Gert ráð fyrir 7,6 milljarða afgangi///Uppgángur eins og hjá Ríkisstjórn??????

Gert ráðBorgarfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar kynntu... fyrir 7,6 milljarða afgangi Innlent | mbl.is | 30.10.2012 | 13:35 Gert er ráð fyrir 7,6 milljarða afgangi afsamstæðureikningi Reykjavíkurborgar á árinu 2013 samkvæmt fjárhagsáætlun sem kynnt var á blaðamannafundi í dag.

Þar af er gert ráð fyrir að A-hluti reksturs borgarinnar skili 329 milljón króna afgangi á næsta ári. Reykjavíkurborg hyggst verja tæpum sjö milljörðum til fjárfestinga á árinu en meðal stórra verkefna sem fyrirhugað er að fara í á árinu 2013 eru til a mynda gagngerar endubætur á Hverfisgötu sem hefjast á því ári.

Ennfremur er gert ráð fyrir að miðað við óbreytt ástand muni fjárframlög til fjárhagsaðstoðar í Reykjavík hækka um rúman milljarð króna.

Rúmur helmingur útgjalda aðalsjóðs borgarinnar fer til skóla- og frístundamála. mbl.is/Reykjavíkurborg Samkvæmt fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir mikilli niðurgreiðslu skulda og skiptir þar miklu máli að aðgerðaáætlun fyrir Orkuveitu Reykjavíkur hafi gengið eftir.

Gert er ráð fyrir að afkoma samstæðunnar batni um 5,6 milljarða króna fram til 2017 og jákvæð afkoma verði allt tímabilið. Þá er stefnt að því að skuldir og skuldbindingar dragist saman um 51,4 milljarða króna og nema 249 milljörðum við lok tímabilsins.

Samhliða því er gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall samstæðunnar batni verulega og verði rúmlega 194 milljarðar 2017.

Jón Gnarr, borgarstjóri, sagðist á fundinum mjög ánægður með fjárhagsáætlunina og hvernig til hefði tekist í fjármálum borgarinnar á kjörtímabilinu. Unnið hefði verið að því að koma á stöðugleika í rekstri hennar og greiða niður skuldir og það hefði tekist.

„Ég get ekki betur séð en að það sé bjart framundan hjá Reykjavík.

////////////Við auðvitað !!eigum að trúa þessu er það ekki,ekki gerir hann ég það,það er svo að þetta fólk stjórnar bæði Ríki og Borg,og er það trúlegar meða Borgina heldur en í landsmálunum,að allt sé  á uppleið??nei als ekki,af hverju þá ekki að lækka útsvarið eins og Steltjarnarnes og fl. eru að gera,nei þeir hækka bara fasteignagjaldið og Drulluskattinn sem átti bara að vera meðan Dælustöðvarnar voru byggðar,eða svo sagði Ingibjörg Sólrún!!! þessi áróður segir sig bara sjálfur ættli fókið finni það ekki sjálft á pyngjunni,við sem erum í þessum kröggum vitum það,hinir fá sennilega afslátt ein og gengur er það ekki!!!!/Halli gamli


mbl.is Gert ráð fyrir 7,6 milljarða afgangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gætu leyst út tugi milljarða í arð////Stoppum þetta af með lögum,og gerum upp,við lántakendur fyrst!!!!

Mynd 504827tu leyst út tugi milljarða í arð Viðskipti | Morgunblaðið | 30.10.2012 | 5:30 Takist slitastjórnum þrotabúa Kaupþings og Glitnis að klára nauðasamninga með þeim hætti sem stefnt er að, með því að gefa út ný verðbréf í erlendri mynt, gætu hinir erlendu eigendur greitt sér út í kjölfarið um 78 milljarða króna arð úr Arion banka og Íslandsbanka.

Bankarnir myndu eftir sem áður uppfylla kröfu FME um 16% eiginfjárhlutfall. Sú staðreynd að hlutfall erlendra krafna í þrotabú Glitnis og Kaupþings er hærra en áður var talið – 93% í stað 80% – þýðir að eignarhlutur kröfuhafa í Arion og Íslandsbanka verður í enn meira mæli í eigu erlendra aðila.

Viðmælendur Morgunblaðsins segja hagsmuni vogunarsjóða vera þá að greiða sér út arð fremur en að selja eignarhluti sína.

Í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að það sé mikill þrýstingur af hálfu vogunarsjóða að bankarnir greiði út arð til eigenda um leið og tækifæri gefst til.

Ljóst þykir að arðgreiðslur upp á tugi milljarða, sem þyrfti að skipta í gjaldeyri, myndu setja mikinn þrýsting á gengi krónunnar.///////Er ekki bara hægt að setja Íslensk lög til að festa þetta fé,þar til búið er að leirétta láninn??Maður bara spyr í einfeldni sinni!!það gengur ekki að við seljum þetta á 35% og borgum svo það margfalt,til þessara braskara!!!Eða hvað????/Halli gamli


mbl.is Gætu leyst út tugi milljarða í arð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sandy telst nú hvirfilbylur/Ekki var á það bætandi,þetta er sæmt allt saman mjög!!!

Sandy telst nú hvirfilbylur Erlent | AFP | 29.10.2012 | 23:31 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Vestur-Virginíuríki í Bandaríkjunum vegna fellibylsins Sandy, sem reyndar hefur verið endurskilgreindur og telst nú vera hvirfilbylur.

Búist er við mikilli snjókomu og snjóbyl í kjölfar Sandy. Nokkuð hefur dregið úr vindhraðanum, sem mældist tæplega 137 kílómetrar á klukkustund eða 38 metrum á sekúndu um klukkan 23 að íslenskum tíma.

Neyðarástandið nær til allra 55 sýslna í ríkinu, en áður hafði verið varað við snjóbyl í 14 þeirra. Snjókoman orsakast af því þegar raki sem fylgir hvirfilbylnum mætir köldum loftstraumum úr vestri.

Áhrifa Sandy er nú farið að gæta víða á austurströndinni; óveðrið fellir tré sem draga rafmagnslínur með sér í fallinu og við það verða milljónir heimila rafmagnslaus. Sjór fyllir sjö göng neðanjarðarlestakerfisins í New York í kjölfar þess að fellibylurinn Sandy lét til sín taka á svæðinu í nótt. Sex skemmur fyrir strætisvagna eru fullar af vatni.

Talsmaður almenningssamganga í borginni segir ástandið aldrei hafa verið jafn slæmt í sögunni. Hér má sjá kort sem sýnir hvar Sandy er og hvert hann stefnir.

Sjá einnig ítarlega frétt mbl.is: Glymjandi hrannir gengu á land. „Neðanjarðarlestakerfið í New York er 108 ára gamalt en það hefur aldrei orðið fyrir hamförum sem þessum,“ segir Joseph Lhota, stjórnarformaður Metropolitan Transportation Authority (MTA).

Í New York er ástandið einna verst á Manhattan. Um hálf milljón heimila og fyrirtækja eru nú án rafmagns. Veðurofsinn sem fylgir Sandy hefur myrkvað New York.

Fólk er áhyggjufullt og sumir skelfingu lostnir. Rafmagnslaust er á Manhattan og í fjármálahverfinu Wall Street. Enn er óljóst hvenær hægt verður að koma rafmagni aftur á. Mittisdjúpt vatn er á mörgum götum Manhattan. Fáir eru á ferli.

Í fjarska heyrist sírenuvæl en annars er undarlega hljótt. Einu ljósin sem sjást eru kertalogar í gluggum húsanna og blikkandi ljósin á bílum lögreglunnar. „Þetta er hræðilegt.

Það eru engin ljós á götunum og ekkert fólk,“ segir Ilona, 22 ára gamall nemi frá Rússlandi er hún lítur yfir flóðið á götunum. Ekki einu sinni umferðarljósin loga.

Yfirvöldum tókst að opna George Washington-brúna svo að fólk gæti komist til New Jersey. Örvæntingarfullir verslunar- og fyrirtækjaeigendur athuga skemmdir og vona það besta.

Kona sem rekur föndurbúð þakkar fyrir að ekkert vatn hefur komst inn í verslunina - ekki einu sinni kjallarann. Sandy fylgir mikil úrkoma og East River flæddi yfir bakka sína. Vatnið fór inn í göng neðanjarðarlestarkerfisins.

Talið er víst að samgöngur muni ekki komast í samt horf á næstu dögum. Einhverra hluta vegna fór rafmagnið ekki af Goldman Sachs bankanum þó að öll hús í nágrenninu séu myrkvuð. Á götum og gangstéttum við bankann flæðir vatn.

Sorp er í flóðvatninu á nokkrum stöðum en byrjað er að hreinsa til. Björgunarsveitarmenn hafa þurft að fara til Staten Island og Coney Island til að sækja fólk sem hlýddi ekki fyrirmælum um að yfirgefa hús sín. Vatnið nær upp undir rjáfur á sumum húsanna.

Lögreglan óskaði eftir því að fá báta til að sinna björgunarstörfum á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti í flóðunum. Augljóst er að skemmdir eru víða í borginni

. „Ég óttast um líf fólks,“ segir borgarfulltrúinn Vincent Ignizio. Að minnsta kosti einn maður hefur látist í borginni er tré féll á hann. Talið er að 13 manns hafi látist vegna fellibylsins á austurströnd Bandaríkjanna síðustu klukkustundir./////////Þetta er fauta veður og ekki það sem maðuur átti von á að færi að snjóa einnig,þetta mun setja allt á annan endann þarna í 55 Síslum!! ef fer sem horfir,og verður erfitt mjög!!!!!!/Halli gamli


mbl.is Búist við snjókomu í kjölfar Sandy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvasst og ofankoma á Norðurlandi//Þetta er ekkert grín krakkar,ferðaveður slæmt mjög!!!

Hvasst ogSnjókoma verður á Norðurlandi í dag. ofankoma á Norðurlandi Innlent | mbl.is | 30.10.2012 | 6:05 Í dag mun vindur ganga í allhvassa eða hvassa norðanátt með ofankomu fyrir norðan

. Ekki er búist við úrkomu að neinu ráði á sunnanverðu landinu, en þar má búast við snörpum vindstrengjum við fjöll.

Í dag mun vindur ganga í allhvassa eða hvassa norðanátt með ofankomu fyrir norðan.

Ekki er búist við úrkomu að neinu ráði á sunnanverðu landinu, en þar má búast við snörpum vindstrengjum við fjöll, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Útlit er fyrir enn hvassari vind á fimmtudag og föstudag.

Þess er ekki að vænta að veður batni að ráði fyrr en á laugardag eða jafnvel sunnudag. Næstu klukkustundir er spáð norðan 5-13 m/s og þurru veðri, en slyddu á Suðausturlandi og stöku éljum norðanlands.

Færist í norðan 13-20 m/s eftir hádegi og snjókomu norðantil á landinu. Úrkomulaust að mestu sunnantil, en snarpir vindstrengir við fjöll. Frost 0 til 5 stig þegar kemur fram á daginn, en frostlaust með S-ströndinni./////////Góðan dag gott fólk!!Það er ekki góð veðurspáin !!!og okkar ber að fara eftir þvi og vera ekki á ferð nema nauðsin krefji,og bændur komi bara fénaði i hús!!og við tökum allt sem getur fokið,og sennilega mikið ófærð Vestan Norðan og Austan!!!! Við tökum mark í þessu öll lítil og Stór!!!/Halli gamli


mbl.is Hvasst og ofankoma á Norðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frétt af mbl.is Segja Steingrím hóta útgerðinn//hverjum hótar hann ekki???

Segja Steingrím hóta útgerðinni Innlent | mbl.is | 29.10.2012 | 23:50 „Þetta held ég að útvegsmenn ættu nú svona í gegnum tárin að rýna aðeins í,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra á aðalfundi LÍÚ á fimmtudaginn var.

Steingrímur sagði valið standa milli veiðigjalda eða útboðs á nýtingarrétti á afla. Útgerðarmenn telja þetta hótun gegn útgAdolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, og Steingrímur J....erðinni

. „Ég ætla örlítið að nefna og snúa mér aðeins að auðlindaákvæði í kosningunum á laugardaginn var og frumvörpunum um sjávarútveginn.

Þessi spurning var borin undir þjóðina og útkoman var svona: Áttatíu og tvö og hálft prósent af þeim sem afstöðu tóku svöruðu þeirri spurningu játandi að inni í stjórnarskrá yrðu náttúruauðlindir sem ekki væru í einkaeigu lýstar þjóðareign ... Þetta er í fullu samræmi við fyrstu grein laga í frumvarpi sem lagt var fram í fyrra um að fiskistofnarnir við Ísland væru ævarandi sameign þjóðarinnar og þar með væri það ríkið fyrir hennar hönd sem ráðstafaði henni með tilteknum hætti. Þetta tók mið af tillögum stjórnlagaráðsins eins og þær stóðu á árinu 2011 og rekur sig allt aftur til skýrslu auðlindanefndar á árinu 2000.

Þar var niðurstaðan í stórri nefnd með aðild útvegsmanna að í raun þyrfti að skilgreina einhvers konar nýtt form eignarréttar eða sameignar sem væri einhvers konar þjóðareignarréttur...

Tillaga stjórnlagaráðs eins og hún liggur fyrir í drögum að frumvarpi er hins vegar svona, þ.e.a.s. þetta eru fyrsta og fjórða málgreinin í tillögum stjórnlagaráðs sem varðar þetta viðfangsefni, að auðlindir í náttúru Íslands sem ekki séu í einkaeigu séu sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar.

Enginn geti fengið auðlindirnar eða réttindi í þeim til varanlegra afnota eða veðsett þær ... Fjórða málsgreinin er kannski ekki síður umfjöllunarefni fyrir ykkur og okkur öll.

En þar stendur: Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn. Svona er þetta orðið í þessum drögum sem Alþingi fær til nú að vinna með og klára upp úr frumvarpinu. Þetta er önnur nálgun en sú sem var í frumvarpinu til laga um stjórn fiskveiða sem var lagt fram í fyrravor og í lögum um veiðigjöld.

Ég vek athygli ykkar á þeim mun af því að þar teljið þið vera um mikinn vágest að ræða.“ Hvað er fullt gjald? Steingrímur sagði valið standa milli tveggja kosta, veiðigjalda eða útboðs á nýtingarrétti á afla í samræmi við tillögur stjórnlagaráðs. „En áttum okkur aðeins á skilgreiningunum sem hér eru undir. Hvað er verið að tala um? Skilgreiningu á svonefndri auðlindarentu og eðlilegan hlut þjóðarinnar í henni á góðum tímum.

Hvort viljið þið heldur? Það sem er boðið upp á í þessum frumvörpum eða orðalag í stjórnarskrá af þessu tagi, að það megi aldrei afhenda þessi réttindi á neinn hátt nema gegn fullu gjaldi. Hvað er fullt gjald? Hvernig finna menn það út? Er það með svona nálgun, með því að skoða fjármunamyndunina og viðbótarfjármunamyndunina í góðum árum og taka hlutdeild af henni til þjóðarinnar, eða er það með því að láta markaðinn ráða. Munu ekki margir hafa tilhneigingu til þss að segja að það er markaðurinn einn sem getur skorið úr um það hvað er fullt verð. Jú, það verða örugglega einhverjir til þess. Og hvað þýðir það? Jú, væntanlega uppboð á öllum réttindunum. Þetta held ég að útvegsmenn ættu nú svona í gegnum tárin að rýna aðeins í. Hvort er betri nálgun, frumvarpið sem liggur fyrir og lögin um veiðigjöld fela í sér eða kannski þessi hugsun?“

Auðlindarentan besta leiðin „Ég held því enn fram að auðlindarentunálgunin sé sú besta. Hún sé eðlileg. Hún sé hugmyndafræðilega vel ígrunduð að því tilskyldu að við séum sammála um að um aðgang að sameiginlegri auðlind sé að ræða. Þá eru bara eftir átökin um það hvað er eðlileg hlutdeild. Hvenær leyfir afkoman að tekið sé af henni til eigandans, þjóðarinnar, og í hve miklum mæli. Það er eitthvað sem á að vera hægt að nálgast með rökum, rökræðum, með vinnu, með skoðun, með deilum og það er það sem veiðigjaldanefndinni er ætlað að gera. Nákvæmlega. Hún hefur frumkvæðisskyldu í þeim efnum. Henni ber að gera stjórnvöldum viðvart og senda þeim tillögur ef hún kemst að þeirri niðurstöðu að það þurfi að gera leiðréttingar eða breytingar,“ sagði Steingrímur og vék að veiðigjaldanefndinni. Engir já-menn í veiðigjaldanefndinni

„Ég vona að menn séu sæmilega sáttir við skipan nefndarinnar og hvernig hún var mönnuð. Þar voru ekki tíndir upp einhverjir þrír já-menn stjórnarflokkanna, heldur þvert á móti aðilar sem höfðu gagnrýnt stjórnvöld, jafnvel fyrir að fara offari í þessum efnum, eins og Daði Már Kristófersson. Vonandi treysta menn sæmilega fyrrverandi fjármálastjóra HB Granda og sömuleiðis Arndísi Á. Steinþórsdóttur eftir langa veru hennar í sjávarútvegsráðuneytinu sem forystumanneskju á þessu sviði,” sagði Steingrímur.

Dulbúin hótun ráðherrans Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar ehf. í Grindavík, túlkaði ræðu Steingríms sem hótun í garð útgerðarinnar, líkt og Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, gerir einnig í samtali við Morgunblaðið í dag, þriðjudag. „Þetta er eignaupptaka. Stærstur hluti hagnaðarins er tekinn út úr rekstrinum.

Stjórnvöld miða við framlegðina eins og hún er áætluð 2011 og er það albesta sem hefur sést. Ef við skoðum meðaltal síðustu fimm ára er verið að gera upptækt megnið af hagnaðinum í sjávarútvegi og það eru engir peningar eftir til að viðhalda framleiðslutækjunum, skipum og búnaði.

Þetta er ekkert annað en þjóðnýting. Til hvers eiga menn að vera í atvinnugrein sem ekkert gefur af sér og getur ekki endurnýjað sig? Þegar Steingrímur vék að auðlindaákvæðinu var það hótun um eignaupptöku

. Ég tók þetta allt sem hótanir hjá honum. Í mínum huga er þetta þannig að það á að eyðileggja þessa atvinnugrein.“//////////////Hvernig ber að taka þetta öðru vísi en hótun,það er ekkert annað,aðferðir hans mynna á bara einræði og ekkert annað,ljótt  að segja,en satt en ekki logið///Halli gamli


mbl.is Segja Steingrím hóta útgerðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varað við vonskuveðri///það kemur víðar en í útlandinu!!!!!

VaraEkki er búist við að veður fari að batna fyrr en líður á...ð við vonskuveðri Innlent | mbl.is | 29.10.2012 | 11:42 Veðurstofan vill vekja athygli á slæmu veðri sem spáð er næstu daga.

Eftir miðjan dag á morgun verður komið norðan vonskuveður um landið norðanvert með vindhraða á bilinu 13-20 m/s.

Með þessu verður snjókoma og él og getur færð og skyggni spillst á skömmum tíma.

Eins ættu menn sem hafa húsdýr úti við að huga að því að koma skepnum í skjól, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofunni.

Búast við mjög hvössum vindhviðum undir Vatnajökli frá því síðdegis á morgun og fram eftir vikunni.

Ekki er búist við að veður fari að batna fyrr en líður á næstu helgi og eins er að sjá að veður geti orðið enn verra á fimmtudag og föstudag.

Lengst af verður þurrt um landið sunnavert og ætti veðrið ekki að valda vandræðum þar.

Gert er ráð fyrir að hiti verði um og undir frostmarki sunnantil á landinu næstu daga, en annars staðar verður frost 0 til 7 stig, segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.

////////////Það er víðar spáð vondu veðri og allt að fellibyljum víðar en í Bandaríkjun og Asíu,við fáum eina stóra gusu núna næstu daga sennilega alveg að helgi eða svo eftir spánni!!!en við íslendinar eru þessu viðbúnir sennilega meira en Kanar sem er skrítið,ekki eru þeir þessu óvanir!!frekar enn við!!en á Íslandi er menn ennþá víkingar í eðli sínu,og taka þessu betur!!!en semsagt við eigum að taka þetta alvarlega mjög,áróður er þarna af því góða!!T.D.er ég alltaf svolítið veðurhræddur,og það bara gott,ef það væru fleiri,og kæruleysi vegna þessa er ekki gott,hefur leitt af sér mörg slys,sem eru ótímabær!!!!En var að tala við frænku mína Bónda á Strandasýslu,og þau voru að koma öllu fé í hús,og var alsæl með það!!svona hyggju þarf að hafa!!og vonandi að allir geri þetta sem þurfa!!!og veðrið verði betra en spáð er!!!/Halli gamli


mbl.is Varað við vonskuveðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súrrealísk stemning í New York//ekki vildi maður vera þarna!!!!

Súrrealísk stemning í New York Innlent | mbl | 29.10.2012 | 16:54 „Maður veit eiginlega ekki alveg við hverju á að búast, en ég fór og keypti einhverjar nauðsynjar til vonar og vara.

Ég veit að í sumum búðum var fólkHiminninn er heldur drungalegur yfir háhýsunum á Manhattan,... að rífast um vatnsflöskur í gær,“ segir Þórunn Helga Þórðardóttir laganemi í New York. Fellibylurinn Sandy er sá stærsti á svæðinu síðan 1938./////////

Það er ekkert grín að lenda í svona í stórbogum!!!!allt í rafkerfi og engin miskunn með neitt,myrkur og víða vosbúð,við íslendinar eru við öllu búnir,en ekki kaninn þar vantar mikið á!!!þó þetta ske orðið oft!!!en þessi er þeirra særðstur!!!/Halli gamli


mbl.is Súrrealísk stemning í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sandy sökkti frægu seglskipi///Þetta fræga skip sokkið,við höfum flest horft á myndina!!!!

Sandy sökkti frægu seglskipi Erlent | mbl.is | 29.10.2012 | 14:27 Fjórtán manns var bjargað af bandarísku straBountry II er eftirlíking af breska 18. aldar herskipinu HMS Bounty. ndgæslunni þegar seglskipið HMS Bounty sökk í dag út af strönd Norður-Karólínu í Bandaríkjunum af völdum fellibyljarins Sandy sem gengur nú yfir austurströnd landsins. Ekki er vitað um afdrif tveggja í áhöfninni.

samkvæmt frétt Nbcnews.com en áhöfnin hafði reynt að sigla í kringum storminn.

Skipið var byggt árið 1960 og er eftirlíking af breska herskipinu HMS Bounty sem sent var til Kyrrahafsins árið 1787 til þess að sækja þangað brauðaldin sem flytja átti til Vestur-Indía þar sem til stóð að gera tilraunir með ræktun á honum.

Skipið er þó þekktast fyrir uppreisn sem gerð var um borð í því 1789 undir forystu Fletchers Christian. Bounty II var byggt til þess að nota í kvikmyndinni The Mutiny on the Bountry sem frumsýnd var 1962 með Trevor Howard og Marlon Brando í aðalhlutverki.

Skipið var einnig notað við gerð þríleiksins Pirates of the Caribbea

//////Þá er þessu endanlega fyrir komið blessuðu Seglskipinu Bounty 2 sem ,við sáum flest okkar í Myndinni no. 2 að Bounty og einnig annarri mynd,þetta er auðvitað fræg saga og endaði ílla brann í fyrra skiptið!!en það er önnur saga!!! En fellibyljir eyra engu!!!/Halli gamli


mbl.is Sandy sökkti frægu seglskipi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttast að Sandy dragi úr kjörsókn////Það er ábyggilega verra fyrir Ombama!!!!

Óttast aðMargir hafa leitað skjóls í neyðarskýlum. Sandy dragi úr kjörsókn Erlent | mbl.is | 28.10.2012 | 22:59 Stuðningsmenn Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, óttast að fellibylurinn Sandy komi til með að draga úr kjörsókn í forsetakosningunum 6. nóvember og þar með úr sigurlíkum forsetans.

Stuðningsmenn Obama hafa hvatt kjósendur til að kjósa utankjörfundar. Sjálfur er hann búinn að kjósa, en með því er talið að hann hafi viljað hvetja stuðningsmenn sína til að kjósa sem fyrst.

David Axelrod, einn af ráðgjöfum Obama í kosningabaráttunni, segist viss um að Obama muni hagnast á góðri kosningaþátttöku.

Ef fellibylurinn leiði til þess að færri kjósi séu það slæmar fréttir fyrir Obama. Óttast er að mikið tjón verði þegar Sandy gengur yfir ríki á austurströnd Bandaríkjanna.

Líklegt er að áhrifin verði ekki síst röskun á samgöngum og rafmagnsleysi. Þegar Irena gekk yfir austurströndina í fyrra tók marga daga að koma rafmagni aftur á öll heimili.

Ef tjónið verður mikið í óveðrinu er hætt við að margir kjósendur einbeiti sér að öðrum hlutum en að nýta kosningaréttinnNý skoðanakönnun um fylgi forsetaframbjóðenda í Ohio-ríki benda til að fylgi þeirra sé hnífjafnt. Báðir mælast með 49% fylgi.

Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum eftir níu daga. Úrslit í Ohio koma til með að ráða miklu um hver verður kosinn forseti Bandaríkjanna. Í gegnum árin hafa kjósendur í ríkinu ýmist kosið frambjóðanda demókrata eða repúblikana.

Sigur þar skiptir gríðarlega miklu máli vegna þess að kjörmenn eru þar tiltölulega margir eða 18. Repúblikani hefur aldrei verið kosinn forseti Bandaríkjanna án þess að sigra í Ohio. Barack Obama og Mitt Romney hafa heimsótt Ohio margsinnis á síðustu mánuðum.

Kannanir sem gerðar voru 13.-18. september bentu til þess að Obama væri með 51% fylgi en Romney 46%. Nú virðist fylgi þeirra vera hnífjafnt, en marka má kannanir sem gerðar voru 18.-23. október. Mitt Romney á kosningafundi í Ohio.

EMMANUEL DUNAND Nýjustu kannanir í Ohio sýna eins og áður að Romney er með meira fylgi meðal karla í öllum aldurshópum nema 18-29 ára. Obama er með meira fylgi en Romney meðal kvenna. Kannanirnar benda einnig til þess að fylgi Obama meðal hvítra Bandaríkjamanna hafi verið að dala síðustu vikurnar.//////////////Eins og maður hefur áður sagt!!!! þá vonar maður að Ombama hafi þetta og það er svo að það dregur saman og Romney komin jafnvel yfir? en það sem gæti gerst er að þessi fellibylir gæti gert Obama óleik !!ef kjörsókn verðu ekki nóg vegna veðurs ,og það gæti hjálpað Milljaraðmæringnum,sem mun koma Bandaríkjunum endanlega á hausinn!!!Við bara vonum hið besta sem styðjum núverandi Forseta áfram!!!!/Halli gamli 


mbl.is Óttast að Sandy dragi úr kjörsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Chelsea kvartar yfir dónaskap Clattenburg/Dómara skandall og skömm bara!!!!

Chelsea kvartar yfir dónaskap Clattenburg Íþróttir | mbl.is | 28.10.2012 | 20:45 Chelsea hefur formlega kvartað yfir dómaranum Mark Clattenburg sem dæmdi stórleik liðsins gegn Man. United í ensku úrvalsdeildEitthvað á Clattenburg að hafa sagt í dag.inni í dag en United vann leikinn,

3:2Clattenburg sendi tvo leikmenn Chelsea af velli en forráðamenn liðsins kvörtuðu ekki yfir því heldur meintum dónaskap dómarans í garð tveggja leikmanna liðsins.

„Clattenburg talaði á mjög óviðeigandi hátt við tvo leikmenn okkar í leiknum í dag,“ segir í yfirlýsingu Chelsea en félagið vill ekki gefa út hvað Clattenburg á að hafa sagt.//////////////Þetta var og er Dómaraskandall og ekkert annað,maðurin var ekki hæfurs sem dómari alls ekki þarna alavega annað gula spjaldið var tilbúningur það sáu við öll aftur og aftur,hvar eru aðstoðadómarar þarna,og utanvalladómar,þetta er hvílíkt hneyksli sem alltaf þarf að vara ef M.U:N. er að keppa að það hálfa væri nóg,enda karlinn Ferguson ánægður!!!Ef þetta á að sigra keppnina er boltinn komin á hálan ís,tek það fram að eg er hvorki M.U.N. maður er Chelsea en heldur ekki M.C.   en er aðdáandi  samt að  góðri knattspyrnu hvar sem hún er!!!/Halli gamli


mbl.is Chelsea kvartar yfir dónaskap Clattenburg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Okt. 2012
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband