Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Nærri tvö þúsund bíða/er þetta ekki eitt aðal atriðið átti að gera og búið lofa!!!!

Nærri tvö þúsund bíða
Innlent | mbl.is | 17.5.2011 | 5:42

Ásta S. Helgadóttir í nýjum húsakynnum embættis umboðsmanns skuldara. Hátt í tvö þúsund umsóknir eru óafgreiddar hjá umboðsmanni skuldara. Fleiri umsóknir hafa borist en hægt hefur verið að afgreiða fram undir þetta en samkvæmt upplýsingum embættisins hefur nokkurt jafnvægi verið á umsóknum og afgreiðslum síðustu vikur.

Frá því að nýjar reglur um heimild til greiðsluaðlögunar tóku gildi 1. ágúst á síðasta ári hefur embætti umboðsmanns skuldara afgreitt um 700 umsóknir. Þar af voru samtals á annað hundrað afturkallaðar eða synjað. Enn fleiri umsóknir eru óafgreiddar, því hinn 1. maí biðu 1963 umsóknir afgreiðslu, samkvæmt upplýsingum Svanborgar Sigmarsdóttur, sviðsstjóra kynningarsviðs.

Fyrstu þrjá mánuði ársins bárust tæplega 300 umsóknir á mánuði en færri í apríl, eða rúmlega 200, og gætu frídagar um páskana skýrt það að hluta.

Á annað hundrað umsóknir hafa hlotið afgreiðslu á mánuði á þessu ári nema hvað betur gekk í mars þegar 227 umsækjendur fengu heimild eða synjun til að leita samninga um greiðsluaðlögun. Afgreiðslum fækkaði aftur í apríl og segir Svanborg að þá hafi hægt á vegna þess að starfsfólkið hafi þá verið að athuga hvort umsóknir hentuðu frekar í úrræði fjármálastofnana um niðurfærslu veðskulda í 110% af verðmæti eignar.

Staðan er núna sú að verið er að vinna úr umsóknum sem bárust embættinu í nóvember. Þá sóttu 372 einstaklingar um greiðsluaðlögun, fleiri en aðra mánuði.///þetta er svo að þetta´átti að haga forgang er það ekki,en svona er þetta statt g engin vill svona tafir það biður fólk i öngum sinum, og vill fá sina leirettingu sem gæti hann ekki fengið, verðu að flýta setja i þess nóg fólki ,það gengur atvinnulaut í hrugum ,engi afsökun með svona sem lofar var/Halli gamli


mbl.is Nærri tvö þúsund bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldeyrisuppboð hefjast brátt/var þetta ekki þaðs em Davíð og Geir Haarde vildu á sínum tima???

Gjaldeyrisuppboð hefjast brátt
Viðskipti | mbl.is | 16.5.2011 | 16:11

„Við erum ekki að tala um stórar upphæðir, við viljum...Seðlabanki Íslands mun hugsanlega ráðast í uppboð á erlendum gjaldeyri fyrir eigendur aflandskróna þann 20.maí næstkomandi. Þetta sagði Már Guðmundsson við blaðamenn í Brussel í dag.

„Ég er vongóður um að við getum auglýst fyrsta uppboðið innan tveggja vikna,” sagði Már í Brussel í dag, en greint er frá þessu á Bloomberg. Bætti hann við að uppboðið kynni jafnvel að verða auglýst á föstudaginn næstkomandi.

Seðlabanki Íslands kynnti fyrir skömmu áætlun um afnám gjaldeyrishafta, sem á að eiga sér stað á árunum 2011-2015. Sagði Már í Brussel í dag að aflétting haftanna myndi vonandi örva fjárfestingu á Íslandi. Seðlabankastjórinn sagði að fjárfestar, það er eigendur aflandskróna, fengju tvær vikur til að senda inn tilboð í gjaldeyri, í það minnsta í fyrsta uppboðinu. „Við erum ekki að tala um stórar upphæðir, við viljum prufukeyra kerfið í fyrstu. En með tímanum munu upphæðir og tíðni uppboða aukast,” sagði Már, og bætti því við að skuldabréfaútgáfa ríkisins á alþjóðlegum mörkuðum væri jafnframt á döfinni./////þetta gætu verið byrjun fyrir okkur að gera,og það gæti flýtt höftunum heil mikið ef gest að ger aþetta svona og ekki vitlaust,en var þetta ekki þaðs sem Davíð og Geir Haarde vildu gera á sinum tíma maður bara spyr/Halli gamli


mbl.is Gjaldeyrisuppboð hefjast brátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfir 5000 óvátryggð ökutæki/ekki er það nú gott eða hitt þá heldur!!!!!

Yfir 5000 óvátryggð ökutæki
Innlent | Morgunblaðið | 17.5.2011 | 5:57

 Yfir fimm þúsund óvátryggð ökutæki eru í umferð hér á landi. Nýtt úrræði í frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um ökutækjatryggingar á að tryggja fækkun slíkra ökutækja, öllum greiðendum iðgjalda til bóta.

Verði frumvarpið óbreytt að lögum hefur Umferðarstofa heimild til að krefjast nauðungarsölu ökutækis eða að það sé selt til niðurrifs ef eigandi eða umráðamaður greiðir ekki iðgjald vátrygginga í vanskilum einum mánuði eftir að það er kyrrsett.////það er svo að það er ekki alltaf trassaskapur þetta men hafa bara ekki efni ,því miður en þetta sama vandamlið fyrir því en svo er þetta að menn veru bankir margir en get ekki tekið bíiinn i gegna,það  gyldir víst ekki og það verður að gera raðstefanir 
 þvi miður fyrir margan/Halli gamli


mbl.is Yfir 5000 óvátryggð ökutæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setja marga fyrirvara//samfylging ekki af baki dottin,og gerðir ymsar kröfur,enda geta menn sett sig á háan hest!!!

Setja marga fyrirvara
Innlent | Morgunblaðið | 17.5.2011 | 5:59

Fiski landað í Hafnarfjarðarhöfn. „Fyrirvarar mínir eru varðandi úthlutanir ráðherra og sveitarfélaga,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar á Suðurlandi, um frumvörp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða.

Þingflokkar stjórnarflokkanna afgreiddu frumvörpin í gær og verða þau lögð fram á Alþingi von bráðar. Þingmenn Samfylkingarinnar settu þó fjölmarga fyrirvara.

„Ég tel að öll verðmyndun úr pottum eigi að verða á markaði,“ segir Björgvin, sem geldur varhug við pólitískri tengingu við úthlutun aflaheimilda frá ári til árs. „Það verður að teljast afar óheppilegt að láta stjórnmálamenn úthluta veiðiheimildum,“ bætir hann við. Best sé að markaðstengingin sé sem mest.

Björgvin styður þó meginatriði frumvarpanna, svo sem innköllun veiðiheimilda í einu lagi og „raunverulegt“ veiðigjald, eins og hann orðar það. Innköllun á einu bretti sé skynsamlegri en árleg fyrning hluta aflaheimildanna. Þetta sé ákveðin málamiðlun en veigamikið skref engu að síður.

Samfylkingarmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson er fulltrúi Norðausturkjördæmis en þar eru mörg afar öflug sjávarútvegsfyrirtæki. 

„Ég vil að úthlutað sé á markaðsforsendum, ekki pólitískum,“ segir Sigmundur. „Ég er einnig á því að leyfa þurfi í einhverjum mæli framsal kvóta, með takmörkunum þó. Tryggja þarf hagkvæmni og öflug fyrirtæki þurfa að vera til. Best væri að það væri metið af sérfræðinganefnd hvaða fyrirtæki séu svo vel rekin að þau verði að fá að vera áfram til.“////það,er svo að þegar meirihluti er naumur þurfa menn að setja stólinn fyrir sinn veg i þessu og það verður eflaust gert,það er ekki búið að bita úrr nálini með það"!!!! ,segja svo að alger samsamaða sé um málið er ekki retta als ekki ,en það higgnara þeim flestum þá á misjafnan hatt sé að geta, ef það tekst að bylta öllum og setja landi a hausinn,það er svo að þessi ríkisstórn sem þykist vera að ger þetta fyrir þjóðarhag,er á villi brautum algjörlega,það sem meir við væri er að setja bara sóknarmark og taka af vankantana,og leigja kvóta til 28 ára ekki mynna/Halli gamli  


mbl.is Setja marga fyrirvara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Irving Oil kynnir sér aðstæður hér/Nú vonar maður að þetta takist og heiðarleg samkeppni fáist!!!

Irving Oil kynnir sér aðstæður hér
Viðskipti | mbl.is | 16.5.2011 | 7:08

Mynd 563728Fulltrúar frá kanadíska olíufélaginu Irving Oil eru hér á landi og hafa kynnt sér rekstur íslensku olíufélaganna. Fréttablaðið segir, að ekki sé talið útilokað að félagið kaupi rekstur annaðhvort N1 eða Skeljungs.

Irving Oil fékk úthlutað lóðum fyrir birgðastöð og eldsneytisstöð. Íslensku olíufélögin sameinuðust þá gegn kanadíska félaginu og komst Samkeppnisráð síðar þeirri niðurstöðu síðar að með með því hefðu olíufélögin brotið gegn samkeppnislögum.

Kanadíska félagið hefur síðan öðru hvoru kannað aðstæður hér og hefur undanfarin ár flutt hingað inn smurolíur.///kannski ljótt að segja ,en samt vonar maður að það takist nú að fá i þetta alverlega samkeppni og ekki veitir okkur af á meðan við glímum við þessa Olivershækkanir,og það er gott að fá svona sterkt og gott fyrirtæki her inn sem hefur bæði Olíur og timbur á góðu verði,vinum að það verði af þessu og alvöru samkeppni hefjist/Halli gamli


mbl.is Irving Oil kynnir sér aðstæður hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Stuðningsmennirnir í fullum rétti/svo uppskerum sem við sáum segir máltækið!!!

Wenger: Stuðningsmennirnir í fullum rétti
Íþróttir | mbl.is | 15.5.2011 | 19:43

Arsene Wenger.Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal sagði eftir tap sinna manna gegn Aston Villa á heimavelli í dag að stuðningsmenn félagsins hafi verið í fullum rétti að láta ónægju sína ljós með því að púa á leikmenn þegar gengu af velli.

Arsenal á nú á hættu að missa Manchester City upp fyrir sig í þriðja sæti deildarinnar en City er tveimur stigum á eftir Arsenal en á leik til góða gegn Stoke á þriðjudaginn. Liðið sem endar í fjórða sætinu þarf að fara í undankeppni Meistaradeildarinnar.

,,Það er okkar vinna að þakka stuðningsmönnunum og þú þarft aldrei að vera vandræðalegur þegar þú vinnur þína vinnu. Á hverju sem á gengur þarftu að virða stuðningsmennina. Þeir athuga ekki hversu miklu fé við eyðum heldur vilja þeir vinna leikina.

Þegar við gerum það ekki þá eru þeir ekki ánægðir og það er fullkomlega eðlilegt. Við munum að sjálfsögðu reyna að styrkja liðið okkar en besta leiðin til að halda stuðningsmönnum góðum er að vinna leiki,“ sagði Wenger eftir tapið gegn Villa.////þetta er hár retta hjá Wenger ,og mundi ég segja eins og máltækið " svo uppskerum sem við sáum"En það þýðir ekki að gráta Björn Bónda ein og sagt er i sögunni heldur safna liði og gera betur næst,Jafnvel þó M.C. fari uppyfir sem ekki er víst tökum við okkur á  í umspilinu/en samt í endann viljum við Arsenal aðdáendur óska M.U.N. með hamingju með titilinn,ekki spurning þeir áttu hann skilið/Halli gamli 


mbl.is Wenger: Stuðningsmennirnir í fullum rétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelar skila Palestínumönnum skattfé/Össur segir Össur segir allt með að þakka!!!

Ísraelar skila Palestínumönnum skattfé
Erlent | AFP | 16.5.2011 | 14:36

Forsvarsmenn Fatah og Hamas skrifa undir samvinnusamning...Ísraelar afhentu í dag palestínskum yfirvöldum jafnvirði rúmlega 11,5 milljarða króna af skatttekjum sem Ísraelsmenn höfðu fryst eftir að Fatah og Hamas-hreyfingarnar skrifuðu undir samkomulag um sameiginlega bráðabirgðastjórn.
Ísraelsmenn safna greiðslum á sköttum og tollum fyrir hönd Palestínumanna. 

Segjast Ísraelar hafa affryst fjármunina vegna þess að þeir hafi fengið á hreint að samkomulagið milli Fatah og Hamas hafi engin áhrif og að öryggissamvinna milli ísraelskra og palestínskra yfirvalda haldi áfram. Útiloka þau þó ekki að gripið verði aftur til sambærilegrar frystingar í framtíðinni.

Vakti ákvörðun Ísraela um að fyrsta skattféð hörð viðbrögð víðar. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, skorar þannig á ísraelsk yfirvöld fyrir helgi að leysa þegar í stað skattfé Palestínumanna til palestínskra stjórnvalda, svo þau gætu veitt borgurum þjónustu og greitt opinberum starfsmönnum laun. ///það er skrítið oft að Ísraelar skuli líðast að haga sér svona og komast upp með það.,í skjóli Bandaríkjamanna og fleiri,það er ljot  og ekki til að bæta heiminn!! en svo er að vara kjarnorkuveldi eins og Pakistanar eru einnig,það ber vist að bera fyrir þeim virðingu er það ekki??? en Össur gerðir það ekki!!!!/Halli gamli


mbl.is Ísraelar skila Palestínumönnum skattfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja opinn fund um kvótamálið/að sjálfsögðu er það leiðin,þetta varðar allt landið og miðinn!!!

Vilja opinn fund um kvótamálið
Innlent | mbl.is | 16.5.2011 | 16:50

Frá Alþingi. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sjávarútvegsnefnd Alþingis hafa óskað eftir því við formann nefndarinnar að haldinn verði opinn nefndarfundur á miðvikudag um ný frumvörp sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða.

Fara þingmennirnir fram á það, að á  fundinum verði kynnt áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnarlögunum, sem sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hafi gert grein fyrir á blaðamannafundi og á fundum með hagsmunaaðilum. 

Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra og  hagsmunaðilar í sjávarútvegi verði boðaðir á fundinn.///að sjálfsögðu er þetta leiðin þetta varðar allt landi og miðinn!!! það er svo að það' er komið nóg af þessu kjaftæði um þetta leysa þetta á þann hátt sem er okkur fyrir bestu en ekki ESB,það er malið/Halli gamli 


mbl.is Vilja opinn fund um kvótamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband