Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
20.9.2012 | 16:32
Óvissuþættir í kostnaði nýs spítala///Þetta fólk er ekki hæft til að ákvarða þessar fjárhæðir als ekki!!!
Óvissuþættir í kostnaði nýs spítala Innlent | mbl.is | 20.9.2012 | 12:21 Mun nýr Landspítali, verði hann byggður, kosta þjóðina 45 milljarða eða 145 milljarða? Það virðist ekki liggja fyrir með vissu, ef marka má umræður á fundi sem fram fór í morgun undir titlinum Þjóðin byggir spítala - Feilspor eða fjárfesting til framtíðar?
Til fundarins boðuðu Samtök verslunar og þjónustu og Samtök heilbrigðisfyrirtækja og sátu þingmenn allra flokka í pallborði en frummælendur voru þær Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, og María Heimisdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala.
Þær Katrín og María vörpuðu fram tölum yfir hugsanlegt umfang þeirra framkvæmda sem núverandi áætlanir um nýjan Landspítala hefðu í för með sér og má segja að afar ólíkar myndir hafi verið dregnar upp í erindum þeirra.
Fjölmennt var á fundinum um Nýjan Landspítala í morgun. mbl.is/Golli Óvissa um fjármögnun Stefnt er að því að nýr Landspítali verði reistur við Hringbraut. Reykjavíkurborg og Alþingi hafa ekki gefið endanlegt samþykki sitt fyrir deiliskipulagi og framkvæmd og enn ríkir óvissa um hvernig fjármögnun og útboði á byggingunni verður háttað, en í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013 kemur fram að gert sé ráð fyrir 45 milljarða framkvæmdakostnaði við fyrsta áfanga.
Katrín Ólafsdóttir sagði í erindi sínu ljóst að kostnaður við gerð nýs Landspítala verði aldrei 45 milljarðar króna. Benti hún á að þegar tekinn væri með kostnaður við endurnýjun húsnæðis (11 milljarðar) og tækjakostar (7 milljarðar) yrði heildarkostnaður við fyrsta áfanga nýs spítala 63 milljarðar króna. Að því gefnu að annar áfangi verði byggður, en ekki er víst að af því verði nokkurn tíma, bætist a.m.k. 30 milljarðar við og nýr spítali komi því til með að kosta a.m.k. 93 milljarða áður en yfir lýkur. Vinningstillaga SPITAL, módelmynd af 1. áfanga Nýs Landspítala við Hringbraut. Ljósmynd/Hreinn Magnússon 4 af 5 verkefnum fram úr kostnaðaráætlun Þetta er þó varlega áætlað að sögn Katrínar, og mögulega vanmat.
Hún benti á að í ljósi sögunnar sé reynslan sú að 4 af hverjum 5 opinberum verkefnum fari fram úr kostnaðaráætlun, að jafnaði um 45%. Katrín lék sér aðeins með þessar tölur og sagði að ef eins færi með Landspítalann og flestar opinberar framkvæmdir síðustu ára þá verði heildarkostnaður við fyrsta áfanga ekki 63 milljarðar, heldur 91 milljarður og þegar annar áfangi bætist við verði endanlegur kostnaður 135 milljarður króna.
Í ljósi þess að nýr Landspítali verði á endanum fjármagnaður með skattgreiðslum almennings sagði Katrín að heildarkostnaður þyrfti að liggja ljós fyrir áður en farið væri af stað, með mögulegum frávikum og mismunandi sviðsmyndum. Óvissukostnaður innifalinn María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans, gagnrýndi þennan málflutning Katrínar.
Hún sagði að horfa þyrfti fyrst og fremst til fyrsta áfanga, því heildarbyggingarmagn sem gert væri ráð fyrir risi ekki fyrr en hugsanlega í fjarlægðri framtíð. María sagði að núverandi kostnaðaráætlun fæli að sjálfsögðu í sér óvissukostnað, 15% og benti jafnframt á að tækin þurfi að endurnýja óháð nýbyggingu. Það gleymist stundum að það eru tveir kostir í stöðunni eins og alltaf í lífinu. Við getum kosið að hrökkva, eða stökkva, sagði María.
Annar kosturinn væri sá að byggja ekki nýtt en vinna áfram í núverandi húsnæði með viðhaldi og endurbyggingum. Hin leiðin væri nýbygging sem væri forsenda fyrir þróun við þjónustu sjúklinganna. Ekki hægt að spara meira í gömlu húsunum María benti á að á 5 ára tímabili hefði verið hagrætt fyrir 32 milljarða á Landspítalanum.
Þá er vona að menn spyrji hvort hægt sé að spara meira? Nei, það er ekki hægt nema með því að fara í nýtt hús, sagði María. Hún taldi upp ýmsar ástæður fyrir nauðsyn nýs sjúkrahús og nefndi m.a. á fjölgun aldraðra og aukningu krónískra sjúkdóma.
Eins sagði hún að ekki væri hægt að kaupa sum ný tæki vegna þess að burðarþol, lofthæð og lagnir gömlu húsanna bjóði ekki upp á það. Hún sagði jafnframt að nýtt húsnæði muni draga úr mannaflaþörf og áhættu. María lagði áherslu á að ekki ætti að byggja ákvörðunina á getgátum. Notum gögn og staðreyndir og þá er niðurstaðan augljós og aðeins ein, sú að þjóðin reisi nýjan spítala við Hringbraut. Nokkrar umræður spunnust eftir framsögurnar. Þingmenn sem sátu pallborðið lögðu allir áherslu á að skoða þyrfti málið vel og taka upplýsta ákvörðun.
Stefán Matthíasson, formaður Samtaka heilbrigðisfyrirtækja, var meðal þeirra sem tóku til máls úr sal. Hér er um slíka framkvæmd að ræða á landsgrundvelli að ef ekki tekst vel til mun hún hafa gríðarleg áhrif langt út fyrir landamæri spítalans, sagði Stefán og sagði óvissuþættina í enn mikla.///////Þetta er álvörumál og þarf að taka allt upp aftur ekki spurning,þessi tillaga er frá uppganstímabilinu!!!,þegar nógir peningar áttu að vera til!!!!allt þarf skoðunar og endurvinnslu,við höfum ekki nema takmarkaða peninga og þessa vegna verður að minka þessa byggingu,og Byggja bara um helming af henni og klára uppá nokkrar hæðir og Taka svo eldri spítalaní gegn og styrkja og og kaupa tæki sem vantar en verða flutt svo plásið er alveg nóg á lóðinni eins og hún er bilastæði yrðu þá þar sem tanngarður er núna,þetta er að segja ef ekki á að fara með spítalan annað???Nokkra hæðir þarna gera ekkert ógagn vegna flugs eða annars,þessu má öllu finna stað og kostnaður svona helmingur af þessu sem er talað um,ég er viss um að læknar og sjúklingar vilja skoða þetta,eða er þetta ekki fyrir sjúlkinga????!!!!/Halli gamli
![]() |
Óvissuþættir í kostnaði nýs spítala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2012 | 12:08
Jóhanna dragi til baka eða skýri ummæli sín///Mál til komið að hún segi sannleikan!!!!
Jóhanna dragi til baka eða skýri ummæli sín Innlent | mbl.is | 20.9.2012 | 11:35 Það er ekki við hæfi að forsætisráðherra fari fram með slíkum hótunum á grundvelli þess að henni líki ekki ummæli forseta Alþýðusambands Íslands og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Það er mjög mikilvægt að forsætisráðherra dragi þessi ummæli sín til baka eða skýri þau, þau geta ekki staðið svona óbreytt.
Þetta segir Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is en hann gagnrýndi harðlega á Alþingi í dag ummæli sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, lét falla í umræðum í þinginu í morgun þess efnis að skoða þyrfti alvarlega með að draga úr aðkomu stjórnvalda að gerð kjarasamninga í ljósi gagnrýni forystumanna aðila vinnumarkaðarins á stjórnvöld.
Forystumenn á vinnumarkaði hafa sagt að það hrikti mjög í forsendum kjarasamninga og það skiptir miklu fyrir efnahag Íslands að það komi ekki til deilna á vinnumarkaði.
Ef ríkið vill draga úr aðkomu sinni að kjarasamningum þá verður það að gerast á málefnalegum forsendum en ekki í einhverju reiðikasti sem viðbrögð við réttmætri gagnrýni forystumanna vinnumarkaðarins, segir hann. Illugi fór fram á það að sérstök umræða færi fram um málið á Alþingi og sagði sitjandi forseti Alþingis, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, að það yrði tekið til skoðunar.////////Svör bæði Jóhönnu og einnig, Forseta alþingis útúrsnúningur einn,þetta á ekki að líða í dag allarf verið að tala um bætt Alþigingi,en þessu virðist forboðið af Forseta alþingis og Forsætisráðherra!! Jóhanna Forsætisráðherra kemst upp með að segja ekki sannleiknað skipti eftir skipti,ert von að við sem áhorfum hneikslist og auðvitað stjórnaanstaðan einnig,ÍIlugu bar fram réttláta spurningu en Jóhanna sagði enga ástæðu til að leiðrétta,ummæli sin þo svo lýgi væru að mati okkar allra ekki bara Illuga heldur er hún bara að verða elliær og kemst upp með allt,þetta er okkur Þingheimi til skammar!!!/Halli gamli
![]() |
Dragi til baka eða skýri ummælin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2012 | 22:12
SA: Ekki færri störf frá 2005///Öfugmæli Forsætisráðherra ekki ný að nálini,hún hlýtur að vera farin að gleyma!!
SA: Ekki færri störf frá 2005 Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 19:40 Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar fyrir ágúst síðastliðinn eru ekki uppörvandi að mati Samtaka atvinnulífsins.
Fækkun íbúa á vinnualdri er áætluð 600 miðað við ágúst 2011 og vinnuaflsframboð landsmanna er talið hafa minnkað um 2.500. Sú fækkun skýrist annars vegar af fólksfækkuninni og fjölgun um 1.900 í hópi þeirra sem standa utan vinnumarkaðarins.
Störfum fækkaði um 1.600 en þrátt fyrir það fækkar atvinnulausum um 900 vegna fjölgunar þeirra sem standa utan vinnumarkaðar. Þetta kemur fram í frétt á vef samtakanna.
Í frétt SA segir að þegar litið sé lengra aftur í tímann komi í ljós að störf í ágúst hafa ekki verið færri síðan árið 2005. Loks hefur meðalvinnutími á viku styst um tæplega eina klukkustund.
Fækkun starfandi fólks og stytting vinnutíma samanvegin leiðir til þeirrar niðurstöðu að unnum heildarvinnustundum hafi fækkað um 5% í ágúst miðað við sama tíma í fyrra. Svipuð mynd kemur í ljós þegar litið er á niðurstöður rannsóknarinnar um þróunina innan þessa árs.
Árstíðaleiðréttar tölur sýna að íbúum á vinnualdri hafi fækkað um 4.200 milli janúar og ágúst og að vinnuaflsframboð landsmanna hafi minnkað um 3.600 manns. Á sama tíma hafi starfandi fólki fækkað um 3.200 og vinnutími styst um eina klukkustund
. Fækkun starfandi og stytting vinnutíma samanvegin sýnir að unnum heildarvinnustundum í landinu hafi fækkað um 4,3% frá ársbyrjun.
Fjöldi atvinnulausra er svipaður sem og hlutfallslegt atvinnuleysi, eða 6,4% í ársbyrjun og 6,3% í ágúst, segir í frétt Samtaka atvinnulífsins.////////Þetta getur ekki verið annað en Jóhanna Forsætisráðherra sé farin að gleyma mikið enda að verða 70 ára blessunin!! en svona er ekki gott að halda fram fyrir alþjóð: öfugum tölum og hlutum dag eftir dag!!!Ég mun ekki trúa þvi fyrr en tekið er á að hún ættli fram í framboð aftur,ekki það að hún sé svo gömul en þegar fólki er farið að gera svona hluti,er það komin tími til að hvíla sig,enda á hún það skilið og lífeyrirn er sko nógur/Halli gamli
![]() |
SA: Ekki færri störf frá 2005 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2012 | 21:29
Röskva: Kostnaðarsamt að dreifa greiðslum/Er farið að líta á þetta skólafólk :sem Öryrkja og Eldri Borgara!!!
Röskva: Kostnaðarsamt að dreifa greiðslum Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 19:33 Í ljósi svars Strætó bs. vill Röskva benda á að þrátt fyrir að sá möguleiki sé fyrir hendi að dreifa greiðslum fyrir strætókort á 12 mánuði á kreditkort fylgir þeim kosti talsverður aukakostnaður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Röskvu. Greiðsludreifingarvextir og lántökugjald fyrir dreifingu samkvæmt vefsíðu Borgun ehf. eru yfir 6000 kr. og því er ljóst að kortið hækkar í tæplega 45.000 kr. í stað 38.500 kr., segir í tilkynningu Röskvu.
Þetta er því enn meiri hækkun á verði kortsins. Því væri æskilegt að hægt væri að dreifa greiðslum með öðrum leiðum, þar sem vextir og önnur gjöld hækka verð kortsins ekki enn frekar.
Röskva vill einnig benda á það að greiðsludreifing er aðeins möguleiki fyrir þá nemendur sem eiga kreditkort, en það eiga alls ekki allir nemendur HÍ kreditkort.
Röskva fagnar því að í framtíðinni verði hægt að dreifa greiðslum á debetkort en samkvæmt yfirlýsingu Strætó bs. stendur það til bóta síðar. Þrátt fyrir fyrirhugaðar bætur á greiðsludreifingunni er staðan ekki nógu góð í dag, því margir stúdentar sem stunda nám núna eru í vandræðum.
Því hvetur Röskva Strætó bs. til að hraða þeirri vinnu og að bjóða uppá þessa þjónustu, án aukagjalda, segir í tilkynningunni./////////Maður getur ekki séð að þetta fólk geti bara borgað eins og aðrir,hvað gerir Lín það ætur þetta fólk borga vexti á namslánin,og því ekki þarna af lánum,maður hefur oft verið að undra á öllum bílaflotunum fyrir utan Hákskóla og framhaldskóla!!!!,er nokkur verra fyrir þetta fólk að borga í strætó maður bara spyr,og við eldri borgara og öryrkjar verðum að borga bara aðein mynna!!!!/Halli gamli
![]() |
Röskva: Kostnaðarsamt að dreifa greiðslum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2012 | 21:19
Ágeng fíkniefnasala á Facebook//Hvernig með dulnöfnum eða hvað???
![]() |
Ágeng fíkniefnasala á Facebook |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gunnar talinn sigurstranglegur Veröld/Fólk | mbl.is | 19.9.2012 | 15:56 Veðmálasíðan Betsson hefur gefið út stuðla varðandi bardaga Gunnars Nelson við Bandaríkjamanninn DeMarques Johnson, sem fram fer í Nottingham þann 29. þessa mánaðar.
Þrátt fyrir að þetta sé fyrsti UFC bardagi Gunnars er hann talinn sigurstranglegur. því á Betsson fær hann stuðulinn 1.55 gegn 2.45 stuðlum á DeMarques. Veðmálasérfræðingar Betsson virðast því hafa tröllatrú á Akureyringnum knáa því DeMarques er að keppa sinn tólfta UFC bardaga og er þar af með sjö sigra á bakinu.
Upphaflega stóð til að Gunnar myndi keppa við Þjóðverjann Pascal Krauss sem varð að segja sig frá bardaganum vegna meiðsla en Betsson spáði Gunnari einnig sigri í þeim bardaga sem nú er ljóst að ekki fer fram í bráð.
Þrátt fyrir spá Betsson verður viðureign Gunnars engin barnaleikur því DeMarques mun vera mikill reynslubolti í hringnum og er með alls 30 bardaga í blönduðum bardagaíþróttum á ferilskránni, en hann hefur farið með sigur af hólmi í 19 þeirra.///////////Við eigum þarna mjög svo sigurstranglegan mann Gunnars,sem við veðjum á að vinni þetta ekki spurning um það,og þar með Gunnar okkar ósigraður/Halli gamli
![]() |
Gunnar talinn sigurstranglegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2012 | 19:01
Trúnaðarbresturinn er staðreynd///hræðslan leitar sátta!!mér finns þetta ófyrirgefnlegt!!!
Trúnaðarbresturinn er staðreynd Innlent | mbl | 19.9.2012 | 17:40 Eins og þetta horfir við mér þá snerist málið um þann trúnaðarbrest sem varð milli forstjórans og hjúkrunarfræðinga og það að launahækkunin gangi til baka, það lagar ekki þennan trúnaðarbrest, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga um þá ákvörðun Björns Zoëga að afþakka launahækkun.
Eins og þetta horfir við mér þá snerist málið um þann trúnaðarbrest sem varð milli forstjórans og hjúkrunarfræðinga og það að launahækkunin gangi til baka, það lagar ekki þennan trúnaðarbrest, segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga.
Plástur á sárið en lagar ekki meinið Björn Zoëga forstjóri Landspítalans hefur ákveðið að afþakka launahækkun um 450 þúsund krónur á mánuði sem Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra bauð honum í ágúst.
Tvær vikur eru liðnar síðan fyrstu fregnir spurðust út af launahækkuninni og hefur magnast upp vaxandi óánægja meðal starfsfólks spítalans. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Mbl.is/Golli Ég held að menn séu því miður að bregðast við of seint. Hugsanlega er þetta plástur á sárið hjá einhverjum, en það lagar ekki meinið og ég tel að þetta bæti ekki það ástand sem hefur skapast, segir Elsa. Ef þetta hefði komið strax þá hugsanlega hefði málið ekki orðið eins alvarlegt og raun ber vitni.
En þegar líður hálfur mánuður og bæði ráðherra og forstjóri eru búnir að koma fram og réttlæta þessa aðgerð og færa fyrir henni rök í fjölmiðlum, þá er að mínu mati orðið of seint að bæta þann skaða sem orðið hefur. Trúnaðarbresturinn er staðreynd. Unna forstjóranum samkeppnishæfra launa Elsa bendir á að hjúkrunarfræðingar hafi ekki krafist þess að launahækkunin yrði dregin til baka.
Staðreyndin sé sú að erfitt sé að starfa þar sem rof hafi orðið á trausti milli stjórnenda og starfsfólks. Ég held að hjúkrunarfræðingar geti alveg unnt Birni Zoëga þess að vera með há laun og samkeppnishæf við aðra forstjóra hér á Íslandi og erlendis. Því það er auðvitað það sem við viljum líka fyrir okkar fólk.
Ég út af fyrir mig fagna því bara að reynt sé að hafa forstjóra þessarar stóru stofnunar á viðlíka launum og tíðkast á almennum markaði og erlendis. Það á bara við um svo marga, og það breytist ekki. Slá ekki af sínum kröfum Samningafundur verður vegna stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga í næstu viku, föstudaginn 28. september.
Hjúkrunarfræðingar afhentu samninganefndunum í gær ályktum með kröfum um bætt kjör, þar sem m.a. var farið fram á 90 þúsund króna launahækkun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga.
Aðspurð segist Elsa ekki getað svarað því hvernig aðgerðarhópur hjúkrunarfræðinga, sem setti kröfurnar fram, muni bregðast við. En frá mínum bæjardyrum séð þá höldum við okkar striki við gerð stofnanasamnings og gerum auðvitað kröfur um kjarabætur fyrir hönd hjúkrunarfræðinga. Björn afþakkar launahækkunina///////////Þetta má er ekki búið svo auðveldlega!!!sérstaklega Ráðherra sem á að segja af sér,sennilega Forstjórin og læknirin einnig!!Málið er há alvarlegt og stendur í raun ennþá!!Fólkið sem samtaka allt hefur sparað mikið fé,með ofurvinnu og hagræðingu,og fær svo svona svífirðigu fyrir er ekki sátt sem þessar aðferðir þessar manna hafa skapað,máið erí bistöðu!!!//Halli gamli
![]() |
Trúnaðarbresturinn er staðreynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2012 | 12:04
Segir ESB tapa sama hvernig málið fari////Blöndalin kann þetta vel!!!!
Segir ESB tapa sama hvernig málið fari Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 9:41 Sama hvernig dæmt verður í Icesave-málinu þá mun Evrópusambandið alltaf tapa.
Þetta segir Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni en munnlegur málflutningur fór fram í Icesave-málinu fyrir EFTA-dómstólnum í gær.
Ef við verðum dæmd er ríkisábyrgð á innstæðum í ESB og er ekki á bætandi varðandi lánshæfismat og ábyrgðir.
Margnefnd mismunun getur varla átt við því íslenskir sparifjáreigendur töpuðu miklu vegna verðminni krónu á meðan Icesave eigendur fengu allt sitt greitt í evrum og pundum, segir hann.
Pétur segir að staðan sé að sama skapi slæmt fyrir ESB ef Ísland vinnur málið.
Ef við vinnum vakna spurningar um hvort þetta innstæðukerfi tryggi nokkurn skapaðan hlut. Það gæti vakið ugg hjá sparifjáreigendum í ESB og þar er stjórnmálamönnum ekki alveg sama um þann hóp fólks.
////Já sko Bétur Blöndal kann, að koma orðum af staðreyndum ekki spurning,þetta er bara traustvekjandi að lesa og mikið til í þessu!! aftur er einkennilegt að Steingrímur og Jóhanna og c/o skuli sleppa við að ættla ð koma okkur í skuldafen sem engu var líkt,og ekki látin sæta ábyrgð,þau ættu í raun bæði að sitja i fangelsi!!!En ég segi það blákalt að ef Pétur Blöndal ættlar ekki að bjóða sig fram fyrir flokkinn okkar,er það skarð fyrir skyldi,ekki spurning,ég skora á hann ef hann getur að halda áfram/Halli gamli
![]() |
Segir ESB tapa sama hvernig málið fari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2012 | 11:48
Eldsneytisverð lækkar////Þetta flott og kemur ser vel,annars er maður hissa að keyra um bæjin sinn allt fuld af bílum allan dagin>!!!
Eldsneytisverð lækkar Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 10:18 Skeljungur og Atlantsolía hafa ákveðið að lækka verð á eldsneyti um tvær krónur
. Er þetta gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. Eldsneytisverð lækkar Innlent | mbl.is | 19.9.2012 | 10:18 Skeljungur og Atlantsolía hafa ákveðið að lækka verð á eldsneyti um tvær krónur.
Er þetta gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. GSMbensín er verðkönnunarþjónusta fyrir bensín- og olíuverð. Upplýsingum um verð olíufélaganna er aflað reglulega og stöðvarnar birtar í hækkandi röð.
Höfuðborgarsvæðið 95 oktDísel Félag Stöð Verð Orkan Klettagarðar 257.10 Orkan Dalvegur 257.10 Orkan Eiðistorg 257.10 Orkan Gylfaflöt 257.10 Orkan Hraunbær 257.10 Orkan Kænan 257.10 Orkan Miklabraut, suður 257.10 Orkan Miklabraut norður 257.10 Orkan Reykjavíkurvegur 257.10 Orkan Skemmuvegur 257.10 Orkan Skógarhlíð 257.10 Orkan Spöngin 257.10 Orkan Suðurströnd 257.10
Atlantsolía Kaplakriki 257.20 Atlantsolía Hafnarfjarðarhöfn 257.20 Atlantsolía Búðarkór 257.20 Atlantsolía Kópavogsbraut 257.20 Atlantsolía Skemmuvegur 257.20 Atlantsolía Mosfellsbær 257.20 Atlantsolía Bíldshöfði 257.20 Atlantsolía Öskjuhlíð 257.20 Atlantsolía Skeifan 257.20 Atlantsolía Skúlagata 257.20 Atlantsolía Sprengisandur 257.20
ÓB Arnarsmári 259.20 ÓB Bæjarlind 259.20 ÓB Barðastaðir 259.20 ÓB Bíldshöfði 259.20 ÓB Fjarðarkaup 259.20 ÓB Grafarholt 259.20 ÓB Melabraut 259.20 ÓB Nýja sendib. 259.20 ÓB Snorrabraut 259.20 ÓB Starengi 259.20 ÓB Suðurhella 259.20 N1 Algengt 259.40 Olís Algengt 259.40 Shell Algengt 259.60 Félag Stöð Verð Orkan Klettagarðar 260.30 Orkan Dalvegur 260.30 Orkan Eiðistorg 260.30 Orkan Gylfaflöt 260.30 Orkan Hraunbær 260.30 Orkan Kænan 260.30 Orkan Miklabraut, suður 260.30 Orkan Miklabraut norður 260.30 Orkan Reykjavíkurvegur 260.30 Orkan Skemmuvegur 260.30 Orkan Skógarhlíð 260.30 Orkan Spöngin 260.30 Orkan Suðurströnd 260.30
Atlantsolía Kaplakriki 260.40 Atlantsolía Hafnarfjarðarhöfn 260.40 Atlantsolía Búðarkór 260.40 Atlantsolía Kópavogsbraut 260.40 Atlantsolía Skemmuvegur 260.40 Atlantsolía Mosfellsbær 260.40 Atlantsolía Bíldshöfði 260.40 Atlantsolía Öskjuhlíð 260.40 Atlantsolía Skeifan 260.40 Atlantsolía Skúlagata 260.40 Atlantsolía Sprengisandur 260.40
Shell Algengt 260.70 ÓB Arnarsmári 262.40 ÓB Bæjarlind 262.40 ÓB Barðastaðir 262.40 ÓB Bíldshöfði 262.40 ÓB Fjarðarkaup 262.40 ÓB Grafarholt 262.40 ÓB Melabraut 262.40 ÓB Nýja sendib. 262.40 ÓB Snorrabraut 262.40 ÓB Starengi 262.40 ÓB Suðurhella 262.40 N1 Algengt 262.60 Olís Algengt 262.60 Uppfært fyrir 9 mínútum og 20 sekúndum Verð miðast við sjálfsafgreiðslu án vildarafsláttar ////////Þetta er eiginlega sýndarleikur,svo til öll olifélögin meða það sama,og litill munur,en afsláttur misjafn,við hjá FÍB fáumafslátt hjá Atlansolíu 8 kr á einni valinni stöð og svo 2 krónum mynna anarstaður á sömu stöðvum!!Orkan og Shell með 6 krónur og svo framvegið,en stærri notendur eins og fyrtæki og leigbílar fá meira en við!!N 1 er með 4 krónur + pungta ég er á mótti þessum punktum bara i vasann beint!!ég tek reyndar alltaf Metan þar en sé angan afslátt,þetta er eitthvað brogað þarna!!En ég verð bara að segja að það er undarlegt núna eins og eftir sumarfrí að það er aldrei meira af bílum a götunni alla daga?? þrátt fyrir strætó sem yngra fólkið gæti notað meira,en þetta er bara svona,og að Bensín og olíur skuli hækka lánin okkar er svifyrða"!!! og ekkert annað!!!/Halli gamli
![]() |
Eldsneytisverð lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2012 | 22:31
Orrustan unnin en stríðið rétt að byrja/Þetta kóngafólk sem er að sliga Bresku þjóðina.leifir sér allt!!!
Orrustan unnin en stríðið rétt að byrja Veröld/Fólk | mbl.is | 18.9.2012 | 21:30 Vilhjálmur prins og eiginkonan Kate brugðust skjótt við birtingu nektarmynda af drottningunni verðandi í frönskum fjölmiðlum.
Og þó þau hafi unnið fyrstu orrustuna og fengið lögbann á frekari birtingu myndanna í Frakklandi, er ljóst að stríðið um verndun einkalífs konungsfjölskyldunnar er í raun rétt að byrja. Franskur dómstóll úrskurðaði parinu í hag í dag en lögbannið sem hann féllst á er þó takmarkað ef litið er á málið í stóru samhengi.
Nektarmyndirnar umdeildu eru auðvitað þegar komnar á netið og þar munu þær lifa um ókomna framtíð. Þá hafa myndirnar einnig verið birtar í löndum utan Frakklands, s.s. á Ítalíu og á Írlandi. Hjónakornin hafa einnig farið fram á það að franski ríkissaksóknarinn rannsaki málið og ljósmyndarann sem tók myndirnar.
Sérfræðingar telja að lögbannskrafan hafi því í raun fyrst og fremst verið táknræn. Hún sýni að parinu sé full alvara með því að vernda einkalíf sitt fyrir fjölmiðlum og slúðurþyrstum almenningi. Slíkt mun væntanlega verða þeim ennþá mikilvægara er þau eignast barn sem yrði þriðji einstaklingurinn í erfðaröðinni að krúnunni, segir Joe Little, ritstjóri Majesty tímaritsins.
Þau vilja senda út skilaboð til þeirra sem ætla sér að gera eitthvað þessu líkt í framtíðinni, segir Little við AP-fréttastofuna. Þau skjótu viðbrögð sem Vilhjálmur og Kate sýndu þykja líka til marks um það að þau ætli sér að fara aðra leið en Elísabet drottning, sem hefur ekki viljað grípa til málsókna og dómstóla nema í ýtrustu neyð varðandi málefni konungsfjölskyldunnar.
Little segir þetta líka til marks um það að Vilhjálmur sé staðráðinn í því að leyfa fjölmiðlum ekki að komast upp með að hundelta eiginkonu sína á sama hátt og þeir gerðu við móður hans, Díönu prinsessu. Hins vegar er því ekki að neita að lögsókn sem sú er parið fór í vegna frönsku myndanna, hefur í raun ekkert að segja um dreifingu mynda - veruleikinn er allt annar nú en fyrir nokkrum árum. Það sem einu sinni fer á netið - verður á netinu.
Samkvæmt niðurstöðu dómarans þurfti franska slúðurblaðið Closer að afhenda öll rafræn eintök af myndunum en í raun er það aðeins formsatriði. Myndirnar munu fylgja Kate allt hennar líf - rétt eins og allar þær myndir sem teknar hafa verið af henni hingað til. Skaðinn er augljóslega skeður, segir Christopher Mesnooh, bandarískur lögfræðingur. Þúsundir og jafnvel tugþúsundir eintaka af myndunum eru nú í dreifingu.
Að fara með málið fyrir dómstóla var hárrétt ákvörðun hjá prinsinum og hans konu. En blaðið var prentað og því var dreift. Skaðinn er skeður. Hann segir að fjölmiðlamenn hafi litlu að tapa að birta myndir sem þessar. Hann segir að Closer eigi eftir að græða mikið á því að hafa birt myndirnar. Sekt sem blaðið fékk fyrir myndbirtinguna skipti engu máli þegar allt komi til alls. Vilhjálmur og Kate hafa einnig farið í mál við ljósmyndarann sem tók myndirnar. Hann hefur enn ekki verið nafngreindur en gæti átt yfir höfði sér eins árs fangelsi
. En sektir og fangelsisdómar munu ekki þurrka myndirnar út af netinu. Tim Luckhurst, prófessor í fjölmiðlun Háskólann í Kent, segir að unga fólkið hafi vonandi lært mikilvæga lexíu. Prinsinn og eiginkona hans verða að hugsa vel út í það hvað sé viðeigandi hegðun fyrir erfingja krúnunnar á þessum tímum internetsins.//////////Þetta Kóngafólk þarna í Bretlandi leifir sér allt!!Þetta slekti er ekki að sliga Bresku þjóðina,meira að segja Icesave er krækirber í helvíti, af kosnaði þessa óþarfa slektis!!Þetta er ekki til fyrirmyndar yfirleitt að birta stolnar nektarmyndir en það sama á ganga yfir alla ekki bara þessa auðnuleisingja þarna sem lifa á þjóðinni,þetta er stormur í vatnglasi fyrir mér allavega ekki er ég hlyntur þessu fólki als ekki!!!/Halli gamli
![]() |
Orrustan unnin en stríðið rétt að byrja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 1047931
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Íþróttir
- Þýskaland - Danmörk, staðan er 0:1
- FH og Stjarnan í efri styrkleikaflokk Fram beint í riðlakeppnina
- Samstarf hjá Fylki og Val
- Veigar fylgdi Gunnlaugi eftir á Írlandi
- Liðsrútan lenti í árekstri í Sviss
- Haukar fara beint í aðra umferð
- Landsliðskona á Suðurlandið
- Félagaskiptin í enska fótboltanum
- Gervigreindin stal stigi
- Frábær byrjun Gunnlaugs á Írlandi