Gunnar talinn sigurstranglegur////Já við stöndum með honum og hann vinnur!!!

GunGunnar Nelson keppir sinn fyrsta UFC barddaga þann 29....nar talinn sigurstranglegur Veröld/Fólk | mbl.is | 19.9.2012 | 15:56 Veðmálasíðan Betsson hefur gefið út stuðla varðandi bardaga Gunnars Nelson við Bandaríkjamanninn DeMarques Johnson, sem fram fer í Nottingham þann 29. þessa mánaðar.

Þrátt fyrir að þetta sé fyrsti UFC bardagi Gunnars er hann talinn sigurstranglegur. því á Betsson fær hann stuðulinn 1.55 gegn 2.45 stuðlum á DeMarques. Veðmálasérfræðingar Betsson virðast því hafa tröllatrú á Akureyringnum knáa því DeMarques er að keppa sinn tólfta UFC bardaga og er þar af með sjö sigra á bakinu.

Upphaflega stóð til að Gunnar myndi keppa við Þjóðverjann Pascal Krauss sem varð að segja sig frá bardaganum vegna meiðsla en Betsson spáði Gunnari einnig sigri í þeim bardaga sem nú er ljóst að ekki fer fram í bráð.

Þrátt fyrir spá Betsson verður viðureign Gunnars engin barnaleikur því DeMarques mun vera mikill reynslubolti í hringnum og er með alls 30 bardaga í blönduðum bardagaíþróttum á ferilskránni, en hann hefur farið með sigur af hólmi í 19 þeirra.///////////Við eigum þarna mjög svo sigurstranglegan mann Gunnars,sem við veðjum á að vinni þetta ekki spurning um það,og þar með Gunnar okkar ósigraður/Halli gamli


mbl.is Gunnar talinn sigurstranglegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúnaðarbresturinn er staðreynd///hræðslan leitar sátta!!mér finns þetta ófyrirgefnlegt!!!

Trúnaðarbresturinn er staðreynd Innlent | mbl | 19.9.2012 | 17:40 „Eins og þetta horfir við mér þá snerist mHjúkrunarfræðingar héldu tvo fjölmenna fundi um kjör...álið um þann trúnaðarbrest sem varð milli forstjórans og hjúkrunarfræðinga og það að launahækkunin gangi til baka, það lagar ekki þennan trúnaðarbrest,“ segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga um þá ákvörðun Björns Zoëga að afþakka launahækkun.

„Eins og þetta horfir við mér þá snerist málið um þann trúnaðarbrest sem varð milli forstjórans og hjúkrunarfræðinga og það að launahækkunin gangi til baka, það lagar ekki þennan trúnaðarbrest,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga.

Plástur á sárið en lagar ekki meinið Björn Zoëga forstjóri Landspítalans hefur ákveðið að afþakka launahækkun um 450 þúsund krónur á mánuði sem Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra bauð honum í ágúst.

Tvær vikur eru liðnar síðan fyrstu fregnir spurðust út af launahækkuninni og hefur magnast upp vaxandi óánægja meðal starfsfólks spítalans. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Mbl.is/Golli „Ég held að menn séu því miður að bregðast við of seint. Hugsanlega er þetta plástur á sárið hjá einhverjum, en það lagar ekki meinið og ég tel að þetta bæti ekki það ástand sem hefur skapast,“ segir Elsa. „Ef þetta hefði komið strax þá hugsanlega hefði málið ekki orðið eins alvarlegt og raun ber vitni.

En þegar líður hálfur mánuður og bæði ráðherra og forstjóri eru búnir að koma fram og réttlæta þessa aðgerð og færa fyrir henni rök í fjölmiðlum, þá er að mínu mati orðið of seint að bæta þann skaða sem orðið hefur. Trúnaðarbresturinn er staðreynd.“ Unna forstjóranum samkeppnishæfra launa Elsa bendir á að hjúkrunarfræðingar hafi ekki krafist þess að launahækkunin yrði dregin til baka.

Staðreyndin sé sú að erfitt sé að starfa þar sem rof hafi orðið á trausti milli stjórnenda og starfsfólks. „Ég held að hjúkrunarfræðingar geti alveg unnt Birni Zoëga þess að vera með há laun og samkeppnishæf við aðra forstjóra hér á Íslandi og erlendis. Því það er auðvitað það sem við viljum líka fyrir okkar fólk.

Ég út af fyrir mig fagna því bara að reynt sé að hafa forstjóra þessarar stóru stofnunar á viðlíka launum og tíðkast á almennum markaði og erlendis. Það á bara við um svo marga, og það breytist ekki.“ Slá ekki af sínum kröfum Samningafundur verður vegna stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga í næstu viku, föstudaginn 28. september.

Hjúkrunarfræðingar afhentu samninganefndunum í gær ályktum með kröfum um bætt kjör, þar sem m.a. var farið fram á 90 þúsund króna launahækkun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga.

Aðspurð segist Elsa ekki getað svarað því hvernig aðgerðarhópur hjúkrunarfræðinga, sem setti kröfurnar fram, muni bregðast við. „En frá mínum bæjardyrum séð þá höldum við okkar striki við gerð stofnanasamnings og gerum auðvitað kröfur um kjarabætur fyrir hönd hjúkrunarfræðinga.“ Björn afþakkar launahækkunina///////////Þetta má er ekki búið svo auðveldlega!!!sérstaklega Ráðherra sem á að segja af sér,sennilega Forstjórin og læknirin einnig!!Málið er há alvarlegt og stendur í raun ennþá!!Fólkið sem samtaka allt hefur sparað mikið fé,með ofurvinnu og hagræðingu,og fær svo svona svífirðigu fyrir er ekki sátt sem þessar aðferðir þessar manna hafa skapað,máið erí bistöðu!!!//Halli gamli


mbl.is Trúnaðarbresturinn er staðreynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir ESB tapa sama hvernig málið fari////Blöndalin kann þetta vel!!!!

Segir ESB tapa sama hvernig málið fari Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 9:41 Sama hvernig dæmt verður í IcPétur H. Blöndal, alþingismaður.esave-málinu þá mun Evrópusambandið alltaf tapa.

Þetta segir Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni en munnlegur málflutningur fór fram í Icesave-málinu fyrir EFTA-dómstólnum í gær.

„Ef við verðum dæmd er ríkisábyrgð á innstæðum í ESB og er ekki á bætandi varðandi lánshæfismat og ábyrgðir.

Margnefnd mismunun getur varla átt við því íslenskir sparifjáreigendur töpuðu miklu vegna verðminni krónu á meðan Icesave eigendur fengu allt sitt greitt í evrum og pundum,“ segir hann.

Pétur segir að staðan sé að sama skapi slæmt fyrir ESB ef Ísland vinnur málið.

„Ef við vinnum vakna spurningar um hvort þetta innstæðukerfi tryggi nokkurn skapaðan hlut. Það gæti vakið ugg hjá sparifjáreigendum í ESB og þar er stjórnmálamönnum ekki alveg sama um þann hóp fólks.“

////Já sko Bétur Blöndal kann, að koma orðum af staðreyndum ekki spurning,þetta er bara traustvekjandi að lesa og mikið til í þessu!! aftur er einkennilegt að Steingrímur og Jóhanna og c/o skuli sleppa við að ættla ð koma okkur í skuldafen sem engu var líkt,og ekki látin sæta ábyrgð,þau ættu í raun bæði að sitja i fangelsi!!!En ég segi það blákalt að ef Pétur Blöndal ættlar ekki að bjóða sig fram fyrir flokkinn okkar,er það skarð fyrir skyldi,ekki spurning,ég skora á hann ef hann getur að halda áfram/Halli gamli


mbl.is Segir ESB tapa sama hvernig málið fari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsneytisverð lækkar////Þetta flott og kemur ser vel,annars er maður hissa að keyra um bæjin sinn allt fuld af bílum allan dagin>!!!

Eldsneytisverð lækkar Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 10:18 Skeljungur og Atlantsolía hafa ákveðið að lækka verð á eldsneyti um tvær krónur

. Er þetta gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. EldsnMynd 625236eytisverð lækkar Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 10:18 Skeljungur og Atlantsolía hafa ákveðið að lækka verð á eldsneyti um tvær krónur.

Er þetta gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. GSMbensín er verðkönnunarþjónusta fyrir bensín- og olíuverð. Upplýsingum um verð olíufélaganna er aflað reglulega og stöðvarnar birtar í hækkandi röð.

Höfuðborgarsvæðið 95 oktDísel Félag Stöð Verð Orkan Klettagarðar 257.10 Orkan Dalvegur 257.10 Orkan Eiðistorg 257.10 Orkan Gylfaflöt 257.10 Orkan Hraunbær 257.10 Orkan Kænan 257.10 Orkan Miklabraut, suður 257.10 Orkan Miklabraut norður 257.10 Orkan Reykjavíkurvegur 257.10 Orkan Skemmuvegur 257.10 Orkan Skógarhlíð 257.10 Orkan Spöngin 257.10 Orkan Suðurströnd 257.10

Atlantsolía Kaplakriki 257.20 Atlantsolía Hafnarfjarðarhöfn 257.20 Atlantsolía Búðarkór 257.20 Atlantsolía Kópavogsbraut 257.20 Atlantsolía Skemmuvegur 257.20 Atlantsolía Mosfellsbær 257.20 Atlantsolía Bíldshöfði 257.20 Atlantsolía Öskjuhlíð 257.20 Atlantsolía Skeifan 257.20 Atlantsolía Skúlagata 257.20 Atlantsolía Sprengisandur 257.20

ÓB Arnarsmári 259.20 ÓB Bæjarlind 259.20 ÓB Barðastaðir 259.20 ÓB Bíldshöfði 259.20 ÓB Fjarðarkaup 259.20 ÓB Grafarholt 259.20 ÓB Melabraut 259.20 ÓB Nýja sendib. 259.20 ÓB Snorrabraut 259.20 ÓB Starengi 259.20 ÓB Suðurhella 259.20 N1 Algengt 259.40 Olís Algengt 259.40 Shell Algengt 259.60 Félag Stöð Verð Orkan Klettagarðar 260.30 Orkan Dalvegur 260.30 Orkan Eiðistorg 260.30 Orkan Gylfaflöt 260.30 Orkan Hraunbær 260.30 Orkan Kænan 260.30 Orkan Miklabraut, suður 260.30 Orkan Miklabraut norður 260.30 Orkan Reykjavíkurvegur 260.30 Orkan Skemmuvegur 260.30 Orkan Skógarhlíð 260.30 Orkan Spöngin 260.30 Orkan Suðurströnd 260.30

Atlantsolía Kaplakriki 260.40 Atlantsolía Hafnarfjarðarhöfn 260.40 Atlantsolía Búðarkór 260.40 Atlantsolía Kópavogsbraut 260.40 Atlantsolía Skemmuvegur 260.40 Atlantsolía Mosfellsbær 260.40 Atlantsolía Bíldshöfði 260.40 Atlantsolía Öskjuhlíð 260.40 Atlantsolía Skeifan 260.40 Atlantsolía Skúlagata 260.40 Atlantsolía Sprengisandur 260.40

Shell Algengt 260.70 ÓB Arnarsmári 262.40 ÓB Bæjarlind 262.40 ÓB Barðastaðir 262.40 ÓB Bíldshöfði 262.40 ÓB Fjarðarkaup 262.40 ÓB Grafarholt 262.40 ÓB Melabraut 262.40 ÓB Nýja sendib. 262.40 ÓB Snorrabraut 262.40 ÓB Starengi 262.40 ÓB Suðurhella 262.40 N1 Algengt 262.60 Olís Algengt 262.60 Uppfært fyrir 9 mínútum og 20 sekúndum Verð miðast við sjálfsafgreiðslu án vildarafsláttar ////////Þetta er eiginlega sýndarleikur,svo til öll olifélögin meða það sama,og litill munur,en afsláttur misjafn,við hjá FÍB fáumafslátt hjá Atlansolíu 8 kr á einni valinni stöð og svo 2 krónum mynna anarstaður á sömu stöðvum!!Orkan og Shell með 6 krónur og svo framvegið,en stærri notendur eins og fyrtæki og leigbílar fá meira en við!!N 1 er með 4 krónur + pungta ég er á mótti þessum punktum bara i vasann beint!!ég tek reyndar alltaf Metan þar en sé angan afslátt,þetta er eitthvað  brogað þarna!!En ég verð bara að segja að það er undarlegt núna eins og eftir sumarfrí að það er aldrei meira af bílum a götunni alla daga?? þrátt fyrir strætó sem yngra fólkið gæti notað meira,en þetta er bara svona,og að Bensín og olíur skuli hækka lánin okkar er svifyrða"!!! og ekkert annað!!!/Halli gamli 


mbl.is Eldsneytisverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orrustan unnin en stríðið rétt að byrja/Þetta kóngafólk sem er að sliga Bresku þjóðina.leifir sér allt!!!

OrrustÞau munu landið erfa - Bretland.an unnin en stríðið rétt að byrja Veröld/Fólk | mbl.is | 18.9.2012 | 21:30 Vilhjálmur prins og eiginkonan Kate brugðust skjótt við birtingu nektarmynda af drottningunni verðandi í frönskum fjölmiðlum.

Og þó þau hafi unnið fyrstu orrustuna og fengið lögbann á frekari birtingu myndanna í Frakklandi, er ljóst að stríðið um verndun einkalífs konungsfjölskyldunnar er í raun rétt að byrja. Franskur dómstóll úrskurðaði parinu í hag í dag en lögbannið sem hann féllst á er þó takmarkað ef litið er á málið í stóru samhengi.

Nektarmyndirnar umdeildu eru auðvitað þegar komnar á netið og þar munu þær lifa um ókomna framtíð. Þá hafa myndirnar einnig verið birtar í löndum utan Frakklands, s.s. á Ítalíu og á Írlandi. Hjónakornin hafa einnig farið fram á það að franski ríkissaksóknarinn rannsaki málið og ljósmyndarann sem tók myndirnar.

Sérfræðingar telja að lögbannskrafan hafi því í raun fyrst og fremst verið táknræn. Hún sýni að parinu sé full alvara með því að vernda einkalíf sitt fyrir fjölmiðlum og slúðurþyrstum almenningi. Slíkt mun væntanlega verða þeim ennþá mikilvægara er þau eignast barn sem yrði þriðji einstaklingurinn í erfðaröðinni að krúnunni, segir Joe Little, ritstjóri Majesty tímaritsins.

„Þau vilja senda út skilaboð til þeirra sem ætla sér að gera eitthvað þessu líkt í framtíðinni,“ segir Little við AP-fréttastofuna. Þau skjótu viðbrögð sem Vilhjálmur og Kate sýndu þykja líka til marks um það að þau ætli sér að fara aðra leið en Elísabet drottning, sem hefur ekki viljað grípa til málsókna og dómstóla nema í ýtrustu neyð varðandi málefni konungsfjölskyldunnar.

Little segir þetta líka til marks um það að Vilhjálmur sé staðráðinn í því að leyfa fjölmiðlum ekki að komast upp með að hundelta eiginkonu sína á sama hátt og þeir gerðu við móður hans, Díönu prinsessu. Hins vegar er því ekki að neita að lögsókn sem sú er parið fór í vegna frönsku myndanna, hefur í raun ekkert að segja um dreifingu mynda - veruleikinn er allt annar nú en fyrir nokkrum árum. Það sem einu sinni fer á netið - verður á netinu.

Samkvæmt niðurstöðu dómarans þurfti franska slúðurblaðið Closer að afhenda öll rafræn eintök af myndunum en í raun er það aðeins formsatriði. Myndirnar munu fylgja Kate allt hennar líf - rétt eins og allar þær myndir sem teknar hafa verið af henni hingað til. „Skaðinn er augljóslega skeður,“ segir Christopher Mesnooh, bandarískur lögfræðingur. „Þúsundir og jafnvel tugþúsundir eintaka af myndunum eru nú í dreifingu.

Að fara með málið fyrir dómstóla var hárrétt ákvörðun hjá prinsinum og hans konu. En blaðið var prentað og því var dreift. Skaðinn er skeður.“ Hann segir að fjölmiðlamenn hafi litlu að tapa að birta myndir sem þessar. Hann segir að Closer eigi eftir að græða mikið á því að hafa birt myndirnar. Sekt sem blaðið fékk fyrir myndbirtinguna skipti engu máli þegar allt komi til alls. Vilhjálmur og Kate hafa einnig farið í mál við ljósmyndarann sem tók myndirnar. Hann hefur enn ekki verið nafngreindur en gæti átt yfir höfði sér eins árs fangelsi

. En sektir og fangelsisdómar munu ekki þurrka myndirnar út af netinu. Tim Luckhurst, prófessor í fjölmiðlun Háskólann í Kent, segir að unga fólkið hafi vonandi lært mikilvæga lexíu. „Prinsinn og eiginkona hans verða að hugsa vel út í það hvað sé viðeigandi hegðun fyrir erfingja krúnunnar á þessum tímum internetsins.“//////////Þetta Kóngafólk þarna í Bretlandi leifir sér allt!!Þetta slekti er ekki að sliga Bresku þjóðina,meira að segja Icesave er krækirber í helvíti, af kosnaði þessa óþarfa slektis!!Þetta er ekki til fyrirmyndar yfirleitt að birta stolnar nektarmyndir en það sama á ganga yfir alla ekki bara þessa auðnuleisingja þarna sem lifa á þjóðinni,þetta er stormur í vatnglasi fyrir mér allavega ekki er ég hlyntur þessu fólki als ekki!!!/Halli gamli


mbl.is Orrustan unnin en stríðið rétt að byrja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sex punktar um leiki ensku liðanna/Þetta var fyrir leikina:En Arsenal vann 1-2 og Real Madrid vann 3-2 !!!!

Sex puRonaldo skoraði mörk og fékk rauð spjöld þegar hann spilaði...nktar um leiki ensku liðanna Íþróttir | mbl.is | 18.9.2012 | 10:40 Meistaradeildin fer af stað í kvöld og eru tvö ensk lið í eldlínunni. Arsenal heimsækir Frakklandsmeistara Montpellier

og Manchester City er í heimsókn hjá Real Madrid.

Tölfræðisíðan Infostradalive hefur tekið saman áhugaverðar staðreyndir um leikina í kvöld þar sem meðal annars kemur fram að Arsenal hefur aldrei tapað útileik í Frakklandi.

Hér að neðan má sjá sex punkta um leiki ensku liðanna í kvöld en fleiri staðreyndir um alla leiki kvöldsins má lesa hér. Montpellier - Arsenal -Arsenal hefur aldrei tapað Evrópuleik í Frakklandi.

Liðið hefur unnið fimm leiki og gert fjögur jafntefli. Aftur á móti hefur Arsenal tapað tveimur úrslitaleikjum í Evrópukeppnum í Frakklandi.

Árið 2006 tapaði Arsenal fyrir Barcelona, 2:1, í úrslitum Meistaradeildarinnar í París og 1995 tapaði liðið fyrir Real Zaragoza í Evrópukeppni bikarhafa, einnig í París. -Alls hefur Arsenal spilað 18 sinnum við frönsk félög í Evróukeppnum og aðeins tapað tvívegis. Í bæði skiptin var það í Meistaradeildinni og þá á heimavelli.

Arsenal tapaði gegn Auxerre, 2:1, í riðlakeppninni 2002 og 1:0 gegn Lens 1998. -Þetta er 15. árið í röð sem Arsenal tekur þátt í Meistaradeildinni.

Aðeins Real Madrid (16) og Man. United (17) hafa spilað lengur samfellt í Meistaradeildinni.

Real Madrid - Manchester City -Real Madrid hefur alltaf komist upp úr riðli í Meistaradeildinni eða 16 sinnum.

Engu öðru lið hefur tekist það en næst kemur Chelsea sem hefur 10 sinnum komist upp úr riðli.

-Cristiano Ronaldo skoraði þrjú mörk í síðustu fimm leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni geng Manchester City þegar hann var leikmaður Man. United.

Hann fékk fjögur rauð spjöld á sínum tíma í Manchester, tvö þeirra í leik gegn City. -Sergio Agüero spilaði 10 sinnum fyrir Atlético Madrid gegn Real Madrid. Hann var aldrei í sigurliði (0-3-7) og skoraði ekki nema þrjú mörk í þessum tíu leikjum./////Spánnar ganga ekki alltaf eftir en oft ég horfi á 2 leiki bara með öðru auganu R.M.3 M.C.2 og svo Arsenað og þar var hart bariðst og eiginlega stundum í rest var Arsenað i nauðvörn stundum en vörin og markmaður stóðu sig vel,og eiginlega allt liðið,en Frakkarnir eru sterkir ekki spurning,áfram samt Arsenal!!/Halli gamli


mbl.is Sex punktar um leiki ensku liðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættleidd börn í tugatali/Þetta gaman að sjá öll þarna saman: flott!!!!

Ættleidd börn í tugatali Innlent | mbl.is | 18.9.2012 | 20:11 Hér á landi er nú stödd sendinefnd frá kínverskuBörn sem ættleidd hafa verið frá Indlandi og Kína voru m.a....m ættleiðingaryfirvöldum. Af því tilefni var móttaka í sal ráðhúss Reykjavíkur í dag.

Þar komu saman um eitthundrað börn sem ættleidd hafa verið frá Kína og vildu heiðra sendinefndina með nærveru sinni. Flest börn sem ættleidd hafa verið eru frá Kína.

Fyrir nokkrum dögum kom 165. barnið frá Kína heim til Íslands með fjölskyldu sinni. Börn sem ættleidd eru frá Kína til Íslands eru því stærri hópur en börn frá nokkru öðru landi, segir í tilkynningu frá Íslenskri ættleiðingu.

Lengi vel komu mörg börn árlega frá Indlandi en þau eru núna 164 alls. Í kjölfar breytinga indverskra stjórnvalda á ættleiðingarferlinu, sem enn eru ekki yfirstaðnar, hægði mjög á ættleiðingum þaðan og nú er svo komið að ekkert barn hefur verið ættleitt frá Indlandi til Íslands í tvö ár sem er sama þróun og þekkist á öðrum Norðurlöndum.

Frá því að ættleiðingar hófust frá Kína fyrir rúmum tíu árum hafa flest börn árlega komið þaðan og það hefur haldist óbreytt þó biðin á almenna biðlistanum hafi lengst þá hefur biðin verið mjög stutt á svokölluðum SN biðlistum og stundum ekki nema örfáir sólarhringar. Tvö börn til viðbótar eru nú á leið heim frá Kína eftir nokkrar vikur.

Biðlistinn eftir því að ættleiða barn til Íslands er að styttast verulega um þessar mundir. Fyrir þremur árum voru að jafnaði rúmlega 100 fjölskyldur á biðlista eftir ættleiðingu erlendis frá. Núna er staðan þannig að 46 fjölskyldur eru á hinum eiginlega biðlista og 37 fjölskyldur eru í undirbúningsferli fyrir það að senda umsókn um barn til útlanda.

Þetta táknar að í biðlista og undirbúningsferli eru samtals 83 fjölskyldur og hefur biðlistinn hjá Íslenskri ættleiðingu því minnkað um 20% á nokkrum misserum. Ástæður fyrir þessu eru aðallega af tvennum toga.

Meginástæðan er sú að vel hefur gengið með ættleiðingar frá Kína að undanförnu, flestar umsóknir sem berast fara á svokallaðan SN lista og þar er biðin oftast mjög stutt stundum ekki nema nokkrir sólarhringar eftir að umsókn hefur verið metin erlendis.

Hin meginástæðan er sú að hægt hefur á nýjum umsóknum til ættleiðingarfélagsins vegna þess að undirbúningsnámskeið sem nauðsynleg eru verðandi kjörforeldrum hafa ekki verið haldin á þessu ári,segir í frétt Íslenskrar ættleiðingar./////////Dásamlegt er að horfa á þetta ,foreldra og börn, ættleidd !!þetta er mikið ánægjuefni foreldra og barna!! Maður bara kemst við!! af ánægju með þetta,við sem gátum eignast heilbrygð börn finnum þetta með hinum sem ekki getað það,og maður er með þeim í baráttunni til að ættleiða börn heilbrygð og falleg ,sama hvaðan ,en þetta hefur ekki gengið sem skyldi og vonandi fer að skána og er það mikið gleði foreldra og okkar allra!!!!Halli gamli


mbl.is Ættleidd börn í tugatali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baltasar ætlar að kvikmynda Sjálfstætt fólk/Þetta er kannski ágætt að gera!!!

Baltasar æBaltasar Kormákur frumsýnir á föstudag nýjustu kvikmynd sína, Djúpið.tlar að kvikmynda Sjálfstætt fólk Innlent | mbl.is | 18.9.2012 | 14:13 Baltasar Kormákur hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á tveimur bókum Halldórs Laxness, Sjálfstæðu fólki og Gerplu.

Hann segir íslenska kvikmyndagerð tilbúna til að takast á við þetta stóra verkefni„Ég var að ganga frá réttinum á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness,“ tilkynnti Baltasar í viðtali í Kastljósi RÚV í gærkvöldi.

„Þetta er okkar stóra bók og mig hefur lengi dreymt um að kvikmynda hana og líka Gerplu. Þannig að ég tók tvennu á Laxness.“ Baltasar sagði ekki ennþá komið á hreint hver myndi fara með hlutverk Bjarts í Sumarhúsum en að hann hefði nokkra leikara í sigtinu. Baltasar viðurkenndi að verkefnið væri mikil áskorun, enda hafi hver Íslendingur sína sýn á Sjálfstætt fólk.

„Þetta er bara eins og að setja hausinn í snöruna en mér líður vel með hálsinn þar. Ég er ekkert að reyna að fara auðvelda leið, þetta eru bara sögur sem ég hef rosalega ástríðu fyrir og mér finnst þetta vera sögur sem þjóðin eigi og mig langar til að gefa þjóðinni mína bestu útgáfu af þessum sögum svo að þær fái að lifa í kvikmyndaforminu. Íslenska kvikmyndin er tilbúin til að takast á við svona verkefni.“/////Það svo sem ágætt að mynda!! þessar sögur hans  Halldórs Laxness ,og þar er söguþræðir miklir!! og allt það,en ég er ekki einn af dýrkendum hans sagna allra, als ekki,þessi mikla stjörnudýrkun með hans  sem skálds er komið langt framúr sér,að mínu áliti,en það væri gaman að sjá hvað Balti getur gert, þetta vel og útfært ekki spurning!!!,en Halldór talaði yfirleitt, niður til bændasamfelasins,og eiginlega flestra að manni fannst!!!/Halli gamli


mbl.is Baltasar ætlar að kvikmynda Sjálfstætt fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill viðbúnaður við héraðsdóm/Þetta er gott hjá lögreglu,ef löglegt er!!!

Mikill viMikill viðbúnaður lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur.ðbúnaður við héraðsdóm Innlent | mbl.is | 18.9.2012 | 16:51 Mikill viðbúnaður lögreglu var við Héraðsdóm Reykjavíkur er einn þeirra manna sem handteknir voru í gær í aðgerð lögreglu í Mosfellsbæ og Hafnarfirði, var leiddur fyrir dómara.

Hann hefur nú verið leiddur aftur út úr dómshúsinu og út í lögreglubíl. Að minnsta kosti átta lögreglumenn eru á svæðinu á þremur lögreglubílum.

Sjö voru handteknir þegar lögreglan framkvæmdi tvær húsleitir í Hafnarfirði og Mosfellsbæ í gær. Á báðum stöðum var lagt hald á fíkniefni en á öðrum þeirra var jafnframt að finna verulagt magn af því sem talið er vera þýfi úr innbrotum á bæði höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Á síðarnefnda staðnum var einnig lagt hald á skotvopn en á hinum tók lögreglan ennfremur sprengiefni í sína vörslu. Hinir handteknu, sem flestir eru á þrítugsaldri, tengjast allir Outlaws.

Að aðgerðunum stóðu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra og tollyfirvöld, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.///////Við stöndum öll með lögreglu þarna !!!og vel það svona félagskapur, er ekki vel þegin að mínu álti ,og við bara syðjum þetta frá A-Ö að fylgst sé með svona félaskap !!ef hann er samkvæmt nafni og stendur undir því!!!!/Halli gamli 


mbl.is Mikill viðbúnaður við héraðsdóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillaga um útsvarslækkun í Reykjavík felld//Hugsa sér að þetta skuli ekki einnig þrepaskift!Eða tékjutengt??!


Hanna Birna Kristjánsdóttir.Tillaga um útsvarslækkun í Reykjavík felld Innlent | mbl.is | 18.9.2012 | 16:25 Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar
 felldi á fundi borgarstjórnar í dag tillögu Sjálfstæðisflokksins um að útsvar verði lækkað í Reykjavík,

þannig að hækkanir núverandi meirihluta verði dregnar til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað lagt fram tillögur um að hækka ekki skatta á almenning, varað við áhrifum þess og bent á nauðsyn þess að fara aðrar leiðir. Þetta hefur verið gert við afgreiðslu fjárhagsáætlana, ársreikninga og í fjölmörgum umræðum um málið í borgarráði og borgarstjórn. „Rökin fyrir því að halda sköttum á almenning lágum eru augljós.

Reykjavík er stærsta sveitarfélagið og hefur burði til þess að veita góða þjónustu án þessa að innheimta hámarksútsvar; þessi leið var farin með góðum árangri á erfiðum tímum strax efir hrun bankanna og aldrei hefur verið mikilvægara en einmitt nú að standa með almenningi með þeim hætti," sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í umræðum í borgarstjórn í dag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Niðurstöður ársreiknings 2011 og hálfsársuppgjörs 2012 benda enn frekar til að hægt sé að ganga til þessa verks, en þar kemur fram að skatttekjur borgarinnar eru verulega umfram fjárþörf. Þannig eru útsvarstekjur umfram áætlun fyrir árið 2011 2,2 milljarðar og í hálfsársuppgjöri fyrir janúar – júní 2012 kemur fram að skatttekjur eru 670 milljónir umfram áætlun.

Því má segja að undanfarin ár hafi borgarstjórn tekið um 3 milljarða meira af ráðstöfunartekjum heimilanna í Reykjavík en þörf er á. Því lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að útsvar í Reykjavík verði lækkað, undirbúningur að þeirri breytingu hefjist strax og breytingin taki gildi um áramót.

Sú tillaga var eins og áður segir felld af meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar,“ segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.//////////Þetta skoðum við sem höfum borgað í 63 ár til Borgarinnar að enná komin á aldur vel 78-9 ára verum að borga enþá að fullu þessa 5 sem þair vilja hækka þessir andskotans!!sauðir Vinstri manna sem ekkert kunna að stjórna Borginni!!!Æi það er kannski ekki fallegt að segja svona?, og þó það er tilefni til!!!af hverju er ekki hægt að þrepa skipta þessu eða hækka vel þá tölu sem menn fara að borga Útsvar!!! en það er í dag af hverri krónu sem inn kemur!!!þessi framkoma við okkar er alveg forkastanlegt og ég bara vona að þessi pruppulýður sem nú stjórnar Borginni fari frá næst eða við bara breytum lögum og látum,það vera þannig að meirihluti fellur verði kosið uppá nýtt!!!/Halli gamli  


mbl.is Tillaga um útsvarslækkun í Reykjavík felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2012
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband