Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Breyttur stuðningur vegna húsnæðisins Innlent | Morgunblaðið | 17.9.2012 | 10:30 Ljóst er að umtalsverðar breytingar verða á stuðningi hins opinbera við heimilin vegna húsnæðiskostnaðar á næsta ári,Gefið er til kynna í fjárlagafrumvarpi næsta árs að stigið verði fyrsta skrefið í átt að nýju húsnæðisbótakerfi í samræmi við tillögur starfshóps sem skilaði tillögum sínum í maí sl.
Það er þó ekki útfært nánar í frumvarpinu að öðru leyti en því að boðað er að veittur verði einn milljarður í tengslum við nýjar húsnæðisbætur. Hópurinn lagði til að teknar yrðu upp húsnæðisbætur í stað vaxta- og húsaleigubóta, þar sem stuðningur miðist við fjölskyldustærð.
Í greinargerð fjárlagafrumvarpsins er þó tekið fram að þetta krefjist tæknilegs undirbúnings og verði ekki komið á með skjótum hætti. Á meðan sé því áformað að greiða út vaxtabætur árið 2013 með líku sniði og verið hefur.
Þær hafa farið lækkandi að undanförnu. Fulltrúar í starfshópnum af hálfu samtaka á vinnumarkaði sem rætt var við segjast ekki hafa átt neinn þátt í undirbúningi breytinganna frá því að hópurinn skilaði tillögum sínum í vor og erfitt sé að lesa úr fjárlagafrumvarpinu hvaða áfangabreytingar verða gerðar á næsta ári en flest bendi til að megináherslan verði lögð á stuðninginn við leigjendur, enda sé það í samræmi við tillögurnar.
Tímabundið framlag til sérstakra vaxtaniðurgreiðslna vegna húsnæðislána fellur niður á næsta ári enda áttu þessar niðurgreiðslur eingöngu að standa yfir í tvö ár. Hér er um umtalsverðar fjárhæðir að ræða. Alls fengu 97.301 sérstaka vaxtaniðurgreiðslu við álagningu skattsins í sumar, sem nam þá 5,7 milljörðum. Veita á rúma 12 milljarða í vaxtabætur og vaxtaniðurgreiðslur á næsta ári samanborið við 17,3 á þessu ári.
Vaxtabætur sem eru tekjutengdar hafa dregist saman að undanförnu, bæði vegna þess að vaxtagjöld hafa minnkað og tekjur fólks aukist og farið upp fyrir tekjumörkin. Þörfin fyrir aðstoð við að koma sér upp húsnæði er þó mikil og einn viðmælandi sem rætt var við fullyrðir að sennilega hafi sjaldan verið erfiðara fyrir fólk að leggja upp í þá vegferð að eignast sína fyrstu íbúð en í dag, ekki síst vegna þess hversu þrengt hefur að á lánamarkaðinum.
T.a.m. hefur verið tekið fyrir lánsveðin sem auðvelduðu mörgum að fjármagna sín fyrstu kaup o.s.frv. Gunnar Axel Axelsson, aðstoðarmaður velferðarráðherra, segir að fyrirhugaðar breytingar verði nánar útfærðar á milli fyrstu og annarrar umræðu um fjárlagafrumvarpið.
Stefnt sé að því að við innleiðingu þessara breytinga verði byrjað á málefnum leigjenda og á stuðningurinn að ná til fleiri sem eru á leigumarkaðinum en gert er í dag. Gunnar á von á að niðurstaðan með tillögunum liggi fljótlega fyrir.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sagði við fjárlagaumræðuna á Alþingi sl. fimmtudag að við útfærslur þessa þyrfti samkomulag við sveitarfélögin. Ekki væri rætt um að hækka húsaleigubætur á kostnað vaxtabóta í fyrstu skrefum heldur myndu menn halda vaxtabótunum en reynt yrði að stíga fyrstu skrefin.
Í frumvarpinu er talað um einn milljarð vegna innleiðingar þessara breytingar en í máli Guðbjarts kom fram að menn væru að tala um allt að 800 milljónum eða þar um bil, sem gæti komið inn til þess að styrkja húsaleigumarkaðinn.////////Þetta mun auðvitað þyngja róðurin hjá´mörgum,ekki spurning,nógu erfitt er hjá mörgum fyrir!!eiginlega rothögg fyrir margan,þeir finna það þessi vinstri stjórn hvernig á að koma mönnum fyrir kattarnef,eða svoleiðis,þessi velferðaráðherra og c/o er ekki að valda þessari forgansröðum als ekki,Einu sinni var þetta kallað Úlfur í sauðagæru!!!en þetta er ekki það eina sem mun kreppa að þeim sem mynna mega sín,aldeilis ekki,í nýju fjarlögunum kemur þetta i kippum!!!! það verður að vinna fyrir hækkun Forstjóra landspítala!!!!/Halli gamli
![]() |
Breyttur stuðningur vegna húsnæðisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2012 | 21:11
Herskip 25 ríkja safnast saman/ættla Ísraelar að koma af stað 3 heimstyrjöldinni??
Herskip 25 ríkja safnast saman Erlent | mbl.is | 16.9.2012 | 19:51 Fjöldi herskipa hefur safnast saman í Hormuz-sundi við mynni Persaflóa en um er að ræða skip frá 25 ríkjum og þar á meðal flugmóðurskip, tundurspilla, freigátur, tundurduflaslæðara og kafbáta. Tilefnið er vaxandi spenna á milli Ísraels og Írans.
Fram kemur að vestrænir leiðtogar séu sannfærðir um að stjórnvöld í Íran muni svara í sömu mynt ef ráðist verði á landið. Það verði meðal annars gert með því að leggja tundurdufl í sundið eða reyna að loka því en um 18 milljónir tunna af olíu eru fluttar um sundið með olíuskipum á degi hverjum.
Það eru um 35% af olíu sem flutt er sjóðleiðina á markaði. Ef Írönum tækist að loka Hormuz-sundi fyrir skipaumferð hefði það hörmulegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkvæmt efnahagslíf Bandaríkjanna, ríkja Evrópusambandsins og Japans en öll eru þessi ríki mjög háð olíu og gasi af Persaflóasvæðinu.
Sundið er mjög þröngt en það er aðeins tæplega 34 kílómetrar á breidd frá strönd Írans öðrum megin og Sameinuðu arabísku furstadæmunum hinum megin.
Tilgangur herskipaflotans er því að vera viðbúinn hugsanlegum viðbrögðum Írana við árás eða árás þeirra að fyrra bragði en í flotanum eru meðal annars skip frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Saudi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum en þau munu verða við heræfingar á svæðinu næstu tólf dagana.
Fram kemur að um sé að ræða stærstu heræfingu á svæðinu til þessa.////////Þetta er staðreynd að málið! verður að taka alvarlega mjög,Romney fortsetaframbjóðandi Rebublika mun vera að kinda undir þessu í sínum talsmáta,en Obama hefur haldið aftur af Ísraelum,en þetta er alvarlegt og verður að stöðva ekki spurning,annars gæti 3 heimstyrjöldin skollið á!!!/Halli gamli
![]() |
Herskip 25 ríkja safnast saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrsta verk að stöðva viðræðurnar Innlent | mbl.is | 16.9.2012 | 18:51 Fyrsta verk Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í Evrópumálum fari svo að hann leiði ríkisstjórn landsins að loknum þingkosningunum næsta vor verður að stöðva viðræðurnar um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Bjarni sagði að hann myndi fylgja þeirri stefnu sem samþykkt hefði verið á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins haustið 2011 en þar er gert ráð fyrir því að hlé verði gert á viðræðunum og þær ekki hafnar aftur nema með samþykki meirihluta kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þá sagði hann að í aðdraganda slíkrar kosningar myndi hann leggja til að viðræðunum yrði slitið.
Þorgerður útskýrir ummælin sín??
Bjarni var ennfremur spurður út í þau ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformanns Sjálfstæðisflokksins, nýverið þess efnis að flokkurinn mætti ekki verða Teboðshreyfing Íslands en þar vísaði hún til hægrisinnaðrar stjórnmálahreyfingar í Bandaríkjunum sem kallast Tea Party Movement.
Bjarni sagði að Þorgerður yrði að útskýra ummæli sín enda ætti það starf sem fram færi innan Sjálfstæðisflokksins ekki samleið með þeirri hreyfingu sem hann tók undir að væri öfgahreyfing./////Já það er bara svo að þessu verður bara svarað af fjöldanum sem sat landsfundin,auðvitað er þetta umdeilt alstaðar en meirihlutinn er ekkert smá sennilega 70% ef rétt er farið í það!!!En að setja Þetta +i algjört frost er alveg rétt,við sjúm bara eftir peningunum sem í þetta hafa farið,þeim hefði verið hægt að verja betur!!eins og mikið fleiru!! En við eigum eftir að hlusta betur á allan þáttin,en þetta er gott tillag í það sem hann mundi gera ef hann verður næsti Forsætisráherra og svo auðvitað koma hjólunum undir þjóðfélagið///Halli gamli
![]() |
Fyrsta verk að stöðva viðræðurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2012 | 13:11
Stemning hjá fólki og fénaði////Það gaman að hafa hana einnig,meðfam þessari ólukku fyrir norðan!!!
Stemning hjá fólki og fénaði Innlent | mbl.is | 16.9.2012 | 11:32 Tungnaréttir hófust í morgun í blíðskaparveðri.
Réttunum var frestað um einn dag, því ekki var hægt að smala í einn og hálfan sólarhring vegna óveðurs á Hveravöllum. Að sögn Lofts Jónassonar fjallkóngs er fjölmennt í réttunum.
Við byrjuðum klukkan níu í morgun, hér er sólskin og norðanblær og góð stemning hjá fólki og fénaði, sagði Loftur í samtali við mbl.is um ellefuleytið í morgun.
Hann segir að á milli 4.500 og 5.000 kindur séu í réttunum. Við erum að verða langt komin með að draga í sundur og svo byrjar söngurinn og fjörið.///////////Það er alltaf gleði í réttum,ekki spurning,jafnvel þó að á móti hafi blásið um tíma!!!réttir eru auðvitað efiðar líkamlega,fjárrag er það,og einnig að blessuð lömbin flest lifa ekki,en það er gangur lífsins!!!en svo fær fólk sér margt í glas og syngur og glest að lokknum efiðum leitum////Halli gamli
![]() |
Stemning í Tungnaréttum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2012 | 12:55
Einn slasaður eftir sprengingu////VONANDI ekki lífshættulega!!!!!
Einn slasaður eftir sprengingu Innlent | mbl | 16.9.2012 | 11:45 Einn er mikið slasaður eftir að sprenging varð í íbúð í fjölbýlishúsi í Ofanleiti um ellefuleytið í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er ekki kunnugt um slys á fleirumLögregla rýmdi húsið. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir að mjög miklar skemmdir hafi orðið á íbúðinni, sprengingin hafi verið afar kröftug.
Verið er að reyna að slökkva eldinn í íbúðinni, hann mun ekki hafa breiðst út en verið er að reykræsta íbúðina fyrir ofan.
Braki úr húsgögnum og innanstokksmunum rigndi yfir nágrennið. Allt tiltækt slökkvilið er á staðnum og að auki hefur verið kallað út það sem nefnist litla úthringingin, en þá eru allir slökkviliðsmenn sem eru á bakvakt kallaðir út.////////Ég bara vona að þessi bruni mansins sé ekki alvarlegur!!!hitt er hægt að bæta,vonandi!! en þessi sprenging var öflug mjög,og verður skoðað vel og það hratt,þetta er ótrúlgt og mikið!!!!!Halli gamli/// P/S En það reyndist vera lifshættulegt og honum haldið sofandi blessuðum!!!!!!
![]() |
Einn slasaður eftir sprengingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2012 | 11:59
Ráðherra les veðurfregnir í dag// við flest erum náttúruverdarsinnar,en viljum virkja hana okkur til framdráttar!!!
Ráðherra les veðurfregnir í dag Innlent | mbl.is | 16.9.2012 | 9:49 Dagur íslenskrar náttúru er í dag og verður honum fagnað á fjölbreyttan hátt víða um land.
Meðal viðburða eru gönguferðir, ratleikir, hjólatúrar, fjallgöngur, opin söfn og sýningar, fyrirlestrar, ráðgjöf og fræðsla um íslenska náttúru.
Í tilefni dagsins les Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra veðurfregnir á Rás 1 klukkan 10:03. Þá hefst hjólaævintýri fjölskyldunnar klukkan 13:30 þegar lestir hjólreiðafólks úr þremur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu mætast við stífluna í Elliðaárdal.
Sýningin Lífið í Vatnsmýrinni verður opin í sýningarsal Norræna hússins á milli klukkan 12 og 17. Í tengslum við hana er í boði ratleikur með spurningum og verkefnum fyrir alla fjölskylduna. Einnig er að finna vinnustofu með ýmsu föndri tengdu náttúrunni, ásamt möguleika á að rannsaka vatnið og umhverfið í rannsóknarhorni fyrir börnin.
Frá Degi íslenskrar náttúru 2011. /www.umhverfisraduneyti.is Þá býður Náttúrufræðistofnun Íslands upp á náttúrugripagreiningu að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ þar sem almenningi gefst þá kostur á að fá sérfræðinga stofnunarinnar til að greina fyrir sig náttúrugripi og þar verða sérfræðingar í steinum, steingervingum, íslenskum plöntum, sjávardýrum, fuglum og villtum spendýrum.//////////það er mjög skrítinn úttegt á okkur náttúruverndarsinnum,sem viljum nýta náttúruna okkur til framdráttar,skildi vera sagt ljótt og þaðan af verra!!!Við unum landinu ekki síður en þetta öfgafólk sem allt vill vernda!!!en við nýta á réttan hátt!!!!við eigum öll að sameinast um að fara vel með og nýta/////Halli gamli
![]() |
Ráðherra les veðurfregnir í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Sprenging í fjölbýlishúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2012 | 11:30
Forsetinn heiðrar íþróttafólk///Þetta skemilegt!! og þessar íþróttir fatlaða er ekki síðri en hinna!!!!
Forsetinn heiðrar í þróttafólk Innlent | mbl.is | 16.9.2012 | 9:58 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heiðrar í dag íslensku þátttakendurna á Ólympíumóti fatlaðra í London með sérstakri móttöku á Bessastöðum.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að íþróttafólkinu, fjölskyldum þeirra, þjálfurum og öðrum starfsmönnum sem voru á Ólympíumótinu sé boðið til móttökunnar ásamt forystu Íþróttasambands fatlaðra og ÍSÍ ásamt þeim sem áður hafa unnið til gullverðlauna á Ólympíumóti fatlaða. Einnig verða þar fulltrúar styrktaraðila og fréttamönnum og ljósmyndurum sem viðstaddir voru Ólympíumótið. Móttakan hefst kl. 16:00.////////Ég segi það en og aftur,að þetta blessað fólk á þetta ekki síður skilið en heibryðir íþóttamenn,sennilega ekki mynni afrek!!maður dáist af afrekum þeirra,og það gerum við öll,einnig Forseti vor og frú hans!!!við ókum þeim innilega til hamingju öll!!!!//Halli gamli
![]() |
Forsetinn heiðrar íþróttafólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2012 | 23:21
Ensku liðin kynnt - Arsenal/Mitt lið Arsenal vann í dag Sautthampton 6-1 flott það!!!
Ensku liðin kynnt - Arsenal Íþróttir | mbl.is | 13.9.2012 | 15:49 Eftir skelfilega byrjun á síðasta tímabili þar sem liðið tapaði meðal annars 8:2 fyrir Manchester United náði Arsenal sér vel á strik og vann sig upp í 3. sæti úrvalsdeildarinnar í mars þar sem liðið endaði svo að lokumArsenal hefur ekki endað neðar en í 4. sæti frá árinu 1996 en liðið vann úrvalsdeildina síðast árið 2004 og hefur endað í 3. eða 4. sæti síðustu sjö leiktíðir.
Fyrsti atvinnumaður Íslands í knattspyrnu, Valsarinn Albert Guðmundsson, kom til Arsenal árið 1946 og lék tvo deildaleiki með liðinu áður en hann hélt til Nancy í Frakklandi og síðar AC Milan. Hann gat ekki spilað meira en þetta með liðinu í deildakeppninni vegna reglna um erlenda leikmenn og atvinnumennsku á þeim tíma.
Hnotskurn Arsenal var stofnað árið 1886 sem Dial Square en nafninu var breytt í royal Arsenal skömmu síðar. Nafninu var breytt í Woolwich Arsenal árið 1893, í The Arsenal árið 1914 og loks einfaldlega stytt í Arsenal í nóvember 1919.
Arsenal er staðsett í norðurhluta London og leikur heimaleiki sína á Emirates sem tekur 60.361 manns í sæti en þangað flutti liðið frá Highbury árið 2006. Arsenal hefur 13 sinnum orðið Englandsmeistari, síðast árið 2004. Liðið hefur tíu sinnum orðið enskur bikarmeistari, síðast árið 2005. Arsenal vann Evrópukeppni bikarhafa árið 1994 og komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 2006 þar sem liðið tapaði fyrir Barcelona.
Miðvörðurinn David O'Leary, sem síðar stýrði Leeds og Aston Villa, lék 722 leiki fyrir Arsenal á árunum 1975-1993 og er leikjahæsti leikmaður liðsins. Thierry Henry hefur skorað flest mörk fyrir liðið eða 228 aðallega á árunum 1999-2007 og á seinni hluta síðustu leiktíðar. Skagamaðurinn Sigurður Jónsson kom svo til Arsenal árið 1989 og var í hópnum sem varð enskur meistari árið 1991 áður en hann varð að hætta hjá liðinu vegna bakmeiðsla.
Ólafur Ingi Skúlason kom svo 18 ára til Arsenal árið 2001 og var í fjögur ár en eini leikur hans með aðalliðinu var gegn Wolves í deildabikarnum árið 2003. Frakkinn Arsene Wenger tók við Arsenal sumarið 1996 og aðeins Sir Alex Ferguson hefur verið lengur í starfi hjá sínu félagi á Englandi. Wenger hefur eins og áður segir aldrei skilað Arsenal neðar en í 4. sæti á sínum tíma, landað þremur Englandsmeistaratitlum og fjórum bikarmeistaratitlum auk þess að koma liðinu í fyrsta sinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2006.
Undir stjórn Wenger hefur Arsenal getið sér orð fyrir skemmtilegan og sóknarsinnaðan fótbolta en sjö ár eru nú liðin síðan síðasti stóri titillinn kom í hús. Wenger hefur legið undir ámæli fyrir að láta það viðgangast að skærustu stjörnur liðsins fari frá liðinu en aftur á móti hafa ófáir óslípaðir demantar fengið að glitra undir hans stjórn.
Samningur Wenger við Arsenal rennur út eftir tvö ár og hann sagðist í dag ekki vera farinn að hugsa lengra en það þó að stjórn félagsins hafi gefið til kynna að hún vilji gera lengri samning. Bandaríski auðkýfingurinn Stanley Kroenke á meirihluta í Arsenal eða 66,83% í gegnum KSE UK Inc. Kroenke, sem er 65 ára gamall, á einnig hlut í bandarískum félagsliðum í NBA, NHL og MLS-deildunum í gegnum Kroenke Sports Enterprises.
Rússneski milljarðamæringurinn Alisher Usmanov og Íraninn Farhad Moshiri eiga næststærsta hlutinn í félaginu í gegnum Red & White Securities eða 29,35%. Stærstu félagaskipti sumarsins voru án nokkurs vafa sala Arsenal á Robin van Persie til Manchester United. Van Persie var besti og markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en neitaði að endurnýja samning sinn við Arsenal sem átti að renna út eftir ár.
Því varð Arsenal að endurtaka leikinn og selja sína skærustu stjörnu líkt og fyrir ári þegar Cesc Fabregas fór til Barcelona en þá fór Samir Nasri einnig til Manchester City. Arsenal jafnaði sig eftir það áfall og í sumar hafði Wenger varann á og var snemma búinn að fá til sín franska framherjann Oliver Giroud frá Montpellier og Þjóðverjann Lukas Podolski frá Köln en Podolski getur bæði leikið úti á kanti og frammi. Þá fékk Wenger spænska landsliðsmanninn Santi Cazorla sem þykir einnig mjög góður kantmaður. Arsenal seldi hins vegar Kamerúnann Alex Song til Barcelona rétt eftir að keppnistímabilið hófst en Song hefur verið algjör lykilmaður á miðjunni hjá liðinu.
Þá virðist enn ekki þörf fyrir Danann Nicklas Bendtner sem var lánaður burt líkt og á síðustu leiktíð. Það efast enginn um það að Van Persie var aðalmaður Arsenal á síðustu leiktíð en nú þurfa aðrir að taka við keflinu. Spænski miðjumaðurinn Mikel Arteta lék oft frábærlega síðasta vetur og kantmaðurinn Theo Walcott hefur mikla hæfileika en þarf að ná meiri stöðugleika í sinn leik.
Thomas Vermaelen er einn besti miðvörður deildarinnar, og hættulegur í föstum leikatriðum, og Pólverjinn Wojciech SzczÄ™sny er orðinn mjög góður markvörður. Svo verður að koma í ljós hvernig nýju mennirnir stimpla sig inn. Arsenal hefur burði til að berjast á toppi deildarinnar en verður líklega að sætta sig við 3. eða 4. sætið líkt og síðastliðin ár.
Þessir eru komnir: Santi Cazorla frá Málaga Olivier Giroud frá Montpellier Lukas Podolski frá Köln
Þessir eru farnir: Benik Afobe til Bolton (lán) Manuel Almunia til Watford Chuks Aneke til Crewe (lán) Kyle Bartley til Swansea Yossi Benayoun til Chelsea (úr láni) Nicklas Bendtner til Juventus (lán) Daniel Boateng til Oxford (lán) Pedro Botelho til Atlético Paranaense Alban Bunjaku til Sevilla Park Chu-young til Celta Vigo (lán) Tom Cruise til Torquay Denilson til Sao Paulo (lán, framlengt) Samuel Galindo til Lugo (lán) Ben Glasgow til Stoke Gavin Hoyte til Dagenham & Redbridge Henri Lansbury til Nottingham Forest Ryo Miyaichi til Wigan (lán) Jeffrey Monakana til Preston Robin van Persie til Manchester United Alex Song til Barcelona Carlos Vela til Real Sociedad Wellington Alves da Silva til Ponferradina (lán) Oguzhan Özyakup til Besiktas //
Leikmenn Arsenal 2012-2013. Lukas Podolski og Santi Cazorla hafa skorað einu mörk Arsenal hingað til á leiktíðinni í sigri á Liverpool, 2:0, í 3. umferð eftir tvö markalaus jafntefli.//////svo við sjáum að saga þessa félas er þyrnum stráð að vissu merki og maður bara vonar að það verði áfram!!Þeir eru komnir í 3 sæti núna eftir að hafa unnið í dag 6-1 og það segir okkar bara gott vonandi,en Chelsea er i fyrsta með 10 stig og M.U.N. í öðru og Arsenal í þriðja,og 4 M.C. og 5 sæti Swansea sem kemur mikið á óvart,en þatt er rétta að byrja en samt skoðar maður þetta vel,og hefur auga með Liferpool sem er ekki að ná sér á strik blessaðir!!!!,en segi að lokum bara áfram góð knattspyrna og Arsenal!!!/Halli gamli
![]() |
Ensku liðin kynnt - Arsenal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2012 | 22:48
Einvígis aldarinnar minnst í dag///Þetta var frábært að vera þarna og fylgast með,en taugaveiklun var mikil!!!
Einvígis aldarinnar minnst í dag Innlent | mbl.is | 15.9.2012 | 11:15 Málþing stendur nú yfir í Laugardalshöll þar sem þess er minnst að 40 ár eru frá Einvígi aldarinnar þegar Boris Spasskí og Robert Fischer tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák í Reykjavík árið 1972. en málþingið hófst klukkan 11.
Að því standa Skáksamband Íslands og Reykjavíkurborg. Farið verður yfir einvígið frá mörgum hliðum á málþinginu meðal annars af stórmeisturunum Friðriki Ólafssyni og Helga Ólafssyni. Þá flytja Eric Green, staðgengill sendiherra Bandaríkjanna, og Andrei Melnikov, sendiráðsritari í rússneska sendiráðinu, ávörp.
Klukkan 13 hefst síðan risaskákmót fyrir börn á grunnskólaaldri og skákmenn 60 ára og eldri. Þar verður keppt í fjórum aldursflokkum barna og fá allir keppendur sérhannaðan bol í tilefni dagsins. Nú þegar eru um 250 börn skráð til leiks.
Fimm efstu í hverjum flokki frá verðlaun og auk þess verður haldið happdrætti með fjölda vinninga, þar sem m.a. eru flugseðlar í verðlaun, segir í tilkynningu. Þá verða ýmsir munir úr einvíginu til sýnis auk þess sem lifandi myndir frá atburðinum verða sýndar. Þátttaka í hátíðinni er ókeypis og allir velkomnir segir ennfremur í tilkynningunni./////////Þetta er manni vel í mynni!! og þarna fór maður eiginlega á flestar skákirnar,Sonur minn Har.Har.yngri var þá farin að tefla grimmt og komin í meistaraflokk og við vorum spenntir mjög og þetta var svo einstakt að þetta skildi vera hérna, að Rússana beiðni og Fischer samþykkti en mæti of seint og gerði kröfur sem ekki vara hægt að fara eftir alltaf,og það var frestað og samið, og mönnum með mjög góða vild ,tókst að koma þessu áfram,svo vorum við við lokahátíðina og það mjög gaman að sjá kvað í raun Fischer var barnalegur í sér en ekki við taflborðið,þar voru hans heilabrot óheft,eða svo engin sennilega hefur haft þessa greind, en hún var við kvæm eins og kom í ljós,og jaðraði við geðtruflun að mínu mati/en þetta vara gaman og ein og gerst hafi í gær í mínum huga og sonarins/Halli gamli
![]() |
Einvígis aldarinnar minnst í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1047930
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar