Vangaveltur ósmekklegar á þessari stundu Innlent | mbl.is | 27.9.2012 | 20:04 Össur Skarphéðinsson segir að Jóhönnu Sigurðardóttur verði minnst sem forsætisráðherrans sem leiddi Ísland út úr kreppunni.
Honum finnst ósmekklegt að vera með vangaveltur um næsta formann á þessum degi, en sjálfur gefur hann ekki kost á sér í þá stöðu enda sé sá tími í lífi hans liðinn.
Össur segir að það hafi þurft sérstakan stjórnmálamann til að leiða ríkisstjórn árið 2009. Stjórnmálamann með óflekkað pólitískt mannorð sem enginn setti spurningu við.
Hann segist þess fullviss að Jóhanna muni í kjölfar síns feril hljóta mjög burðugan sess í Íslandssögunni. Ekki bara vegna þess að hún verður forsætisráðherra fyrst kvenna, og ekki heldur bara vegna þess að allt bendir til þess að hún verði í forystu fyrstu vinstri stjórnarinnar sem situr heilt kjörtímabil.
Ég held að hennar verði fyrst og fremst minnst fyrir það að hún var forsætisráðherra ríkisstjórnar sem leiddi Ísland út úr kreppunni. Össur og Jóhanna á Alþingi. mbl.is/Ómar Óskarsson Efnahagslegt kraftaverk á Íslandi Sjálfur er Össur nú staddur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York.
Það fyrsta sem er á vörum sérhvers utanríkisráðherra sem ég hitti, og ég á fundi með þeim mörgum þessa dagana, eru spurningar um það sem þeir kalla efnahagslegt kraftaverk á Íslandi. Þannig að hvað sem líður slagsmálum dagsins og angist andstæðinganna, sem oft brýst út með sérkennilegum hætti gagnvart henni, þá geta þeir aldrei frá henni tekið að það var undir hennar forystu sem Ísland náði sér á strik. Það er hennar stóra afrek, segir Össur.
Hvað varðar komandi formannsslag í Samfylkingunni segist Össur ekki geta sagt til um hvort hann verði harður, en þar verði margir eflaust til kallaðir. Sjálfur stendur hann við fyrri orð sín um að bjóða sig ekki fram. Kominn sé tími á kynslóðaskipti í flokknum.
Ég hef margoft sagt að sá kafli í lífi mínu er búinn. Ég var stoltur af því á sínum tíma að leiða Samfylkinguna í 32% bæði í sveitastjórnarkosningum og þingkosningum, en það endurtekur enginn söguna. Það væri stílbrot og ég hef hvorki áhuga né vilja til þess
. Og Össur vill ekki svara því hvern hann sjái sjálfur fyrir sér sem næsta formann Samfylkingarinnar.
Mér finnst það ósmekklegt á þessum degi, þegar Jóhanna kynnir ákvörðun sína, að menn séu með vangaveltur um það hvort heldur er fyrir sína hönd eða einhverra annarra.///////////Þessi mesti kjaftaskur þjóðarinnar,verður ekki orðlaus,venju fremur!!!!Kann sýna iðju fagurgalann,og gera þetta að harmsögu þjóðarinnarr!!!Tek það fram að ég er ekki sjálfur að skíta í Jóhönnu við þessar aðstæður,meira en ég hefi yfirleit gert,jú svolitið stundum!!!en í dyrlingatölu eins og Össsur gasprari telur hana vera,tek ég ekki undir,og maður kemur í mans stað,þvi ekkert ljótt að tala um eftirmann í öðrum stærðsta flokk landsins,eða var það allavega!!en Össur er litfengur að kom fyrir sig orði,ekki af honum skafið!!!!!/Halli gamli
e
![]() |
Vangaveltur ósmekklegar á þessari stundu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2012 | 17:08
Vill sömu yfirlýsingu frá Steingrími/Styð hana mjög þarna blessaða!!!!
Vill sömu yfirlýsingu frá Steingrími Innlent | mbl.is | 27.9.2012 | 16:18 Ég bíð eftir að Steingrímur J. sendi VG félögum sambærilegt bréf! Þörf er á kynslóðaskiptum í íslenskri pólitík, segir Lilja Mósesdóttir, alþingismaður og fyrrverandi þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, í tilefni af tilkynningu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í dag um að hún ætli ekki að gefa kost á sér áfram sem formaður Samfylkingarinnar og hætta í stjórnmálum í þingkosningunum sem fram fara næsta vor.
Lilja segir nóg að nefna Icesave-málið og skuldavanda heimilanna en bæði Jóhanna og Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, hafi brugðist þjóðinni í þeim málum.
Verra er að þau komust upp með að refsa og einangra þá sem vildu gæta hagsmuna almennings í Icesave-málinu og koma í veg fyrir að skuldsett heimili í vanda neyddust til að taka rándýr yfirdráttarlán til að ná endum saman, segir hún á Facebook-síðu sinni.//////Alveg hár rétta hjá Lilju!!!! þetta nauðsinnlegt að Steingrímur hætti !!!!!einnig á metið karlin og verður að hafa sinn vitjunartíma!!! ef einhvert vit á að vera í hlutunum/Halli gamli
![]() |
Vill sömu yfirlýsingu frá Steingrími |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2012 | 16:58
Engar uppsagnir í kortunum//óþarfi að mála skrattan á veggin!!!!!!!
Engar uppsagnir í kortunum Viðskipti | mbl | 27.9.2012 | 15:48 Rio Tinto Alcan í Straumsvík tilkynnti um uppsögn 13 starfsmanna í gær í kjölfar erfiðs rekstrar á árinu. Bæði Alcoa og Norðurál segja að ekki sé gert fyrir uppsögnum hjá þeim. en fyrirtækið hefur tapað um 500 milljónum það sem af er ári.!
Sagði Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan, að óvissa væri á mörkuðum og að spara þyrfti í rekstri. Önnur álfyrirtæki virðast ekki ætla að fara sömu leið, en Ágúst Hafberg, upplýsingafulltrúi Norðuráls, sagði í samtali við mbl.is að ekki væri að vænta uppsagna hjá fyrirtækinu. Framleiðslan gengur vel
. Við finnum fyrir verðlækkunum en engar mannabreytingar eru í kortunum hjá okkur. Erna Indriðadóttir hjá Alcoa tók í svipaðan streng og sagði að engin áform væru uppi um uppsagnir.
Engu að síður var rúmlega 250 milljón króna tap af rekstri fyrirtækisins á öðrum ársfjórðungi, eins og sjá má á heimasíðu Alcoa, og því ljóst að sveiflukennt álverð hefur að einhverju leyti komið niður á fyrirtækinu.
Frá því í mars hefur leitni álverðs verið niður á við, ef frá er talin mikil hækkun núna í september þegar verðið fór upp um tæplega 17%. Þá léku tilkynningar frá kínverskum stjórnvöldum um að setja aukna fjármuni í uppbyggingu innviða samfélagsins og frá seðlabanka Bandaríkjanna um uppkaup á fasteignaverðbréfum til að koma hagkerfinu í gang stórt hlutverk.
Sú hækkun hefur aftur á móti gengið núna aðeins til baka síðustu daga og samkvæmt spám erlendra markaðsaðila er gert ráð fyrir að verð fari niður í um 2000 til 2100 Bandaríkjadollara á tonnið fram næsta ár. Sigurður Ottó Þorvarðarson, sérfræðingur hjá IFS greiningu, segir að svona sveiflur séu algengar á hrávörumarkaði og sérstaklega með álverð. Það skýrist af því að álnotkun sé oft tengd við neysluvörur og eftirspurn þeirra geti sveiflast auðveldlega í takt við væntingar og aðrar skammtímasveiflur á markaði.
Því sé sú 15% hækkun sem varð um daginn ekkert óeðlileg, en hann gerir jafnframt ráð fyrir því að verð fari örlítið lækkandi á næstunni en haldist svo yfir 2000 dollurum á tonnið í nokkurn tíma. Segir hann að álbirgðir hafi aukist nokkuð síðustu mánuði, en að slegið hafi verið á mikið umframframboð með niðurskurði og samdrætti í framleiðslu.
Þar á meðal ætli stærsti álframleiðandi í heimi, Rusal, að skera framleiðsluna niður um 150 þúsund tonn á þessu ári og samtals um 275 þúsund tonn fram til ársins 2018. Miðað við þessar spár ætti því álverð að haldast nokkuð stöðugt út næsta ár.
//////////Allt hrávöruverð hefur verið upp og niður undanfarið,og Álið þar mað en er núna bar að jafna sig,sem betur fer!!en það er sumra að ala á þessu og segja þetta glæp að hafa Álver og finna þvi öllu til foráttu,við erum með þau mengunarmynstu i heiminum og sennilega ÞAU BESTU!!! svo maður sér ekki of sjónir að byggja þetta í Helguvík og klára það ,Jafnvel annað fyrir norðaustan,ef ekkifæst eitthvað annað betra!!!Við verum að framkvæma og virkja og selja rafmaginð og svo einnig heita vatnið virkja það,þessir umhversinnar finna þessu öllu til foráttu enda ekki viðbjargandi í þessu þvi að við öll erum þannig að vilja vernda umkvefið og fá að keyra um það en aki bara labba það geta ekki allir/Halli gamli
![]() |
Engar uppsagnir í kortunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2012 | 16:43
Skýrslu skilað fyrir októberlok//Það er auðvitað að þessu verður að koma í gott horf!!!!
Skýrslu skilað fyrir októberlok Innlent | mbl.is | 27.9.2012 | 15:08 Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur sent ríkisendurskoðanda, Sveini Arasyni, bréf þar sem farið er fram á að stofnunin skili fullbúinni skýrslu um kaup ríkisins á fjárhags- og mannauðskerfi (Oracle) á árinu 2001, innleiðingu þess og rekstur síðan þá.
Telur Ásta Ragnheiður að dráttur á gerð skýrslunnar sé mjög aðfinnsluverður. Slíkt megi aldrei endurtaka sig.
Segir í bréfinu að fram hafi komið að skýrslu, sem Ríkisendurskoðun var falið að gera í apríl 2004 á fjárhagslegum og faglegum undirbúningi og framkvæmd hins nýja kerfis, hefur ekki enn verið skilað. Bréf forseta Alþingis til ríkisendurskoðanda: Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.
Ég vísa til samtals okkar í gær, miðvikudaginn 26. sept., um skil Ríkisendurskoðunar á skýrslu sem Alþingi óskaði eftir með bréfi 6. apríl 2004. Skýrslunni var ætlað að vera úttekt á því hvernig staðið var að undirbúningi og framkvæmd við að koma á nýju hugbúnaðarkerfi (ORACLE) hjá ríkinu, bæði fjárhagslega og faglega.
Ég tel að dráttur á gerð skýrslunnar sé mjög aðfinnsluverður. Slíkt má aldrei endurtaka sig. Lagaheimild til þess að óska skýrslna Ríkisendurskoðunar er einn mikilvægasti þátturinn í eftirlitshlutverki Alþingis.
Með bréfi þessu fer ég fram á það við Ríkisendurskoðun að hún ljúki skýrslugerðinni hið allra fyrsta og eigi síðar en fyrir lok októbermánaðar.
Skýrslan verði þá þegar send Alþingi eins og lög kveða á um. Skýrsla Ríkisendurskoðunar verður, jafnskjótt og hún berst, send stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis til meðferðar eins og vera ber samkvæmt þingsköpum. Ríkisendurskoðanda mun þá gefast færi á því á vettvangi nefndarinnar að fylgja skýrslunni eftir.
Aðrir, sem að málinu koma, einkum Fjársýsla og fjármálaráðuneyti, sölu- og viðhaldsaðilar og aðrir, munu einnig fá færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við nefndina.
Eins og þingsköp gera ráð fyrir mun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd síðan leggja fyrir Alþingi niðurstöður athugana sinna með nefndaráliti.
Nefndinni er einnig heimilt að gera tillögu til þingsályktunar af þessu tilefni ef henni sýnist svo.
Ég bind vonir við að málið hljóti með þessum hætti eðlilega meðferð og niðurstöðu af hálfu Alþingis. Forsenda þess er þó sú að fullbúin skýrsla Ríkisendurskoðunar komi fram hið fyrsta.//////Það viljum við flest eg ekki öll að allt komi þarna í ljós sem fysrt og Engin kosninabomba úr þessu gerð,fyrst að skoða svo dæma ef með þarf,það er svon að þessa blessaður engill Björn Valur ættlar að gera þarna storm í vatnsglasi ekki spurning og koma þessu öllu í póltík,þetta er handvöm og mörgum að kenna og auðvitað Fjársíslustjóra og ríkisendurskoðanada,en búin að viðkenna að þetta hafi tekið alltof langan tíma!! en RÚV er í sjálfu sér ekkert að upplýsa sem tekur þar nokkara þætti,RÚV er sjálft á hálum ís mað allt sitt,og á að taka það ú gegn,þessi yfirþyrmandi upptaka á málinu hjá Jóhannesi og Sigmari um 4 mlljarða er bara sundurtætt af viðkomamdi,þvi tala þeir ekki meira við Steingrím og Jóhönnu um nokkur hundruð milljarða í Iveseve sem þau vildu borga en þjóðin og Forsetin stoppuðu,þar er um upphæðir að ræða sem þau ættluðu þjóðinni að borga,Þetta er málið sem aáð tala um sem Bonbu!!!! eða er það ekki og mikið fleira!!!/Halli gamli
![]() |
Skýrslu skilað fyrir októberlok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2012 | 16:20
Jóhanna ætlar að hætta///Loksins minn tími komin til að hætta,þó fyrr hefði verið blessunin!!!

![]() |
Jóhanna ætlar að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gylfi skoraði eitt og lagði upp annað
Íþróttir | mbl.is | 26.9.2012 | 20:42
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Tottenham þegar liðið hrósaði 3:0 útisigri gegn Carlisle í 2. umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu í kvöld. Gylfi lagði upp fyrsta markið sem Jan Vertonghen skoraði með skalla. Andros Townsend skoraði annað markið og Gylfi átti svo lokaorðið þegar hann skoraði með skalla á 88. mínútu.
Arsenal burstaði Coventry, 6:1. Theo Walcott skoraði tvö marka Arsenal og þeir Olivier Giroud, Alex Oxlade-Chamberlain, Andrei Arshavin og Miquel skoruðu sitt markið hver.
Manchester United hafði betur á móti Newcastle á Old Trafford, 2:1. Anderson og Tom Cleverley komu United í 2:0 áður en Papiss Cissé minnkaði muninn fyrir Newcastle.
Það gengur ekkert hjá QPR sem tapaði á heimavelli fyrir Reading, 3:2. unior Hoilett og Djibril Cissé gerðu mörk QPR en þeir Kaspars Gorkss, Nicky Shorey og Pavel Pogrebnjak skoruðu mörk Reading. Brynjar Björn Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Reading.
Leikur WBA og Liverpool stendur enn yfir og þar er staðan, 1:1, þegar 10 mínútur eru eftir.
![]() |
Gylfi skoraði eitt og lagði upp annað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2012 | 20:58
Gallar á kerfinu hafa verið lagfærðir/Æsifréttastofan RÚV heldur sínu striki,og trúir bara íllu!!!!
Gallar á kerfinu hafa verið lagfærðir Innlent | mbl.is | 26.9.2012 | 18:39 Gallar sem komið hafa í ljós á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins hafa verið lagfærðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Fjársýslu ríkisins.
Þar segir ennfremur að það sé alrangt að fjárveiting upp á 160 millj. kr. árið 2001 hafi verið hugsuð til að kaupa, reka og viðhalda kerfinu.
Vegna umræðu í fjölmiðlum að undanförnu vill Fjársýsla ríkisins (FJS) árétta að það er alrangt að halda því fram að fjárveiting upp á 160 millj. kr. árið 2001 hafi verið hugsuð til að kaupa, reka og viðhalda fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins til dagsins í dag. Þær 160 millj. kr. sem veittar voru á fjárlögum árið 2001 var ætlað að standa straum af þarfagreiningu og gerð útboðsgagna.
Ekki var um að ræða fjárhæð til kaupa á nýju kerfi né reksturs þess því þörfin lá ekki fyrir né hvaða kröfur átti að gera til kerfisins. Upphæðin var eingöngu ætluð til undirbúnings á fyrsta hluta verksins. Heildarkostnaður við þarfagreininguna, kaup á kerfinu og uppsetningu á því nemur um einum milljarði króna.
Rekstur kerfisins á níu ára tímabili nemur um 2,8 milljörðum króna eða rúmum 300 milljónum á ári. Þetta nemur að meðaltali rúmlega einni milljón króna á ári fyrir hverja stofnun ríkisins. Í Kastljósþætti sjónvarpsins í gærkvöldi, 25. september, var margt aðfinnsluvert: ï‚· Fullyrt var að í kerfinu sé ekki gerður greinarmunur á bókara og gjaldkera.
Það er ekki rétt, kerfið gerir ráð fyrir því að sitt hvor aðili annist þessi verk. ï‚· FJS stemmir af bókhald við banka á hverjum degi.
Árið 2008 kom upp tilfelli þar sem reikningur hafði verið tvígreiddur vegna kerfisvillu. Málið var strax rannsakað, kerfinu var þegar breytt og þessi villa kemur ekki upp aftur. ï‚· Því var haldið fram að afstemmingar í kerfinu séu rangar og þar með sjálfur ríkisreikningurinn.
Þetta er ekki rétt. Við uppfærslu kerfisins á seinni hluta ársins 2010 kom hinsvegar í ljós galli sem hamlaði afstemmingum tímabundið. Gallinn var leiðréttur og öllum afstemmingum var lokið í júní 2011, segir í yfirlýsingu Fjársýslunnar.
//////Ég legg ekki dóm á neitt,!! en hlusta á fólk og þá sem við þetta unnu og vinna,en fráttastofa RÚV. vil það ekki bara bera á menn og segja það sem þeim finnst ekki svara fyrir sig??Enga vörn aðra getum við notað,!! ekki bara tekið menn af lífi svona i beinni!! eins og þeir virðast ættla að gera!!!svo segir fólk að þetta sé allt satt sem borið er fram,eigum við ekki að hafa bara það sem sannara reynist að stórum hluta en ekki vera að afgreiða þetta sem svikamillu strax,einhvervegin minnir þetta mann!! eins og ég hefi áður sagt um hundinn!! þarna á Akureyri um árið sem álitið var að hafa verið barin til dauða!!!,og fésið logaði á um tíma að taka Piltinn af lífi sem þetta átti að hafa gert,en hvað hann fannst svo heill að hófi seinna hundurinn!! Málið var kært,sem von var,og þessa vegna eigum við ekkert að fullyða um sekt eða sakleysi þarna,það kemur vonandi í ljós/Halli gamli
![]() |
Gallar á kerfinu hafa verið lagfærðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2012 | 17:47
13 sagt upp í Straumsvík/Var ekki verið að stækka og endurnýja þarna???
13 sagt upp í Straumsvík Innlent | mbl.is | 26.9.2012 | 17:19 Álver Alcan í Straumsvík hefur sagt upp 13 starfsmönnum.
Ástæðan er taprekstur vegna lækkandi álverðs. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan, segir að fyrirtækið hafi tapað 25 milljónum á dag í ágúst. Hann segir að fyrirtækið þurfi að spara og stöðugildum verði fækkað um 27 með uppsögnum og með því að ráða ekki í stöður sem losna.
Verð á áli hefur sveiflast talsvert á þessu ári, en þróunin hefur verið niður á við. Auk þess hefur verð á rafskautum hækkað. Alcan hagnaðist um rúmlega 4 milljarða á síðasta ári, en það sem af er ári hefur fyrirtækið verið rekið með 500 milljóna tapi. Ólafur Teitur segir framtíðina óljósa.
Það sé óvissa í Evrópu og Ameríku og hagvöxtur í Kína sé að minnka sem hafi mjög mikil áhrif verð á hrávörum. Alcan verði því að spara í rekstri eins og mörg önnur fyrirtæki hér á landi og erlendis hafi þurft að gera frá hruni.
Hann bendir á að Alcan hafi ekkert fækkað stöðugildum frá hruni fyrr en nú. 480 stöðugildi eru hjá Alcan, en ákveðið hefur verið að fækka þeim um 27, sem er 5% fækkun. Starfsmönnum fækkar hins vegar um 3% með þessum aðgerðum. Ólafur Teitur segir að Alcan hafi ekki gripið til hópuppsagna í yfir 20 ár.///////Ég bar spyr var ekki verið að stækka og hagræða einnig þarna ,ekki veit maður annað!!! en álverð lækkaði mikið á fyrripart ársins,en hefur verið að hækka síðan og bara nokkuð mikið,en einnig hefur verið brætt mikið af gömlu og það veldur þessu einnig,en við Íslendingar frameiðum þetta með mynstu mengum i heiminum og ber að geta þessa,og 20 ár 3% fækkun mana er ekki mikið eða finnst ykkur það,ef tækninni fer eitthvað fram!!!/Halli gamli
![]() |
13 sagt upp í Straumsvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2012 | 17:35
ASÍ minnir ríkisstjórnina á loforðin/Þau hafa svolítið annað að gera núna,í björgunarleiðangri ríkisstórnar sinnar!!!
ASÍ minnir ríkisstjórnina á loforðin Innlent | mbl.is | 26.9.2012 | 15:35 Miðstjórn ASÍ krefst þess að ríkisstjórn og Alþingi tryggi að kjör þeirra tekjulægstu dragist ekki aftur úr kjörum annarra hópa.
Minnir miðstjórnin ríkisstjórnina á loforð sem gefin hafa verið. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að þeir sem hafa verið án atvinnu lengur en fjögur ár missi rétt til atvinnuleysisbóta og þurfi því að leita eftir fjárhagsaðstoð frá sínu sveitarfélagi, að atvinnuleysisbætur hækki einungis um rúmar 5.400 kr.
þegar almennir launataxtar hækka um 11.000 kr. Þá er hvorki gert ráð fyrir að bætur almannatrygginga hækki til samræmis við hækkun almennra launataxta né heldur er gert ráð fyrir fjármagni til að draga verulega úr tekjutengingum milli lífeyrissjóða og almannatrygginga.
Miðstjórn ASÍ minnir á að ríkisstjórnin lofaði við gerð síðustu kjarasamninga að beita sér fyrir því að bætur almannatrygginga og atvinnuleysisbætur hækkuðu til samræmis við almennar taxtahækkanir. Miðstjórnin skorar á ríkisstjórn og Alþingi að standa við gefin loforð.////////Það er svolítið annað að gera!! hjá Skötuhjúunum og c/o!!! núna,að koma þessari bombu á framfæri!! og hreinsa sig alveg eins og þau geta,allan tíman eða 8 ára hafa þau vitað af þessu öll !!!ekki bara þessi og hin og þykjast svo koma af fjöllum!!! svo að svara ASÍ er ekki á þeirra könnu núna,ekki heldur um allt sem þau hafa svikið og ættla að svíkja!!!Hverjir hafa starfað lengst á Alþingi eru það ekki skötuhjúinn 2 er eitthvað sem þau ekki vita???maður bara spyr,en það skal ekki koma með neitt nema það skaði Sjálfstæðisflokk,ekki hina eða Framsókn þar er björgunarhringurin þeirra???,sem ég vona þó ekki!!!!! en við spyrjum að leikslokum vonandi að þetta verði þeim sjálfskaparvíti því það er það/Halli gamli
![]() |
ASÍ minnir ríkisstjórnina á loforðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2012 | 16:15
Nú kemur fólk í hrönnum með samsæriskenningar,um að kenna Sjafsæðisflokki um allt,eins og ættlast var til með bobunni!!!!
Nú koma samsæriskeningarnar í hrönnum til þessa var leikurinn gerður,þetta pakk sem dæmir fyrirfram,ættlar að gera byltingu eis og var síðsast,og hvað kom þar út 2 af vinstri flokkunum 4 flokknum komust að,og hvað,þeir hafa haft öll mál í sínum höndum,að koma öllu í lag!!En þeirra aðal mál er ESB og gengur ekkert,en þetta sem alltaf var vitað var geymt til að kasta þessari bombu,rétt fyrir prófkjör og kosningar,þetta sjá allir sem vilja,og svo hvað,allir saklausir,nema sjáfstæðisflokkur,eftir 8 ár,hver er svona vitlaus að trúa þessu!!!!!!/////////////allt er þetta vel undirbúið og vendilega tímasett!!engin þarf að segja manni að þetta hafi ekki alltaf verið vitað!!!en tími samsæris er komin,hjá sumum árás á fjórflokkin,þessum litlu flokkum sem áttu að bjarga vinstri hreinu ríkisstjórn sem hefur ríkt í 4 ár,en er komin í 36% fylgi!!!en þegar það bregst,skal einu sinni ennþá kenna sjálfsæðisflokki um þetta og reyndar allt sem afvega fer hjá þessari ríkisstjórn,við svörum þessu í næstu kosningum,þvi adróttanir
þessar verða áfram,hvernig sem málið upplýsist!!!!/Halli gamli
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar