Man. Utd leitar yfir Atlantshafið/hann lætur sig ekki hann Ferguson brenivínsnefur!!!!

Man. Utd leitar yfir Atlantshafið Íþróttir | mbl.is | 9.9.2012 | 15:38 Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri ManchesteFerguson er ánægður með Chicharito og fleiri sem sóttir...r United segir að félagið horfi í auknum mæli til Mið- og Suður-Ameríku í leit sinni að ungum og efnilegum leikmönnum.

Hinn átján ára gamli Ángelo Henríquez frá Chile, sem kom til United á dögunum, er sönnun þess. „Við erum farnir að leita meira að leikmönnum á þessu svæði. Við erum núna með útsendara í Mexíkó, tvo í Brasilíu og fjóra til viðbótar í Suður-Ameríku,“ sagði Ferguson við Inside United

. „Suður-Ameríkumenn elska að spila fótbolta. Það er bara í eðli þeirra. Brasilíumennirnir þrír - Anderson, Rafael og Fabio - þeir elska þetta og eru alltaf fyrstir á æfingar á morgnana. Þeir gefa mikið af sér,“ sagði Ferguson. „Antonio Valencia er glerharður og mjög agaður. Chicharito hefur frábært viðhorf gagnvart leiknum og öllu öðru.

Það er mjög gott. Við höfum gert mjög vel í Mið- og Suður-Ameríku síðustu tvö eða þrjú ár,“ sagði Ferguson.////////Ekki er öll sagan sögð með þessa ágætu drengi sem hann vill fá,fyrirgefið að ég uppnefni karlinn Ferguson ,ekki ílla meint,en karlinn er með svona fréttum er hann að fara fram á það við stjórn sina aað fápening til að kaupa Ronaldó og það verður sko peningur,Drengurinn er orðin óánægður hjá Madrid og vill víst fara,en við fylgjumst með af ákafa,Karlinn Ferguson Skotinn hin besti þjálfari sem við eigum í dag fær oft sínu fram???/Halli gamli


mbl.is Man. Utd leitar yfir Atlantshafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Von á mikilli úrkomu norðantil/Við skulum ekki skella við skollaeyrum!!

Von á mVon er á stormi um land allt.ikilli úrkomu norðantil Innlent | mbl.is | 9.9.2012 | 15:22 Veðurstofa Íslands varar við stormi, yfir 20 m/s, fyrst norðvestantil í dag en um allt land seint í kvöld og á morgun.

Á sunnanverðu landinu, frá Kjalarnesi austur að Austfjörðum, má gera ráð fyrir mjög hvössum vindhviðum við fjöll, allt að 40 m/s, og gæti skyggni spillst víða á fjallvegum á Norðurlandi. „Þetta er byrjað á norðvesturhluta landsins, þar er orðið ansi hvasst, en svo færist þetta suður þegar líður á kvöldið og verður orðið ansi slæmt á miðnætti,“ segir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við mbl.is og bætir við að lítil breyting verði í veðri á morgun.

Í nótt mun veður versna talsvert á austanverðu landinu og er gert ráð fyrir mjög slæmu veðri þar á morgun. Veðurstofan varar sérstaklega við vindhviðum sunnan Vatnajökuls, á Suðurlandi og Kjalarnesi. „Þetta lagast í raun ekkert fyrr en á þriðjudaginn.

Vestantil dregur mikið úr þessu aðra nótt en á austanverðu landinu mun þetta í raun halda áfram þar til seinnipart þriðjudags,“ segir veðurfræðingur. Mun snjóa á fjallvegum Veðrinu mun fylgja mikil úrkoma norðantil en gert er ráð fyrir vaxandi norðaustanátt í dag, fyrst um landið norðvestanvert. Norðan 15-23 m/s síðdegis norðvestantil og slydda eða snjókoma á fjallvegum en rigning á láglendi.

Veðurfræðingur Veðurstofu Íslands segist búast við erfiðri færð um tíma á fjallvegum á Norðurlandi, allt frá Holtavörðuheiði og austur á firði. Vert er að benda ökumönnum sérstaklega á að búast má við snjókomu á Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði strax í kvöld en í nótt og á morgun gæti einnig byrjað að snjóa í Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði.

Þá er leiðin frá Lokinhamradal að Stapadal í Arnarfirði nú ófær í fjörunni við Skútabjörg. Fólk hugi að lausum munum Einnig er vert að brýna fyrir fólki að huga vel að lausum munum, sólhúsgögnum, trampólínum, útigrillum og öðru slíku svo koma megi í veg fyrir óþarfa tjón. Á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir 13-20 m/s seint í kvöld og norðan 10-18 m/s í fyrramálið.////////Við reyndir veðurmenn gerum ekki grín af svona aðvörunum,als ekki.þó stundum haf þær brugðist er það bara vinningur en fólk skal alltaf taka mark,það sakar engan!!!Eins og ég sagði í grein í gær ,maður tryggir ekki eftirá!!!! en við skulum bara með það sem þarf að gera bíða um stund ,og láta veðrið sjatna ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Von á mikilli úrkomu norðantil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varað við vonskuveðri/Vonadi að fólk fari eftir þessari aðvörun:Kári lætur ekki að sér hæða!!!!

Varað við vonskuveðri Innlent | mbl.is | 8.9.2012 | 20:29 Búast má við vonskuveðri með rigningu, en slyddu eðMjög slæmt veðurútlit er fyrir morgundaginn en búast má við...a snjókomu til fjalla, einkum norðvestantil á landinu á morgun og um allt land seint annað kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Samkvæmt veðurspánni þykknar upp suðaustanlands og bætir heldur í vind í kvöld. Hvessir í nótt og á morgun með rigningu, fyrst NV-til. Norðan og norðaustan 15-23 NV-til síðdegis og um allt land seint annað kvöld.

Víða rigning en snjókoma til fjalla en úrkomuminna suðvestantil. Hiti 2 til 12 stig að deginum, hlýjast syðst./////////Við verðum að trúað þessu ekki spurning,maður tryggir ekki eftirá,segja Tryggingafélögin!! og það getur orðið meira en 26 m/s í hviðum !!!!!og það ekki neitt logn krakkar og menn!!!!!!!/Halli gamli


mbl.is Varað við vonskuveðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kveður þingið í vor//////Mikil eftirsjá af þessari frábæru konu!!!!

Kveður þingið í vor Innlent | Morgunblaðið | 8.9.2012 | 5:30 Ólöf Nordal verður í forystu Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í vetur, en gefur ekki kost á sér sem varaformaður á næsta landsfundi og hættir á þingi í vor. Hún hyggst flytja til Sviss eftir að kjörtímabilinu lýkur, en Tómas Már Sigurðsson, eiginmaður hennar, tók nýlega við sem forstjóri Alcoa í Evrópu og eru höfuðstöðvarnar í Genf. „Ég vanda mig við að klára verkið hér heima og svo er ég viss um að lífið kemur manni alltaf á óvart,“ segir hún í viðtali í Sunnudagsmogganum. Hún ætlar ekki að hætta afskiptum af stjórnmálum og útilokar ekki endurkomu síðar. „Maður á aldrei að loka neinum dyrum.“ Ólöf segir þingið standa frammi fyrir erfiðum ákvörðunum í vetur. Þótt jákvæð teikn séu á sjóndeildarhringnum, þá sé atvinnuvegafjárfesting óviðunandi og hún sé nauðsynleg ef viðhalda eigi hagvexti til lengri tíma. „Það er ekki um annað að ræða en að skapa atvinnu og lækka álögur á fólk. Það hljómar einfalt, Ólöf Nordal á Alþingi.

en þetta er veruleikinn sem blasir við.“/////////Það er eins hún segir blessuð,að það er fjölskidulífið sem gyldir!!og við virðum það auðvitað,en bara óskum henni als hið besta og hennar fólki!!en vo um að hún komi aftur í okkar baráttusveit sem fyrst!!nú vantar okkur varaformann sem verður kosinn á næsta landsfundi,og helt konu auðvitað!!!//Halli gamli


mbl.is Kveður þingið í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margmenni á 25 ára afmælishátíð/Hugsa sér að 25 ár síðan Kringlan var oppnuð!!!!

Margmenni á 25 ára afmælishátíð Innlent | mbl.is | 8.9.2012 | 16:09 „Þetta gengur framar björtustu vonuÝmsir fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir eru í boði í Kringlunni. m, stútfullt hús og mikil stemning í gangi,“ segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, en verslunarmiðstöðin fagnar nú um helgina 25 ára afmæli sínu.

Í tilefni þess er m.a. boðið upp á skemmtidagskrá, viðburði af ýmsum toga og freistandi tilboð í verslunum. Sigurjón Örn segir sannkallaða afmælishátíð vera ríkjandi í Kringlunni enda margt um að vera. Nefnir hann í því samhengi að boðið sé upp á andlitsmálun, fjölbreytta viðburði og kræsingar af ýmsum toga svo fátt eitt sé nefnt. „Það er mikið af góðum tilboðum í gangi, veitingar og skemmtanir svo það er margt í boði fyrir fólk og fjölskyldur,“ segir Sigurjón Örn.

Kringlan var opnuð hinn 13. ágúst árið 1987 en á þeim tíma voru 64 verslanir með starfsemi í húsinu. Óhætt er að segja að verslunarmiðstöðin hafi vaxið talsvert á liðnum árum því í dag er þar að finna 128 verslanir og veitingastaði.

Í verslunum Kringlunnar má nú víða finna góð tilboð og segir Sigurjón Örn kaupmenn hafa verið hvatta til að gefa 25% afslátt af vörum sínum. „Við hvöttum til þess að kaupmenn myndu leika sér með þessa tölu. Sumir gerðu það með þeim hætti að setja 25% afslátt á allar vörur, einhverjir eru með 20% af öllu og aðrir með 25 vörur á 25% afslætti þannig að menn eru svolítið að leika sér með þetta

.“ Frítt í bíó - 25 ára gamlar myndir Vert er að benda áhugamönnum um kvikmyndir sérstaklega á að kvikmyndahúsið í Kringlunni tekur einnig fullan þátt í afmælishátíðinni og verða fjölmargar myndir sýndar án endurgjalds. „Bíóið er síðan með fríar sýningar fram eftir kvöldi og hluti af myndunum eru kvikmyndir frá árinu 1987 en svo er líka verið að sýna einhverjar nýjar myndir,“

segir Sigurjón Örn og bendir á að verslanir verði opnar til klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. „Það er opið til eitt, eða eins og við segjum, til 25,“ segir Sigurjón Örn og bætir við að kaupmenn séu almennt sáttir við opnunartímann enda mikil samstaða sögð ríkjandi á meðal kaupmanna. Á von á um 40 þúsund manns „Aðalstyrkleiki okkar í gegnum tíðina er góð samstaða.

Svo eru kaupmenn líka ánægðir ef margt fólk er í húsinu,“ segir Sigurjón Örn en hann segist jafnframt eiga von á því að um 35 - 40 þúsund gestir heimsæki Kringluna í dag. „Og það er eitthvað sem jafnast á við 21. til 23. desember.“ Til gamans má geta að fjöldi heimsókna í Kringluna frá opnun hennar árið 1987 telur nú um 123.778.353. Það lætur því nærri að hver einasti núlifandi Íslendingur hafi komið í verslunarmiðstöðina 388 sinnum frá opnun.////////Til hamingju með það KRINGLA!! og við sem þarna fórum mikið ,fyrstu árin vorum kát að fá svona stóran verslunarstað ,sem við kölluðum sem höfðu verið mikið henni Ameríku,Moll og þetta var bylting á vetrum að vera þarna og nóg bílastæði og engin vandræði,en svo er Smáralind einnig komin !! en samt er Kringlan vinsæl meðal okkar ekki spurning/Halli gamli 


mbl.is Margmenni á 25 ára afmælishátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipulag í Vatnsmýri áfram í deiglunni/Það er ekki hægt að gera þetta án þessa að við kjósum um þetta!!!!

Skipulag í Vatnsmýri áfram í deiglunni Innlent | Morgunblaðið | 8.9.2012 | 16:30 Ekki stendur annað til en að tímaMynd 558250setningar um lokun norður/suðurbrautar á Reykjavíkurflugvelli árið 2016 standi, að sögn Hjálmars Sveinssonar, varaformanns skipulagsráðs borgarinnar.

Nú er á lokastigi endurskoðun á aðalskipulagi borgarinnar og stefnt er að því að það fái staðfestingu á útmánuðum. Hinsvegar segir í lögum að umhverfisráðherra skuli samþykkja aðalskipulag sveitarfélaga.

„Ég á ekki von á öðru en að tímasetningar verði þær sömu og eru í núverandi skipulagi og norður/suðurbrautinni verði lokað 2016,“ segir Hjálmar.

Í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar segir að mögulegt verði að reka austur/vesturbrautina til loka skipulagstímabilsins en hinsvegar verði að koma í ljós hversu fýsilegt verði að reka flugstarfsemi í Vatnsmýri á slíkum forsendum

. „Ég minni á að flugvélar sem lenda í Reykjavík eru að lenda við erfiðar aðstæður t.d. á Ísafirði og Grænlandi. Því gætu þær eins lent áfram á austur/vesturbrautinni þar sem aðstæður eru mun betri en á áðurnefndum stöðum,“ segir Hjálmar og bætir við að þróunin sé sú að innanlandsflug fari sífellt minnkandi. Hann reiknar ekki með að til greina komi að fresta lokun árið 2016 þangað til framtíðarlausn finnist.

„Ég tel að það muni einmitt setja þrýsting á að lausn finnist á innanlandsfluginu, hvort sem það yrði í Keflavík eða í nágrenni Reykjavíkur og núverandi endurskoðun á aðalskipulagi útilokar ekki möguleika á nýjum flugvelli í næsta nágrenni Reykjavíkur,“ segir Hjálmar og bætir við að hann líti svo á að framtíð Reykjavíkurflugvallar sé í höndum borgarinnar.

Reikna ekki með að brautinni verði lokað 2016 „Í sameiginlegri skýrslu borgarinnar og samgönguráðuneytisins frá 2007 kemur fram að til að ná fram ásættanlegu nýtingarhlutfalli þyrftu að lágmarki að vera tvær flugbrautir.

Með einni flugbraut yrði nýting vallarins allt of lítil til þess að hægt væri að standa í áætlanaflugi þaðan,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, og hann segir að ekki sé litið til 2016 innan flugfélagsins sem ársins sem norður/suðurbrautinni verði lokað. „Við vitum að aðalskipulag borgarinnar þarf samþykki ráðherra.

Það er alveg ljóst að flugvöllurinn verður ekki lagður niður í áföngum, annað hvort verður þarna flugvöllur með ásættanlegri nýtingu eða staðsetning hans þarf að vera annars staðar.“ Varðandi aðra valkosti segir Árni þá vart fýsilega. „Isavia vann veðurathuganir fyrir ráðuneytið á Hólmsheiði. Samkvæmt mínum upplýsingum benda niðurstöður til þess að flugvöllur þar sé ekki góður kostur. Hann sé of nálægt fjöllum og aðflug og annað verði ekki með ásættanlegum hætti .

“ Þá segir hann að áður hafi komið fram að með flutningi innanlandsflugs til Keflavíkur myndi farþegum fækka mikið. Þar af leiðandi sjái hann ekki að innanlandsflug sem almenningssamgöngur út frá Keflavík gæti verið í þeirri mynd sem það er í dag.

„Við höfum frekar horft til þess að í fyrsta lagi væri verið að hrófla við þessum tveimur grunnflugbrautum árið 2024 ef að líkum lætur. Auðvitað höfum við horft til þess að eindreginn vilji ráðherra er að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri og það sé skynsamlegasti kosturinn til að halda uppi almenningssamgöngukerfi,“ segir Árni.////////Það var talaðað um "Göbels "um daginn í einu tilviki!!!einnig að dropin holar steininn: og segðirðu sömu söguna nógu oft fer fólk og jafnvel það sjálft að trúa henni,svo er um þetta skipulag þarna í Vatnsmýri og í kring,það er alveg ferlegt að segja og fullyrða svona eins og þesssi varaformaður skipulagsráðs Borgarinnar segir Hjalmar Sveinsson Samf.eða (Kommi)  leifir sér að fullyrð,þetta er allt i lausu lofti og ekkert fast í hendi mikil meirihluti landsmanna vill fugvöllin þarna áfram,ekki spurning!!!og svo er þetta allt sem Hjálmar segir ekki bara flokkast sem áróður og ekkert annað,það er als ekkert ákveðið Lýgin er þeirra ekki spurning!!!!


mbl.is Skipulag í Vatnsmýri áfram í deiglunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harma endurtekin brot ráðherra/Það gerum við öll!!!

Harma endurtekin brot ráðherra Innlent | mbl.is | 8.9.2012 | 11:24 „Að sumir ráðherrar megi stundum brjóta lög grefur undan lýðræði í landinu og réttaröryggi og elur á almennu vantrausti í garð stjórnvalda.“ Svo segir í ályktun stjórnar Kvenréttindafélags Íslands.

Félagið harmar endurtekin brot ráðherra á jafnréttislögum og furðar sig á aðgerðarleysi stjórnvalda. „Að sumir ráðherrar megi stundum brjóta lög grefur undan lýðræði í landinu og réttaröryggi og elur á almennu vantrausti í garð stjórnvalda. Þá er hætt við að jafnrétti kynjanna færist sem málaflokkur áratugi aftur í tímann, sé framkvæmd jafnréttislaga aðeins orðin tóm,“ segir í ályktun stjórnar Kvenréttindafélags Íslands.

Stjórn Kvenréttindafélagsins telur jafnframt að brot sem þessi séu mun umfangsmeiri innan stjórnsýslunnar en þau tilvik gefa til kynna sem komist hafa í hámæli undanfarið með úrskurðum Kærunefndar jafnréttismála. Þó að þar halli enn verulega á hlut kvenna virðist sem stofnanir geti óátalið ráðið karlmenn í meirihlutann af lausum áhrifa- og stjórnunarstöðum, eins og finna megi dæmi um hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands.

„Slíkt ráðningarmynstur ætti að gefa Embætti umboðsmanns Alþingis fullt tilefni til frumkvæðisathugunar, ekki síst með hliðsjón af því að staða vinnumarkaðarins kann að hafa letjandi áhrif á konur sem myndu ella leita réttar síns,“ segir stjórn Kvenréttindafélagins. Þá er að mati stjórnarinnar full ástæða til að gjalda varhug við því sem hún segir virðast vera þverrandi virðing stjórnmálaafla fyrir lögum landsins.

Bent er á að með brotthvarfi Ragnheiðar Elínar Árnadóttur er stjórn þingflokks Sjálfstæðisflokksins einvörðungu skipuð körlum. „Með hliðsjón af því að óðum styttist í alþingiskosningar hvetur stjórn Kvenréttindafélags Íslands kjósendur til að íhuga hve mikla virðingu þeir stjórnmálaflokkar beri almennt fyrir lögum landsins sem virða meginmarkmið jaafnréttislöggjafarinnar jafnlítils og raun ber ítrekað vitni.“///////Eg er smmála þeim þarna blessuðum !!!og vel það,við viljum ekki svona vinnubrögð öll að ég held!! það er alltaf verið að tala og tala um að betrumbæta en ekki gert er ekki komin tími á það//Halli gamli


mbl.is Harma endurtekin brot ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggvi Þór vill vera áfram á þingi//Það bara gott,en ég lýsi eftir fosrustinni að taka á málum vega óhæfar Ríksstjórnar,og hvað við gerum í staðin!!!

Tryggvi Þór vill vera áfram á þingi Innlent | mbl.is | 8.9.2012 | 11:05 Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður ætlar líklega að sækjast eftir endurkjöri fyrir Sjálfstæðisflokknum í Norðausturkjördæmi, en hann hefur setið á Alþingi eitt kjörtímabil.

Norðlenska blaðið Vikudagur hefur eftir Tryggva Þór að mörg mál bíði úrlausnar á næstu fjórum árum. „Kjördæmisráð tekur ákvörðun um hvernig raðað verður á framboðslistann og ég reikna með að ráðið taki ákvörðun um tilhögun í október.

Eins og staðan er núna eru meiri líkur en minni á að ég sækist eftir endurkjöri,“ segir Tryggvi Þór í samtali við Vikudag. „Ég nefni í fyrsta lagi efnahagsmálin.

Hvað varðar mitt kjördæmi, þá er brýnt að ráðast í vegaframkvæmdir, sem setið hafa á hakanum allt of lengi. Atvinnumálin verða áfram ofarlega á baugi og stjórnun fiskveiða.

Allt eru þetta stór mál. Ég vil mjög gjarnan leggja mitt af mörkum, en eins og ég segi er ekki hægt að tilkynna framboð fyrr en línur skýrast.” Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo þingmenn í NA-kjördæmi. Þeir eru Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson.////////Það verða nátturlega prófkjör alstaðar ekki spurnin!!! annað er ekki tekið í mál,þetta rugl sem kom frá valahallarformanni, er ekki á hlustandi 3 leiðir tóm vitleysa!! en prófkjöt og nógir sem bjóða sig fram og fólkið fær að ráða .það er .að sem þarf ekki spurning,Eg segi aftur og aftur að maður saknar þessa að heyra ekki meira í forustu okkar um þau mál sem eru efst á baugi okkar!það eru akki nema 40 dagar i prófkjör,en Tryggvi hefur staðið sig mæta vel bara,og vonandi vill fólk hann,mikið lærður maður og traustur/Halli gamli


mbl.is Tryggvi Þór vill vera áfram á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvatt á viðeigandi hátt/Þetta afrek til að tala Íslansmet á Olipíuleikum!!

Kvatt á vHelgi Sveinsson mundar spjótið á Ólympíuleikvanginum í...iðeigandi hátt Íþróttir | Morgunblaðið | 8.9.2012 | 9:17 Eftir að hafa þurft að bíða í viku með að bæta upp fyrir vonbrigðin í langstökkinu sýndi Helgi Sveinsson úr hverju hann er gerður í gær þegar hann bætti Íslandsmet sitt í spjótkasti um rúman metra á Ólympíuleikvanginum í London, á lokakeppnisdegi íslenska hópsins á Ólympíumóti fatlaðra.

Helgi, sem keppir fyrir Ármann í flokki T42, kastaði lengst 47,61 metra strax í 2. umferð og kom sér í silfurverðlaunasæti. Það áttu hins vegar fleiri eftir að bæta sig.

Þannig fór á endanum að átta af ellefu keppendum bættu sinn persónulega árangur í sólinni í London, og heimsmetið sjálft sem staðið hafði í tólf ár féll í síðustu umferð þegar Kínverjinn Fu Yanlong kastaði óvænt 52,79 metra. Íraninn Kamran Shokrisalari, sá eini af keppendunum sem hafði kastað yfir 50 metra, varð í 2. sæti með 52,06 metra kast. Norðmaðurinn Runar Steinstad, sem „stal“ gullinu af Helga í lokaumferðinni á EM fyrr í sumar, varð í 3. sæti eftir að hafa þríbætt norska metið og kastað 48,90 metra.

Helgi hefði því þurft að kasta 1,30 metra lengra til að komast í verðlaunasæti en getur ekki verið annað en glaður með árangurinn á sínu fyrsta Ólympíumóti./////////Þetta blessað fólk okkar þarna, er búiða að gera það gott!! og á gull og svo þetta i 5 sæti i spjótkasti er mjög gott ,og munaði litlu að hana kæmist í verðlaunasæti,þetta er frá bær árangur og okkur öllum hinum til fyrirmyndar,Til hamingju öll þarna blsssuð/Halli gamli


mbl.is Kvatt á viðeigandi hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

44 tonn fóru næstum fram af brúnni/Þetta er slæmt mjög,en samt engin maður meiddist!!!

44 toLitlu munaði að vörubíllinn færi fram af brúnni yfir...nn fóru næstum fram af brúnni Innlent | mbl.is | 8.9.2012 | 10:32 „Hann skautar á handriðinu hálfur út af brúnni, en skrönglast út af og liggur þar á hliðinni. Það munið mjög litlu að hann færi út af brúnni," segir Pálmar Þorgeirsson, vöruflutningabílstjóri í Hreppunum.

Hluti burðarvirkis nýs íþróttahús sem byggja á á Höfn skemmdist þegar vörubíll valt í morgun. „Hann skautar á handriðinu hálfur út af brúnni, en skrönglast út af og liggur þar á hliðinni. Það munið mjög litlu að hann færi út af brúnni," segir Pálmar Þorgeirsson, vöruflutningabílstjóri í Hreppunum. Hluti burðarvirkis nýs íþróttahús sem byggja á á Höfn skemmdist þegar vörubíll valt í morgun. Dágóður skellur en bílstjórinn ómeiddur

Slysið átti sér stað við þjóðvegabrúna á leiðinni frá Flúðum um hálfsex leytið í morgun og var veginum lokað um stund. Vegagerðin er nú búin að hreinsa veginn þannig að opið er fyrir umferð að nýju en að öllum líkindum mun þurfa að loka veginum aftur um tíma þegar bíllinn og farmurinn verður hífður upp, en beðið er kranabíls.

Að sögn Pálmars, sem sér um flutningana, voru þetta samtals 44 tonn sem fóru á hliðina og hefur skellurinn því verið dágóður. Ljóst er að illa hefði getað farið, ekki síst ef bíllinn hefði endað í ánni, en bílstjórinn er að sögn Pálmars ómeiddur.

Óvíst hvort framkvæmdir á Höfn tefjist Vöruflutningabíllinn var sá fremri í samfloti tveggja bíla sem lögðu upp frá Flúðum snemma í morgun til að flytja hluta burðarvirkis húss sem reisa á yfir gervigrasvöll á Höfn í Hornafirði.

Líkt og fram kemur í Morgunblaðinu í dag er húsið gjöf frá útgerðarfyrirtækinu Skinney-Þinganesi, en það verður í kringum 4.000 fermetrar að stærð og því talsvert magn sem flytja þarf á staðinn. Burðarvirkið er framleitt í Límtré á flúðum og var áætlað að flutningabílarnir þyrftu að fara alls 13 ferðir til að koma því öllu á áfangastað. Að sögn Pálmars er þegar búið að fara 9 ferðir sem gengu vel. „Síðan átti að fara þessar tvær ferðir

í dag og svo síðustu tvær eftir viku eða hálfan mánuð.“ Pálmar segir ljóst að farmurinn sé talsvert tjónaður, en farið verði með hann aftur í verksmiðju Límtrés á Flúðum og gert við hann. Hann segir óvíst hvort framkvæmdir við húsið á Höfn muni tefjast vegna þessa//////Æi þetta þetta er slysalegt mjög og aðgát skal höfð og svo framvegis!! en "kapp er best með forsjá "eins og máltækið segir og það á við oft en ekki síst þarna en gott að ekkert slys var a´mönnum/Halli gamli


mbl.is 44 tonn fóru næstum fram af brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2012
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband