Hvað meinarðu, Ragnar? /Þetta er gott fyrir andstæðinga okkar að fá,mjög svo umdeilt mál hjá Ragnari svo ekki sé meira sagt!!!

Hvað meÓlöf Nordal inarðu, Ragnar? Innlent | Morgunblaðið - greinar | 26.10.2012 | 10:23 „Undanfarið hafa birst nokkrar greinar eftir Ragnar Önundarson þar sem hann vegur að siðferðilegu þreki formanns Sjálfstæðisflokksins“,

segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, í grein í Morgunblaðinu í dag. Segir hún að jafnframt komi þar fram skýrar aðdróttanir um að Bjarni Benediktsson geti ekki vegna ættartengsla og tengsla við viðskiptalífið staðið vörð um hagsmuni þjóðarinnar – komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda og hann setjist í stól forsætisráðherra.

Þá segir Ólöf: „Ekki ætla ég að elta ólar við allt það sem sagt er í greinum Ragnars en þar sem hann hefur nú boðið sig fram til forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn verður hann að skýra hvað hann á við þegar hann vegur með þessum hætti að formanni flokksins og hvers vegna hann telur það slæmt að forystumenn í stjórnmálum hafi víðtækan bakrunn í atvinnulífinu“.

Hvað um Ragnar Önundarson sjálfan?, spyr Ólöf. „Er ekki rétt, í ljósi þess að hann hefur svo miklar skoðanir á formanni Sjálfstæðisflokksins, að hann geri kjósendum grein fyrir aðkomu sinni að atvinnulífinu sem lauk ekki fyrr en í mars 2011 þegar hann sagði sig úr stjórn Framtakssjóðsins.

Er ekki rétt hann geri grein fyrir því?“./////////Sárindi manna koma oft svona fram og það er leiðinlegt að koma sér á framfæri með því að kasta skít í Formann okkar og það er svo að Ragnar er sár ,en það á ekki að koma niður á Bjarna Ben. okkar formanni,vonandi svarar þetta sér sjálft,en manni finnst þetta slegnir fyrir neðan beitistað,það er svo að Bjarni hefur 2* kosin formaður og við eigum að standa með honum blessuðum fram yfir kosningar ekki spurning,auðvitða mega menn hafa sínar skoðanir,en færa rök fyrir þeim!!!//Halli gamli


mbl.is Hvað meinarðu, Ragnar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...Marshall-aðstoð/Húmorin bergst ekki hjá Guðna Águssssyni!!!!

...MGuðni Ágústsson arshall-aðstoð Innlent | Morgunblaðið - greinar | 26.10.2012 | 9:25 „Alveg þótti mér það yndislegt þegar Róbert Marshall yfirgaf Samfylkinguna og gekk til liðs við Bjarta framtíð á dögunum.

Þetta minnti á annan atburð þegar Besti flokkurinn varð til í Reykjavík og Dagur B. Eggertsson og Samfylkingin fengu svokallaða Gnarr-aðstoð,“ segir Guðni Ágústsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Segir Guðni að nú sé Dagur B. borgarstjóri á „laun“

í Reykjavík þótt stórleikarinn Jón Gnarr fái laun borgarstjórans og hafi bílinn og bílstjórann. Í niðurlagi greinar sinnar segir Guðni: „Já, hinn trúaði samfylkingarmaður, Róbert Marshall, var sendur út í heiðina til að syngja Guðmund Steingrímsson heim.

Svo mörg eru þau orð. Nú heitir Miðflokkurinn Björt framtíð og er því laungetið barn Samfylkingarinnar og Besta flokksins enda Heiða Kristín Helgadóttir lánuð yfir.

Björgunarbátur er kominn á flot til að tryggja ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms áfram völd þar sem Össur Skarphéðinsson er líklegastur til að verða forsætisráðherra. Alveg sama aðferð og í borginni, Gnarr-aðstoð og nú Marshall-aðstoð. Pólitíkin hefur margar hliðar og sumar hlaðnar klækjum.“////////////Þetta er svona ein og Guðni vinur minn segir ekki spurning allt sét á svið til að blekkja fólk!"!!það er svo að þó þetta eigi að vera grín er sannleikurinn sagna bestur"!!!!!!/Halli gamli


mbl.is ...Marshall-aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhættan er gríðarlegâ////Þetta er ekki búið að gera og verður ekki!!!

 

Guðlaugur Þór Þórðarson hefur óskað eftir sérstakri umræðu...

Áhættan er gríðarleg“ Innlent | Morgunblaðið | 26.10.2012 | 10:30 Umfjöllun Morgunblaðsins í gær um nauðasamninga þrotabúa föllnu bankanna, þar sem fram kom að hagsmunum Íslands gæti verið stefnt í voða ef erlendum kröfuhöfum verður gert kleift að fá útgreiðslur í erlendum gjaldeyri, hefur vakið athygli.

Fram kom að Alþingi hefði gert stórkostleg mistök með samþykkt ákvæðis í mars sl. sem veitti slitastjórnunum undanþágu frá banni við fjármagnsflutningum í erlendum gjaldeyri.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem sæti á í efnahags- og viðskiptanefnd, hefur að undanförnu vakið athygli á þessu máli, m.a. í grein í Morgunblaðinu 16. október. Hann hefur nú óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um málið. Guðlaugur Þór bendir á að ótrúlega lítið hafi farið fyrir umræðu um nauðasamninga við kröfuhafa gömlu bankanna.

„Það kemur ekki til greina að ganga frá nauðasamningunum við þessar aðstæður að mínu áliti,“ segir hann í samtali.

Hann hefur fært rök fyrir því að sú leið sem hefur minnsta áhættu í för með sér fyrir almenning sé að setja gömlu bankana í þrot og greiða eignirnar út í íslenskum krónum. „Þá sitja allir kröfuhafar við sama borð og komið er í veg fyrir að almenningur borgi fyrir gjaldþrot einkabanka.“

Hann sagði í gær að undanþágan sem veitt var á Alþingi í mars hefði verið algerlega á ábyrgð stjórnarmeirihlutans, hún afgreidd á miklum hraða og ekki farið hátt.

Minnihlutinn hafi ekki tekið þátt í því. Hann segir mikla hættu felast í því að einn maður, seðlabankastjóri, ráði því hvort nauðasamningarnir verða samþykktir því mikið sé í húfi. „Það er mikið áhyggjuefni að einum manni séu falin svona gríðarlega mikil völd í þjóðfélaginu því hér erum við að tala um risavaxið mál,“ segir hann.

,,Áhættan er gríðarleg.“ Gætt sé ýtrustu varúðar „Það er mjög mikilvægt að gætt sé ýtrustu varúðar út frá þjóðhagslegum sjónarmiðum í samningum um þessi gríðarlega stóru bú föllnu bankanna,“ segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar.

„Það var óheppilegt að þegar höftin voru sett á sínum tíma, í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar, voru skilanefndirnar undanskildar. Það sem Alþingi var að gera núna í mars var að taka búin inn undir höftin.

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur lögðust gegn málinu hér á þinginu og það gerðu líka ýmsir umsagnaraðilar,“ segir Helgi. Hann segir að það hafi verið mat manna að erlendar innistæður í Seðlabankanum væru útgreiðanlegar án þess að það hefði áhrif á gjaldeyrisjöfnuð bankans og þess vegna væri rétt að setja þær ekki undir gjaldeyrishöftin en fela Seðlabankanum í framhaldinu að setja reglur um hvernig farið yrði með aðrar erlendar eignir í þrotabúunum.

„Seðlabankinn hefur síðan verið að vinna að þessari reglusetningu og mun auðvitað gera það með hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Ef það reynist einhverjum vandkvæðum bundið fyrir bankann að setja slíkar reglur eða hann telur að það ógni með einhverjum hætti þjóðhagslegri stöðu okkar, þá kemur bankinn aftur til þingsins með málið,“ segir Helgi.

Spurður nánar um umdeilda lagabreytingu þingsins í mars segir Helgi breytingarnar hafa miðað að því að taka þrotabúin inn undir höftin. En á þeim tíma hafi verið talið að erlendar innistæður í Seðlabankanum fyrir gildistöku laganna „væru einfaldlega með þeim hætti eign manna að það væri óvarlegt að leggja hald á þær“.

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagðist í gær hafa óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd með fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að fara yfir það sem fram kom í umfjöllun Morgunblaðsins.

Hann verður haldinn 31. október. „Ef einhver mistök hafa verið gerð af hendi Alþingis í lagasetningu ber að leiðrétta það sem allra fyrst.“ Snjóhengjan við að bresta „Tímabær umfjöllun í Morgunblaðinu í dag um snjóhengjuna sem er við að bresta,“ skrifar Lilja Mósesdóttir, sem á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd, á Facebook-síðu sína í gær.

Hún segist í samtali hafa reynt að vekja athygli á þessu vandamáli frá því í mars. Undirlægjuháttur hafi einkennt viðhorf og aðgerðir stjórnarmeirihlutans gagnvart erlendum kröfuhöfum, sem flestir eru vogunarsjóðir. Vogunarsjóðirnir vilji að þrotabúin gefi út skuldabréf í erlendum myntum upp í skuldir gömlu bankanna sem muni ógna efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar.

Aðeins er hægt að mati hennar að tryggja efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar með verulegum afskriftum á verðmætum í snjóhengjunni svonefndu í gegnum skiptigengisleið eða upptöku nýkrónu á mismunandi gengi. Lilja segir að það hafi verið mistök að veita slitastjórnum þrotabúa föllnu bankanna undanþágu frá banninu við fjármagnsflutningum milli landa í erlendum gjaldeyri.

Þetta hafi verið keyrt í gegn á þinginu síðdegis mánudaginn 12. mars. Hún hafi þá verið upptekin á fundi utan þingsins og hún eins og fleiri fulltrúar stjórnarandstöðunnar ekki haft ráðrúm og völd til að koma í veg fyrir að stjórnarmeirihlutinn samþykkti að erlendar inneignir slitastjórna í Seðlabankanum skyldu undanþegnar gjaldeyrishaftalögunum.

„Það voru mikil mistök að leyfa slitastjórnunum að taka út þetta fjármagn. Seðlabankinn er núna í mun veikari stöðu en annars til að tryggja að gerðir verði nauðasamningar við kröfuhafa í samræmi við hagsmuni almennings og greiðslugetu þjóðarbúsins,“ segir hún. Smám saman er að renna upp fyrir fólki að nær óhugsandi er þegar nauðasamningum lýkur að gefið verði út skuldabréf í erlendri mynt í uppgjöri við erlendu kröfuhafana.

„Það eru flestir búnir að átta sig á því að sú leið mun gera skuldir þjóðarbúsins í erlendum myntum ósjálfbærar,“ segir Lilja. Hún er ekki þeirrar skoðunar að það sé skynsamleg lausn að kröfuhafar fái allt greitt út í krónum því það myndi kynda undir verðbólgu og óstöðugleika ef of margar krónur flæða á skömmum tíma út í hagkerfið í leit að skammtímahagnaði. Því þurfi að skrifa niður verðmæti eigna þrotabúanna, Vogunarsjóðirnir keyptu kröfurnar á hrakvirði og því óðs manns æði að greiða þær upp að fullu, að mati hennar.

Að sögn Lilju kom fram við umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd að kröfuhafar Kaupþings og Glitnis væru margir og ætti hver þeirra innan við 10% af heildarverðmæti eignanna í þrotabúunum.

„Hver og einn vogunarsjóður hefur því enga hagsmuni af því að vel gangi á Íslandi og mun gera allt til að komast sem fyrst út.“ Þá stafi bankakerfinu einnig hætta af því að það séu fyrst og fremst vogunarsjóðir sem eru búnir að kaupa þessar kröfur og eiga þannig í raun Arion banka og Íslandsbanka. Skv. lögum um fjármálafyrirtæki séu vogunarsjóðir ekki hæfir eigendur banka.////////að lesa þetta er undur að gera!!! þetta gengur engan vegin upp neitt af þessu,við verðum að ver þarba á verði,og ger eitthvað róttækt þarna og losa okkur við þetta/Halli gamli


mbl.is „Áhættan er gríðarleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komi í veg fyrir gjaldþrot Íslands/Ríksstjórnin er hluti af kreppunni!!!!

KSteingrímur J. Sigfússon á fundi LÍÚomi í veg fyrir gjaldþrot Íslands Innlent | mbl.is | 25.10.2012 | 13:38 „Í mínum huga er sjávarútvegurinn á Íslandi ekkert eyland heldur hluti af samfélaginu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ fyrir skemmstu og útlistaði hvernig hallinn á ríkissjóði hefði verið gífurlegur frá hruni„

Ef við gerðum þetta ekki værum við farin á hausinn ... Ísland sem slíkt,“ sagði Steingrímur um nauðsyn aðhaldsaðgerða ríkisstjórnarinnar. Steingrímur sagði íslensk stjórnvöld ekki hafa þann munað sem útvegsmenn hefðu að geta hugsað um rekstur sinn án þess að taka stöðu ríkisins til greina.

Vildi hann með því færa rök fyrir álagningu veiðigjalda. „Það þarf að gera fleira en að reka sjávarútvegsfyrirtækin. Það þarf að reka Ísland ohf. Það hefur gengið bara bærilega... Það er ekki lengur rætt um það að Ísland lendi í greiðslufalli.

Í árslok 2008 og ársbyrjun 2008 var ekki rætt um hvort heldur hvenær Ísland færi á hausinn... Hagvöxtur í fyrra var ásættanlegur að mínu mati...

Það þýðir ekki að gráta okkur í svefn á hverju einasta kvöldi. Við verðum að geta glaðst yfir því sem vel hefur gengið.“ Jafn stórt og fjármálaráðuneytið Steingrímur sagði ráðuneyti sitt orðið á stærð við fjármálaráðuneytið í ræðu sinni.

Fækkun ráðuneyta væri liður í að styrkja ráðuneytin, m.a. í ljósi þeirrar gagnrýni sem hefði komið fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Sagði Steingrímur að enn ætti eftir að ráða í skrifstofur viðskipta, afurða og innri þjónustu og rekstrar en að öðru leyti væri ráðuneytið orðið fullmannað. Athygli vakti að ekki var klappað fyrir Steingrími þegar hann gekk til pontu en hann sagðist í upphafi máls síns vonast til að hann væri að sækja aðalfund en ekki jarðarför.////////////Það er svo að maðurin veit ekki hvort hann er að komma né fara við Jarðaför eða hvað??? enda er þetta ríkissstjórn vorri að kenna að ekkert gengur nema eyðileggja allt sem hægt er!!segjast svo ótrauður vera að koma okkurcá lappir er bara hauga lýgi og ekkert annað,við erum á barmi gjaldþtrots ekki spurning,kannski bjarga kosningar þessu og ekkert annað!!!/Halli gamli


mbl.is Komi í veg fyrir gjaldþrot Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfir fjórðungur Spánverja án atvinnu/Og þangað skal haldið ótrauðir i ESB!!!!

Yfir fjórMynd 640578ðungur Spánverja án atvinnu Viðskipti | AFP | 26.10.2012 | 8:40 Atvinnuleysi mældist rúmlega 25% á Spáni á þriðja ársfjórðungi en tugir þúsunda starfa voru lagðir niður í fjórðungnum, samkvæmt tölum frá Hagstofu Spánar.

Alls mælist atvinnuleysið 25,02% á þriðja ársfjórðungi samanborið við 24,63% á öðrum ársfjórðungi.

Ríkisstjórn Mariano Rajoy hefur þurft að grípa til sársaukafullra niðurskurðaraðgerða, svo sem lækkunar útgjalda og hækkunar skatta vegna bágrar stöðu ríkissjóðs. Niðurskurðurinn hefur mætt mikilli andstöðu meðal almennings á Spáni og hefur verið boðað til allsherjarverkfalls þar hinn 14. nóvember næstkomandi.

Atvinnuleysið er mest meðal ungs fólks en 52,34% fólks á aldrinum 16-24 ára eru án atvinnu. Á öðrum ársfjórðungi mældist atvinnuleysið 53,27% hjá þessum hópi.

Alls voru 5,78 milljónir Spánverja í atvinnuleit á tímabilinu júlí til september sem er aukning um 85 þúsund manns frá fyrri ársfjórðungi.

Á alls 1,74 milljónum heimila á Spáni er enginn á heimilinu með vinnu eða á einu af hverjum tíu heimilum landsins.///////////////Hvað þarf að segja okkur þetta oft svo við skiljum þetta ,maður er að vara alaveg gáttaður á þessi ferði okkar og kosnaði að sækaj þarna inn.,er ekki mál að linni og við hættium við ,þetta á ekki mögyleika á aðskána Grikkland er komið i bið i tvö ár ,en er er gasprað vitum hvað vuð fáum,þetta er bara að henda peningum sem gætu nýst i Tæki a´Spítalana!!!Q/Halli gamli


mbl.is Yfir fjórðungur Spánverja án atvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðar aukna fjárfestingu 2013/Kosninngabroðsið komið á au bæði Steingrím og Jóhönnu!!!

Boðar aukna fjárfestingu 2013 Innlent | mbl.is | 26.10.2012 | 9:36 „Við siglum núna að landsmeðaltalinu fyrir atvinnuvegafjárfestingu á árunum 1990 til 2012. Við náum því á næsta ári og förum jafnvel aðeins upp fyrir það ...

En við erum á réttri leið í þessum efnum og það ber að viðurkenna,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra á aðalfundi LÍÚ. í Reykjavík í gær. „Því það hjálpar okkur ekkert að gráta okkur í sæng á hverju kvöldi og láta ekki einu sinni eftir okkur að gleðjast þó yfir því sem þróast í rétta átt,

“ sagði Steingrímur en fjárfesting hefur sem kunnugt er verið lítil í sögulegu samhengi frá efnahagshruninu.

Hann vék svo að samspili veiks gengis og sterkrar stöðu útflutningsgreina. „Almennt hefur afurðaverð verið hátt og auðvitað hefur veik krónan leitt til góðrar afkomu í útflutnings- og samkeppnisgreinum og það hefur skipt sköpum fyrir Ísland við að hafa sig út úr þessu. Varðandi uppsjávarfiskstofna að þá eru þeir svona í meðaltali í góðu standi. Því miður eru þar blikur á lofti

.“ Steingrímur J. Sigfússon Ernir Eyjólfsson////////Karlinn Steingrímur vil ekkert gera!!! bara stoppa allt!!!! engin helvítis breyting á þvi,burt með hann úr þessu og nýtt blóð til að koma okkar á skrið aftur úr lægðinni sem þau hafa skapað skötuhjúin!!!!!/Halli gamli


mbl.is Boðar aukna fjárfestingu 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glerhált á Suður- og Vesturlandi/Við bara förum varlegar"!!!!!!!

Glerhált á Suður- og Vesturlandi Innlent | mbl.is | 26.10.2012 | 7:42 Í nótt myndaðist hálka víða á Suður- og VesturMynd 500129landi af völdum ísingar á blautum vegum jafnvel þótt lofthiti sé víðast hvar yfir frostmarki

. Í tilkynningu frá Umferðarstofu segir að þetta fyrirbæri kallist glerhálka og geti verið lúmskt, því erfitt getur reynst að sjá muninn á því hvort vegurinn sé einfaldlega blautur eða ísaður.

Þessi tegund hálku er víða á höfuðborgarsvæðinu og eru ökumenn hvattir til sérstakrar aðgæslu vegna þessa.

Umferðarstofa og Vegagerðin létu gera fræðslumyndband þar sem m.a. er fjallað um hvernig bera má kennsl á þessa tegund hálku og fleiri((((//////Við tökum þetta all varalega !!!akanadi og gangaandi!!!! ekki spurning og það er það eina sem við getum gert/Halli gamli


mbl.is Glerhált á Suður- og Vesturlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er svo að það er ekki nóg að fólk segi Þjóðkirkja,svo eigum við öll að bera hana uppi!!!!

Fyrst maður er farin að tala um sparnað í einu og öðru,af hverju ekki þetta með Þjóðkirkjuna sem allir eru að tala um að fólkið vilji hafa og það nátturlega að stótum hluta rétt,þessi peningur eru milljarðar sem þarna fara úr Ríkissjóði og það eiginlega ómælt!!!það er sagt að þetta eigi Kirkjan inni,það er ekkert rétt við það!!Fríkirkjur eiga að bera sig og geta þá ekki það sem fólkið og Prestarnir samþykkt að hafa þetta þannig að við bara sem trúum borgum kirkjugjald hærra en í dag og hinir bara ekkert sem eru ekki í trúfelögum,er þetta ekki stór sparnaður ég bar spyr??Við eigum sjálf að ráða þessu en ekki Alþingi það er trúfrelsi í landinu og engin skyldumæting eða trú,það er alveg nóg að láta okkur borga RÚV og án samþykkis og vel það með nefskatti,við eigum ekki að láta fara svona með okkur ,ef talað er um að spara,ég tek það fram ,að ég er mjög svo trúaður maður!!!/Halli gamli

Veruleg aukning í fallþunga í ár///Hvenær á þetta að bera sig sjálft????

Veruleg auMynd 423386kning í fallþunga í ár Innlent | mbl | 25.10.2012 | 18:55 Meðalfallþungi sauðfjár í haust er talsvert meiri en í fyrra. Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðlenska, segir að aukningin milli ára sé 0,5-1 kíló.

Hann segir að um 1.700 færri lömb hafi verið lögð inn hjá Norðlenska í haust, vegna fjárskaðans á Norðurlandi, en samt verði framleiðslan í ár meiri en í fyrra vegna meiri fallþungaÁ síðasta ári nam heildarframleiðsla á lambakjöti tæplega 9.600 tonnum.

Þá varð um 5% aukning milli ára. Margt bendir til að svipuð framleiðsluaukning verði í ár, en það þýðir að framleiðslan fer yfir 10 þúsund tonn.

Fara þarf aftur til ársins 1988 til að finna jafnmikla framleiðslu á einu ári. Sigmundur segir að í haust hafi verið lögð inn í sláturhús Norðlenska um 1.700 færri lömb en áætlað var. Skýringin sé fjárskaðinn sem varð í óveðrinu 10. september.

Eins og kom fram á mbl.is í gær er talið að 4.500-5.500 lömb og ær hafi drepist á Norðurlandi í óveðrinu og í kjölfar þess.

Tjónið varð mest í Þingeyjarsýslum, en Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjórn Búgarðs ráðgjafarþjónustu, segist áætla að um 2.500 hafi drepist. Sláturleyfishafar greiða um 8.500 krónur fyrir meðallambið Í fréttinni kom fram að sauðfjárbændur fengju um 14.000 krónur fyrir lamb sem lagt væri inn í sláturhús. Hið rétta er að sláturleyfishafar greiða bændum um 8.500 kr. fyrir meðallamb (en meðallamb er um 16 kg).

Til viðbótar fá bændur beingreiðslur úr ríkissjóði sem skilar þeim um 14.000 krónum. Beingreiðslurnar eru greiddar á kíló af fullvirðisrétti.

Engar beingreiðslur eru greiddar á það sem framleitt er umfram fullvirðisrétt. Sigmundur segir að talsvert mikill munur sé milli bæja hvað meðalgreiðsla á lamb er mikil.

Munurinn getur verið nokkur þúsund krónur á lamb milli þeirra sem skila mestum afurðum og þeirra sem skila minnstum afurðum.

Sauðfjárbændur sem hafa náð mestum árangri í ræktun á fjárstofni sínum hafa því mun meiri arð af búrekstrinum en þeir sem ekki hafa lagt sömu áherslu á ræktun.

/////////Það er nú svo að þetta dæmi er mjög svo umdeilt svo ekki sé meira sagt,en hvað skal gera??það er búiðm að tala um þetta í mörg ár að breyta þessu eitthvað en lítið gerist,að greiða niður Kindakjöt og mjólk er ekki í lagi það verður að finna eitthvað annað í þessu,það þíðir ekki að segja bara Íslenska Lamakjötið er best, sem það er!!Reikni nú bara hver fyrir sig,það er auðvelt,en hvernig á að láta þetta bera sig það er málið,það sínir sig að menn geta  gert betur en ekki nóg til að skila þvi í haknað,kg mundi þá fara úr 875- í 1442- kg af lúðunni kostar 3000-4000- er þetta nokkur meira að gera en bara hækka!!! Jú það mundi minka um stund salan en ekki lengi,þetta mundi jafna sig,eins er með mjólkina,þaðs sama mundi ske þar og við bara kaupa!!!en þetta hlýtur að koma að þessu ekki spurning,en þó ég sé mikill bændavinur er ég einnig séður á að spara fyrir ríkið og okkur um leið!!!/Halli gamli


mbl.is Veruleg aukning í fallþunga í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rjúpnaveiðar hefjast á morgun//Vonum bara að allt fari vel,engin leit að veiðimönnum!!!

RjúpnaveiðRjúpnaveiðar hefjast á morgun.ar hefjast á morgun Innlent | mbl.is | 25.10.2012 | 20:51 Rjúpnaveiðitímabilið í ár hefst á morgun

. Sama fyrirkomulag verður á veiðunum og í fyrra. Veiðidagar verða aðeins 9 vegna bágrar stöðu stofnsins og skiptast þeir niður á fjórar helgar

. Leyfilegt er að veiða rjúpur á eftirfarandi dögum: Föstudaginn 26. október - sunnudagsins 28. október (3 dagar) Laugardaginn 3. nóvember - sunnudaginn 4. nóvember (2 dagar) Laugardaginn 17. nóvember - sunnudaginn 18. nóvember ( 2 dagar) Laugardaginn 24. nóvember - sunnudaginn 25. nóvember (2 dagar)

Sölubann gildir áfram á rjúpu og öllum rjúpnaafurðum og áfram er friðað fyrir veiði á ákveðnu svæði á Suðvesturlandi.

Umhverfisstofnun hvetur rjúpnaskyttur til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar og ganga vel um náttúruna.

Umhverfisstofnun hvetur veiðimenn til að nota rafrænu veiðibókina og einnig að kynna sér vel hvar þeir mega veiða. Virkt eftirlit verður með veiðunum á landi og úr lofti./////////Það er svo að þetta er algjört lágmark af tíma ,ef ekki gefur neitt þessar helgar eru menn í vondum málum,það er að segja þeir sem borða Rjúpuna,má ekki seljanna,en það má kaupana eða hvað er þetta eins og með vændið??? nei þetta er bara útidúr en samt þessi boð og bönn,gera víst alt spennandi fyrir suma,en blessaður fuglinn ger í hæðir og lægðir í tölum þó svo engin skjóti neitt,Enda tófan alin til þessa arna!!! en ég sjálfur hefi ekki neitt um þetta að segja!!!! var aldrei mikil rjúpnaskytta,en það voru aftur fólkið hennar Ellu konu minnar frá Ströndum,í gamla daga seldi ég fyrir þá hundruðir rjúpna,og fengu færri en vildu/Halli gamli 


mbl.is Rjúpnaveiðar hefjast á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Okt. 2012
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband