Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.1.2015 | 17:35
Enginn fulltrúi frá Íslandi//Horfandi almennt á heimsmálin er maður ekkert hissa!!!
Enginn fulltrúi frá Íslandi Innlent | AFP | 11.1.2015 | 13:25 Francois Hollande Frakklandsforseti tekur á móti erlendum...
Búist er við að rúmlega ein milljón manna muni safnast saman á götum Parísar nú þegar samstöðufundur vegna voðaverka vikunnar er að hefjast.
Athygli vekur að forsætisráðherrar allra Norðurlandanna utan Íslands hafa boðað komu sína á fundinn.
Francois Hollande Frakklandsforseti tekur á móti erlendum gestum við upphaf samstöðufundarins, þeirra á meðal Eric Holden dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
AFP Búist er við að rúmlega ein milljón manna muni safnast saman á götum Parísar nú þegar samstöðufundur vegna voðaverka vikunnar er að hefjast.
Mikill viðbúnaður er vegna fundarins og munu tvö þúsund lögreglumenn og á annað þúsund hermanna sjá um öryggisgæslu.
Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa boðað komu sína á fundinn en þeirra á meðal eru Angela Merkel, kanslari Þýskalands, David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels.
Alls verða 34 leiðtogar Evrópuríkja viðstaddir fundinn en athygli vekur að forsætisráðherrar allra Norðurlandanna utan Íslands hafa boðað komu sína.
Þá verður utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, viðstaddur þrátt fyrir viðskiptaþvinganir
ESB gegn Rússlandi og deilur þeirra í millum./////////////Auðvitað eru manslát alltaf sorgleg, og engin á móti því,en þessi ríki þarna eru flest meira og minna sek,á því að kúa aðra og drepa,ef við lesum söguna og við sem höfum lifað allavega seinni heimstyrjöldina og síðan erum nokkuð viss um að þetta eru Krókudílatár ,sem eru þarna á bakvið, nema þeirra nánustu sem misstu sýna,um heinin allan er fólk brytjað niður og milljónir barna látast úr hungri árlega er þetta svo það sem menn eiga bara að syrgja,Frakkar og Bretar og mörg ríki þarna hafa verið að kúa aðrar þjóðir og hirða auðlindir þeirra,Svo við gleymum ekki Þýskalandi nasismans og Stalíns tíma Rússa,nei þetta eru bara smámunir af þessu öllu sem eru að gerst í heiminum í dag/Halli gamli
![]() |
Enginn fulltrúi frá Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nú af afstöðnu verkfalli Lækna kemur öll runnann og við það sama,þetta var vitað ,og allir vissu ,en hvað hvernig verður þessir næstu vetrarmánuðir,þetta er svo að þetta leysir ekki vanda þjóðfélagsins,heldur eikur hann,og það mikið,alveg sama hvernig það er reiknað,Við erum bara höfð að aumingjum að þetta stór hópur þjóðfélagsins skuli ekki ná endum saman um kver mánaðarmót er okkur ekki sæmandi,ræður fyrirmanna þessa þjóðfélags voru um kvað við værum rík í 1-5 sæti í heiminum,af hverju fær ekki þetta ekki framgang ég bara spyr,Sumir af þessum stjórnmálamönnum tala bara tungum tveim og boða styrki i allar áttir,Séralega Utanríkisráðherra Framsóknarmaður,við erum ekki menn með mönnum ef við getum ekki brauðfætt fólk sem,þessar þjóðir B.N.A. og aðrar sem fara um sprengja sundur heilu og hálfu löndin,svo eigum við hér Eyja Norður í hafinni að borga brúsann ,Einnig Kom NATO að betla við yrðum að skaffa pening,svo og var NATO Varnarbandalag en er nú orðið árásarbandalag,Ég segi en og aftur við þessa Alþingismenn okkar voru það ekki gleðileg jól hjá þeim að fara 5 vikna Jólafríin þess að setja lög um lagmarkslaup 265 þus eða hækka skattleysismörkin um helming,þetta er svo ömmulegt að það hálfa væri nóg,en nú kemur að stjórnviskunni eftir nokkra daga þegar Alþingi kemur samana,og samningar allir að verða lausir,Minn flokkur verður heldur betur að skoða hvað er að ske,við verðum að vera sterkir þarna ,en Ekki láta Framsóknarflokkinn komst upp með að gera okkur,að lygurum,og ómerkingum,þetta er okkur mjög alvarlegt mál og tökum á þessu og leiðréttum lægstu launin ekki spurning/Halli gamli
10.1.2015 | 00:28
Blekið þornað af samingum læknavekfalls,og verður ábyggilega samþykt,en um leið runan komin af stað!!!!
Ég bara byrja á að óska læknum til hamingju með með samningin og vona að það gerum við öll,einnig með Eftirásýningu Ríkisstjórnar með loforð um byggingu nýs Spítala og tækjakaup á næstu árum!!Vonum bara að þetta standist!!En það þarf mikið til að þetta snobb verði að veruleika nema í áföngum,og öðrum stað en í Kvosinni,mikilmennska okkar er oft úr hófi fram,það sýnir okkur fortíðin,að byggja nýtt hátæknisjúkrahús er ekki undir 100 milljarðar,og þeir ekki á lausu,en eitt er gott sem þessi sáttmáli segir það er að auka frelsi og að læknar gerðu að lofa mönnum að reka heilsugæsluna sjálfum og einkarkageirin frjáls þar sem ríkið borgar sama og öðrum!!!/Halli gamli
7.1.2015 | 17:28
Ég er sáttur við niðurstöðuna//Þetta er bara rétt að byrja,svo koma allir hinir og vekalýðurin og þeir sem mynst hafa,hvað með þá???
Ég er sáttur við niðurstöðuna Innlent | mbl.is | 7.1.2015 | 15:10 Frá fundarhöldum samninganefndanna hjá Ríkissáttasemjara.
Ég tel það líklegast að samingurinn verði samþykktur.
Samninganefndin hefði auðvitað ekki skrifað undir nema hún teldi meiri líkur en minni að hann verði samþykktur, segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands um nýjan kjarasamning læknasem undirritaður var á fjórða tímanum í nótt.
Þorbjörn telur að samningurinn verið kynntur fyrir félagsmönnum í næstu viku.
Ég er sáttur við niðurstöðuna. Þetta er auðvitað bara fyrsta skrefið sem þarf að taka til að leiðrétta laun og kjör lækna til þess að gera okkur samkeppnishæf við hin Norðurlöndin, segir Þorbjörn. En ég held að þetta sé ágætt skref.
Alls hafa verið haldnir 42 fundir í deilunni hjá Ríkissáttasemjara. Þorbjörn segir það hafa komið sér á óvart hversu langan tíma viðræðurnar tóku og hversu þungar þær voru.
Þetta er auðvitað langur tími.
Málinu var vísað til Ríkissáttasemjara í júní.
Ég held að það hafi verið orðið tímabært að ljúka málinu.
En ég verð líka að segja að það kom mér á óvart hvað þetta er búið að vera þungt, en samningurinn er búinn að vera laus í rúma ellefu mánuði, segir hann.
En ég er bara mjög feginn að þessu sé lokið og núna þarf að byrja að vinda ofan af vandamálunum sem hafa skapast í verkfallinu.
Þingmaður Framsóknarflokksins óttast að nýundirritaður kjarasamningur lækna sé upphaf endalokanna þegar komi að þeim efnahagslega stöðugleika sem ríkt hafi undanfarið ár.
Fleiri stéttir eigi eftir að fylgja á eftir og verðbólgan fara af stað með tilheyrandi hækkun á lánum landsmanna.
Í sjálfu sér má fagna því að samningar skuli hafa náðst í læknadeilunni, enda óþolandi staða gagnvart mörgum sjúklingum.
Tel þó að þessir samningar muni marka upphaf endalokanna hvað varðar þann stöðugleika sem hefur ríkt undanfarið ár.
Fleiri stéttir munu fylgja á eftir, verðbólga fer á stað og lán landsmanna taka ný stökk upp á við.
Við munum sjá gamalkunnugt stef víxlverkunar launahækkana og verðbólgu og það verður almenningur sem situr eftir með sárt ennið.
Það er því best að fara sér hægt í óbærilegri kæti og léttleika, segir Karl Garðarsson,
þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag.////////////////////Þetta er vonandi frá í bili,og ekki lokið það koma margir á eftir,ekki spurning, og það er aðal málið,þetta leysir ekki vanda þessarara ríkisstjórnar,,það eykur hann og Þjóðfélagið mun ekki þola þetta,en svo við bara tökum þetta beint Sjúklinganna vegna eða eru þeir ekki aðalatriðið,og loforðin um lækningu eða bót,, mikils virði,en dyr mundu Hafliði allur eins og sagt var um árið og verður það,bara fyrsta þætti lokið//Halli gamli
![]() |
Ég er sáttur við niðurstöðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2015 | 19:33
Innanríkisráðherra frú Ólöf Norðdal,ættlar að bæta þjóðkirkjunni upp kreppna,og smá lækkun sem veitt var til hennar?????
Jæja þá er kona komin í stað konu í Innanríkisráðuneitinu,og Ólöf Norðdal,tekin við af Hönnu Birnu sem saklausri var hent út að mínu mati enda ekki vært fyrir rausi kommana dag efir dag,en sem betur fer höfum við málfrelsi,og megum segja okkar afstöðu eða það veit flokksystir mín Ólöf Norðdal,þetta í þessum peningaerfiðleikum,er að manni finnst alveg út hött og ekki skinsamlegt þegar vantar pening í heilsugeirans frá A-Ö og allt á niðurleið þar,og víðar af hverju ekki þá alstaðar Íþróttafélög listabraut og hægt að tala um endalaust,nei nú er mælirinn fullur sjálfstæðismenn/Halli gamli
6.1.2015 | 18:55
Fundað áfram í læknadeilunni í dag/Nei það er ekki talað þarna um lífið og dauðan???
Fundað áfram í læknadeilunni í dag Innlent | mbl.is | 6.1.2015 | 12:36 Fundarhöld stóðu yfir hjá ríkissáttasemjara í tíu klukkustundir í gær.
Fundað verður í kjaradeilu lækna og ríkisins klukkan 13 í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara.
Síðasta fundi var slitið á tólfta tímanum í gær, tíu klukkustundum eftir að hann hófst.
Þar sem samningar hafa enn ekki náðst standa verkfallsaðgerðir áfram yfir í dag.
Þetta hefur gengið upp og ofan, getur maður sagt.
Það eru ákveðin atriði sem hafa skýrst og önnur á móti orðið flóknari, sagði Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, síðdegis í gær um gang viðræðna í kjaradeilunni.
Gunnar sagði mörg atriði þegar hafa verið afgreidd en tveir stærstu póstarnir væru eftir launaþátturinn og vinnufyrirkomulagið.
Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninganefndar lækna, tók í sama streng og Gunnar og sagði þónokkuð standa út af en unnið væri hörðum höndum að því að ná saman.
Það er búið að vinna mikla vinnu en það eru mikilvæg mál eftir, sagði Sigurveig. Neyðarmönnun var á aðgerðasviði og flæðissviði Landspítalans í gær.
Leitað var eftir undanþágum fyrir sérhæft starfsfólk í sérstökum tilvikum og fengust þær.
Í dag standa verkfallsaðgerðir yfir á eftirfarandi stofnunum:
Aðgerðasviði Landspítala Flæðissviði Landspítala Sjúkratryggingum Íslands Tryggingastofnun rík-
isins Greiningarstöð ríkisins Heyrnar- og talmeinastöð Íslands Vinnueftirliti ríkisins Lyfja-
stofnun Íslands Embætti landlæknis Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga //////////////////////Að sjálfsögðu vill maður tala um þessa deilu frekar en Lekamálin,sem var bara bomba út af engu!!!En þetta mál er alvarlegt mjög eiginlega það alvarlegasta sem lengi hefur komið uppá,í vinnudeilum,lengi eða bara nokkur tíman,Að skrifa um þetta,er ekki nema von svo alvarlegt er þetta fyrsta Læknaverkfallið á Íslandi,og menn hafa þarna ýmsar skoðanir flestir upphaflega með læknum en núna eftir 5 vikna verkfall, þar sem allt var lokað um tímabil, og er enn að harðna ,og þaul skipulagt, þá fer þetta að vara mikið meiri alvara ,en við bjuggumst við og versnar með degi hverjum,Við tölum um mannvonsku og allt það,og læknaeyðnin en þetta er launabarátta sem í raun við öll gætum staðið í,samanburðurinn samt sá að þeir vilja mikið hærri laun,en almennt gerist á Íslandi bera sig saman við yfirborgaða lækna Erlendis,þetta gætum við einnig gert,en þetta er aldey hægt að hafa svo öllum líki als ekki,þá er að fara bil beggja og við það er unnið,þeir geta fengið nóga vinnu erlendis,og þeir um það,geta bara sagt upp og hætt,það er einnig hótunin,ef við setjum þetta í gerðadóm sem það ætti löngu að vera komið þangað,og reyna að hafa þar skinsamlegar aðferðir,þessir menn eiga skilið góð laun,jafnvel í hæðstu kanti,en þeir komast um það með 20%hækkun og bættri aðstöðu og breyttum vöktum,svo þegar búið er að jafna þá sem hafa dregist afturúr þá bara krónutöluhækkun,ekki %///En við bara vonum það besta allra vegna þjóðarhagur bíður þessa/Halli gamli
![]() |
Fundað áfram í læknadeilunni í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2015 | 12:58
Manni er legið á hálsi fyrir að skifa um það sem betur mætti fara,og sagður fara með fleipur!!!!
Þetta er bara svona þessi, Fésabók er þörf að hafa til að fólk geti sagt sínar meiningar,Ég var að svara þessu í gær frá sjónarhólki mínu um þetta læknaverkfall,og sagt að þessi orð mín um að Læknar væru með Sjúklingana í Gíslingu,og sagt að þarna fari ég með fleipur,skoðum málin,ég er ekki að áfellast blessaða Læknana eða annað starfsfólk spítalanum,en auðvitað dettur mann í huga að þetta verkfall sé sett á af illa íhugðu máli,vitandi að þessar kröfur þeirra eru út í hött,það sem boðið hefur verið eru rúm 20% og svo alskonar breytinar á vöktum og fjölskyldulífi,og það er bara sjáfsagt,hjá öllum sem þarna vinna hjúkurnarfólk allt,En það sem sá góði maður Guðm.Karl skrifaði um mig 81 árs gamlan með miklla reynslu að spítölum og Heilsugæsklu,g hrósa því alltaf í hástert,og ég vissi ekkert hvað ég væri að tala um,ég segji aftur og enn,hvað er um þjóðarhag,það er það sem ég er að hugsa um,hann þolir ekki þessa hækkun sem læknar vildu,eða tölunar 40-50% hækkun.þetta er að hugsa um þjóðarhag að fara ekki út í svona vitleysu,en við skulum bara vona að þessir samningar takist á morgunn,svo allt fari ekki á hvolf,Tek ekki til bara þau orð mín að það eru sjúklingar í Gíslingu á spítölunum,meðan ekki semst// Halli gamli
Skoðar eðli sóknargjalda Innlent | mbl| 5.1.2015 | 21:04 Vafi hefur leikið á því hvort sóknargjöld séu í raun... Skiptar skoðanir hafa verið um eðli sóknargjalda sem ríkið greiðir til trú- og lífsskoðunarfélaga, hvort þau séu félagsgjöld eða beint framlag ríkisins.
Nú er unnið að því á vegum innanríkisráðuneytisins að skýra hvernig beri að líta á sóknargjöldin, að sögn Ólafar Nordal, innanríkisráðherra.
Sóknargjöld voru upphaflega innheimt af sóknarnefndum kirkjunnar en árið 1987 tók ríkið yfir innheimtu þeirra.
Samkvæmt lögum um sóknargjöld útdeilir ríkið hlutdeild af tekjuskatti til trú- og lífsskoðunarfélaga.
Fjárhæðin nemur nú 810 krónum á mánuði fyrir hvern einstakling en var 750 krónur á síðasta ári.
Hækkunin tók mið af niðurstöðu starfshóps innanríkisráðherra sem taldi að sóknargjald hafi verið skert meira en framlög til annarra stofnana sem heyra undir ráðuneytið í niðurskurði í kjölfar efnahagshrunsins.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra á Alþingi. Ólöf Nordal innanríkisráðherra á Alþingi. mbl.is/Ó​mar Á reiki hefur verið hvernig beri að líta á sóknargjöldin formlega.
Fulltrúar þjóðkirkjunnar telja þau vera félagsgjald sem ríkið sjái um að innheimta samhliða tekjuskatti.
Forseti kirkjuþings gagnrýndi meðal annars í byrjun nóvember að fulltrúar kirkjunnar þyrftu að standa í rökræðum við fulltrúa ríkisvaldsins um þetta atriði.
Aðrir hafa hins vegar bent á að sóknargjöld séu í raun aðeins beint framlag ríkisins til trú- og lífsskoðunarfélaga enda greiði allir sömu skattprósentuna, óháð því hvort þeir tilheyra slíkum félögum eða ekki.
Séu sóknargjöld í raun félagsgjöld sem ríkið sjái aðeins um að innheimta feli það í sér að þeir sem standa utan félaga greiði hærri skatt en þeir sem tilheyra þeim.
Á að skila tillögum í þessum mánuði Það er alltaf þessi spurning hvort þetta séu sameiginlegir peningar sem fara í sameiginlega sjóði og eru svo færðir út aftur eða hvort það sé þannig eins og margir vilja meina að þetta sé algerlega eyrnamerkt og það megi ekki snerta það, segir Ólöf um sóknargjöldin.
Því hefur hún hefur fengið Sigurð Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda, til að fara yfir fjárhagslegt samsband ríkis og kirkju.
Hann mun meðal annars fara yfir hvernig hægt verði að koma til móts við þjóðkirkjuna á grundvelli niðurstöðu starfshóp innanríkisráðherra en einnig skoða sérstaklega hvernig beri að líta á sóknargjöldin formlega.
Sjálf vill Ólöf ekki taka beina afstöðu til þess hvort líta beri á sóknargjöld sem félagsgjöld eða bein framlög ríkisins fyrr en hún hefur fastara land undir fótum.
Þetta er það grundvallaratriði sem ég er að horfa á núna.
Fyrir utan umræðuna um niðurskurðinn er ég að líta til þess hvernig eigi að líta á sóknargjöldin og er að láta skoða það sérstaklega, segir hún.
Brýnt sé að þessi skoðun gangi hratt fyrir sig svo hægt sé að vinna málið áfram.
Því hefur ráðuneytið óskað eftir því að Sigurður skili tillögum sínum í þessum mánuði.
Fyrri frétt mbl.is: Telja sóknargjöld vera félagsgjöld//////////////Þetta á ekki að vara umdeilt mál,það er trúfrelsi í landinu og söfnuðir þurfa að lifa,þetta með þjóðkirkjuna er að að falla um sig sjálft,Komið með þessa reikninga sem samið vara um um jarðeignir og Kirkjur ríkiskirkjunnar,ég hefi stundað Kristinni það er að segja í Fríkirkjunni frá öndverðu en varð svo einn af stofendum Ó.H. S. í Reykjavík,og hefið verið það síðan 1949 við byggðum kirkjuna að mestu með sjálfboðavinnu,og eru félagar nú 3312- Prestur er Pétur þorsteinsson mikill Guðsmaður en humonysti mikill í 3/4 starfi!!! og Organleikari og kórstjóri Arni Heiðar Karlsson mjög hæfur maður,en þetta er bara dæmi um hvernig á að reka kirkjur,þetta svo þjóðkirkjumanna er ekki trúverðugt nema að byrta okkur þessa reikninga og samningin í heild,Ég veit að það er erfitt að hafa þetta form á lansdsbyggðini en það verður bara að hafa Stærðina meiri eins og með læknaþjónustu,Frú Ólöf Nordal þarf ekki að hugsa fyrir okkur um hvað Sólknargjöld eru,þau eru einfaldlega til að halda kirkju prest og kór,aftur af þessum peningum sem samið var um Birtið reikningana og hafið þá rétta og svo hvað þeir eiga inni,okkur vantar peninga, Klárum þetta og einnig með landbúnaðinn,og aðrar styrkingar að mestu meðan við komum okkur upp alvöru Landspítala með öllum tækjum og staðsettan ekki í Kvosinni,þetta er nauðsyn/Halli gamli
![]() |
Skoðar eðli sóknargjalda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Áhyggjur af lifibrauði bakara Viðskipti | mbl | 5.1.2015 | 15:26 Á síðasta ári voru 1.800 tonn af brauði flutt inn til landsins. Samþjöppun hefur orðið á bakkelsismarkaðnum og hafa bakaríin færst á færri hendur.
Þá hefur bökurum jafnframt fækkað og sífellt meira er flutt inn af brauði.
Þetta er nákvæmlega sama þróun og á Norðurlöndunum að sögn framkvæmdastjóra Landssambands bakarameistara.
Fækkað um 13 Skráðum félagsmönnum í Landssambandinu hefur fækkað nokkuð á liðnum árum. Í desember 2014 voru þeir 29 talsins en í lok árs 2001 voru þeir 42.
Þá voru þeir 39 í lok árs 2003. Fjöldi bakarísbúða innan félagsins hefur hins vegar verið nokkuð stöðugur í kringum sextíu og sýnir það að samþjöppun hefur orðið í greininni.
Þetta er nákvæmlega sama þróun og í nágrannalöndum okkar, bæði á Norðurlöndum og í Þýskalandi.
Rósa Braga Fyrirtækjum fækkar en þau stækka og sama þróun á sér stað í öðrum greinum, segir Ragnheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra bakarameistara og bendir til dæmis á Kornið, sem hefur verið að kaupa upp minni bakarí og er nú orðið stærsta bakarí landsins og rekur 12 bakarí sem þjónusta yfir 200 fyrirtæki.
Þá bendir hún á Lagkagehuset í Danmörku til samanburðar, sem sífellt fjölgar útibúum sínum. Brauðbarir eru þá einnig komnir í flesta stórmarkaði og innflutningur á brauði eykst með hverju ári en á síðasta ári voru um 1,800 tonn af brauði flutt inn til landsins.
Jafnvægi milli stórmarkaða og sérverslana Hún telur þó ekki tilefni til að ætla að bakarí líkt og við þekkjum þau í dag muni leggjast af líkt og mjólkurbúðirnar forðum daga.
Ég held frekar að það muni nást einhvers konar jafnvægi milli stórra matvöruverslana, s.s. lágvöruverðsverslana, og sérverslana með meiri þjónustu og vörur af tilteknum gæðum og uppruna, segir Ragnheiður Jón Albert Kristinsson, formaður Landssambands bakarameistara, telur þá einnig að bakaríin muni halda velli í framtíðinni.
Hann segist þó vissulega hafa áhyggjur af fækkun í stéttinni. Þetta er okkar lifibrauð og auðvitað hefur maður alltaf áhyggjur af því.
En ég lifi í voninni og tel að jafnvægi náist að lokum, segir hann.
Það munar alltaf ansi mikið þegar eina bakaríið hverfur úr byggðarlaginu, segir hann þó og bætir við að það hafi aðeins verið að gerast.
En ég hef ekki trú á því að bakaríin deyi út, segir Jón Albert.///////////////Svona er þetta í dag því miður segi ég hiklaust,og að þessu skal huga ,þetta er og verður,ef ekki ef átekið,þessi brauð sem flutt eru inn eru ekkert betri en Brauðkaup okkar í Bandarnaríkjunum,þau eru fábær það gera smá rotvarnarefni,þar er allur grófleiki og venjuleg ending á brauði án Ísskáps eru okkar aðall ,af hverju má ekki gera þetta hér,auðvitað græða bakarar á að þau eldist fljótt!!!Nú bíðum við eftir að bakarar lækki sætabrauðum sykurinn lækkaði um helming,en í öllum Bænum takið ykkur á, bakið brauð sem endist,án þess að mygla/Halli gamli
![]() |
Áhyggjur af lifibrauði bakara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Klappir kaupa lóðina að Hafnarstræti 80 Viðskipti | mbl.is | 5.1.2015 | 15:40 Lóðin að Hafnarstræti 80 á Akureyri.
Fasteignafélagið Klappir sem er dótturfélag KEA hefur keypt allt hlutafé í Norðurbrú ehf.
en það félag á lóðina að Hafnarstræti 80 á Akureyri.Norðurbrú sem hefur verið í meirihlutaeigu fjárfesta af höfuðborgarsvæðinu hefur um nokkurt skeið haft uppi áform um að reisa rúmlega 100 herbergja hótel á áðurnefndri lóð.
Þetta kemur fram á heimasíðu KEA. Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA segir í fréttinni að áform Norðurbrúar verði óbreytt, þ.e.a.s. stefnt er að uppbyggingu 100 herbergja heilsárshótels á Umferðarmiðstöðvarreitnum svokallaða.
Dótturfélag KEA hefur nú tekið við keflinu af fyrri eigendum sem hefur gengið erfiðlega að fullfjármagna uppbyggingaráformin, segir í fréttinni og ennfremur segir: Það ætti ekki að vera hindrun hvað KEA varðar, þ.e.a.s að leggja tilheyrandi eigið fé til verkefnisins ef af því verður.
Halldór telur að áframhaldandi vöxtur ferðaþjónustunnar kalli á aukið framboð gistirýmis á Akureyri á næstu árum og því þurfi að mæta.
Þetta er mjög vel staðsett lóð með frábæru útsýni og hentar því vel fyrir ferðamannatengda starfsemi.
Við kortleggjum betur þessi áform næstu vikurnar og snemma í vor ætti að liggja fyrir endanleg
ákvörðun um verkefnið en ætla má að heildarfjárfesting í fullbúnu hóteli af þessari stærð geti
numið 1,5-1,7 milljarði króna./////////////////////////Nú er hún gamla Grýla Dauð segir sagan en gamla SÍS hefur aldrei dáið, og það er alltaf að koma og kaupa upp og Framsókn komin í feitt einu sinni ennþá,og mun færasig upp á að eignast og byggja Hótel,við sem vorum í Samvinnutryggingum áttum stóra sjóði uppá milljarð,en það hvarf í höndum frammámanna þeirra!!!!/Halli gamli
![]() |
Klappir kaupa lóðina að Hafnarstræti 80 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 1047531
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar