ánægður, svangur, syfjaður//þetta er stór spurning að reyna bara!!!

ÁnægðurKannabisreykingar í Alþingisgarðinum., svangur, syfjaður“ Innlent | mbl | 31.1.2013 | 21:10 „Ánægður, svangur, syfjaður.“ Svona lýsti Sigurður Ingi Einarsson, garðyrkjunemi og sjálflærður áhugamaður um kannabis, áhrifum af kannabisneyslu á málþingi um geðræn áhrif af neyslu kannabis.

Hann sagðist ekki draga skaðleysi þess í efa en mikilvægtværi að efla fræðslu og umræðu um kannabis. Sigurður Ingi tók fram að hann væri hvorki læknir né vísindamaður.

Hann sagðist talsmaður hópsins Kannabis - fræðum okkur sem stofnaður var seint á síðasta ári. „Markmið hópsins er að ýta undir málefnalega umræðu um kannabis og fíkn almennt.

Það þarf að auka magn upplýsinga.“ Kannabisræktun. Júlíus Sigurjónsson Meðal þess sem kom fram í erindi Sigurðar er að eituráhrif kannabis væru með því minnsta sem þekkt væri þegar kæmi að vímuefnum.

„Það þyrfti að reykja nokkur hundruð kíló á hálftíma og þá væri nú líklegra að viðkomandi myndi hreinlega kafna, frekar en að deyja úr eitrun.

“ Hann sagði ljóst að kannabisneysla gæti valdið varanlegum neikvæðum áhrifum en þá aðallega hjá þeim sem byrjuðu ungir, og það vildi enginn.

„Börn eiga ekki að reykja gras og raunar eiga börn - sem eru að þroskast - ekki að vera að neinu skaðlegu, hvort sem það er að borða sykur eða drekka orkudrykki.

Það þarf einfaldlega að auka fræðslu.“ Hann sagði bannstefnu í málaflokknum valda miklum samfélagsskaða. Svarti markaðurinn og glæpahópar hagnist mest af stefnunni.

„Dílerinn spyr ekki um aldur. Þannig er erfiðara að halda þessum efnum frá ungu fólki.“ Þá sagði hann innflutt hass oft drýgt með „óþverra“ á borð við gler, gifs og jafnvel blý.

Sigurður Ingi spurði að lokum hvort stjórnvöld næðu markmiðum sínum með bannstefnunni eða hvort ekki þyrfti að fara endurhugsa þessi mál. Hvers vegna er áfengi ekki ólöglegt?

Annar framsögumaður sem gagnrýndi bannstefnuna var Jóhannes Stefánsson, meistaranemi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.

Jóhannes reyndar gerði strax fyrirvara á máli sínu og sagðist ekki styðja fíkniefnaneyslu og hann hefði sjálfur ekki áhuga á henni.

Hann hefði hins vegar áhuga á löggjöfinni þegar kæmi að fíkniefnamálum. Jóhannes skrifaði BA-ritgerð sína í lögfræði um refsistefnu stjórnvalda í fíkniefnamálum og hvort hún hefði náð þeim árangri sem henni var ætlað.

„Í mjög stuttu máli má segja að stefnan hafi verið sett til að koma í veg fyrir neyslu, og að það hafi mistekist.

“ Þá bað hann fundargesti að svara þeirri spurningu hvers vegna áfengi væri ekki ólöglegt. „Það er óumdeilt að það er mjög skaðlegt vímuefni.

Áfengisneysla getur leitt til minnistaps, skorpulifrar og er þekktur áhrifavaldur í banaslysum í umferðinni, mörgum líkamsárásarmálum og stórum hluta morðmála.

Þó að menn viti þetta er áfengi samt löglegt. Og ef menn geta svarað þessari spurningu, af hverju áfengi er löglegt og af hverju það ætti ekki að vera ólöglegt, þá geta menn svarað sömu spurningu um öll vímuefni.“ Hann sagði bann ekki draga úr neyslu fíkniefna.

Kenningin væri sú að ef það lægi refsing við háttsemi þá mundi refsingin fæla menn frá því að viðhafa sömu tilteknu háttsemi. Refsingar hefðu þyngst verulega í fíkniefnamálum þannig að það ætti að vera minni neysla.

Svo væri hins vegar ekki og í raun væri þessu þveröfugt farið. Norðurlandameistarar í kannabisreykingum Jóhannes birti einnig tölur um lögleg fíkniefni, þ.e. áfengi og tóbak.

Hvað varðar ölvunardrykkju sextán ára ungmenna árið 1997 þá höfðu 38% svarenda orðið drukknir síðustu 30 daga fyrir könnunina.

Árið 2012 var hlutfallið 7%. Og árið 1995 reykti 21% sextán ára ungmenna vindlinga daglega. Árið 2012 var hlutfallið 3%. Hann sagði þetta árangur af forvarnarstarfi og fræðslu.

Íslendingar væru komnir vel á veg með að útrýma dagreykingamönnum í yngstu aldurshópum og væru langt undir meðaltali þjóða sem við bærum okkur saman við.

Á meðan værum við Norðurlandameistarar í kannabisreykingum, og aldrei hefði verið jafn mikil kannabisneysla meðal ungmenna.

„Getur verið að einhver umdeildasta löggjöf samtímans sé byggð á tilfinningum en ekki staðreyndum? Ef það er augljóst að árangur laganna er alls ekki sá sem hann á að vera, hversu lengi á að þráast við?“

Hann benti á að vindlinga mætti kaupa í nánast hverri verslun og áfengi í verslunum ÁTVR. Þegar svo talað væri um aðra stefnu í fíkniefnamálum væri á það bent að aðgengi mundi aukast svo mikið.

„Það er ekki rétt. Ég spyr, hvernig er hægt að auka aðgengi að kannabisefnum meira? Lögleg vímuefni sæta neyslustýringu og aðgangshindrunum sem ólögleg vímuefni gera ekki.

Fíkniefnasalar hafa engan sérstakan afgreiðslutíma, bjóða upp á heimsendingu og lán. Ég hef ekki heyrt um neinn sem hefur lent í handrukkun af hálfu ÁTVR.

“ Að lokum spurði Jóhannes fundargesti hvort það væri þá ekki bara í lagi banna bjórinn með boltanum, rauðvínið með steikinni og einfaldan sterkan niðri í bæ./////////////////þessi umræða er nauðsynleg og sama hvort maður er með eða á móti,eg er sjálfur ekki að berjast með eða á móti,er búin að lifa tímana tvenna í boðum og bönnum og kippi mér ekki upp við það,en innst inni er ég á móti boðum og bönnum að óþörfu,það er svo að þegar vínbannið var var ég barn!!en heyrði fólkið mitt tala mikið um það,og magur drakk ólyfjan og dó eða varð illa úti!!en svo kom að það var leift aftur og sígarettan einnig  og þetta var viðráðanlegt,en ÁTVR fékk sitt í einkaleyfinu og þetta hækkaði og hækkaði og smyglað og bruggað í óleyfi,en svona gekk þetta lengi,en fólk fór að fara mikið utanlands og þar fékkst nógur og ómæltur bjór og honum smyglað hér inn,en það var svo eftir margra ára baráttu leift og er nú mikla sala á bjór,en ekki var spáð vel fyrir því,allir yrðu börn og fullorðnir í eyhlífðri drykkju,en það rættist ekki,það er nefnilega með þetta áfengi að í öllum löndum er ákveðin prósenta sem ekki þolir að drekka og kann sér hóf og verður ofdrykkjufólk!!!en svo við komum aftur að  kannabis ,þá er sú jurt ekki verri en tóbak,sennilega hættumynni og að leifa hana er spurning sem verður að svara og skoða!!!!/Halli gamli


mbl.is „Ánægður, svangur, syfjaður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumvarpið síst til sátta fallið//datt nokkrum það í hug frá þessum kommum!!!


Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.Frumvarpið „síst til sátta fallið“ Innlent | mbl.is | 31.1.2013 | 18:47 „Ég hef haft mjög takmarkaðan tíma til þessað líta á frumvarpið en það sem ég hef séð líst mér illa á.

Það er augljóst mál að þetta frumvarp er gamalt vín á nýjum belgjum. Þarna ganga aftur gamlir kunningjar sem voru metnir af sérfræðingum og komust að þeirri niðurstöðu á sínum tíma að þessi leið sem ætlunin væri að feta myndi leiða til lakari og veikari sjávarútvegs sem myndi gefa þjóðinni minni heildarafrakstur.

“ Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða sem lagt var fram á Alþingi í dag af Steingrími J. Sigfússyni, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að það hafi meðal annars verið samið með hliðsjón af tillögum frá svonefndum trúnaðarmannahópi sem í voru fulltrúar allra þingflokks fyrir utan Hreyfinguna en Einar átti sæti í hópnum.

Hann segir að í fljótu bragði virðist sem tekið hafi verið tillit til tillagna trúnaðarmannahópsins að einhverju leyti en í vegamestu tillögunni sé það hins vegar ekki gert enda sé ætlunin með skipulögðum hætti að veikja aflahlutdeildir þeirra sem hafa í dag fengið úthlutað kvóta sem muni bitna hart á nýrri útgerðum eins og bent hafi verið á við meðferð síðasta frumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða.

„Þannig að mér sýnist í fljótu bragði að þetta frumvarp sé sama markinu brennd og hin fyrri og sé síst til sátta fallið né heldur að það muni stuðla að þeirri hagkvæmi sem við ætlumst til að sjávarútvegurinn skili okkur og verður að skila okkur til þess að standa undir góðum lífskjörum í landinu,“ segir Einar.////////////////það var alveg viðbúið að Steingrímur mundi  skella þessu fram núna til að fá út á  það einkver atkvæði,sem verður aldey samþykkt ,svona als ekki,en eins og við öll vitum er ýmislegt sem má lagfæra,og hefði átt að vera búið að gera í sátt og samlindi,en ekki bara á annan vegin,heldur fyrir okkur landann og útgerðamenn og sjómenn,og þessa vegna er þetta frumvarp ekki til þessa fallið!!það er ekki bara útgerðir sem hafa safnað skuldum það var orðið lenska,því miður allt fór úr böndum,og menn tóku lán nóg var af þeim ,þetta vitum við öll,eða flest nema V.G. þeir þurfa ekki lán,enda flestir í opinberum störfum!!en þessu og eignina á auðlindin er allir áttir við ,og svo framsal á kvóta og afla kastað og sölu á kvóta þetta þarf að ræða,einnig um þetta veiðigjald,það eiga bara að vera þannig að útgerðin geti borgað skuldir og safnað fyrir viðhaldi og nýjum skipum og endurnýjun á veiðafærum !!!en þetta með 20m árin er bara ekki  nóg,það er dýrt að gera út og sanngjarnt að hafa þetta 30 ár að mínu áliti,en allavega ekki stríð um þetta samningar verða að vera annars fer illa!!!!!/Halli gamli


mbl.is Frumvarpið „síst til sátta fallið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öll félögin hafa hækkað eldsneyti///safna fyrir sektum??nei þetta er um of mikið!!!

Öll félöMynd 596402gin hafa hækkað eldsneyti Innlent | mbl.is | 31.1.2013 | 18:49 Atlantsolía og Orkan hækkuðu verð á bensínlítranum um fimm krónur í dag og hafa því öll olíufélögin hækkað eldsneytisverð í dag og í gær.

Á sjöunda tímanum í kvöld kostaði bensínlítrinn því á bilinu 260,20 til 262,90 Lítrinn af díselolíu kostar nú frá 265 krónum upp í 265,40 krónur.//////////////það er ennþá bara hækkað  út í bláinn við eigum að fá að sjá þetta svart á hvítu,og það skilyrt að við eigum á þessu fullan rétt,því þetta hækkar skuldir allra sem eru verðtryggir,er þetta ekki komið tími á að taka þetta fyrir,það virðast ekki vera ríkinu neitt áhugamál skatturinn er þeirra!!!En við bifreiðaeigendur borgum brúsann,mikið meira en í vegina,því meira en helmingnum er stolið í annað///Halli gamli


mbl.is Öll félögin hafa hækkað eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hærri tala en ég hef heyrt áður//Þetta er svo að þessi tala ekki nettó!!!!!

„Hærri Landspítali háskólasjúkrahús tala en ég hef heyrt áður“ Innlent | mbl | 31.1.2013 | 18:27 Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segist ekki hafa heyrt af því að hjúkrunarfræðingum á Landspítalanum hafi verið boðnar 400 milljónir eins og fram kom í fréttum fyrr í kvöld.

Hún segir þetta talsvert hærri tölu en nefnd hefur verið á fundum. „Þetta er hærri tala en ég hef heyrt áður.

Að auki verður að taka tillit til þess að þetta er með launatengdum gjöldum þannig að það verður að byrja á því að draga 25% frá og skipta upphæðinni síðan á milli þeirra 1348 hjúkrunarfræðinga sem vinna á Landspítalanum,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fréttaflutning af því að stjórnvöld hyggist veita rúmum 400 milljónum til endurskoðunar stofnanasamnings við hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum.

Elsa segir að sú tala, sem nefnd hefur verið á fundum deiluaðila, hafi verið nokkuð lægri. Hvað var hún há?

+„Ég vil ekki greina frá því núna, ég vil fyrst gera hjúkrunarfræðingunum grein fyrir því á mánudaginn. Við höfum rætt um að halda trúnað um það sem rætt er á fundum og við ætlum, okkar megin, að halda þann trúnað fram á mánudag.

Ef aðrir ákveða annað, þá er það þeirra mál ef það eru vinnubrögðin sem þeir vilja ástunda.“ Elsa B. Friðfinnsdóttir.

Golli / Kjartan Þorbjörnsson „Ég get sagt að ég var á fundi í Fjármálaráðuneytinu í gær og þar var nefnd tala sem er nokkuð lægri en þessi.

Ef menn ætla að setja út einhverjar tölur, þá eiga þær að vera réttar og ekki að vera í einhverjum blekkingum, sama hvaðan þessi tala hefur komið.“//////////////þessu verður að segja frá,þetta er það sem koma skal við okkur öll,einhver hámarkstala sem er bætt og svo deila menn,því hún er brúttó,ein og sagt var í fréttum í kvöld er þetta lokatala,ekkert meira í boði!!segja sjálfir 25 þus á hjúkku og svo náttúrlega 25-6% af því í launatengd gjöld,en svona er þetta og engin miskunn meiri  er sagt!!hafi þær fyrir 320 þus verður þetta 345 þus- mínus 25%=258.750--en í Noregi 40% meira!!!! en þessu verður svarað eftir fund á mánudag hjá hjúkkunum!!!en Ríkisstjórnin er ekki öll séð,hún hefur svikið okkur eldri borgara algjörlega okkar var lofuð hækkun en við svikin aftur og aftur,við förum víst ekki í  verkfall eða til Noregs???en þessi svik eru þeirra ær og kýr!!!/Halli gamli


mbl.is „Hærri tala en ég hef heyrt áður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fulltrúum settir úrslitakostir/Þetta er rétt það verður að semja fyrir alla,og það verður að gerst strax!!!

FulltrúumMikið álag er á Landspítalanum þessa dagana. settir úrslitakostir Innlent | mbl.is | 31.1.2013 | 13:24 Á kjarafundi hjúkrunarfræðinga í morgun var útspil ríkisstjórnarinnar í deilunni kynnt. Á sama fundi var fulltrúum hjúkrunarfræðinga settir úrslitakostir, segir í frétt á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Formaður Félags íslenskra hjúkrunafræðinga var í gær boðaður á fund í fjármála- og efnahagsráðuneytinu til fundar. Þar var honum kynnt útspil ríkistjórnarinnar og það fjármagn sem er til ráðstöfunar vegna endurskoðunar stofnanasamningsins.

Á fundi samstarfsnefndar Fíh og Landspítala í morgun voru þessar áherslur ítrekaðar auk þess sem fulltrúum hjúkrunarfræðinga voru settir úrslitakostir.

Þetta kemur fram í frétt á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Samstarfsnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Landspítala hittist á fundi í morgun um stofnanasamning hjúkrunarfræðinga. Samningaviðræður hafa staðið í rúmt ár eða frá nóvember 2011.

Undanfarnar vikur hefur samstarfsnefndin fundað reglulega þar sem ræddar hafa verið ýmsar tillögur um endurskoðun stofnanasamningsins.

Ríkistjórnin samþykkti þann 21. janúar minnisblað fjármála- og efnahagsráðherra og velferðarráðherra um jafnlaunaátak 2013.

„Í því minnisblaði var í raun viðurkenndur sá ráðuneyta- og kynbundni launamunur sem fulltrúar hjúkrunarfræðinga hafa bent á að hjúkrunarfræðingar hafi sætt undanfarin ár og áratugi,“ segir frétt Fíh. Formaður Fíh var svo í gær boðaður í fjármála- og efnahagsráðuneytinu til fundar við ráðuneytisstjóra, formann samninganefndar ríkisins og aðstoðarmann fjármála- og efnahagsráðherra.

Þar var honum kynnt „útspil ríkistjórnarinnar og það fjármagn sem er til ráðstöfunar vegna endurskoðunar stofnanasamningsins.

Nú er því ljóst hvert það fjármagn er sem stjórnvöld hyggjast setja í endurskoðun stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga á Landspítala í tengslum við jafnlaunaátakið.

Á fundi samstarfsnefndar í morgun voru þessar áherslur ítrekaðar auk þess sem fulltrúum hjúkrunarfræðinga voru settir úrslitakostir,“ segir ennfremur í fréttinni.

Fulltrúar hjúkrunarfræðinga munu kynna hugmyndir stjórnvalda og Landspítala varðandi endurskoðun stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga fyrir starfandi hjúkrunarfræðingum á Landspítala á fundi á Grand Hóteli Reykjavík mánudaginn 4. febrúar kl. 20:00.

Fulltrúar hjúkrunarfræðinga hafa óskað eftir fundi í samstarfsnefnd 5. febrúar. Allir hjúkrunarfræðingar á Landspítala eru hvattir til að mæta á kynningarfundinn á Grand Hótel Reykjavík.//////////////Það er ekki bara þessi samningar sem þarf að laga þarna ekki spurning að það er margt!!ákveðin upphæð fer í þetta ,svo og allt sem þarna er að það er ekkert venjulegt,svelti á öllum sviðum í 3.5 ár eða meira verður að laga allt og kostar,þetta má ekki bíða,og verður að leist sem fyrst,þessar sögur sem berast af jafnvel mistökum verur að leysa með átaki,það sjá allir sem vilja,laga spítalann stækka þarna!!! sem hægt er,og borga fólkinu mannsæmandi laun,sem sagt koma þessu í vænlegt horf aftur,sem fyrst ,þetta er svo að menn hafa séð þetta lengi en alltaf verið að tala um nýjan spítala,sem ekki er tímabært/Halli gamli


mbl.is Hjúkrunarfræðingum settir úrslitakostir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn fundað um kjör hjúkrunarfræðinga//þetta er vandamál,það koma fleiri á eftir!!!

Enn fuFrá samstöðufundi hjúkrunarfræðinga við Landspítalann í...ndað um kjör hjúkrunarfræðinga Innlent | mbl.is | 31.1.2013 | 12:02 Samninganefndir hjúkrunarfræðinga og Landspítala sitja enn á fundi þar sem reynt er að komast að samkomulagi um endurnýjaða stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga.

Að sögn Björns Zoega forstjóra Landspítala hafa viðræður gengið vel í morgun og segist hann bjartsýnn um framhaldið. Fundurinn hófst klukkan 10:30 í morgun.

Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir ljóst að aðilum beri mikið á milli í deilunni en í pistli sem birtist á vefsvæði félagsins í gær segir hún m.a. að til þess að jafna launamun milli hjúkrunarfræðinga og háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins þurfi 1,32 milljarða á ársgrundvelli./////////////Það er svo að allur eru þarna sammála um að bæta kjör þessa fræðinga,en það ber að gera á þann hátt að fleiri koma á eftir eins og vanter!!þetta að keppa á þessum grundvelli við Norðmenn er ekki hægt frekar en með önnur störf!!!Þetta er eiginlega allt undir þarna,ef á semja þá við allan pakkann á spítalanum,ekki bara hjúkkurnar,þarna vinna margar stéttir!!!En í öllum bænum ,ef nógir peningar eru til að halda þessu gangandi og laga spítalann og kaupa tæki gerið það,og setjið þessa höll sem nýi spíltalin á hold og byggið það sem þarf!!Þarna, nóg er lóðin!!!!/Halli gamli


mbl.is Enn fundað um kjör hjúkrunarfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnrýna hækkanir hins opinbera/Þetta hækkar allt lánin okkar,og minkar kaupmáttinn!!!

GagnrýnaGjöld í leikskóla hækkuðu um áramótin. hækkanir hins opinbera Innlent | mbl.is | 30.1.2013 | 13:55 ASÍ gagnrýnir auknar álögur ríkis og sveitarfélaga, en sambandið segir að auknar álögur á heimilin með hækkunum á gjaldskrám og neyslusköttum í upphafi árs hækkað verðlag í janúar um 0,4%.

„Þau skilaboð sem í þessu felast eru í algjörri andstöðu við þann samtakamátt um aðhald í verðlagsmálum sem lagt var upp með við endurskoðun kjarasamninga fyrr í mánuðinum.

Opinberir aðilar ættu þar að ganga á undan með góðu fordæmi.

Hækkanirnar nú koma til viðbótar síendurteknum hækkunum á opinberum álögum sem valdið hafa aukinni verðbólgu síðustu ár og ASÍ fjallaði um í liðinni viku.

Mest áhrif nú hafa hækkanir á fasteignagjöldum sveitarfélaganna, þ.e. sorphirðugjöldum, holræsagjöldum og vatnsskatti.

Flest sveitarfélög hækkuðu gjöld fyrir þessa þjónustu nú um áramót en skv. vísitölu neysluverðs hækkuðu þau í heildina um 7,3% og hafa 0,13% áhrif til hækkunar á verðlagi.

Opinberar álögur á tóbak hækkuðu um áramótin en þá hækkaði tóbaksgjald um 20%. Sú hækkun skilar sér í um 9% hækkun á útsöluverði tóbaks sem veldur 0,12% hækkun á verðlagi en í heildina hækkaði tóbak þó mun meira í janúar eða um tæp 18%.

Kostnaður barnafjölskyldna fyrir leikskóla og skóladagvist hækkar sömuleiðis og hefur áhrif á verðbólguna. Leikskólagjöld hækka um 5,1% og gæsla í grunnskólum um 4,3%, samanlagt hafa þessir liðir 0,05% áhrif til hækkunar á verðlagi.

Heilbrigðisþjónusta hækkaði skv. vísitölu neysluverðs um 2,7% í janúar og hefur það 0,06% til hækkunar á verðlagi. Þetta skýrist af almennum hækkunum á gjaldskrám heilbrigðisþjónustunnar um 5-7% um áramót, að heilsugæslunni undanskilinni.

Flest orkufyrirtæki hækkuðu gjaldskrá sína fyrir raforku og heitt vatn um áramót auk þess sem skattur á raforkusölu hækkaði þá úr 0,12 kr/kWst. í kr. 0,126 kr/KWst.

Þetta skilar sér í 1,1% hækkun á rafmagni og hita í vísitölunni sem veldur um 0,03% hækkun á verðlagi,“ segir í frétt frá ASÍ. ASÍ bendir á að 1. mars nk. taki gildi hækkun á vörugjöldum á sykraðar matvörur og mun sú hækkun að líkindum skila sér út í verðlag á vordögum.

Erfitt er að áætla áhrif þeirra breytinga en skv. frumvarpinu sem samþykkt var í desember er talið að hækkunin muni leiða til 0,01% hækkunar á verðlagi.

Þá hækkar virðisaukaskattur á gistiþjónustu þann 1. september nk. og er sömuleiðis gert ráð fyrir að sú hækkun leiði til 0,01% hækkunar á verðlagi.////////////////Það er þetta sem er að sliga okkur sem mynna höfum!! og reyndar þeirra í millistétt!!! sem hafa ekki heldur um of!! Að segja að við séum um á réttu róli er hvílík fyrra að það hálfa væri nóg!!þessar hækkanir allar koma okkur á kné fyrr en varir og hvað þá,engin borgar neitt farlýtt!! þessi vitleysa er alveg gagga!!! í barnaskóla var manni kennt að reikna fram í tíman,skal það ekki vera gert lengur?? þessar vísitölur og verðtrygging setur þetta allt inn í skuldir okkar sem hækka og hækka!!ASÍ er þetta orðið vel ljóst,að þetta gengur ekki lengur!!þessu verður að breyta/Halli gamli


mbl.is Gagnrýna hækkanir hins opinbera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón segir ofbeldið ekki ímyndun//Sko sannleikanum verður hver sárreyðastur!!!!

ón segir ofbeldið ekki ímyndun Innlent | mbl | 30.1.2013 | 14:08 Jón Gnarr borgarstjóri segist hafa hlotið stuðning, virðingu og skilning flestra eftir færslu sína í gær um „einelti og hreint og klárt ofbeldi“ sem hann sagðist hafa orðið fyrir frá nokkrum fundargestum á íbúafundi í Grafarvogi í gærkvöldi.

Jón segir það rangt að þetta hafi verið ímyndun. Meðal þess sem komið hefur fram í dag er að Jón og hans fólk hafi verið kallað hyski og ætti að hypja sig burtu úr borgarstjórn.

Þá hafi verið reynt að setja fundarstjóra af og taka yfir stjórn fundarins. Jón skrifaði um málið á samfélagsvefinn Facebook í gærkvöldi og sagði meðal annars: „Mér fannst ég knúinn að segja frá þessu, ekki bara mín vegna heldur allra þeirra sem þurfa að lifa við niðurlægingu, háð, lítilsvirðingu, ógnanir og ofbeldi, í skólanum, á heimilinu, í vinnunni, netinu eða á götum úti.

Af hverju þegjum við svo gjarnan yfir svona?“ Einnig hafa komið fram þau viðhorf í dag að Jón sé að gera of mikið úr málinu og gengisfella hugtakið einelti.

„En er það einelti þegar almenningur skammar borgarstjórann sinn?“ spyr Sigríður Guðmarsdóttir prestur í Guðríðarkirkju á vefsvæði sínu.

Hún segir að vafalaust sé hægt að bæta umræðuhefð Íslendinga en að þegar valdmiklir menn tali um einelti á hendur sér séu þeir að taka yfir orðræðu hinna valdlausu.

Þá spyr Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, á Facebook hvers vegna Jón heldur fundi með borgarbúum ef hann treystir sér ekki til að svara gagnrýnum spurningum um hagsmunamál íbúanna.

„Hann þarf að fara að gera sér grein fyrir því að fólk er ekki tilbúið til að taka þátt í þessum skrípaleik lengur og að fólk vill borgarstjóra sem axlar ábyrgð en er ekki skemmtanastjóri borgarinnar." Borgarstjóri skrifar aðra færslu á Facebook í dag.

Þar segist hann vona að hann hafi með skrifum sínum hrundið af stað gagnlegri umræðu.

Hann þakkar fyrir stuðninginn en segir svo: „Einn og einn er þó með sérkennileg viðhorf; annars vegar að upplifun mín af ofbeldinu í gær hafi verið mín ímyndun á einhverju sem hafi ekki átt sér. Það er bara rangt.

“ Þá segir hann annað viðhorf athyglisvert. „Það virðist mörgum finnast í lagi að veitast að fólki, með þessum hætti, sem starfar í stjórnmálum og stjórnmálafólk eigi að vera undir það búið og ekki vera með eitthvað „væl.

“ Viljum við svoleiðis stjórnmál? Viljum við lýðræði þar sem fólk nær árangri með hávaða, frekju og ógnunum?“//////////////////Ég kís Borgarstjóra sem verkstjóra Borgarsstjórnar,en ekki sem skemmtikraft ,þó húmorinn sé góður með!! en þessi maður verður bara að skilja að það sem hann hefur látið hafa eftir sér er bara oft á tíðum bull,ég við bara starf þar sem ég geta haft það gott og frían bíl og látið aðra vinna fyrir mig,það væri efni í heila bók bara þessar kenndir hans ,og einnig það ég bara veit það ekki sé hans mottó!!!Jón Gnarr er sennilega ágætur drengur ekki taka það þannig að maður sé að kasta í hann persónulega als ekki,kemur það ekki við,er mjög góður leikari og sjálfsagt rétt sem hann segir um ungdóm sinn og reynslu blessaður maðurinn!! En hann er óhæfur að mjög margra mati sem Borginnistjóri og verkstjóri,bara það eitt segir okkur burt með hann þarna frá þessum störfum!!!!!!Halli gamli


mbl.is Jón segir ofbeldið ekki ímyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hnúfubakar éta um 15 þús. tonn á sólarhring//er ekki mál að linni!!!!!!

Hnúfubakar éHnúfubakur. ta um 15 þús. tonn á sólarhring Innlent | Morgunblaðið | 30.1.2013 | 10:30 Talið er að stofn hnúfubaka á Íslandsmiðum telji nú um 15 þúsund dýr og hefur stærð hans áttfaldast frá því á níunda áratug síðustu aldar.

Hnúfubakur étur um eitt tonn á sólarhring og má því ætla að stofninn hér við land éti alls um 15 þúsund tonn á sólarhring af átu, sandsíli, loðnu, síld, makríl og öðrum tegundum misjafnt eftir árstímum.

Rannsóknir á magainnihaldi hafa ekki verið gerðar, en ljóst að fullorðið dýr sem er 13-17 metrar að lengd og 25-40 tonn á þyngd þarf að éta mikið.

Þrátt fyrir mikla fjölgun má enn finna hnúfubak á válistum, en ýmsir listar eru notaðir varðandi slíka flokkun.

Oftast er vitnað í lista sem kallaður er „IUCN Red List“ og þar er tegundin metin „ekki í hættu“ (least concern).

Hins vegar er hann enn að finna á hinum stóra alþjóðlega listanum, svokölluðum CITES-lista sem fjallar um verslun með afurðir af tegundum í útrýmingarhættu, samkvæmt upplýsingum Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings á Hafrannsóknastofnun.

Eftir miklar veiðar urðu hnúfubakar sjaldgæfir við Ísland í byrjun síðustu aldar. Alþingi bannaði hvalveiðar hér við land frá 1915 og Alþjóðahvalveiðiráðið alfriðaði hnúfubak á Norður-Atlantshafi árið 1956.

Tegundin sást sárasajaldan við landið á næstu árum, en 1986 var talið að um tvö þúsund hnúfubakar væru hér.

Árin á eftir var fjölgunin mjög hröð eða 10-15% árlega þar til í talningu árið 2007 að ekki mældist marktæk aukning, sem gæti bent til að stofninn sé að nálgast náttúrulegt hámark, að sögn Gísla

. Næsta hvalatalning við landið verður gerð 2015. Uppi í fjöru við Tromsö Það er ekki bara hér við land, sem hnúfubak hefur fjölgað, því sambærileg fjölgun hefur orðið við Ástralíu, í Kyrrahafi og víðar.

Í Norður-Noregi hefur vakið athygli í vetur að hnúfubakur hefur elt síld nánast upp í fjöru í grennd við Tromsö.

Hvort það merkir fjölgun hvala eða breytta hegðun síldarinnar liggur ekki fyrir, en fólk í landi hefur getað fylgst með lífsbaráttunni í sjónum.///////////////Er þetta virkilega það sem þjóðirnar vilja sem dýrka þessar skepnur??maður fyllist skelfingu og stór fjöldi fólks heimsins  sveltur,ef fram er reiknað eru þetta um 870 milljónir tonna,hvað á ef allar tegundir hvala eru meðtaldir!!!þetta sýnir okkur að við verðum að veiða mikinn hval ekki spurning og koma honum út sem mat sem bjargar hungri í heiminum og það ekki spurning!!af hverju eru nautgripir og kýr ekki friðuð í öllum heiminum eins og í Indlandi? maður bara spyr,þessi blessuð skeppna hvalurinn má ekki fjölga svona þetta er hættulegt heiminum!!!veiðum bara hval og komum á markað!!!!/Halli gamli


mbl.is Hnúfubakar éta um 15 þús. tonn á sólarhring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bregðast verður við strax//þetta er svo að sparnaður á þessum sviðum kemur okkur í koll.eins og með heilsugeiran!!


Vonskuveður gekk yfir Vestfirði á milli jóla og nýárs og...Bregðast verður við strax Innlent | mbl.is | 30.1.2013 | 10:59 Sýslumaðurinn á Ísafirði og Patreksfirði segir að ástand raforkumála á Vestfjörðum er slíkt að ekki verður lengur við unað.

Hann hefur af þessu miklar áhyggjur og telur að stjórnvöld verði þegar í stað að bregðast við. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Úfari Lúðvíkssyni sem bæði er sýslumaður sem og lögreglustjóri á Vestfjörðum.

„Stjórn aðgerða í héraði, þegar almannavarnaástand ríkir, er í höndum lögreglustjóra í viðkomandi lögregluumdæmi. Þegar verst lét um síðustu áramót var stutt í það að öll fjarskipti við Vestfirði rofnuðu vegna rafmagnsleysis.

Við slíkar aðstæður eru mönnum allar bjargir bannaðar og lífi og heilsu almennings, umhverfi og eignum ógnað.

Dísilrafstöðvar sem sjá eiga íbúum og fyrirtækjum fyrir varaafli biluðu þegar á reyndi. Lögreglustöðin á Ísafirði getur ekki treyst á varaafl frá þessum stöðvum.

Ekki slökkvistöðin, ekki símstöðin. Sjúkrahús og Vegagerð búa við eigið varaafl, ekki að ástæðulausu. Ástand raforkumála á Vestfjörðum er slíkt að ekki verður lengur við unað.

Sveitarstjórnir, almenningur og þingheimur hljóta að vera sammála um að ástandið sé ómögulegt. Lögreglustjóri hefur af þessu miklar áhyggjur og telur að stjórnvöld verði þegar í stað að bregðast við.

Tryggt þarf að vera að helstu stofnanir samfélagsins njóti rafmagns og að öruggt varaafl sé til staðar. Umræðan ein og sér dugir ekki, vandamálið er áratuga gamalt og þekkt.

Ekki á að linna látum fyrr en bætt hefur verið úr. Rannsóknarnefnd almannavarna sem starfar sjálfstætt og óháð stjórnvöldum á hiklaust að taka til starfa að loknu þessu hættuástandi og fara yfir málið.

Stjórnvöld þurfa að rétta Orkubúi Vestfjarða hf. og Landsneti hf. hjálparhönd. Látum verkin tala,“ segir í yfirlýsingu Úlfars.//////////////////////svo bergðast krosstré sem önnur!!!en þessi mál eru nú sem von er í deiglunni af gefnu tilefni,höfðu menn viklega geymt Íslenskum vetrum?? eða hvað erum menn virkilega ekki meðvitaðir um að það sem sparað er vegna fátæktar kemur yfirleitt illa í hausinn á okkur aftur og þá mikið verra,eins og þetta og heilsugæslan gera illa núna,og auðvitað ber að hugsa og áður og kvæma, en ekki öfugt eins og viðist hafa völdin þarna!!! við verðum okkur að atlagi og látum nú hendur standa fram úr ermum og bætum þetta,ekkert tal um að það það sé ekki hægt!!!!sköminn er ráðamanna engra annarra,klárum málin í báðum vandræðunum áður en meira slys verður!!!!Halli gamli


mbl.is Bregðast verður við strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Jan. 2013
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband