Reyndu að fá hætt við guðsþjónustu við þingsetningar/Kommarir samir við sig"!!!

Reyndu aBjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi.ð fá hætt við guðsþjónustu við þingsetningar Innlent | mbl.is | 22.9.2012 | 12:42 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í ræðu í Valhöll í morgun að í aðdraganda að setningu Alþingis í síðustu viku hefðu Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir unnið að því bak við tjöldin að fella niður þá hefð að gengið væri til guðsþjónustu fyrir þingsetninguna.

„Það átti að lauma þeirri breytingu inn nokkrum dögm eða klukkustundum áður en menn áttuðu sig á því,“ sagði Bjarni, að því er fram kemur á vef Eyjunnar, „og það var ríkur vilji til þess í báðum stjórnarflokkum.

“ Segir ennfremur, að Bjarni hafi ekki sagst vita hvort mönnum væri svona illa við þjóðkirkjuna eða þyrðu ekki að ganga þessa metra.

En að ætla sér í krafti stöðu sinnar að gera jafnmikla breytingu á gamalli hefð og venju í skjóli nætur og þora ekki einu sinni að ganga fram og segja sína skoðun og verja hana væri aumingjaskapur og ekkert annað. Hann sagði að hefðinni hefði verið viðhaldið þar sem fulltrúar í forsætisnefnd, forseti þingsins og aðrir hafi spyrnt við fótum.///////////Þetta er dæmigert af kommum að gera!!!!,oðþetta er búið að vara hefð frá líðveldistofunun!! og mun varða það.þó svo fólk sé ekki trúað getur það bara verið með ,vorkenni þvi það ekki,en það er trúfrelsi i landinu en 70% þjóðarinar er kristið fólk og þvi skal ekki getað verið við messu þetta fólk eins og jarðarfarir sem það gerir en samt á að aðkilja þetta frá Ríkinu ekki spurning!!Nema kver og einn Kristin mun þarna halda kristni áfram en engin skilda að stuna nema það vilja í annan tíma!!!!/Halli gamli


mbl.is Reyndu að fá hætt við guðsþjónustu við þingsetningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loforð og efndir ríkisstjórnarinnar////svik og lýgi að 60% það mynsta!!!!!

LoforðMynd 610777 og efndir ríkisstjórnarinnar  Innlent | mbl.is | 21.9.2012 | 17:18 Með nýju efni á vefsvæði ríkisstjórnarinnar er að finna sundurliðun á loforðum og efndum ríkisstjórnarinnar varðandi gildandi kjarasamninga

Með yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við gerð kjarasamninga var margvíslegum og mikilvægum umbótaverkefnum hrundið af stað. Flest þessara verkefna hafa verið unnin í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins og fleiri hagsmunaaðila, segir í frétt frá forsætisráðuneytinu.

„Að undanförnu hafa forystumenn samtaka atvinnurekenda og launamanna sem og þingmenn stjórnarandstöðunnar sakað ríkisstjórnina um að svíkja gefin loforð í tengslum við gildandi kjarasamninga. Er þar fyrst og fremst vísað til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga þann 5. maí 2011,“ segir í fréttinni.

Fjárfestingar Um sókn í atvinnumálum og fjárfestingar segir í yfirlýsingunni: „Það er markmið stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að þetta hlutfall fari stighækkandi og verði ekki lægra en 20% í lok samningstímans en það jafngildir því að fjárfesting verði ekki lægri en 350 ma.kr. á ári.

“ Ljóst er að stjórnvöld gátu ein og sér aldrei ábyrgst 350 milljarða króna fjárfestingar og þess vegna hlaut markmiðssetning um fjárfestingu að vera sameiginleg stjórnvöldum og aðilum kjarasamningsins. Staðreyndin er að mörg stór verkefni hafa tafist af óviðráðanlegum ástæðum og ekki við ríkisstjórnina að sakast. Nefna má deilur um orkuverð sem tafið hafa álversframkvæmdir í Helguvík.

Erfitt efnahagsástand í heiminum torveldar fyrirtækjum að fá fjármagn til fjárfestinga hér á landi. Þetta hefur m.a. tafið uppbyggingu á uppbyggingu á Bakka við Húsavík en þegar yfirlýsingin var gerð vorið 2011 leit út fyrir að framkvæmdir myndu hefjast innan tíðar.

Þá má nefna að bygging nýs sjúkrahúss í Reykjavík hefur tafist um a.m.k. tólf mánuði vegna skipulagsvinnu Reykjavíkurborgar. Töfum af ýmsum toga hefur verið mætt með nýjum áformum sem ekki er að finna í umræddri yfirlýsingu. Þau koma m.a. fram í fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var snemma sumars.

Þar má nefna aukin framlög til samgöngumála, sóknaráætlanir landshlutanna og framlög til skapandi greina, tækni- og þróunarsjóða. Nefna má stefnumörkun um erlendar fjárfestingar sem lögð hefur verið fram sem þingsályktunartillaga.

Jafnframt hefur fé verið veitt til að kynna grænar fjárfestingar sem Íslandsstofa hefur umsjón með. Mennta- og vinnumarkaðsmál Allt er lýtur að menntamálum og vinnumarkaðsúrræðum hefur gengið eftir í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.

Aðfinnslur Samtaka atvinnulífsins þar að lútandi eru því ómaklegar. Velferðarmál Fullyrða má að staðið hafi verið við allt er lýtur að velferðarmálum í nefndri yfirlýsingu. Frumvarp um heildarendurskoðun á almannatryggingum mun raunar ganga lengra en þar er sagt með því að stórlega verður dregið úr tekjutengingum.

Þá hefur verið staðið við loforð um starfsendurhæfingu. Skattamál Atvinnutryggingagjald verður lækkað eins og lofað var um 0,3 prósentustig árið 2013. Í yfirlýsingunni engu lofað um almenna tryggingargjaldið. Ljóst var að kjarasamningarnir voru mjög dýrir er varðar útgjöld til almannatrygginga.

75% af útgjöldum lífeyristrygginga voru fjármögnuð af almenna tryggingagjaldinu í fjárlögum 2003 en tíu árum síðar, árið 2013, eru einungis 57% af útgjöldunum fjármögnuð af tryggingagjaldinu og hefur ríkissjóður þurft að axla mismuninn á þessu tímabili.

Gott samráð hefur verið um skattlagningu fyrirtækja. Komið hefur verið til móts við næstum öll sjónarmið Samtaka atvinnulífsins. Ákveðnir þættir voru lögfestir í fyrra og frumvarp um enn aðra þætti, s.s. um þunna eiginfjármögnun og afdráttarskatt á vaxtagreiðslu, verður flutt á næstu vikum.//////////Ég er ekki alveg viss,en samt þó nokkuð,að þessi ríkisstjórn hefur ekki staðið við nema kannski 40 af því sem lofað var,hámark,þeim finnst það kannski nóg,en  hitt sem þau hafa ílla gert ,er eiginlega að stórum hlut ómælanlegt,kaup kaups á millum flokkana hafa verið okkur dýr mjög,ESB samfylking og svo V.G.fengið í staðin að stoppa allt virkjanir og Álver og bósaflega,allar framkæmdir,algjör kirstaða í öllu,atvinnuleysi og fátækt í hámarki,eiginlega allt í ríkishöndum,og vilja ríkisvæða allt!!!ég held að við séum löngu búinn að fá nóg,af þessum kommastælum,og viljum nýtt stjórnkerfi og framfarir,sem fyrst!!!!/Halli gamli 


mbl.is Loforð og efndir ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur: Evran sterkari en dolla///Össur og c/o vilja bara ESB:annars fáum við ekki evruna!!

ÖssÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.ur: Evran sterkari en dollar Viðskipti | mbl.is | 21.9.2012 | 14:19 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að valið sem þjóðin standi frammi fyrir í gjaldmiðla málum sé milli óstöðugrar íslenskrar krónu og evru sem vonandi kemur sterkari út úr krísunniÖssur hélt í morgun ávarp á málþingi sem bar yfirskriftina „Er evran lausnin“ en þingið markaði endurreisn Fransk-íslenska verslunarráðsins.

Í máli sínu sagðist Össur sannfærður um að evrusamstarfið muni komast í gegnum yfirstandandi erfiðleika. Hann benti á að evran væri nú 6,5% sterkari en Bandaríkjadollar og hefði frá upphafi verið að meðaltali verið 4,0% sterkari en dalurinn.

Þá hefðu einstök evruríki gripið til róttækra ráðstafana til þess að takast á við efnahagserfiðleika sína, og sagðist bjartsýnn á að þau meðöl myndu virka rétt eins og þau gerði á Íslandi í stöðugleikaáætlun Íslands og AGS.

Síðast en ekki síst mætti skynja sterkari pólitískan vilja en áður frá aðildarríkjunum og Evrópska seðlabankanum að komast í gegnum skuldakreppuna í sameiningu.

Utanríkisráðherra sagði sterkari evru, sem komist hefði í gegnum þessa eldskírn, vera skýran valkost fyrir Íslendinga. Hann vísaði til nýrrar skýrslu Seðlabanka Íslands þar sem fram kemur afdráttarlaust að upptaka evru myndi hafa í för með sér lækkun vaxta, aðgang að stærri fjármagnsmarkaði, aukinn og langþráðan stöðugleika í íslensku efnahagslífi, lægra vöruverð og lægri verðbólgu.

Þá myndi upptaka evrunnar geta aukið þjóðarframleiðslu um 20 til 160 milljarða króna árlega og dregið úr viðskiptakostnaði fyrirtækja um 5 til 15 milljarða króna, til viðbótar þeim mikla sparnaði sem fælist í því að þurfa ekki að halda úti gjaldeyrisvaraforða sem greiða þarf af tugmilljarðavexti á ári hverju.

Kostir evrunnar fyrir Ísland eru því óbreyttir, sagði Össur, en tók jafnframt undir með skýrslu Seðlabankans að evruupptaka væri ekki æskileg í augnablikinu, enda stæði það ekki til. Fyrst þyrfti að rætast betur úr ástandinu í einstökum ríkjum. En utanríkisráðherra undirstrikaði að í skýrslunni kemur einnig skýrt fram íslenska krónan er beinlínis uppspretta þess óstöðugleika sem sveigjanleiki hennar nýtist síðar til að takast á við, og hlýtur það að setja umræðuna um kosti krónunnar í nýtt samhengi.////////Þetta er svolitað samtal,að það hálfa væri nóg!!!!bara áróður fyrir ESB og ekkert annað,við erum ekkert að fara að ganga þarna inn,als ekki,og Evruna fáum við ekki einhliða!!svo fullyðir efrópusinnin Össur að evran sé sterkari gjldmiðill en Dollar,þetta er hauga lýgi,og alltaf einnig sagt að viðskipti okkar séu meiri í evrum,það er einnig lýgi,það er í Dollurum!!!en í alvöru!!!,ef við komum fjármálum okkar í lag ,getum við tekið einhliða upp Dollar,ekki spurning,og það yrði okkar björgunn,og sálfstæði borgið!!!!!,nema í gengisfellingum fyrri ára///Halli gamli 


mbl.is Össur: Evran sterkari en dollar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

4-6 sinnum hærri laun í Noregi///ekki bara lækna!!heldur einnig iðnarmenn!!

4-6 sLæknar funduðu um kjör sín og stöðuna í heilbrigðiskerfinu í kvöld.innum hærri laun í Noregi Innlent | mbl.is | 20.9.2012 | 21:20 Ítrekaðar atlögur hafa verið gerðar að vinnuumhverfi heimilislækna frá hruni og þurfa þeir að vera í stöðugri vörn.

Lækkun á launum þeirra frá vorinu 2009 hefur ekki gengið til baka og þeim bjóðast 4-6 sinnum hærri laun í Noregi. Læknar sitja nú á fundi um launakjör og ástandið í Tilefni fundarins er launahækkun sem velferðarráðherra bauð forstjóra Landspítalans í ágúst, en hann ákvað að hafna í gær. Almennrar óánægju gætir meðal lækna og má heyra á framsögum og umræðum á fundinum að þeir telji að

kominn sé tími á breytingar. Gunnlaugur Sigurðsson heilsugæslulæknir flutti fyrstu framsöguna á sameiginlegum félagsfundi Félags almennra lækna og Læknafélagi Reykjavíkur í kvöld. Hann sagði hætt við því að Noregur og Svíþjóð gætu tekið við öllum íslenskun heilsugæslulæknum á einu bretti, og jafnvel oftar en einu sinni.

Gunnlaugur nefndi dæmi af sjálfum sér þegar hann flutti aftur heim til Íslands eftir störf á heilsugæslu í Noregi. Við þann flutning lækkaði hann í dagvinnulaunum um 70% og var það þó fyrir nokkrum árum þegar gengismunur var minni en nú. Gunnlaugur sagði að laun heilsugæslulækna í Noregi væru 4-6 sinnum hærri en hér.

„Því er ekki furða þótt Skandinavía heilli, þar sem hægt er að vinna helmingi minna og hafa helmingi hærri laun,“ sagði Gunnlaugur. Hann benti þó á að það væri meira en launin ein sem toguðu íslenska lækna burt frá landinu.

Mjög margir íslenskir læknar hafi fullmenntað sig í Skandinavíu, hafi þar lækningaleyfi og tengslanet. Þar hafi þeir kynnst öðrum og betri aðbúnaði en hér sé við lýði. Eftir þá reynslu væru þær síður ánægðir þegar og ef þeir snúa til baka enda kjósi margir nú að gera það ekki enda mikil eftirspurn eftir þeim úti. „Það er spurning hvort við séum ekki farin að mennta heimilislækna fyrir útlönd,“ sagði Gunnlaugur./////////Það eru bara læknar sem hafa svona laun í Noregi iðnaðarmenn einnig!!!en þetta er vandamál,sem við getum aldrei leyst svo vel sé!!en aðbúnaðinn er hægt að bæta og laun að vissu marki, Byrja á heilugælunni fyrst mjög aðkallandi!!hún er fyrsta laustnn okkar sjúklinga!!byggja nýjan Lanspítala í áföngum nota þá eldri á meðan,og tækja þá upp,með þvi að nota það svo í þann nýja,en hann þarf ekki að vera svona hervirki eins og búið er að teikna,svona helmingi mynni,en uppá 10 hæðir,ekki minna,þetta væri nóg næstu 25 árin og vel það!!!þá kemst hann þarna fyrir á lóðinni sem er þarna fyrir,og ekkert meira rask!!!!//Halli gamli


mbl.is 4-6 sinnum hærri laun í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta lið í slitastjórnum er á glæpalaunum,að mínu mati/vilja ekki sudurliða vinuna????

Erla Hlynsdóttir skrifar: Tveir kröfuhafar í gamla Glitni ætla með slitastjórnina fyrir dóm til að fá sundurliðaðar upplýsingar um þóknun stjórnarmanna. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar, segist ekki geta séð að sundurliðunin skipti máli.

Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að Gildi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna ætla fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur með það erindi að fá þessa sundurliðun.

Framkvæmdastjóri Gildis, Árni Guðmundsson, segir að þeir sem kröfuhafar telji sig hafa rétt á þessum upplýsingu. Hann komst ekki í viðtal en segir í Viðskiptablaðinu að ýmsar sögur séu í gangi um sjálftöku slitastjórnarmanna og því þurfi að skera úr um þetta.

Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, komst heldur ekki í viðtal, en í samtali við fréttastofu bendir hún á að hvorki slitastjórn Kaupþings né Landsbankans gefi upp sundurliðun yfir þóknun líkt og lífeyrissjóðirnir óska eftir að slitastjórn Glitnis geri.

Þannig sé engin slitastjórnanna sem gefi upp hvað hver einstaklingur, sem fyrir þær starfar, fær í laun á hverjum tíma. Hún segir alla kröfuhafa Glitnis hafa heildartölur yfir þóknun slitastjórnar, enda komi það fram á opnum kröfuhafafundum.

Steinunn segist ekki geta séð hvaða máli það skiptir fyrir lífeyrissjóðina að fá upplýsingarnar sundurliðaðar frekar. Vilji þeir hafa skoðun á heildarlaunakostnaði sé þeim það hins vegar frjálst.

Með störfum sínum fyrir slitastjórnin hefur Steinunn sjálf komist í hóp ríkustu íslendinga en samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins frá í sumar er Steinunn meðal ríkustu Íslendinganna, og eiga hún og eiginmaðurinn um 340 milljónir króna. Ekki náðist tal af lögmanni lífeyrissjóðanna vegna málsins.//////////Þarna er ein svikamyllan,framkvæmd,að mínu mati,og fleiri!!!Þetta er ekkert nýtt og oft verið um fjallað,mynnist þess að einu sinni var leitað viðtals við Steinunni,og var hún þá stödd í fríi á dýrasta og flottasta hóteli í Dubai ,enda á fullum launum,að maður heldur!!en hún orðin milli á þessu;þetta verður að rannsaka,nóg vinna fyrir saksóknara/Halli gamli 


Óvissuþættir í kostnaði nýs spítala///Þetta fólk er ekki hæft til að ákvarða þessar fjárhæðir als ekki!!!

ÓvissuþÞingmenn sátu í pallborði ásamt framsögumönnum, þeim...ættir í kostnaði nýs spítala Innlent | mbl.is | 20.9.2012 | 12:21 Mun nýr Landspítali, verði hann byggður, kosta þjóðina 45 milljarða eða 145 milljarða? Það virðist ekki liggja fyrir með vissu, ef marka má umræður á fundi sem fram fór í morgun undir titlinum „Þjóðin byggir spítala - Feilspor eða fjárfesting til framtíðar?“

Til fundarins boðuðu Samtök verslunar og þjónustu og Samtök heilbrigðisfyrirtækja og sátu þingmenn allra flokka í pallborði en frummælendur voru þær Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, og María Heimisdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala.

Þær Katrín og María vörpuðu fram tölum yfir hugsanlegt umfang þeirra framkvæmda sem núverandi áætlanir um nýjan Landspítala hefðu í för með sér og má segja að afar ólíkar myndir hafi verið dregnar upp í erindum þeirra.

Fjölmennt var á fundinum um Nýjan Landspítala í morgun. mbl.is/Golli Óvissa um fjármögnun Stefnt er að því að nýr Landspítali verði reistur við Hringbraut. Reykjavíkurborg og Alþingi hafa ekki gefið endanlegt samþykki sitt fyrir deiliskipulagi og framkvæmd og enn ríkir óvissa um hvernig fjármögnun og útboði á byggingunni verður háttað, en í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013 kemur fram að gert sé ráð fyrir 45 milljarða framkvæmdakostnaði við fyrsta áfanga.

Katrín Ólafsdóttir sagði í erindi sínu ljóst að kostnaður við gerð nýs Landspítala verði aldrei 45 milljarðar króna. Benti hún á að þegar tekinn væri með kostnaður við endurnýjun húsnæðis (11 milljarðar) og tækjakostar (7 milljarðar) yrði heildarkostnaður við fyrsta áfanga nýs spítala 63 milljarðar króna. Að því gefnu að annar áfangi verði byggður, en ekki er víst að af því verði nokkurn tíma, bætist a.m.k. 30 milljarðar við og nýr spítali komi því til með að kosta a.m.k. 93 milljarða áður en yfir lýkur. Vinningstillaga SPITAL, módelmynd af 1. áfanga Nýs Landspítala við Hringbraut. Ljósmynd/Hreinn Magnússon 4 af 5 verkefnum fram úr kostnaðaráætlun Þetta er þó varlega áætlað að sögn Katrínar, og mögulega vanmat.

Hún benti á að í ljósi sögunnar sé reynslan sú að 4 af hverjum 5 opinberum verkefnum fari fram úr kostnaðaráætlun, að jafnaði um 45%. Katrín lék sér aðeins með þessar tölur og sagði að ef eins færi með Landspítalann og flestar opinberar framkvæmdir síðustu ára þá verði heildarkostnaður við fyrsta áfanga ekki 63 milljarðar, heldur 91 milljarður og þegar annar áfangi bætist við verði endanlegur kostnaður 135 milljarður króna.

Í ljósi þess að nýr Landspítali verði á endanum fjármagnaður með skattgreiðslum almennings sagði Katrín að heildarkostnaður þyrfti að liggja ljós fyrir áður en farið væri af stað, með mögulegum frávikum og mismunandi sviðsmyndum. Óvissukostnaður innifalinn María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans, gagnrýndi þennan málflutning Katrínar.

Hún sagði að horfa þyrfti fyrst og fremst til fyrsta áfanga, því heildarbyggingarmagn sem gert væri ráð fyrir risi ekki fyrr en hugsanlega í fjarlægðri framtíð. María sagði að núverandi kostnaðaráætlun fæli að sjálfsögðu í sér óvissukostnað, 15% og benti jafnframt á að tækin þurfi að endurnýja óháð nýbyggingu. „Það gleymist stundum að það eru tveir kostir í stöðunni eins og alltaf í lífinu. Við getum kosið að hrökkva, eða stökkva,“ sagði María.

Annar kosturinn væri sá að byggja ekki nýtt en vinna áfram í núverandi húsnæði með viðhaldi og endurbyggingum. Hin leiðin væri nýbygging sem væri forsenda fyrir þróun við þjónustu sjúklinganna. Ekki hægt að spara meira í gömlu húsunum María benti á að á 5 ára tímabili hefði verið hagrætt fyrir 32 milljarða á Landspítalanum.

„Þá er vona að menn spyrji hvort hægt sé að spara meira? Nei, það er ekki hægt nema með því að fara í nýtt hús,“ sagði María. Hún taldi upp ýmsar ástæður fyrir nauðsyn nýs sjúkrahús og nefndi m.a. á fjölgun aldraðra og aukningu krónískra sjúkdóma.

Eins sagði hún að ekki væri hægt að kaupa sum ný tæki vegna þess að burðarþol, lofthæð og lagnir gömlu húsanna bjóði ekki upp á það. Hún sagði jafnframt að nýtt húsnæði muni draga úr mannaflaþörf og áhættu. María lagði áherslu á að ekki ætti að byggja ákvörðunina á getgátum. „Notum gögn og staðreyndir og þá er niðurstaðan augljós og aðeins ein, sú að þjóðin reisi nýjan spítala við Hringbraut.“ Nokkrar umræður spunnust eftir framsögurnar. Þingmenn sem sátu pallborðið lögðu allir áherslu á að skoða þyrfti málið vel og taka upplýsta ákvörðun.

Stefán Matthíasson, formaður Samtaka heilbrigðisfyrirtækja, var meðal þeirra sem tóku til máls úr sal. „Hér er um slíka framkvæmd að ræða á landsgrundvelli að ef ekki tekst vel til mun hún hafa gríðarleg áhrif langt út fyrir landamæri spítalans,“ sagði Stefán og sagði óvissuþættina í enn mikla.///////Þetta er álvörumál og þarf að taka allt upp aftur ekki spurning,þessi tillaga er frá uppganstímabilinu!!!,þegar nógir peningar áttu að vera til!!!!allt þarf skoðunar og endurvinnslu,við höfum ekki nema takmarkaða peninga og þessa vegna verður að minka þessa byggingu,og Byggja bara um helming af henni og klára uppá nokkrar hæðir og Taka svo eldri spítalaní gegn og styrkja og og kaupa tæki sem vantar en verða flutt svo plásið er alveg nóg á lóðinni eins og hún  er bilastæði yrðu þá þar sem tanngarður er núna,þetta er að segja ef ekki á að fara með spítalan annað???Nokkra hæðir þarna gera ekkert ógagn vegna flugs eða annars,þessu má öllu finna stað og kostnaður svona helmingur af þessu sem er talað um,ég er viss um að læknar og sjúklingar  vilja skoða þetta,eða er þetta ekki fyrir sjúlkinga????!!!!/Halli gamli


mbl.is Óvissuþættir í kostnaði nýs spítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna dragi til baka eða skýri ummæli sín///Mál til komið að hún segi sannleikan!!!!

Jóhanna dragi til baka eða skýri ummæli sín Innlent | mbl.is | 20.9.2012 | 11:35 „Það er ekki við hæfi að forsæIllugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.tisráðherra fari fram með slíkum hótunum á grundvelli þess að henni líki ekki ummæli forseta Alþýðusambands Íslands og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Það er mjög mikilvægt að forsætisráðherra dragi þessi ummæli sín til baka eða skýri þau, þau geta ekki staðið svona óbreytt.

“ Þetta segir Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is en hann gagnrýndi harðlega á Alþingi í dag ummæli sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, lét falla í umræðum í þinginu í morgun þess efnis að skoða þyrfti alvarlega með að draga úr aðkomu stjórnvalda að gerð kjarasamninga í ljósi gagnrýni forystumanna aðila vinnumarkaðarins á stjórnvöld.

„Forystumenn á vinnumarkaði hafa sagt að það hrikti mjög í forsendum kjarasamninga og það skiptir miklu fyrir efnahag Íslands að það komi ekki til deilna á vinnumarkaði.

Ef ríkið vill draga úr aðkomu sinni að kjarasamningum þá verður það að gerast á málefnalegum forsendum en ekki í einhverju reiðikasti sem viðbrögð við réttmætri gagnrýni forystumanna vinnumarkaðarins,“ segir hann. Illugi fór fram á það að sérstök umræða færi fram um málið á Alþingi og sagði sitjandi forseti Alþingis, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, að það yrði tekið til skoðunar.////////Svör bæði Jóhönnu og einnig, Forseta alþingis útúrsnúningur einn,þetta á ekki að líða í dag allarf verið að tala um bætt Alþigingi,en þessu virðist forboðið af Forseta alþingis og Forsætisráðherra!! Jóhanna Forsætisráðherra kemst upp með að segja ekki sannleiknað skipti eftir skipti,ert von að við sem áhorfum hneikslist og auðvitað stjórnaanstaðan einnig,ÍIlugu bar fram réttláta spurningu en Jóhanna sagði enga ástæðu til að leiðrétta,ummæli sin þo svo lýgi væru að mati okkar allra ekki bara Illuga heldur er hún bara að verða elliær og kemst upp með allt,þetta er okkur Þingheimi til skammar!!!/Halli gamli


mbl.is Dragi til baka eða skýri ummælin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SA: Ekki færri störf frá 2005///Öfugmæli Forsætisráðherra ekki ný að nálini,hún hlýtur að vera farin að gleyma!!

SA: EkkFjöldi starfand ií hverjum mánuði og fjöldi stafandi að...i færri störf frá 2005 Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 19:40 Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar fyrir ágúst síðastliðinn eru ekki uppörvandi að mati Samtaka atvinnulífsins.

Fækkun íbúa á vinnualdri er áætluð 600 miðað við ágúst 2011 og vinnuaflsframboð landsmanna er talið hafa minnkað um 2.500. Sú fækkun skýrist annars vegar af fólksfækkuninni og fjölgun um 1.900 í hópi þeirra sem standa utan vinnumarkaðarins.

Störfum fækkaði um 1.600 en þrátt fyrir það fækkar atvinnulausum um 900 vegna fjölgunar þeirra sem standa utan vinnumarkaðar. Þetta kemur fram í frétt á vef samtakanna.

Í frétt SA segir að þegar litið sé lengra aftur í tímann komi í ljós að störf í ágúst hafa ekki verið færri síðan árið 2005. Loks hefur meðalvinnutími á viku styst um tæplega eina klukkustund.

Fækkun starfandi fólks og stytting vinnutíma samanvegin leiðir til þeirrar niðurstöðu að unnum heildarvinnustundum hafi fækkað um 5% í ágúst miðað við sama tíma í fyrra. „Svipuð mynd kemur í ljós þegar litið er á niðurstöður rannsóknarinnar um þróunina innan þessa árs.

Árstíðaleiðréttar tölur sýna að íbúum á vinnualdri hafi fækkað um 4.200 milli janúar og ágúst og að vinnuaflsframboð landsmanna hafi minnkað um 3.600 manns. Á sama tíma hafi starfandi fólki fækkað um 3.200 og vinnutími styst um eina klukkustund

. Fækkun starfandi og stytting vinnutíma samanvegin sýnir að unnum heildarvinnustundum í landinu hafi fækkað um 4,3% frá ársbyrjun.

Fjöldi atvinnulausra er svipaður sem og hlutfallslegt atvinnuleysi, eða 6,4% í ársbyrjun og 6,3% í ágúst,“ segir í frétt Samtaka atvinnulífsins.////////Þetta getur ekki verið annað en Jóhanna Forsætisráðherra sé farin að gleyma mikið enda að verða 70 ára blessunin!! en svona er ekki gott að halda fram fyrir alþjóð: öfugum tölum og  hlutum dag eftir dag!!!Ég mun ekki trúa þvi fyrr en tekið er á að hún ættli fram í framboð aftur,ekki það að hún sé svo gömul en þegar fólki er farið að gera svona hluti,er það komin tími til að hvíla sig,enda á hún það skilið og lífeyrirn er sko nógur/Halli gamli


mbl.is SA: Ekki færri störf frá 2005
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röskva: Kostnaðarsamt að dreifa greiðslum/Er farið að líta á þetta skólafólk :sem Öryrkja og Eldri Borgara!!!

RöskvMynd 590688a: Kostnaðarsamt að dreifa greiðslum Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 19:33 Í ljósi svars Strætó bs. vill Röskva benda á að þrátt fyrir að sá möguleiki sé fyrir hendi að dreifa greiðslum fyrir strætókort á 12 mánuði á kreditkort fylgir þeim kosti talsverður aukakostnaður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Röskvu. Greiðsludreifingarvextir og lántökugjald fyrir dreifingu samkvæmt vefsíðu Borgun ehf. eru yfir 6000 kr. og því er ljóst að kortið hækkar í tæplega 45.000 kr. í stað 38.500 kr., segir í tilkynningu Röskvu.

„Þetta er því enn meiri hækkun á verði kortsins. Því væri æskilegt að hægt væri að dreifa greiðslum með öðrum leiðum, þar sem vextir og önnur gjöld hækka verð kortsins ekki enn frekar.

Röskva vill einnig benda á það að greiðsludreifing er aðeins möguleiki fyrir þá nemendur sem eiga kreditkort, en það eiga alls ekki allir nemendur HÍ kreditkort.

Röskva fagnar því að í framtíðinni verði hægt að dreifa greiðslum á debetkort en samkvæmt yfirlýsingu Strætó bs. stendur það til bóta síðar. Þrátt fyrir fyrirhugaðar bætur á greiðsludreifingunni er staðan ekki nógu góð í dag, því margir stúdentar sem stunda nám núna eru í vandræðum.

Því hvetur Röskva Strætó bs. til að hraða þeirri vinnu og að bjóða uppá þessa þjónustu, án aukagjalda,“ segir í tilkynningunni./////////Maður getur ekki séð að þetta fólk geti bara borgað eins og aðrir,hvað gerir Lín það ætur þetta fólk borga vexti á namslánin,og því ekki þarna  af lánum,maður hefur oft verið að undra á öllum bílaflotunum fyrir utan Hákskóla og framhaldskóla!!!!,er nokkur verra fyrir þetta fólk að borga í strætó maður bara spyr,og við eldri borgara og öryrkjar verðum að borga bara aðein mynna!!!!/Halli gamli


mbl.is Röskva: Kostnaðarsamt að dreifa greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágeng fíkniefnasala á Facebook//Hvernig með dulnöfnum eða hvað???

Samskiptavefurinn Facebook er mikið notaður hér á landi til þess að selja og dreifa fíkniefnum. Flestir unglingar sem leita sér hjálpar hjá SÁÁ hafa kynnst því hvernig fíkniefnasalar koma vöru sinni á framfæri með því að nota Facebook til að senda boð á svo mikið sem þúsundir ungmenna í einu. Hjalti Björnsson, dagskrárstjóri hjá SÁÁ, segir að þau ungmenni sem komi til meðferðar á Vog þekki þessar aðferðir vel. Salarnir stofni síður á Facebook og búi til hópa eða sendi skilaboð á mikinn fjölda krakka þar sem þeir bjóði vöru sína og Hjalti segir þetta vera ansi ágenga aðferð við sölu fíkniefna./////////Ég satt a' segja er mikið á Facebook en verð ekki var við svona ,hvernig nota þeir þetta með dulnefnum á hlutum eða hvað,er ekki bara betra að segja alveg frá þessu lið fyrir lið,svo við sem erum þarna ,gætum þá vitað eithvað og komið upp um það,manni hrís hugur við þessu og vill vita meira/Halli gamli

mbl.is Ágeng fíkniefnasala á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2012
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband