Unnið verður að rafvæðingu samgangna Innlent | mbl.is | 20.11.2012 | 16:54 Borgarstjórn samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að láta vinna aðgerðaáætlun á vegum Reykjavíkurborgar til að auka hlut rafvæddra samgangna í nánustu framtíð og til lengri tíma. Stefnt er að því að aðgerðaráætlun liggi fyrir um miðjan mars 2013.
Í tilkynningu frá borginni segir, að í greinargerð sex manna starfshóps sem fylgi tillögunni sé nefnt að hraði breytinga í samfélaginu varðandi orkuskipti í samgöngum ráðist af mörgum þáttum sem séu óráðnir í dag en muni væntanlega skýrast á allra næstu árum.
Þar séu m.a. þættir eins og úrval og verð á bílum, skattaívilnanir ríkisins og fleira. Tekið sé fram að orkuöryggi með nýtingu innlendrar orku og minni umhverfismengun tengd rafbílanotkun séu mikilvægir þættir sem hafi ekki verið metnir til fjár.
Þá sé nefnt að notkun rafvæddra reiðhjóla og léttari bifhjóla hafi farið ört vaxandi í borginni. Í greinargerðinni komi fram að Reykjavíkurborg geti stuðlað að nýtingu rafmagns í samgöngum með ýmsu móti.
Meðal þess sem starfshópurinn nefni sé að Reykjavíkurborg geti gengið á undan með góðu fordæmi með kaupum á rafknúnum bílum fyrir starfsemi borgarinnar og fyrirtæki hennar, að hugað verði að rafvæðingu almenningsvagna, að hleðslustaðir verði útbúnir við vinnustaði borgarinnar og í bílastæðahúsum sem hún reki og að hraðhleðslupóstar verði settir upp á lykilstöðum í borginni.
Reykjavíkurborg hefur nú þegar tekið ákveðin skref í þá veru að metanvæða bílaflota borgarinnar.
Á undanförnum misserum hafa 70 metanknúnir bílar leyst úr sér gengna bensínbíla af hólmi auk þess sem níu sorphirðubílar borgarinnar eru knúnir metani.
Borgin hefur einnig stigið fyrstu skrefin í rafbílavæðingu.
Hún rekur nú tvo rafgeymabíla og einn tengitvinnbíl og er von á þremur rafbílum til viðbótar á næstunni, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg./////////////Þetta er bara gott, að taka í gegn nógu snemma!!!! og það tekur þann tíma sem þarf,en stefnan er rétt og það verður vonandi hægt, að byrja á næsta ári að gera þetta að einhverri byrjun ,og koma þessu í rétt horf,og það einnig með strætisvagna og almennisvagna,svo íta yndir að almenningur geti fengið sér svona bifreyðar!! þegar þeir þutrfa að endurnýja,og bílar eru komnir með meiri langdrægni!!en aftur a´móti með rafmagnslestar líst mér ekki á það er vandamal og tekur langan tíma en má svo skoða annað slagið kosnaður er svo mikill!!En þessi borgarstjórn mun ekki vera þá vonandi skipir þar um eftir 1.4 ár eða svo!!!/Halli gamli
![]() |
Unnið verður að rafvæðingu samgangna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2012 | 16:49
Deilt um það hvort vandað var til verks/Þetta er hrátt og verður að ræðast í alvöru og verða um það sátt,ekkert annað!!!
Deilt um það hvort vandað var til verks Innlent | mbl.is | 20.11.2012 | 16:19 Fyrsta umræða um frumvarp að nýrristjórnarskrá hófst á Alþingi í dag og mælti formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins, Valgerður Bjarnadóttir, fyrir frumvarpinu við upphaf umræðunnar.
Gerði hún grein fyrir efni fumvarpsins og forsögu þess og lagði áherslu á að sú vinna sem stæði að baki frumvarpinu væri bæði mikil og mjög vönduð.
Stefnt væri að því að afgreiða málið á yfirstandandi þingi og samþykkja það áður en því lyki fyrir þingkosningarnar í vor.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa í umræðunni lagt áherslu á mikilvægi þess að fara betur yfir frumvarpið og að mörgum spurningum væri enn ósvarað vegna málsins.
Fjölmargar athugasemdir hefðu komið fram vegna þess, meðal annars frá sérfræðingum á sviði stjórnskipunarréttar, sem ekki hefði verið tekið tillit til og kölluðu þeir eftir því að það væri gert og þar með talið leitað til erlendra sérfræðinga.
Þegar verið rætt við fjölmarga sérfræðinga Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði Valgerði að því hvers vegna umboð lögfræðinganefndar sem falið var að fara yfir frumvarpið frá lagatæknilegu sjónhorni hefði verið skilgreint svo þröngt.
Spurði hann ennfremur að því hvers vegna ekki hefði verið leitað til erlendra sérfræðinga varðandi heildarmat á frumvarpinu líkt og lögfræðinganefndin hefði kallað eftir.
Valgerður svaraði því til að málið væri nú komið til efnislegrar umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og að sjálfsögðu yrði í því ferli kallaðir til allir þeir sérfræðingar sem hægt væri að ná í. Hún svaraði hins vegar ekki spurningunni um þröngt umboð lögfræðinganefndarinnar.
Sigmundur spurði þá aftur hvers vegna ekki hefði verið leitað fyrst til slíkra sérfræðinga áður en málið kom inn á Alþingi.
Svaraði hún því til að í undirbúningi málsins hefði verið leitað til fjölmargra sérfræðinga.
Skilaboð um það hvernig umræðan verði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór meðal annars hörðum orðum um það hvernig fulltrúar ríkisstjórnarinnar hefðu brugðist við athugasemdum við frumvarpið sem komið hefðu frá sérfræðingum um málið.
Aðstoðarmaður forsætisráðherra hefði þannig kallað málþing í haust með þátttöku slíkra sérfræðinga steypu.
Valgerður hefði sagt sérfræðingana í fílabeinsturni og þyrftu að vanda sig betur. Þeim væri sendur tónninn og þannig send skilaboð um það hvernig umræðan yrði um málið í vetur.//////////Þetta ofríki þessara litla meirihluta!!!! um stjórnaskrá Íslansds,er ekki líðandi og verður ekki liðið ef ég held að þeir sem eru á móti þessu geri rétt,það má bara ekki ske að okkar æðsta stórnaskrá verði bylt svona!!!! þegar hún hefur þjónað okkur svo vel ,ekkert hægt að kenna henni um neitt sem afalaga hefur farið,það má ýmislegt laga en þessi bylting er bara frasi öfgamanna og ekkert annað að koma þessu í gegn með einföldum meirihluta, í þrássi við ábyggilega meirihluta fólks!!!!!, það er öllu tjaldað til að komast i ESB og fyrir það ferli verður að breyta stjónarskáni !!,landssalana fer ekki fram öðruvísi!!!Það er með eindæmum hvernig komið er fram þarna ekki spurning að þetta er,ljótt mál og varsamt mjög að gera svona í ósakomulagi ,að verður að stoppa og ekkert annað i stöðunni,það er svo litilfjörlegt þetta fólk sem vill þetta að það ber að sækja það til saka!!!!/Halli gamli
![]() |
Deilt um það hvort vandað var til verks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2012 | 11:33
Stjórnarskrármálið og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs/Tvö óskild mál,stjórnaskrámálið mjög umdeilt og á að bíða meiri umfjöllunar!!
Stjórnarskrármálið og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs Innlent | mbl.is | 20.11.2012 | 9:52 Tvö mál eru á dagskrá Alþingis í dag fyrir utan umræður um störf þingsins.
Að þeim loknum mun sérstök umræða fara fram um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafsins og því næst hefst fyrsta umræða um frumvarp meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að nýrri stjórnarskrá.
Málshefjandi í umræðu um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafsins, þar sem átök hafa staðið yfir á milli Ísraela og Palestínumanna, er Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Til andsvara verður Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Greint var frá því í fjölmiðlum í byrjun vikunnar að Árni Þór hefði óskað eftir umræðu um málið á Alþingi og ennfremur lýst þeirri skoðun sinni að ástæða væri til þess að endurskoða stjórnmálasamband Ísland við Ísrael og hvetja önnur ríki til þess að gera slíkt hið sama.
Í grein sem Árni Þór ritaði á heimasíðu sína síðastliðinn laugardag sagði hann ennfremur meðal annars að alþjóðasamfélagið yrði að fordæma framferði Ísraela harðlega og að Ísland ætti að ryðja brautina í þeim efnum.//////////Við erum fletst ,ef ekki öll sammála þessu með átökin fyrir botni Miðjarðarhafs,og viljum bara að við gerum ráðstafnir sem eru það að slita sambandi við Ísrael á meðan ekki er samið þar,við vitum að Bandaríkjamenn geta stoppað þetta en þeir hafa þvi miður sagt að Ísraelar megi verja sig!! en það gerir nátturlega gæfumunin að þessar eldflaugar Palestínu manna sem sumir eru auðvitða ögamenn sem erfitt er að hemja og að er einnig hjá Ísraelum öfagmenn sem vilja arabana burt og taka skagann alveg !! en þarna verður að semja og er nú frú Hillary Klinton að fara þarna til þessa,ég hefði viljað Bil klinton Fyrv.Forseta í þetta og þetta verður að gerst strax nógu margi eru fallnir a´annað hundarð þar af börn og Borgara!!Hitt malið stjórnaskráin má bíða liggur ekkert á þarf að skoða mikið betur,þvi inn i ESB erum við ekki að fara//Halli gamli
![]() |
Stjórnarskrármálið og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2012 | 11:16
Tuttugu óku undir áhrifum/Þessi tala lækkar ekki ,ljótt að gerast þarna!!!
Tuttugu óku undir áhrifum Innlent | mbl.is | 20.11.2012 | 10:31 Tuttugu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og Garðabæ og einn í Hafnarfirði.
Einn var tekinn á föstudagskvöld, tíu á laugardag, sjö á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags.
Þetta voru fjórtán karlar á aldrinum 17-43 ára og sex konur, 17-45 ára.
Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.///////Þetta er ótrúlegt að svona skuli þessi fjandi aukast !!Þetta er gæpur og ekkert annað að gera,og menn skulu bara hætta þessu og þakka fyrir að við getum ekið bifreyð í góðu ástandi!!!! ,en ekki gera það ef áfengi er neitt og ekki ef maður er ekki hæfur af hvaða ástæðu sem sem er!!!!,þetta vantar ekki að áróður fyrir þessu og sektir og missir leyfis mjög háar!!! en samt gerir fólk sér ekki grein fyrir afleiðingum sem þetta getur haft stór slysi sem þetta getur ollið óbætanlegt!!!,hugsunarleysið er þarna mikið!!!!/Halli gamli
![]() |
Tuttugu óku undir áhrifum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2012 | 10:04
Leggja mikla áherslu á jöfn tækifæri/að sjáfsögðu af tveim jafnfærum!!!
Leggja mikla áherslu á jöfn tækifæri Innlent | mbl.is | 20.11.2012 | 9:37 CCP er með öfluga jafnréttisstefnu sem meðal annars felst í því að fjölga konum innan fyrirtækisins.
Lögð er mikil áhersla á jöfn tækifæri á sem flestum sviðum og þegar tveir jafnhæfir einstaklingar koma til greina er sá starfsmaður valinn sem er af því kyni sem er í minnihluta.
Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Hönnu Guðlaugsdóttur, mannauðsstjóra CCP á Íslandi. Hanna hélt fyrirlestur á fundi um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs á Grand hóteli í morgun. Jafnréttisstefna felst í því að ráða hæfasta fólkið í hvert starf, sagði Hanna.
Þegar tveir jafnhæfir einstaklingar koma til greina veljum við þann starfsmann sem er af því kyni sem er í minnihluta, sagði Hanna. Hanna Guðlaugsdóttir, starfsmannastjóri CCP á Íslandi. Hún sagði að fyrirtækið notaði ímyndarauglýsingar á markvissan hátt til að fjölga konum í störfum innan fyrirtækisins og sagði mikla áherslu lagða á jöfn tækifæri á sem flestum sviðum.
Hún sagði kynbundinn mun á kjörum vera skoðaðan árlega og kæmi slíkur munur í ljós væri hann leiðrættur. Þá væru launaviðtöl á hverju ári.
Að sögn Hönnu er starfsfólki CCP gefinn kostur á sveigjanlegum vinnutíma eins og kostur gefst á. Stundum sé miðað við svokallaðar kjarnastundir, þar sem fólk vinni tiltekinn hluta vinnutímans á vinnustaðnum. Fundurinn var haldinn á vegum vinnuhóps um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Hópurinn var skipaður af velferðarráðuneytinu í samráði við Jafnréttisráð og Jafnréttisstofu.////////Þetta gott mál mjög,en það ber auðvitað að vera þannif að t.d. bæði séu jafn hæf og konur þá færri!!þetta er mjög svo áríðandi að gera,og það sem fyrst,við erum þessu flest mjög meðmælt.konur eru ekki verri stjórnendur og oft hægur vandi að hafa þetta svona,og full þörf!!!!Halli gamli
![]() |
Leggja mikla áherslu á jöfn tækifæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2012 | 09:43
Verum breytingin sem við boðum/það erum við öll sammála um!!!!!
Verum breytingin sem við boðum Innlent | Morgunblaðið - greinar | 20.11.2012 | 9:26 Við þær aðstæður sem nú eru í stjórnmálum og samfélaginu almennt nægir ekki að boða breytingar og betri tíma.
Stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn verða sjálfir að vera sú breyting, endurvinna það traust sem glatast hefur og hafa hugrekki til að fara nýjar leiðir og innleiða ný vinnubrögð, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi í grein í Morgunblaðinu í dag.
Þau verkefni sem bíða íslensks samfélags hafa sjaldan verið brýnni en nú, segir Hanna Birna. Ekkert stjórnmálaafl getur tekist á við þessi verkefni betur en Sjálfstæðisflokkurinn.
En til þess þarf hann afgerandi umboð þjóðarinnar.
Umboð sem fæst ekki aðeins vegna þess að núverandi ríkisstjórn leysir verkefnin illa, heldur vegna þess að almenningur treystir því að Sjálfstæðisflokkurinn muni leysa þau betur en aðrir.//////////Auðvitað erum við sjáfstæðismenn þessu sammála öll ,og viljum stórna landinu,öðruvísi en gert er í dag,og það mun líka gert, ef við fáum til þess fylgi ,sem ég er nokkuð viss um!!þá stöndum við öll saman en ekki sundruð,ein og þessi sjórnarmeirihluti sem nú er við völd ,og er að kom öllu um koll/Halli gamli
![]() |
Verum breytingin sem við boðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2012 | 09:27
Strandaði í Breiðafirð///Gott að allt fór vel,komið á flot og á heimleið!!
Strandaði í Breiðafirði Innlent | mbl.is | 20.11.2012 | 8:25 Fjölveiðiskipið Þórsnes II tók niðri á grynningu í Norðurflóa innarlega í Breiðafirði um sjö sjómílur suðvestur af Reykhólum upp úr kl. sex í morgun.
Skipverjar höfðu samband við Landhelgisgæsluna og upplýstu um aðstæður. Veður var þokkalegt á staðnum og enginn leki virtist vera kominn að skipinu.
Landhelgisgæslan kallaði út og setti harðbotna björgunarbáta Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Stykkishólmi og Grundarfirði ásamt björgunarskipi á Rifi og björgunarsveit á Reykhólum í viðbragðsstöðu.
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var kölluð út og sett í viðbragðsstöðu á flugvelli í Reykjavík. Grettir, skip Þörungavinnslunnar á Reykhólum, bjó sig einnig til að fara að Þórsnesi II og vera til taks þegar félli meira að og von um að skipið losnaði af grynningunum.
Um kl. 07:44 tilkynnti skipstjóri Þórsness II að skipið hefði losnað af sjálfsdáðum af strandstað þegar flæddi að en háflóð verður um kl. 11:00 í dag.
Skrokkur og skrúfubúnaður skipsins virtist í lagi og heldur skipið undir eigin vélarafli til Stykkishólms til frekari skoðunar. Þórsnes II er 233 brúttótonn að stærð, 32 metra langt og í áhöfn eru níu manns.////////////Það er ekkert dásamlegra þegar svona skeður að allt fari vel!!þó svo strand sé ekki það sem við viljum,eta óhöpp ske að það gott að ekki fór ver,við gleðjumst með þeim blessuðum að sleppa svona vel,sjórin er svona hættur víða,og við þetta búa þessir sjómenn,við fögnum!!/Halli gamli
![]() |
Strandaði í Breiðafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2012 | 15:31
Rammaáætlunin afgreidd úr nefnd//Þetta gengur ekki lengur að stoppa allt!!!
Rammaáætlunin afgreidd úr nefnd Innlent | mbl.is | 19.11.2012 | 12:28 Þingsályktunartillaga um vernd og orkunýting landsvæða, svonefnd rammaáætlun, var afgreidd úr umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis nú rétt fyrir hádegi en fundað var um hana í nefndinni í morgun.
Var tillagan afgreidd úr nefndinni óbreytt með atkvæðum fulltrúa stjórnarflokkanna. Því miður þýðir þessi niðurstaða meirhlutans í nefndinni að þetta sé bara rammaáætlun þessarar ríkisstjórnar en ekki áætlun til lengri tíma sem víðtæk sátt er um, segir Birgir Ármansson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is en hann á sæti í nefndinni.
Hann segir að væntanlega verði um að ræða þrjú álit úr nefndinni vegna málsins.
Álit meirihlutans og síðan álit fulltrúa sjálfstæðismanna annars vegar og framsóknarmanna hins vegar. Atvinnuveganefnd Alþingis fundaði einnig í morgun um málið og skilaði síðan umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar og var málið afgreitt þar með sama hætti.
Ekki liggur fyrir hvenær málið verður tekið til annarrar umræðu á Alþingi./////////Það er að verða óvært að búa í þessu landi, að mans áliti bara allt stoppað og sett í bið til hvers spyr maður bara,til hvers eru Auðlindirnar bara til að horfa á þær eða hvað,við þufum að nota þær skinsamlega engin að tala um annað,nema þessir sem sem allt vilja friða!!og lifa á hundasúrum og grasi,Þessir öfgar eru mjög svo vondir fyrir okkur sem vantar atvinnu og peninga til að borga skuldir og skatta,þetta fólk á bara bátt og ekkert annað til hvers að gera þeta ef svo kemur hér betri ríkistjórnn og meirihluti sem þessu mun breyta öllu,enda lifum við ekki af öðruvísi en nota landgæðin og auðlindirnar,þetta öfgafólk, er á síðum öllum að hræða okkur, um að þetta sé ekki framtíðin,en hver er hún,við lifum bara einu sinni og núið að það sem þarf ,því við stöndum ílla á allavega og þvi ekki bjargað nema nýta það sem til er,að hvað????Ef þetta fólk vill friða allt hvað er þá til ráða!!!!/Halli gamli
![]() |
Rammaáætlunin afgreidd úr nefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2012 | 00:59
Jón Gnarr: Hommafælnir eru fífl//Þar tókstu af skarið Borgarstjóri og nefnir aðra eftir sjálfum þér!!!

![]() |
Jón Gnarr: Hommafælnir eru fífl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2012 | 17:21
Sunnudag hugvekja okkar sem vonumst eftir kraftaverki,að við berum gæfu til að stoppa gjörræði þessa næma meirihluta!!!
því miður erum við ekki, spurð réttra spurninga um nýja stjórnarská,svo vitlausra að það jaðraði við lög!!og gerir ennþá!!en samt skal farið með þetta fyrir Alþingi og reyna að koma þessu í gegn!!sem nátturlega gengur ekki,þvi það verður ekki samþykt af næsta Alþingi eftir kosningar!! Svo eru fleiri mikið umdeild mál á ferð sem á að koma í gegn með látum,Rammaátlunin um stopp á ollum virkjunum og framförum!!svo og klára eyðileggja útgerð og fiskveiðar,það skal verða hvað sem hver segir!!En þetta er ekki nóg þeir stjórnarsinnar og fl. vilja koma okkur í ESB svo fljótt sem auðið er,þó þar sé allt á vonarvöl,og atvinnuleisið í hámarki!!finnst ykkur þetta virkilega það sem nauðsin er að gera nú þegar Alþingi þarf að klára nauðþurftir loforða sem eftir eru að bjarga heimilum og þeim sem urðu verst úti við kreppuna,skuldum vaxnir og eru að missa allt sitt,fyritækin að fara yfir einnig af skattpíningu,sem og allir,við gamlingjar og öryrkjar einnig,nei hvað varðar þessari ríkisstjórn um hag okkar sem hér búum og erum í kröggum,út af þessum hækkunum á sköttum og öllum lyfystandard,allt hækkar nema launin!!við biðjum bara um að það komi hér nýr meirihluti sem kemur okkur aftur í sæmilegt horf aftur,og það er hægt,ef vilji er fyrir hendi!!!það styttist í kosningar sem betur fer/Halli gamli
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 1047931
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar