Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

SÞ vilja skattleggja milljarðamæringa//En hafa þær þetta vald maður bara spyr????

SÞ vilja skattleggja milljarðamæringa
Erlent | AFP | 5.7.2012 | 22:22

Mynd 619816Sameinuðu þjóðirnar vilja að lagður verði sérstakur skattur á milljarðamæringa heimsins í þeim tilgangi að safna rúmlega 400 milljörðum dala (um 51.000 milljörðum kr.) árlega til að aðstoða fátækustu ríki heims.

Þetta er á meðal aðgerða sem lagt er til í skýrslu SÞ. Þar er einnig lagt til að losun koltvísýrings verði sérstaklega skattlögð og að skattur verði lagður á gjaldeyrisviðskipti og fjármálagjörninga. Í skýrslunni eru auðugustu ríki heims sökuð um að hafa svikið loforð sín um að grípa til frekari ráðstafana til að aðstoða fátæka.

Í skýrslunni, sem er gefin út árlega og efnahagsleg og félagsleg þróun er skoðuð á heimsvísu, kemur fram að það sé afar mikilvægt að menn finni nýjar leiðir til að aðstoða fátækustu íbúa heims þar sem ekki hafi verið staðið við loforð um aukinkur einnn fjárstuðning.

Í skýrslunni er talið að 1.226 einstaklingar í heiminum eigi a.m.k. einn milljarð dala (um 127 milljarða kr.).

Talið er að 425 milljarðamæringar búi í Bandaríkjunum, 315 í Austur-Asíu, 310 í Evrópu, 90 í öðrum löndum í Norður- og Suður-Ameríku og 86 í Afríku og í Mið-Austurlöndum.

Samanlagður auður þeirra er metinn á 4,6 billjónir dala. Í skýrslunni kemur fram að 1% skattur myndi safna rúmlega 46 milljörðum dala.

„Myndi þetta skaða þá?“ er spurt í skýrslunni.

„„Meðalmilljarðamæringurinn“ myndi eiga 3,7 milljarða dali eftir að hafa greitt skattinn. Ef viðkomandi milljarðamæringur myndi eyða 1.000 dölum á hverjum einasta degi þá myndi það taka hann eða hana um 10.000 ár til að eyða öllum auðæfum sínum,“ segir ennfremur í skýrslunni.///////þetta væri leikur einn er nokkuð sem gefur þetta leifi ,maður bara spyr,þeim mundi ekkert um þetta muna als ekki en gæti bjargað mörgum!!!!Halli gamli


mbl.is SÞ vilja skattleggja milljarðamæringa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Horfurnar verri en áður var talið//////það er svo að þetta er á fallanda fæti allt!!!!

Horfurnar verri en áður var taliðmt
Viðskipti | AFP | 6.7.2012 | 6:58

Christine Lagarde flutti erindi á Nikkei Special Forum í Tókýó í dagFramkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Christine Lagarde, varaði í dag við því að efnahagslíf heimsins væri að hægja á sér og að sjóðurinn myndi fljótlega birta nýja hagvaxtarspá sem sýndi verri horfur en fyrri spár.

Lagarde segir að ljóst sé að horfurnar eru mun verri en þær voru fyrir þremur mánuðum síðan er AGS birti síðustu hagvaxtarspá sína.///////þetta er mjög svo slæmt ástand og illviðránlegt mjög og það gæti komið einverri kreppa/Halli gamli


mbl.is Horfurnar verri en áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugfélagið rukkar fyrir bílastæðin/////Fyrst að byggja flugstöð ekki spuning!!! svo um leið bílastæði!!!

Flugfélagið rukkar fyrir bílastæðinnInnlent | Morgunblaðið | 6.7.2012 | 5:30
 Reykjavíkurflugvöllur og Vesturbær Byrjað verður að innheimta gjöld fyrir bílastæði við afgreiðslu Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í haust.

Stæðisgjöldin verða á bilinu 50 til 100 kr. en nokkru hærri á stæðum næst flugstöðinni. Hjá Flugfélaginu stendur vilji til þess að reisa nýja flugstöð og í bílastæðamálinu hangir á spýtunni að fara í frekari uppbyggingu á vallarsvæðinu. Málið er hins vegar í pattstöðu vegna margra óvissuþátta og afstöðu stjórnvalda í flugvallarmálinu.//////þetta er dæmigert að byrja á öfugum enda,þetta er að verða sagan endalausa og ekkert annað Byggja nýja flugstöð og bílasæði um leið,annað ekki hægt/Halli gamli


mbl.is Flugfélagið rukkar fyrir bílastæðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítabjörn á sundi /////Nei þetta er ekki Ísbjörn í mesta lagi selur????

Hvítabjörn á sundi?
Innlent | mbl.is | 6.7.2012 | 0:25

Hér gefur að líta ljósmynd sem ítölsku ferðamennirnir tóku... Ljósmyndir sem ítalskir ferðamenn tóku á miðvikudag af dýri sem þeir telja að hafi verið hvítabjörn hafa verið birtar. Lögreglan hefur náð tali af ferðamönnunum, en líkt og fram hefur komið komu þeir auga á björninn við Vatnsnes í gær. Ekkert hefur hins vegar sést af birninum í dag þrátt fyrir mikla leit.

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, tók þátt í leitinni, bæði í gær og í fyrradag. Hún sneri aftur til Reykjavíkur síðdegis í gær, fimmtudag.

Landhelgisgæslunni barst á miðvikudag kl. 16:55 beiðni frá fjarskiptamiðstöð lögreglunnar um aðstoð þyrlu eftir að óstaðfestar fregnir bárust af hvítabirni á sundi við Vatnsnes. 

Þegar þyrlan kom á svæðið var fljótlega lent við Geitafell þar sem för sáust í sandinum sem talin voru vera eftir bjarndýrið. Var í framhaldinu leitað ítarlega um Vatnsnes án árangurs. 

Í gærmorgun var farið að nýju í loftið og leitað með strandlengjunni frá Skaga inn Húnafjörð, yfir Þingeyrasand og fyrir Vatnsnes. Var síðan haldið áfram alveg vestur um og norður í Bjarnafjörð á Hornströndum.///// sem betur fer er þetta ekkert líkt 'Isbirni als ekki,þetta er bara úlfur úlfur annað ekki kannski selur?????/Halli gamli


mbl.is Hvítabjörn á sundi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evran lækkar áfram/// og svona mun þetta verða,allt uppí loft þarna!!!!

Evran lækkar áfram
Viðskipti | AFP | 6.7.2012 | 6:35

 Mario Draghi seðlabankastjóri Evrópu Evran hélt áfram að lækka gagnvart Bandaríkjadal og öðrum gjaldmiðlum í Asíu í nótt í kjölfar vaxtalækkana Seðlabanka Evrópu og Seðlabanka Kína.

Er evran nú skráð á 1,2380 Bandaríkjadali samanborið við 1,2391 dal í New York í gærkvöldi. Einnig hafði áhrif að atvinnuleysi reyndist minna í síðustu viku í Bandaríkjunum en talið var.

Evran er skráð á 98,89 jen en var skráð á 99 jen í New York í gærkvöldi. //////Við sjáum það svart á hvítu að þetta evrusvæði er bókhaflega á barmi gjaldþorts,við háfun þarna ekkert inn að gera og segum bara stopp á ferlið////Halli gamli


mbl.is Evran lækkar áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbýður ummæli í sinn garð og forsetans/// Satt hjá Guðna þetta er bara skömm!!!!

Ofbýður ummæli í sinn garð og forsetans
Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2012 | 6:10

Guðni Ágústsson er einn þeirra sem stóð fyrir... Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Framsóknarflokksins, íhugar nú hvort hann eigi að höfða mál gegn Davíð Þór Jónssyni, guðfræðingi og fræðslufulltrúa Austurlandsprófastdæmis.
Guðna mislíkar mjög ummæli í grein Davíðs Þórs, Að kjósa lygara og rógtungu, sem Davíð Þór birti á heimasíðu sinni daginn fyrir forsetakosningarnar. Guðni ræddi málið við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands, í gær.

„Maður gerir meiri kröfur til manna sem hafa gengið í guðfræðideild og lært siðfræði og ætla að boða hið góða orð kirkjunnar en annarra. Það hefur Davíð Þór gert og hann býður sig sjálfsagt síðar fram til prestvígslu. Hann hefur fengið starf hjá kirkjunni við að þjóna börnum og unglingum sem fræðslufulltrúi. Ég geri miklar kröfur til manna í þessari stöðu og sætti mig ekki við svo persónulegar svívirðingar og níð um forseta landsins sem þarna birtust. Svo vænir hann mig um að hafa starfað í nasistahreyfingu. Guð hjálpi mér! Sannarlega hef ég haft skömm á nasistum alla tíð og aldrei gengið þeim á hönd. Ég hef verið í Framsóknarflokknum, þjóðkirkjunni og ungmennafélagshreyfingunni,“ sagði Guðni. Hann kvaðst ekki sætta sig við að vera borinn slíkum sökum og hafa því talað við biskup Íslands.

Ólafur Ragnar Grímsson

Ólafur Ragnar Grímsson mbl.is/Árni Sæberg

„Ég sagði við hana að mér þætti þetta vera ófær framkoma hjá hennar þjóni. Ég gerði kröfur til þess sem heiðarlegur maður og kristinn að þessi maður gjaldi fyrir orð sín bæði í minn garð og forsetans.“ //////Tek heilshugar undir orð  Guðna þetta gengur ekki hjá opinbermum starfsmanni og Prestlærðum manni bara fara í mál og latan sæta ábyrgð gjörða sinna//Halli gamli


mbl.is Ofbýður ummæli í sinn garð og forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líklega kosið 20. okt //// þetta er arvavittlaust að gera ekki spurning,eins og allt með þessa stjórnarskrá.kjósa heldur til Alþingis,svo kemur ný stjórnarskrá!!

Líklega kosið 20. okt.n vissa
Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2012 | 6:30

Mynd 618651 Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni er að hefjast. Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi í innanríkisráðuneytinu, segir gengið út frá því að atkvæðagreiðslan fari fram 20. október.

Í þingsályktunartillögu Alþingis segir að atkvæðagreiðslan skuli fara fram eigi síðar en 20. október.

Ákveðið hefur verið að atkvæðagreiðsla um sameiningu Garðabæjar og Álftaness verði samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni.//////Þetta er bara út í hött að gera ,enginn vissa kemur þar út bara skoðanir ,þetta þarf að vinna vel og vendilega að þar til gerðu fólki sem er lagalega þennkjað!!en ekki hómópata!!!En Alþingiskosningar eiga að vera ekki seina en þetta,það liggur á mjög!!!!!Halli gamli


mbl.is Líklega kosið 20. okt.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferð án banaslysa ekki tálsýn// það er sennilega ekki svo :en langt í land!!!!

Umferð án banaslysa ekki tálsýn
Innlent | mbl | 5.7.2012 | 19:48

Enginn á að þurfa að deyja í umferðinni. Heilt ár án þess að nokkur láti lífið í umferðinni. Er það óskhyggja, eða raunhæft markmið? Á einum áratug hefur banaslysum í umferðinni fækkað um helming. Þetta er ekki tilviljunum háð heldur afrakstur markvissrar vinnu. Stefnt er að því að fækka banaslysum enn frekar og helst útrýma þeim alfarið.

Ekki barnaleg tálsýn

„Fyrst var þankagangurinn sá að verið væri að búa til einhverja tálsýn og þetta væri fyrst og fremst barnaskapur, en svo hafa menn skynjað að það hefur næst árangur og það er hægt að ná enn meiri árangri,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, sem átti frumkvæði að því árið 2009 að kynna áætlun um að útrýma banaslysum í umferðinni.

Um helmingi færri deyja að meðaltali í umferðinni nú en fyrir áratug.

Um helmingi færri deyja að meðaltali í umferðinni nú en fyrir áratug. Mbl.is/Elín Esther

Markmiðið byggir á svo nefndri núllsýn, stefnu sem tekin var upp í Svíþjóð árið 1997 og helgast af þeirri siðferðislegu afstöðu að það að ekkert sé til sem heiti viðbúinn fórnarkostnaður í umferðinni. Ekki eigi að sætta sig við eitt einasta dauðsfall á vegunum, ekkert frekar en í flugi eða á sjó. „Sýnin er á núllið. Það getur verið að það taki okkur einhvern tíma, en þeir sem láta sig þessi mál varða hafa þessa sýn af því að þetta er gerlegt og þetta er að skila sér. En það er enn heilmikið sem þarf að færa til betri vegar og verkefnin eru óþrjótandi,“ segir Runólfur.

Hægt að koma í veg fyrir slysin

Á árunum 2007-2011 létust að meðaltali 13 á ári í umferðinni á Íslandi, en á jafnlöngu tímabili þar á undan létust að meðaltali 25 á ári. Þetta er tæp 50% fækkun og Runólfur bendir á að miðað við fjölgun bíla og fólks í umferðinni hafi slysin verið hlutfallslega enn fleiri áratugina þar á undan. Gagnvirkt kort yfir öll banaslys í umferðinni á Ísland síðustu 5 árin má sjá hér

Banaslys vegna bílvelta eru algengari hér á landi en annars staðar í Evrópu og má ...

Banaslys vegna bílvelta eru algengari hér á landi en annars staðar í Evrópu og má rekja það til mjórra vega ... mbl.is/Júlíus

Við rannsókn kemur yfirleitt í ljós að ástæða þess að úr varð banaslys er atriði sem tiltölulega einfalt hefði verið að koma í veg fyrir. Það getur verið galli í hönnun vegarins, ásigkomulag bílsins eða vanræksla fólks við að nota þann öryggisbúnað sem var til staðar. Í 3 af þeim 5 banaslysum sem orðið hafa á þessu ári var bílbelti t.d. ekki notað. 

Vegurinn, bíllinn og mannlegi þátturinn

Ísland er nú með 5. lægstu dánartíðni í heimi af völdum umferðarslysa. Árangurinn sem náðst hefur undanfarinn áratug er vísir að því að hægt sé útrýma slysunum. Hann má þakka margþættum aðgerðum undanfarin ár. Stökkbreyting hefur orðið í rannsóknum á umferðarslysum af hálfu lögreglu. Einnig vegur starf Rannsóknarnefndar umferðarslysa þungt, en hún var stofnuð árið 1996 að fyrirmynd rannsóknarnefnda flugslysa og sjóslysa, og er í stöðugri framþróun eins og sagt var fránýlega á MBL.IS.  

Mikið hefur verið lagt upp úr fræðslu til að auka vitund og bæta hegðun fólks í umferðinni. Það hefur tvímælalaust skilað sér og full ástæða er til að halda þeirri umræðu stöðugt á lofti, en þeir sem vinna að umferðaröryggismálum benda á að ekki sé nóg að einblína á mannlega þáttinn.

Umferðin samanstendur af fólki, farartækjum og vegum. Ef koma á í veg fyrir slys þurfa allir þessir þættir að vera í lagi. Ljóst er að aldrei verður komið í veg fyrir mannleg mistök, en í núllsýninni felst sú hugsun að þar sem mannleg mistök eru gerð eigi vegurinn og bíllinn að vera öryggisnet sem dregur úr afleiðingunum svo ekki hljótist bani af. Margir bílaframleiðendur taka þessa hugmyndafræði nú orðið mjög alvarlega, þar fer Volvo verksmiðjan fremst í flokki en líkt og sagt var frá á MBL.IS í júní er stefnt að því að enginn láti lífið í Volvo eftir árið 2020. 

Myndum aldrei hanna vegakerfið svona

Á okkar valdi er því fyrst og fremst að bæta hegðun okkar sjálfra, og að bæta vegakerfið. Stærsta einstaka verkefnið sem FÍB hefur hrint af stokkunum til að ná markmiðum um útrýmingu banaslysa nefnist EuroRAP og er öryggisúttekt á vegakerfinu. Ólafur Kr. Guðmundsson er verkefnisstjóri EuroRAP á Íslandi og hefur frá árinu 2009 keyrt þúsundir kílómetra eftir vegum landsins á sérútbúnum bíl til að kortleggja gæði og galla vegakerfisins.

Ólafur bendir á að vegakerfið hér eins og víðast annars staðar varð til með fremur tilviljanakenndum hætti og við úrbætur þess þurfi því að taka tillit til öryggisþátta sem ekki var horft til áður. „Ef við værum að byrja á byrjun í dag og hanna vegakerfi frá grunni þá myndum við aldrei gera það svona. Við myndum aldrei hanna kerfi þar sem mörg hundruð tonna bílar mætast á 90 kílómetra hraða, og það eina sem aðskilur þá er máluð lína.“

Einfaldir hlutir sem hægt var að laga

Fyrstu gæðaúttekt á vegakerfinu samkvæmt EuroRap lauk árið 2010 en verið er að vinna að annarri og ítarlegri yfirferð um þessar mundir. Ólafur segir að komið hafi í ljós ýmis einföld atriði sem hægt var að breyta og gætu hafa bjargað mannslífum. „Samstarfið við Vegagerðina hefur verið mjög gott og nýir vegir sem lagðir hafa verið síðan eru mun betri. Til dæmis vegurinn í Landeyjahöfn, yfir Lyngdalsheiðina og milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, allt eru þetta miklu, miklu betri vegir en voru áður en við byrjuðum á verkefninu.“

Á þeim vegum sem fyrir voru hefur líka margt verið lagað á eftir ábendingar frá Ólafi. Má þar nefna að víða hefur verið fjarlægt stórgrýti úr vegköntum sem skapaði hættu,  vegaxlir breikkaðar og flágar bættir til að koma í veg fyrir bílveltur. Þá kom í ljós að vegrið voru víðast hvar of stutt og gert hefur verið stórátak í að lengja þau, til að koma í veg fyrir útafakstur. Vegrið hafa sumstaðar verið sett upp til að aðskilja akstursstefnur þar sem EuroRap úttektin leiddi líka í ljós að ljósastaurar við Reykjanesbraut voru ekki árekstrarprófaðir og hefur þeim verið skipt út fyrir staðlaða staura sem gefa eftir við árekstur. Það sama þarf að sögn Ólafs einnig að gera við umferðarskilti í vegköntum.

Spurning um forgangsröðun

Enn eru banaslys í umferðinni þó árviss staðreynd. Ólafur segir að risastór skref hafi verið tekin í rétt átt, en betur má ef duga skal. „Menn eru farnir að hugsa allt öðru vísi um umferðina í dag, en það er náttúrulega gífurlegt verk fyrir höndum sem kostar peningar.“ Í EuroRap verkefninu er annars vegar gerð úttekt á slysamestu vegarköflum landsins og þannig reiknað út hver áhættan er á hvern ekinn kílómetra vegakerfisins, en hinsvegar kortlagðir áhættumestu vegakaflar landsins, þ.e. þar sem mikil hætta er á slysum jafnvel þótt þau hafi enn ekki orðið.

Ólafur bendir á að þekkingin á því hvað þurfi til að útrýma banaslysum sé til staðar og  sífellt sé að bætast við hana. Það sem eftir standi sé fjármagn og vilji til að láta það gerast. „Við höfum tekið það alveg út hvað eru hættulegustu vegakaflarnir, þá er það spurning um forgangsröðun. Hvort ætlum við að setja umferðaröryggi í fyrsta sæti í vegakerfinu, eða eitthvað annað?“

Á morgun...

...verður birt viðtal við Ásgeir Ingva Jónsson, sem varð fyrir hörmulegu bílslysi með tveimur börnum sínum á Suðurlandsvegi við Sandskeið árið 2006. Ásgeir segir að fyrir þá sem misst hafa ástvini í umferðinni sé sárt að hlusta á endalausar þrætur um kostnað við umbætur á slysamestu vegaköflunum.////////Auðvitað er þetta takmarkið ,það ekki spurning ,en langt er í land með þetta?? en með öruggum vegum bílum og bílstjórum mun þetta á endanum nást,ekki næstu ár en næstu 20 árin eða svo? það er svo að takmarkið er að svona fari og ef þróunin verður ör núna næstu ár er þetta mögulegt eins og sagt er þar í þessari grein,en það var einnig sagt fíkniefnalaust 'Island árið 2000 einu sinni? hvað varð um það Framsókn: bara spyr svona??/Halli gamli


mbl.is Umferð án banaslysa ekki tálsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið að finna Ítalina/ svo á eftir að sannreyna þetta ,kannski vitnast þetta ekkert,bara missýn???

Búið að finna Ítalina
Innlent | mbl.is | 5.7.2012 | 18:53
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi við Vatnsnes í dag. Lögreglan á Blönduósi hefur fengið upplýsingar um ítölsku hjónin sem komu auga á ísbjörn við Vatnsnes í gær. Þau hafa pantað gistingu í Stykkishólmi í kvöld og hefur lögreglan í Hólminum verið beðin um að ræða við þau og fá hjá þeim myndir af ísbirninum.

Það voru ítölsk hjón með tvö börn sem voru á ferðalagi við bæinn Geitaberg á Vatnsnesi sem sáu dýrið um miðjan dag í gær. Þau komu auga á dýr á sundi sem þau töldu vera ísbjörn. Þau tóku myndir af ísbirninum og myndskeið. Þau héldu síðan áfram ferð sinni, en lögreglan hefur óskað eftir að ræða við þau og skoða myndirnar.

Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, segir að lögreglan hafi fengið upplýsingar um að hjónin hafi pantað gistingu í Stykkishólmi í nótt. Óskað hafi verið eftir að lögreglan í Hólminum ræði við þau og fái afrit af myndunum. Kristján sagði að þessar myndir breyti í sjálfu sér ekki stöðu málsins, en lögregla gangi út frá því að ísbjörn hafi gengið á land á Vatnsfirði. Ekkert hefur hins vegar sést af birninum í dag þrátt fyrir mikla leit.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sem leitað hefur af ísbirninum í dag og í gær er komin til Reykjavíkur./////Það er svo að  samkvæmt staðli er þetta marktækt þar til annað kemur í ljós og það verður fyrr en seinna,leit er hætt sem von er það hefur áður skeð svona mistök og við því er ekkert að gera,við bara bíðum og sjáum framhaldið//Halli gamli


mbl.is Búið að finna Ítalina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bilun í afgreiðslubúnaði smásala//Tæknin að stríða okkur það er sko ekki nýtt!

t við þvi að gera
Bilun í afgreiðslubúnaði smásala
Innlent | mbl.is | 5.7.2012 | 19:13

 Eftir hádegi í dag kom upp bilun í afgreiðslubúnaði hjá smásölum sem hafði áhrif á samskipti nokkra bensínsjálfsala í færsluhirðingu hjá Borgun við debet-kortakerfi Reiknistofu bankanna (RB).

Fram kemur í tilkynningu frá Reiknistofu bankanna, að þótt að kerfi RB og Borgunar hafi starfað eðlilega hafi debet-kortakerfi RB borist rangar heimildarbeiðnir úr posum smásala sem nú sé unnið að því að leiðrétta. Leitast verði við að ljúka þeirri vinnu eins fljótt og auðið er.

Bilunin í hugbúnaði greiðsluposa olli einnig miklu álagi á heimildarkerfi útgefenda greiðslukorta sem kann að hafa valdið því að einhverjir viðskiptavinir upplifðu tímabundna þjónustuskerðingu. /////////svona getur tæknin farið með okkur í dag.því miður og lítið hæg við því að gera nema meiri tækni ,og það mun kannski verða fyrir rest???Alvarlegt er þetta með tölvusístem sem menn treysta á og er orðið 2-3 fald til að geta reyst því,í T.D. flugvélum og fleiru!!!!! við mynntust víst oft á það að þetta hafi/ verið betra í gamla daga þegar maður bara gat gert við þetta strax////Halli gamli


mbl.is Bilun í afgreiðslubúnaði smásala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 1047605

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband