SÍ eykur regluleg gjaldeyriskaup/////Er þetta nokkuð okkur til bjargar,fáum við eitthvað hærri vexti???

SÍ eykur regluleg gjaldeyriskaup Viðskipti | mbl.is | 30.7.2012 | 16:24 Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að auka regluleg gjaldeyriskaup bankans af viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði, um ótiltekinn tíma frá og me ð 31. júlí 2012.

Fram kemur í tilkynningu frá SÍ, að frá septembermánuði árið 2010 hafi bankinn keypt vikulega hálfa milljón evra af hverjum viðskiptavaka á millibankamarkaði með gjaldeyri. Kaupin hafi farið fram á þriðjudögum.

Þá segir að frá og með morgundeginum muni bankinn kaupa eina milljón evra vikulega af hverjum viðskiptavaka. „Aukið innflæði og styrking krónunnar gefa svigrúm til þess að auka nokkuð kaup Seðlabankans.

Telur bankinn æskilegt að gjaldeyriskaupin standi undir vaxtagreiðslum vegna erlendra skulda ríkissjóðs og að hlutfall óskuldsetts gjaldeyrisforða hækki til lengri tíma litið,“ segir í tilkynningunni.//////Trúir fólk virkilega að þessi seðlabanki geri eitthvað sem við er í ,ég er alveg hættur að gera slíkt,það er allt niður um þessa vitleysu alla þarna hjá Bankanum ekkert sem kemur okkur til að vilja spara ,vextir neikvæðir alstaðar !!!!eru þetta bara spilapeningar eða hvað/Halli gamli


mbl.is SÍ eykur regluleg gjaldeyriskaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FH vann Fram með minnsta mun/Æi þetta er ekki gott að heyra fyrir okkur Framara!!!

FH vann Fram með minnsta mun Íþróttir | mbl | 30.7.2012 | 21:05 FH-ingar unnu 1:0 sigur á Fram á LaugardaAlmarr Ormarsson og Atli Guðnason eigast við í leiknum í kvöld. lsvelli í kvöld með marki Hólmars Arnar Rúnarssonar tveimur mínútum fyrir leikslok. Allt stefndu í markalaust jafntefli og hefðu það í raun verið sanngjörn úrslit þegar hann skoraði í opið markið af stuttu færi, fylgdi eftir skoti Atla Viðars Björnssonar. Ótrúlega svekkjandi fyrir Fram sem lék vel í leiknum. FH er þá komið á toppinn með 26 stig en KR getur endurheimt efsta sætið síðar í kvöld. Fram er sem fyrr í 10. sætinu með 12 stig.///////Þetta voru vonbygði við áttum allavega skilið að gera jafntefli,en svo er boltinn ekkert á að treysta,en áfram Fram,við vinnum næst/Halli gamli
mbl.is FH vann Fram með minnsta mun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stálu söfnunarbauk úr kirkju///Er hægt að leggjast lægara?????


 Stálu söfnunarbauk úr kirkju Innlent | mbl.is | 30.7.2012 | 21:46 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveg
gja karlmanna sem stálu söfnunarbauk úr Árbæjarkirkju um áttaleytið í kvöld.

Samkoma var í kirkjunni að sögn lögreglu og húsið því opið. Drengir sáu til tveggja ungra manna fara inn í kirkjuna og hverfa á brott með samskotabaukinn, sem var rétt innan við anddyri kirkjunnar.

Lögreglan var fljót á vettvang og leitaði í hverfinu en leitin bar ekki árangur og ganga þjófarnir því enn lausir. Ekki liggur fyrir hversu mikið fé var í bauknum. „Þetta er hálf nöturlegt,“ sagði varðstjóri hjá lögreglunni í samtali við mbl.is.//////Er hægt að leggjast öllu lægra en þetta að stela úr söfunarbauk kirkja nei það er ekki að maður heldur!! en svo er Ísland í dag því miður!!!/Halli gamli

 


mbl.is Stálu söfnunarbauk úr kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hólmfríður Karls Garðabæ til sóma//Það er sómi að fá þessi verðælaun,og gott til eftirbreyttni!!!

Hólmfríður Karls Garðabæ til sóma Smartland Mörtu Maríu | mbl | 28.7.2012 | 23:02 Hólmfríður KarlsdótGarðarbær afhenti viðurkenningar fyrir snyrtilegar og...tir, Ungfrú Heimur 1985 og leikskólakennari, tók við viðurkenningu í vikunni fyrir vel heppnaða íbúðarlóð sína og snyrtilegt umhverfi.

Aðilar í dómnefnd skoðuðu garðinn að Sunnuflöt á síðasta ári. „Þá stóðu framkvæmdir yfir sem lofuðu góðu, því endurtók nefndin heimsókn í garðinn í ár. Endurbæturnar hafa tekist mjög vel á þessum gamla garði í Flatahverfi. Hönnun frá Landslagi ehf. er stílhrein og opnar dvalarsvæðið á baklóð að lækjarsvæðinu og hrauninu.

Mjög snyrtilegt,“ segir í umsögn nefndarinnar. Alls fengu eigendur fjögurra einbýlishúsalóða, eins tvíbýlishúss og íbúar tveggja fjölbýlishúsa viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi. Snyrtilegasta gatan var valin Hjálmakur og þá fékk IKEA viðurkenningu fyrir snyrtilega lóð. Baldvin Þórarinsson, íbúi við Þórsmörk, fékk sérstaka umhverfisviðurkenningu. Viðurkenningarnar voru afhentar á Garðatorgi á fimmtudag.

HÉR má sjá myndir af þeim lóðum sem hlutu viðurkenningar. HÉR má sjá myndir frá afhendingu viðurkenninga á facebook-síðu GarðarbæjarEigendur fjögurra einbýlishúsalóða og eins tvíbýlishúss og íbúar tveggja fjölbýlishúsa fengu í gær afhentar viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2012. Hjálmakur var valin snyrtilegasta gatan í ár og IKEA fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega lóð fyrirtækis. Sérstaka umhverfisviðurkenningu fékk Baldvin Þórarinsson, íbúi við Þórsmörk í Garðabæ. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar afhentu viðurkenningarnar í gær á Garðatorgi.

Einbýlishúsalóðirnar sem fengu viðurkenningu í ár eru: Hraunás 8 Laufás 6 (tvíbýlishús) Stekkjarflöt 8 Sunnuflöt 10 Tjarnarflöt 8 Fjölbýlishúsalóðirnar eru: Arnarás 19 Krókamýri 78 Lýsingarnar hér á eftir eru úr umsögn umhverfisnefndar um lóðirnar. Fleiri myndir af lóðunum og frá afhendingu viðurkenninganna eru á facebook síðu Garðabæjar: http://www.facebook.com/Gardabaer.Iceland//////Það er til eftirbreytni að veita svona verðlaun!!! og er það gott að fólk skuli hafa áhuga á að hafa snyrtilegt og fallegt i kringum sig og hús sín,þetta er ákagflega gott verkefni að gera ekki spurning!!!!/Halli gamli


mbl.is Hólmfríður Karls Garðabæ til sóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríska neyðarlínan 911,sendi skilboð í: Gæsluna okkar frá gerfitungli!!!

Bandaríska neyðarlínan 911 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna skilaboða um gervitungl á sjöunda tímanum í gærkvöldi, frá svonefndum persónuneyðarsendi, sem benti til þess að einhver væri í neyð vestur á Ströndum. Lögregla á Ísafirði kallaði út björgunarsveit, en svo vel vildi til að þyrla frá Landhelgisgæslunni var á eftirlitsflugi þar skammt frá. Hún lenti hjá ferðamanninum og flutti hann á sjúkrahúsið á Ísafirði, þangað sem komið var með hann aðeins hálftíma eftir að neyðarkallið barst. Maðurinn, sem er erlendur og var einn á ferð í Fljótavík, var meiddur á höfði og snúinn á ökla.//////svo er öryggið i dag hefi maður svona sendir í gerfitúngl,og það sannaði sig þarna fljótt og gaman, að það virkar svona vel!!!!!/Halli gamli

Telur hækkun gjalda valda miklum skaða/Skaðræði þessarara Borgastjórnar er orðið mikið!!!!"

Telur hækkuKaupmenn og fasteignaeigendur við Laugaveginn eru óánægðir...
n gjalda valda miklum skaða Innlent | Morgunblaðið | 30.7.2012 | 8:11 Margir kaupmenn og fasteignaeigendur við Laugaveginn í Reykjavík eru mjög óánægðir með hækkun bílastæðagjalda í miðborginni, en hækkunin tekur gildi í dag. Frank Michelsen, úrsmiður og kaupmaður á Laugaveginum, telur að hækkunin eigi eftir að valda kaupmönnum í miðbæ Reykjavíkur miklum skaða. „Stæðunum fer stöðugt fækkandi í miðborg Reykjavíkur. Borgaryfirvöld eru alltaf að gera aðgengið að búðunum erfiðari. Áður fyrr var t.d. mikil umferð fram hjá minni búð á morgnana. Nú er þetta algjörlega horfið,“ segir Frank, en hann telur að þetta megi m.a. rekja til erfiðs aðgangs bíla í miðbæ Reykjavíkur. Frank segir borgaryfirvöld vera full af hroka, en hann telur að með þessum aðgerðum sé verið að vega að eldri borgurum og hreyfihömluðum. „Hvert á fólkið sem á erfitt með gang að fara? Á það bara að fara eitthvert annað?“ segir Frank, en hann telur að viðhorf borgaryfirvalda eigi einnig eftir að bitna á þeim sem búa í úthverfum og á landsbyggðinni.///////Það er eiginlaga mottó þessa sem stjórna Borginni núna að vera á móti fólkinu!!Ljót að þurfa að segja svona,en það er ekki annað hægt mælirin er að verða fullur!!!það sja´þetta flestir að þetta er á móti þeim sem þarna eiga verslanir og vilja versla,samt skal vaðið a súðum/þeim er ekki alsvarnað þessum,sem allt vita betur en aðrir!!!Halli gamli

mbl.is Telur hækkun gjalda valda miklum skaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grindhvalir við Akranes/Þetta nýta Færeyingar sér: því ekki við????

GrindhvalirMikill fjöldi grindhvala var í vöðunni við Innri-Njarðvík á laugardag.
 við Akranes Innlent | mbl.is | 30.7.2012 | 8:56 Stór grindhvalavaða er nú í Leynisvík út af Akranesi og að sögn lögreglunnar á Akranesi er um nokkur hundruð hvali að ræðaTalið er að hvalirnir hafi komið að landi árla dags og haldið sig á svipuðum slóðum um hríð. Hundruð grindhvala voru undir Stapanum neðan við byggðina í Dalshverfi í Innri-Njarðvík á laugardaginn og er á vefsíðu Skessuhorns leitt að því líkum að um sömu hvalina sé að ræða. Þar segir einnig að ekki sé vitað til þess að svo stór grindhvalavaða hafi sést við Akranes í seinni tíð, þótt fáeinir hvalir hafi sést.//////Við eigum bara eins og Færeingar að nýta okkur þetta til manneldis þetta er herramansmatur að mínu áliti,alltaf mikið að Hval otrðið i hafinu og það ber að nýta þetta ekki spurning,það er milljónir i heiminum sem svelta og húngur er ekkert grín!!!!/Halli gamli

mbl.is Grindhvalir við Akranes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hittu enga hákarla á leiðinn/Það ekki von þeir eru ekki þarna!!!

HittTalsverður hamagangur var í öskjunni í byrjun sunds, en um...u enga hákarla á leiðinni Innlent | mbl.is | 29.7.2012 | 18:40 „Sundið gekk ótrúlega vel og var auðveldara en við héldum. Okkur rak ekki mikið af leið og náðum tiltölulega beinni línu í sundinu sem gerði það að verkum að við náðum að klára á góðum tíma,“ segir Benedikt Hjartarson einn félaganna þriggja sem tóku þátt í Alcatraz-sundinu svokallaða.

Sjósundskapparnir fræknu sem lögðu upp í háskaför frá Alcatraz fangelsi að vesturströnd Bandaríkjanna í gær eru komnir í land. Þeir Benedikt Hjartarson, Árni Þór Árnason og Jón Sigurðarson syntu leiðina án allra vandkvæða, enda aðstæður eins og best verður á kosið. Sem betur fer urðu engir hákarlar á vegi félaganna, en auðugt sjávarlíf er á svæðinu og hákarlar þar á meðal. „Sundið gekk ótrúlega vel og var kannski auðveldara en við héldum. Okkur rak ekki mikið af leið þannig að við náðum tiltölulega beinni línu í sundinu sem gerði það að verkum að við náðum að klára á góðum tíma,“ segir Benedikt Hjartarson einn félaganna þriggja sem tóku þátt í sundinu.

„Aðstæður gátu einfaldlega ekki verið betri, bæði var sjórinn góður og veður ákjósanlegt. Þetta var því þægilegt og æðislega gaman,“ segir Benedikt en þeir luku sundinu á um þremur stundarfjórðungum. Sundið getur tekið allt frá 40 mínútum upp í 5 klukkustundir, allt eftir sjávarstraumum, líkamlegu ástandi sundmanna og öðrum aðstæðum. Að hans sögn er sundið vinsælt, en mikill fjöldi sundmanna synti leiðina í ár en Alcatraz sundið er skipulagður viðburður sem haldinn er einu sinni á ári.

„Fólk kemur hingað hvaðanæva að úr heiminum til að synda og það myndast einstaklega skemmtilegur andi, þótt aðstæður séu skrautlegar í startinu þegar menn reyna að taka sér stöðu í sjónum og ryðjast hver fram yfir annan,“ segir Benedikt. Stoltir en afbrýðisamir Að hans sögn var mikil breidd í hópnum sem synti leiðina. „Þarna var fólk af báðum kynjum á öllum aldri, ýmist í blautbúningum eða á sundskýlunni,“ segir Benedikt en þeir félagar syntu á sundskýlu enda vanir því úr sjósundi á Íslandi. Ferðin var farin fyrir tilstilli Jóns Sigurðarsonar sem varð sextugur á árinu og ákvað að fagna áfanganum með þessum frumlega hætti.

Gaman er að segja frá því að hann komst á verðlaunapall í sundinu. „Afmælisbarnið sjálft hlaut medalíu í sínum aldursflokki, við erum rosalega stoltir fyrir hans hönd en drulluabbó líka,“ segir Benedikt og hlær. Þeir félagar koma svo aftur til Íslands á þriðjudagsmorgunn eftir hina vel heppnuðu ferð „Þetta var einstök upplifun. Það gladdi okkur líka að finna fyrir áhuga fólks heima og hvernig það fylgdist með eftir því sem mögulegt var,“ segir Benedikt.//////Þetta er bara gaman og gott aðstanda við sin heit 60 ára!!,og það er mjög svo gott afrek að synda þetta bara ísunskílu og það eru ekki allir sem þetta gera og eru þeir mér að vitandi fyrstu  íslendingarnir sem þetta gera!!!/Halli gamli


mbl.is Hittu enga hákarla á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmaður keppir í mýrarbolta/Sko karlin" hefðu Norðanmenn sagt,og við bara segjum það öll!!

Þingmaður keppir í mýrarbolta Innlent | mbl.is | 30.7.2012 | 7:37 Ásmundur Einar Daðason, þingmaður FramsóÁsmundur Einar Daðasonknarflokksins, verður einn fjölmargra keppenda á mýrarboltamótinu á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Hann er einn forsprakka liðsins Bleiku Dalahrútarnir sem hyggur á stórvirki á mótinu.

Þetta kemur fram á vefsíðunni Búðardalur.is. Þar segir að líklega sé Ásmundur Einar fyrsti þingmaðurinn sem tekur þátt í keppninniStofnað hefur verið hið nýja mýrarboltafélag Dalasýsla Pink Rams eða Bleiku Dalahrútarnir. Félagið hyggst senda sigurlið til Ísafjarðar um verslunarmannahelgina til þess að sækja gullverðlaunin í þessari mjög svo vinsælu keppni sem ætíð er haldin um verslunarmannahelgina á Ísafirði.

Einn af stofnendum þessa nýja félags og fyrirliði þess, Ásmundur Einar Daðason þingmaður tjáði sig um þetta á Facebook síðu sinni í gær. Fram kemur hjá Ásmundi að unnið sé að hönnun búninga á liðsmenn en þema félagsins mun vera hrútar og bleikur litur. Það verður því engin svikinn af því að renna vestur á Ísafjörð um komandi helgi til að fylgjast með Ásmundi Einari og félögum hans í Bleiku Dalahrútunum stanga hvert liðið á fætur öðru ofan í drullusvaðið. Ábyggilegt er að það mun verða veislunni margt í þegar öllum í sveitinni hefur verið boðið í móttökuna þegar Bleiku Dalahrútarnir koma knarrreistir heim í Búðardal með gullið um hálsinn.

Eftir því sem Búðardalur.is kemst næst er Ásmundur Einar fyrsti alþingismaðurinn á Íslandi sem tekur þátt í þessari vinsælu keppni sem hefur notið vaxandi vinsælda allt frá árinu 2005 þegar mótið var fyrst haldið. Helstu reglur mýrarboltanns eru þær að 6 manns eru inni á vellinum í einu en flest lið eru með 9 til 15 manns í liðinu því drullan þreytir menn fljótt og því gott að hafa menn til skiptana. Helstu reglur mýrarboltanns eru þær að leyfilegt er að ýta og stjaka við leikmönnum framan frá eða frá hlið en stranglega bannað er að ýta í menn aftan frá.

Ekki er ótakmarkað hversu harkalega má hrinda mótherjanum og bannað er að sparka í menn og kýla. Það er þó dómaranns að meta það hvar mörkin liggja. Frekari upplýsingar um reglur mýrarboltanns og upplýsingar um mótið má finna á heimasíðunni www.myrarbolti.com////Margur mundi nú segja að þetta væri eiginlega frá Alþingi uppfundið???,eins og talað hefur verið um það?!!! en þetta er komið á koppinn og hefur verið haldið á Ísafirði, við höfum flest sem börn leikið okkar í drullu og skít, en þetta er bara kjörið að hafa þarna bolta einnig og gamanið eykst,og einnig auðvitað að þessi úngi Þingmaður skuli gera þetta,það synir að hann kallar ekki allt ömmmu sýna,eins  og sagt er oft!!/Halli gamli


mbl.is Þingmaður keppir í mýrarbolta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drjúg eru morgunverkin/"Morgun stund gefur gull í mund" segir máltækið!!!

Drjúg eru morgunverkin Íþróttir | Morgunblaðið | 30.7.2012 | 7:30 Morgunverkin í London reyndust íslensku landsliðsmönnunum í handknattleik drjúg í gær þegar liðið vann sinn fyrsta leik á ÓlyHreiðar Levý Guðmundsson, Sverre Jakobsson og Ingimundur... mpíuleikunum. Leikurinn hófst klukkan 8:30 að íslenskum tíma og liðlega einum og hálfum tíma síðar höfðu Argentínumenn verið lagðir að velli 31:25. Þó margur Íslendingurinn sé á fótum á þessum tíma sólarhringsins þá er um mjög óvenjulegan leiktíma að ræða þegar kemur að boltagreinum. Þar sem þjálfarar leggja yfirleitt þá línu að leikmenn séu vaknaðir löngu áður en leikur hefst, þá má gera ráð fyrir því að landsliðsmennirnir hafi tekið daginn ansi snemma. Morgunhani dagsins að þessu sinni var tvímælalaust Guðjón Valur Sigurðsson sem var markahæstur með níu mörk. Guðjón hefur í gegnum tíðina verið þvílík markamaskína að handboltaáhugamenn eru nánast hættir að taka eftir frammistöðu sem þessari hjá honum. Um leið og Guðjón skoraði fyrsta mark Íslands á þessum Ólympíuleikum þá var augljóst að hann var vel vaknaður. Kappinn kreppti hnefann og urraði eitthvað sem nærstaddir hefðu hugsanlega getað greint ef ekki hefði verið fyrir fagnaðarlætin í höllinni.////Þetta gaman að sjá, að okkar menn standa sig þarna!!!enda liðið á góðum degi frábært!! en við bara vonum og biðjum að þetta haldi áfram, getan er fyrir hendi og við bara tökum Túnis næst/En semsagt það er bara gott að taka þátt þarna af okkur íslendingum,þó svo við fáum ekki að komast á pall/Halli gamli
mbl.is Drjúg eru morgunverkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband