Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Tom og Katie á göngu um miðbæinn/Flott hér er hann óhultur!!!!

Tom og Katie á göngu um miðbæinn Innlent | mbl.is | 16.6.2012 | 12:15 Leikarahjónin Tom Cruise og Katie Holmes voru á göngu um miðborg Reykjavíkur rétt fyrir hádegið í dag. Parið rölti um Laugaveginn, Skólavörðustíg og Þingholtsstræti, kíkti í búðir, skoðaði í búðarglugga og naut íslenskrar veðurblíðu. Dóttir þKatie Holmes og Tom Cruise rölta niður Þingholtsstrætið í dag. eirra, Suri, var ekki með í gönguferðinni en hún er þó með foreldrum sínum hér á landi. Tilgangur ferðar þeirra er tökur á kvikmyndinni Oblivion en myndin verður tekin upp við Mývatn og á hálendinu við Veiðivötn. Á báðum þessum stöðum hefur verið komið upp vinnubúðum og leikmyndum. Tökurnar hefjast samkvæmt heimildum mbl.is í Mývatnssveit nú eftir helgi en síðar í mánuðinum verður kvikmyndað við Drekavatn á Jökulheimaleið. Áætlað er að tökum ljúki í byrjun júlí. Fjölskyldan kom með einkaþotu til Reykjavíkur í gærmorgun og fór svo rakleiðis á Hilton hótel Nordica við Suðurlandsbrautina. Um 200 manna teymi frá Universal-kvikmyndaverinu verður hér á landi vegna myndarinnar næstu daga. Tom Cruise verður fimmtugur 3. júlí og fram hefur komið í erlendum fjölmiðlum að hann muni eyða afmælisdeginum á Íslandi.///////þetta er gott að fólk fái að ver i friði mjög svo gott,það er til fyrirmyndar og góð auglýsing fyrir okkur, þetta spyrt út og það gott ,hvað svo við höfum svo peningalega út er spurning það er afsláttur af þessi kvimyndagerð/Halli gamli
mbl.is Tom og Katie á göngu um miðbæinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnendur benda á dökkar horfur/Þetta er alveg bráð nauðsinnlegt,en það er allt stoppað á Ríkisstjórn vorri!!!

Stjórnendur benda á dökkar horfur Viðskipti | mbl.is | 15.6.2012 | 16:54 Mikill meirihluti stjórnenda telur aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar og þeim fækkar verulega sem búast við að þær batni á næstunni. Kemur þetta fram í niðurstöðum ársfjórðungslegrar könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja. Könnunin var gerð um mánaðamótin maí-júní. Sagt er frá þessu á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir ennfremur að stjórnendur í sjávarútvegi og byggingariðnaði líta horfurnar dekkstum augum og að yfirleitt er nægt framboð af starfsfólki en þeim fyrirtækjum fer fjölgandi sem skortir fólk. Þá er gert ráð fyrir vaxandi verðbólgu og búast stjórnendur við um 5% verðbólgu á næstu 12 mánuðum.

Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækjanna: Dökkar horfur Mikill meirihluti stjórnenda telur aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar og þeim fækkar verulega sem búast við að þær batni á næstunni. Þetta eru helstu niðurstöður ársfjórðungslegrar könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja, sem gerð var um mánaðamótin maí-júní. Stjórnendur í sjávarútvegi og byggingariðnaði líta horfurnar dekkstum augum. Yfirleitt er nægt framboð af starfsfólki en þeim fyrirtækjum fer þó heldur fjölgandi sem skortir fólk, en í heild er þó búist við nokkurri fækkun starfsmanna á næstu sex mánuðum. Væntingar eru um vaxandi verðbólgu og búast stjórnendur við um 5% verðbólgu á næstu 12 mánuðum. Aðstæður slæmar Stjórnendur telja aðstæður slæmar í atvinnulífinu. Nú telja 63% þeirra aðstæður vera slæmar sem er sama hlutfall og í mars. Þriðjungur telur þær hvorki góðar né slæmar en aðeins 3% að þær séu góðar. Þrír af hverjum fjórum stjórnendum á landsbyggðinni telja aðstæður slæmar, en þrír af hverjum fimm á höfuðborgarsvæðinu.

Í öllum atvinnugreinum telur meirihluti stjórnenda aðstæður slæmar. 90% stjórnenda í sjávarútvegi telja þær slæmar og 80% í byggingariðnaði. Skásta matið á aðstæðum er í fjármálaþjónustu, ýmissi sérhæfðri þjónustu og iðnaði þar sem u.þ.b. 55% telja aðstæður slæmar, en í verslun, samgöngum og ferðaþjónustu eru hlutföllin 57%-65%. Hlutfallslega fleiri stjórnendur í stórum fyrirtækjum en þeim minni telja aðstæður slæmar. Vísitala efnahagslífsins eftir 6 mánuði lækkar aftur Mat á aðstæðum eftir sex mánuði er nú lakara en í síðustu tveimur könnunum þótt það sé heldur skárra en fyrir ári.

Tveir af hverjum þremur stjórnendum telja að þær verði óbreyttar, en heldur fleiri að þær versni en batni. Stjórnendur á höfuðborgarsvæðinu eru heldur bjartsýnni en á landsbyggðinni þótt litlu muni. Hlutfallslega fæstir stjórnendur í sjávarútvegi og byggingariðnaði sjá fram á bata en hlutfallslega flestir í fjármálaþjónustu og sérhæfðri þjónustu. Horfur eru dekkri meðal stjórnenda stærri fyrirtækja en smærri. Nægt framboð af starfsfólki Langflestir stjórnendur, 86%, búa við nægt framboð af starfsfólki í fyrirtækjum sínum, en 14% búa við skort, samanborið við 10%-12% í síðustu tveimur könnun. Enginn munur er á landsbyggð og höfuðborgarsvæði en fyrri kannanir hafa sýnt meiri þörf fyrir starfsfólk á landsbyggðinni.

Skortur á starfsfólki er mestur í sérhæfðri þjónustu en minnstur í sjávarútvegi og meiri í smærri fyrirtækjum en þeim stærri. Búist við lítilsháttar fækkun starfsmanna á næstunni Rúmlega 25 þúsund starfa hjá fyrirtækjunum í könnuninni. Ætla má að starfsmönnum þeirra fækki alls um 100 eða 0,4% á næstu sex mánuðum. Þetta er lakari niðurstaða en í síðustu könnun þar sem fram kom útlit fyrir óbreyttan starfsmannafjölda í heild. Þrír af hverjum fimm stjórnendum búast við óbreyttum starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, en álíka margir sjá fram á fjölgun og fækkun. Fjölgun starfsmanna er áformuð í sérhæfðri þjónustu, iðnaði, byggingarstarfsemi, samgöngum, flutningum og ferðaþjónustu, en fækkun í sjávarútvegi, fjármálastarfsemi og verslun. Eftirspurn eykst jafnt innanlands sem erlendis Stjórnendur fyrirtækjanna búast að jafnaði við aukinni eftirspurn á innanlandsmarkaði. Um fjórðungur þeirra býst við aukningu en tveir af hverjum þremur að eftirspurn verði óbreytt. Horfur um eftirspurn á erlendum mörkuðum á næstu sex mánuðum eru mjög góðar þar sem 40% stjórnenda búast við aukningu, 12% við samdrætti en 48% við óbreyttri eftirspurn. Vaxandi verðbólguvæntingar Að meðaltali búast stjórnendur við því að verðbólgan eftir eitt ár, þ.e. hækkun vísitölu neysluverðs á næstu 12 mánuðum, verði 4,7% samanborið við 4,5% í síðustu könnun og 3,5% í upphafi árs. Miðgildi verðbólguvæntinga eftir eitt ár er 5,0% eins og í síðustu könnun. Um könnunina Samtök atvinnulífsins eru í samstarfi við Seðlabanka Íslands um reglubundna könnun á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja á Íslandi. Könnunin er gerð ársfjórðungslega og er framkvæmd hennar í höndum Capacent. Einföld könnun með 7 spurningum er gerð í annað hvort skipti, en hin skiptin er gerð ítarlegri könnun með 19 spurningum.

Að þessu sinni var könnunin gerð á tímabilinu 22. maí til 8. júní 2012 og voru spurningar 7. Í úrtaki voru 406 stærstu fyrirtæki landsins (miðað við heildarlaunagreiðslur) og svöruðu 223 þeirra þannig að svarhlutfall var 55%. Niðurstöður eru greindar eftir staðsetningu fyrirtækis, atvinnugrein, veltu, starfsmannafjölda og hvort fyrirtækið starfi á útflutnings- eða innanlandsmarkaði. Ekki er um að ræða samræmda túlkun samstarfsaðilanna á niðurstöðum könnunarinnar.////////Eins og fólk hefur verip frætt á undanfarið að atvinnuleisið se komið í 5.7 % er bara lýgi og ekkert annað,það er villandi mikið og fólk margt að flytja út sem von er sagt að um 2000 mans sem eru á namskeiðum eða stunda vinnu sé komið átvinu,þessi Ríkisstjórn gerir litið sem ekkert til þessa að gera fólk sjálbært það er bara talað um að gera annað allt annað það nem atvinnu og hún er undistaða skatta og velferðar,en þaðs skilur ekki sosin eða kommin!! þarna,eins og alltaf hefur verið i ESB mátulegt atvinnuleysi það vill þessi ríkisstjórn vinstri manna,þetta mun að öllum líkindum batna þegar við losum okkar við þessa ríkisstjórn sem verður vonandi fljótt,annars förum við á Hausinn ekki spurning,eins með þetta teymi í Seðlabankanum sem vill engar framfarir,bara lifa á verðtrygginguni eins og bankarnir gera,það er málið!!!!/Halli gamli


mbl.is Stjórnendur benda á dökkar horfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnin ber ábyrgð á stöðunni/Satt :en ekki hver !!!Þessi ríkisstjórn var ekki kosin!!

Stjórnin ber ábyrgð á stöðunni Innlent | mbl.is | 15.6.2012 | 23:55 „Vandi ríkisstjórnarinnar er því að einhverju leyti heimatilbúinn með því að leggja svo mikla áherslu á umdeild mál sem mikil andstaða er við,“ segJón Bjarnason ir Jón Bjarnason, þingmaður VG, um þá miklu tímaþröng sem ríkisstjórnarflokkarnir eru komnir í á þingi. „Ég tel að mál eins og stjórnarráðsbreytingarnar, að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, hafi ekki verið forgangsmál. Ríkisstjórnin hefur lagt gríðarlega áherslu á aðlögunarstyrki að ESB og svo má nefna Vaðlaheiðargöng og þá ákvörðun að taka þau úr samgönguáætlun. Vandi ríkisstjórnarinnar er því að einhverju leyti heimatilbúinn með því að leggja svo mikla áherslu á umdeild mál sem mikil andstaða er við.“ Betra að afgreiða kvótafrumvörpin saman Samningar um þinglok strönduðu meðal annars á veiðigjöldum og lýsir Jón, forveri Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG, í embætti sjávarútvegsráðherra, yfir andstöðu við fyrirætlanir um að afgreiða veiðigjaldafrumvarpið á þessu þingi en láta afgreiðslu frumvarps um stjórn fiskveiða bíða næsta þings, líkt og heimildir fréttavefjar Morgunblaðsins bentu til að væri ætlunin fyrr í kvöld. „Mitt mat er að hluti veiðigjalda á að renna til viðkomandi sjávarbyggða og að þau eigi að vera hluti af heildarumgjörð fiskveiðistjórnunar en ekki sér lög," segir Jón sem kveðst því viljað hafa sjá fiskveiðistjórn og veiðigjöld í einu frumvarpi.//////Þarna eru orð í tíma töluð af manni sem var V.G. og er nú utan flokka,var rekin frá ráðherrastöðu,af þvi að hann vildi ver heiðarlegur,og það má ekki!!!En það er satt þessi ríkisstjórn er ekki al vond en búin að klúðra málum endalaust,eins og Jón Bjarnason segir réttilega,og við auðvitað flest/Halli gamli
mbl.is Stjórnin ber ábyrgð á stöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Treystum ekki ríkisstjórninni“/Það gerir ekki heldur mikill meirihluti þjóðarinnar !!!

„Treystum ekki ríkisstjórninni“ Innlent | mbl | 15.6.2012 | 22:55 Þingfundi á Alþingi hefur verið frestað til morguns en fundinum hefur ítrekað verið frestað í dag og í kvöld. Hlé hefur verið gert á viðræðum formanna og þingflokksformanna en þeir hafa fundað stöðugt innan veggja þinghússins um hvenær AlþingiSigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
 eigi að hætta störfum. igmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, útilokar ekki að niðurstaða fáist í málið fljótlega. „Það ætti ekki að þurfa að vera langt í land vegna þess að í stjórnarflokkunum og í stjórnarandstöðunni er fólk sem að vill gjarnan ná sem mestri sátt með þetta mál og leysa það til framtíðar. Þannig að ríkissjóður hafi sem mestar tekjur af sjávarútveginum en jafnframt verði stöðugleiki fyrir greinina,“ segir Sigmundur Davíð. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, slítur fundi í kvöld. Mbl.is/Ómar Telur hann því þingmenn stjórnar og -andstöðu geta náð saman um þetta atriði. Hins vegar segir hann álitamál vera um hvaða skref eigi að taka næst. „Það virðast vera skiptar skoðanir innan stjórnarliðsins um hvað sé ásættanleg niðurstaða. Þá höfum við framsóknarmenn viljað að sú vinna sem hefur farið fram undanfarnar vikur fari ekki til spillis ef menn ná ekki að klára málin núna,“ segir Sigmundur Davíð. En framsóknarmenn töldu að hægt hefði verið að klára bæði veiðigjaldið og breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Verði það ekki hægt, leggur Sigmundur Davíð megináherslu á að sú vinna fari ekki til spillis og að tekinn verði upp þráðurinn þar sem frá var horfið. „En við viljum að gengið sé frá því skriflega, vegna þess að við treystum ekki ríkisstjórninni í ljósi reynslu undanfarinna ára.“ Er því gert ráð fyrir áframhaldandi fundi á Alþingi á morgun.///////Það er bara satt á fólk almennt treystir ekki þessari rikisstjórn og það fyrir löngu séð,allir búinir að gefast upp nema sosar og grjótharðir ESB sinnar,maður hefur fylgst með þessu undanfarið verið mikið heima að hluta á þessar heitingar,þetta skal í gegn ,ef ekki þá bara sumarþingi og taka þessi stóru mál með einföldum meirihluta eða 32 átkvæðum Fiskveiðum Rammaáættlun og Stjórnaskrá ,svo og auðvitað að neita öllum fremkvæmdum og stoppa allt sem hægt er!! er ekki komið tími á að koma þessari ríkisstjórn frá,prófa allavega VANTRAUST ef ekki og þessir níu menningar ættla að ráðast á ræðutíman ,það bara á Stjórnaransataðan að labba út ,hvað þá Forsetin verður að fara í spilið,og fela öðrum stjórnarmyndun fram að' kosningum!!!/Halli gamli

mbl.is „Treystum ekki ríkisstjórninni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kallar á endurskoðun rammaáætlunar/Já ekki spurning,það er hægt að koma í veg fyrir þessa mengun!!!

Kallar á endurskoðun rammaáætlunar Innlent | mbl.is | 15.6.2012 | 15:08 Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, segir að nýjar upplýsingar um losun brennisteinsvetnis frá jarðGuðmundur Hörður Guðmundsson gufuvirkjunum kalli á að endurskoðun á rammaáætlun um nýtingu og verndun virkjunarkosta. „Þær upplýsingar sem komu fram á ársfundi Orkuveitu Reykjavíkur í gær setja vinnu við rammaáætlun í uppnám. Forsvarsmenn fyrirtækisins viðurkenndu að of hratt hafi verið gengið í uppbyggingu jarðvarmavirkjana á undanförnum árum og að afleiðingarnar séu illviðráðanlegar, t.d. brennisteinsvetnismengun í byggð og förgun affallsvatns. Í þessu ljósi vekja tillögur um rammaáætlun ugg. Miðað við þetta er ljóst að rammaáætlun hefur afvegaleitt okkur í umræðunni um virkjanamál. Tillögur hennar um gjörnýtingu jarðvarma byggja á þeirri forsendu að jarðvarmavirkjanir séu umhverfisvænar. Sú skoðun var viðtekin þegar vinna við rammaáætlun hófst fyrir nokkrum árum, en nú vita menn betur og við því þarf að bregðast með því að endurskoða tillögurnar,“ segir Guðmundur á vef sínum/////Það er ef vilji er fyrir hendi hægt að enduskoða þetta allt og bæta,það er T.D. hægt að setja stóru túðu upp í loft og losa þessa mengun þangað og sennilega mikið meira,svo eru um allar Virkjanir þær verður að leifa vist hvar ekki spurning,þær bara bæta landslagið og ekkert annað,þessar öfgar eru ekki góðar,en þessir umhverfissinnar ættu að fara að græða landið ekki veitir af,en ekki að vera í þvi að banna allt sem  okkur til góða og spillir engu landi/Halli gamli
mbl.is Kallar á endurskoðun rammaáætlunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göngugata á Laugavegi frá sunnudegi//Bílfjansama vistrið tekur völdiin og ættlar að eyðieggja verslun við Laugarvegin!!!

Göngugata á Laugavegi frá sunnudegi Innlent | mbl.is | 15.6.2012 | 13:59 Frá og með þjóðhátíðardeginum 17. júní taka gildi sumarlokanir á Laugavegi neðan Vatnsstígs og á Skólavörðustíg neðan Bergstaðastrætis. Þessar göngugötur verða lokaðar fyrir bílaumferð fram yfir Menningarnótt 20. ágúst. Öll þjónusta við rekstraraðila fer fram um þvergötur fram til klukkan 11:00 alla virka daga. ///////Þetta Vinstra fólk með kannski Gísla Marteini!! vill eyðileggja kaupmensku við Laugarveg,einnig að, við sem erum ekki fótfrá fáum ekki að komast leiðar okkar,er þetta ekki mismunum?? svo er þetta fólæk flet i 101 bara Bílfjandsamlegt ekki ennað,bara reyðhjol/Halli gamli
mbl.is Göngugata á Laugavegi frá sunnudegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi er í miklum vanda///Steingrímur og Jóhanna og c/o í vanda hafa bara 20% þjóðarinar með sér en ættlla samt að bylta þjóðfelaginu!!!

„Alþingi er í miklum vanda“ Innlent | mbl.is | 15.6.2012 | 11:38 „Nú eru hlutverkaskiptin orðin slík hér á Alþingi, frú forseti, að fyrir nokkrum dögum bauð minnihlutinn meirihlutanum að velja kannski eins og fimm mál sem mætti afgreiða. Þetta hef ég aldrei áður upplifað í tæplega þrjátíu ára þingsögu,“ sagði StSteingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. eingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í ræðustól Alþingis í morgun.//////Þau Steingrímur og Jóhanna og c/o eru heillum horfið alveg ,þetta er bara skömm af þeim í krafti 20% þjóðarinnar!! sem styðja þessu stjórn að, ættla 8 mánuðum fyrir kjördag að koma svona stórum málum í gegn,það er ógæfulegt og bara skömm ekkert annað,einnig að vilja koma okkur í ESB og fl.///Halli hamli
mbl.is „Alþingi er í miklum vanda“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Xavi setti nýtt met í sendingum//Spánverjar voru frábærir!!!!

Xavi setti nýtt met í sendingum Íþróttir | mbl.is | 14.6.2012 | 23:33 Xavi Hernandez, miðvXavi Hernandez með boltann í leiknum í kvöld. allarleikmaðurinn frábæri í liði heims- og Evrópumeistara Spánverja, sló met í úrslitakeppni í Evrópumóts landsliða í kvöld þegar Spánverjar burstuðu Íra, 4:0. Xavi átti 136 sendingar í leiknum og 127 þeirra rötuðu rétta leið. Aldrei áður hefur leikmaður átt jafn margar sendingar í leik í úrslitakeppni Evrópumótsins en gamla metið 117 sendingar átti Hollendingurinn Ronald Koeman sem náði í leik gegn Dönum á EM 1992. Spánverjar settu met í fjölda sendinga í kvöld í EM en þeir náðu 860 sendingum en leikmenn Íra hittu svo sannarlega fyrir ofjarla sína./////Þeir syndu það í gær að þetta er frábært lið ,og hefir engu gleymt frá fyrri sigrum,Írarnir eru heldur ekki í góður formi!! en ég sé núna ekki i augnabliki að neitt lið standi þetta,en við spyrjum samt að leikslokum og vonum að þetta se ekki einsínt!!!!/Halli gamli
mbl.is Xavi setti nýtt met í sendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósammála ályktun SUS///Ég segir álytun SUS réttamæta ekki spurning,en fyrst þetta var samþykt bara til hamingju!!!

Ósammála ályktun SUS Innlent | mbl.is | 15.6.2012 | 12:57 Stjórnarmaður í Sambandi ungra sjálfsstæðismanna, segist ósammála ályktun sem stjórn félagsins sendi út í dag og segist hafa greitt atkvæði gegn henni. Í ályktuninni eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi gagnrýndir harðlega Akureyri. Vaðlaheiði í baksýn.
fyrir að samþykkja fjármögnun Vaðlaheiðarganga á Alþingi í gær. Ég er ósammála þessari ályktun og greiddi atkvæði gegn henni,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson, stjórnarmaður í SUS fyrir Norðausturkjördæmi og formaður Kjördæmisráðs ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi. Bergur Þorri segir enga vegaframkvæmd á Íslandi hafa verið hreina einkaframkvæmd og vísar í skýrslu Ríkisendurskoðunar, Hvalfjarðargöngin og Sundabraut - mat á kostum og göllum einkaframkvæmdar. Þar segir m.a. að gerð og rekstur Hvalfjarðarganga geti varla talist hrein einkaframkvæmd í hefðbundnum skilningi þess orðs enda hafi opinberir aðilar staðið að baki hlutafélaginu Speli. „Það er ósanngjarnt að segja að framkvæmd sem skapar fjölda starfa hjá fólki sem býr víða um land sé til þess að kaupa atkvæði í einu kjördæmi,“ segir Bergur Þorri. Í ályktun stjórnar SUS, sem send var mbl.is í morgun, segir m.a.: „Ungir sjálfstæðismenn óska þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, Kristjáni Þór Júlíussyni og Tryggva Þór Herbertssyni, og öðrum þingmönnum kjördæmisins, til hamingju með að hafa keypt sér endurkjör á næsta kjörtímabili. Verðið, 8,7 milljarðar króna, greiða þeir reyndar ekki sjálfir heldur rennur það úr vasa skattgreiðenda til gerðar Vaðlaheiðarganga.“////////Eg við byrja á að óska þeim til Hamigju með þetta Norðanmönnum!!!,en ekki spurning að ég tek yndir þetta með SUS að þetta eru atkævaveiðar og kjördæmapot ekkert annað að,að forgansraða þessu ekki eins og flestir vilja,að kalla þetta einkarekstur er bara svindl við eða rílkið borgar þarna eða lánar 7.5 milljarða sem á að borgast með vegjöldum á 30-40 árum svo á Vegagert ríkisins 50% þetta er ekki einkaframkvæmt bara plat til þessa að við trúm því!!En eins og er Borgum við Bileigendur í skatt og vörugj,.og virðisauka 90 milljarða og aðeins 30 milljaraðr af þvi notaðir i vegafé,samkvæmt flestum stöðlum áttu Norðfjarðargöng og Dýrafjarðar að hafa forgang//Halli gamli

mbl.is Ósammála ályktun SUS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin ákvörðun um þinghlé/Þvergirðingurin Jóhanna stjórnar þessu öll!!!!

Engin ákvörðun um þinghlé Innlent | mbl.is | 14.6.2012 | 23:26 „Það er ekkert að frétta. Þetta er við það sama, stál í stál,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, um viðræðurRagnheiður Elín Árnadóttir
 formanna flokkanna í kvöld um framhaldið í störfum þingsins. Engin ákvörðun hefur verið tekin um þinghlé. Fyrr um daginn funduðu formenn þingflokkanna tvisvar um framhaldið og voru engar ákvarðanir teknar á þeim fundum, að sögn Ragnheiðar Elínar. Fram hefur komið að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sé því eindregið fylgjandi að hlé verði gert á þingstörfum fyrir helgina. Stjórnarmeirihlutinn á eftir að afgreiða mörg stórmál og nægir þar að nefna kvótamálin og rammaáætlun. Rætt hefur verið um að þingið kynni að koma saman aftur eftir forsetakosningarnar 30. júní en ef það kæmi saman á ný mánudaginn 2. júlí þyrfi þingstörfum að ljúka innan þriggja vikna. Ástæðan er sú að viku til tíu daga tekur að undirbúa þingsalinn fyrir innsetningu nýkjörins forseta, líkt og fjallað er um í Morgunblaðinu í dag, fimmtudag.//////Það er svo að þessi ríkistjórn með 20% fylgi ættlar að ganga frá fiskveiðum landsins áður en hún líkur stöfum,eftir 8 mánuði eða fyrr,það er Jóhanna sem er þarna alsráðandi og þvergirðingur er hún með eindæmum,manni hefur verið sagt af mönnum sem störvuðu með henni i Ríksstjón hér áður að þegar búið var að semja við alla,var Jóhanna ein eftir og það gat tekið langan tíma,að fá hana til þessa!!Svona er nú okkar forsætisráðherra, Erfið í öllum samningum og ráðrík mjög!!! hugsar hún um þjóðarhag??? nei, bara um ESB !!!!Halli gamli

mbl.is Engin ákvörðun um þinghlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 1047610

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband