Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Boðar 2.200 ársverk/höfum við heyrt þetta áður,og hvað er að marka þetta???

Boðar 2.200 ársverk
Innlent | mbl.is | 15.3.2011 | 18:32

Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi.Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að á kjarasamningum og niðurstöðu um Icesave geti oltið hagvaxtarhorfur, áform um afnám gjaldeyrishafta og þar með atvinnuuppbyggingin öll.

Jóhanna sagði í utandagskrárumræðu um stöðu atvinnumála, að nú væri talið að hagvöxtur á þessu ári verði 2% í stað 3% eins og áður var spáð og það væri vissulega áhyggjuefni.

Þá sagði hún  að ef litið væri til þeirra framkvæmda, sem væru í undirbúningi og ef sátt næðist  um fjármögnun þeirra, svo sem í vegamálum, þá yrðu fljótlega sköpuð 2.200-2.300 ársverk og 500-600 bein varanleg störf við framtíðarrekstur. Nefndi Jóhanna aukna afkastagetu álversins í Straumsvík, framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, byggingu kísilmálmverksmiðju í Helguvík, hreinkísilverksmiðju í Grindavík og natríumklóratverksmiðju á Grundartanga.

Ólöf Nordal, þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, fór fram á umræðuna og sagði að forsætisráðherra hefði lýst ákveðinni stöðnun í efnahagskerfinu og engin hreyfing væri á hagvexti. 

Sagði Ólöf að meginvandinn í atvinnulífinu væri, að umgerðin, sem ríkisstjórnin væri að skapa, væri fyrirtækjum fjandsamleg. Erlendir og innlendir fjárfestar héldu að sér höndum vegna þess að hér á landi ríkti pólitísk óvissa.////Jóhann þreytist ekki á að boða ný störf og hefur sagt þetta áður,en það lítið á marka ennþa´og kannski verður ekki  600 varanaleg störf og 14-15 þus man atvinnulausir,þetta er svona hálfgert grín að manni finnst ,það er ekki nema alavega annað eða bæði Álverin sem gilda til að störfin komi handa festu ef ekki öllum þetta er svo keðjuverkandi þegar af stað' er farið og vindur uppá sig,við erum orðin einnig búin að fá nóg af hótunum hennar með þetta Icesave og vel það ,það er ekkert samverkandi við það og við eigum ekki að borga það,als ekki við bara hugsum um að verja okkur fyrir þessum kúgurum sem vilja láta okkur borga skuldir óreiðumanna/nei það gerum við ekki,/Halli gamli


mbl.is Boðar 2.200 ársverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja þjóðaratkvæði um stjórnlagaráð/þetta er forkastanlegt og ekkert annað!!!

Vilja þjóðaratkvæði um stjórnlagaráð
Innlent | mbl.is | 15.3.2011 | 17:34

Þingmenn Hreyfingarinnar. Þingmenn Hreyfingarinnar hafa lagt fram breytingartillögu við fram komna þingsályktunartillögu um skipun stjórnlagaráðs. Breytingartillagan kveður á um að áður en umfjöllun Alþingis um frumvarp til stjórnarskipunarlaga hefst skuli fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs.
Breytingartillagan tryggir aðkomu þjóðarinnar að endanlegu frumvarpi stjórnlagaráðs og að vilji þjóðarinnar sé skýr hvað varðar nýja stjórnarskrá áður en til kasta Alþingis kemur. Mikilvægt er að þjóðaratkvæðagreiðslan verði þannig útfærð að unnt verði að greiða atkvæði um einstakar greinar frumvarpsins eða samhangandi greinar þess eftir því sem við á sem og fleiri en eina útfærslu af einstökum greinum sem mikið ósamkomulag kann að vera um í stjórnlagaráðinu," segir í tilkynningu frá þingflokki Hreyfingarinnar.

Starfstími stjórnlaganefndar verði framlengdur

 

  • Vigdís Hauksdóttir.

    Vigdís Hauksdóttir. mbl.is/Ómar

 

Þá lagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, fram breytingartillögu við sama frumvarp, en samkvæmt dagskrá Alþingis fer síðari umræða fram um það í kvöld. Vill Vigdís að starfstími stjórnlaganefndar verði framlengdur og nefndin fái það verkefni að gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins.

Stjórnlaganefndin skuli, að mati Vigdísar, meta sjálfstætt og án afskipta löggjafans þau atriði sem hún telji að eigi erindi í endurskoðaðri stjórnarskrá. Nefndin skuli skila tillögum sínum í frumvarpsdrögum til Alþingis eigi síðar en 1. júní nk.

„Þeir sem hafa fylgst með fjölmiðlum undanfarnar vikur vita það að leiðin sem lögð er til með kosningu stjórnlagaráðs mætir mikilli andstöðu. Sérfræðingar í stjórnskipunarrétti tala um stjórnarskrársniðgöngu. Ég er talsmaður þess að auka virðingu Alþingis í samfélaginu, það gerum við helst með því að setja vönduð og ígrunduð lög," segir Vigdís.///////auðvitað vilja þessir sem komumst að í byltingunni ,halda henni áfram og fara  framhjá  Alþingi með hlutina sem þeim er ætlað,þetta er forkastanlegt og bara skömm og ekkert annað Alþingi er kosið til þessa að gera þessa hluti ,og þeirra er verkefnið,ef stjórnlagaþing verur samþykkt,er það þeirra að gera uppkast af stjórnarskrá og leggja fyrir Alþingi als ekki kosningu um það áður!!! það er bara til að gera Alþingi til bölvunar og ekkert annað,þetta er ekki okkur til framdráttar,bara niðrandi/Halli gamli


mbl.is Vilja þjóðaratkvæði um stjórnlagaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosið utan kjörfundar á morgun/það ber að lemja járnið meðan það er heitt,og meðan þeir halda ?að þeir hafi meirihluta fyrir samþykkt!!!

Kosið utan kjörfundar á morgun
Innlent | mbl.is | 15.3.2011 | 17:49

Icesave. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 9. apríl nk. hefst hjá embætti sýslumannsins í Reykjavík, Skógarhlíð 6, á morgun, 16. mars.

Kosið er á skrifstofutíma á milli kl. 9:00 til 15:30 alla virka daga til 25. mars nk. Laugardaginn 19. mars er opið frá kl. 12 til 14. Laugardaginn 26. mars og sunnudaginn 27. mars nk. er einnig opið frá kl. 12 til 14.

Frá og með mánudeginum 28. mars fer atkvæðagreiðslan fram í Laugardalshöll og þá verður opið alla daga frá kl. 10 til 22. Á kjördag verður opið frá kl. 10 til 17.///////þetta et engin tími á þessu það sjá allir sem vilja,það er svo að þetta skal gert meðan hægt er að sja´að þeir hafi meirihluta fyrir að samþykkja þetta ,sja´hvað liggur mikið á ,það er allt gert til þessa að engin geti endurskoðað það sem sagt er og logið um þetta,maður telur þetta ólöglegt með öllu að þetta sé löglegt/Halli gamli

 


mbl.is Kosið utan kjörfundar á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæla 11.000 milljörðum inn í fjármálakerfið/þetta er það sem þarf og sínir vandan!!

Dæla 11.000 milljörðum inn í fjármálakerfið
Viðskipti | mbl.is | 15.3.2011 | 11:30

Mynd 557725Seðlabanki Japans hefur dælt átta billjónum jena (rúmlega 11.000 milljarða kr.) inn í fjármálakerfi landsins til að draga úr áhyggjum markaðarins, en hlutabréfaverð lækkaði mikið í japönsku kauphöllinni í kjölfar náttúruhamfaranna.

Bankinn dældi fimm billjónum jena í morgun að staðartíma og nú síðdegis bætti hann þremur billjónum við.

Þá hyggst seðlabankinn útvega 12 billjónir jena með því að kaupa ríkisskuldabréf sem eru í eigu fjármálastofnana.

Í gær dældi bankinn 15 billjónum jena inn í fjármálamarkaðinn, sem er metupphæð.///þetta er það sem þarf að taka í þessu strax, og það gerir þetta ríki Japan sem er eitt 3 stærsta viðskiptaríki heimsins,og það þarf hjálp ekki spurning að. þetta duglega fólk þarf það, við öll verðum að standa með þeim, ekki spurning/Halli gamli 


mbl.is Dæla 11.000 milljörðum inn í fjármálakerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverð lækkar/þetta gott að heimsmarkaður lækki !!!!

Olíuverð lækkar
Viðskipti | mbl.is | 15.3.2011 | 12:05

 Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um rúma 5 dali tunnan á markaði í Lundúnum í morgun en fjárfestar telja að það dragi úr efnahagsumsvifum í Japan og annarstaðar vegna náttúruhamfaranna þar.///þetta er svona að eins dauði er annars brauð ljót að segja þetta en satt og  því miður en það er kannski þá hægt að bæta það með því  að styrkja Japani meira,og olíuríkin eiga ð taka það til sin og borga brúsann /Halli gamli 
mbl.is Olíuverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjö þýskum kjarnorkuverum lokað/þetta er rökhyggja að gera viðast hvar,eða alstaðar !!!

Sjö þýskum kjarnorkuverum lokað
Erlent | AFP | 15.3.2011 | 11:08

Angela Merkel og Stefan Mappus, forsætisráðherra...Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynnti í dag að sjö þýskum kjarnorkuverum verði lokað í þrjá mánuði á meðan sérstök úttekt verður gerð á öryggismálum í kjarnorkuverum landsins.

Merkel sagði, að í ljósi kjarnorkuslyssins í Japan hafi verið ákveðið að láta fara fram sérstaka skoðun á öllum þeim kjarnorkuverum, sem tekin voru í  notkun fyrir árið 1980./////þetta er rökhyggja þeirra að gjöra þetta það  er ekkert grín að hafa þetta ekki i lagi ,þetta þurfa allir að gera sagan er það að þetta er ekki nógu öruggt als ekki ,við bara vonum að þeir sem eru með kjarnorkuver veri þetta allir/Halli gamli


mbl.is Sjö þýskum kjarnorkuverum lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkan og Atlantsolía lækka verð/það kom að þessu,það gott áfram lækkun!!!

Orkan og Atlantsolía lækka verð
Innlent | mbl.is | 15.3.2011 | 11:55

Mynd 555960Orkan og Atlantsolía hafa lækkað verð á bensínlítranum um 3 krónur og verð á dísillítranum um tvær krónur. Bensín kostar nú í sjálfsafgreiðslu 227,6 kr. hjá Orkunni en er 10 aurum dýrara hjá Atlantsolíu.

Lítri af dísilolíu kostar 233,5 kr. hjá Orkunni og 233,6 kr. hjá Atlantsolíu.

Bensínverð hefur ekki lækkað hjá N1, Olís eða Shell. Þar kostar bensínlítrinn um 231 krónu og dísillítrinn um 236 kr.

Í tilkynningu frá Orkunni kemur fram að verð á olíu hafi lækkað nokkuð í morgun. Ástæða lækkunarinnar að þessu sinni sé rakin til þess að hlutabréfavísitölur hafi fallið víða um heim sem af sé degi, en mest hafi lækkunin verið í Japan. 

Verð á olíu hafi í raun verið að elta þá þróun. Enn sé barist í Líbíu og mjög erfitt sé að spá fyrir um þróunina í Sádi-Arabíu og nágrenni./////þa' kom að því það gott hefur lækkað aðeins á heimsmarkaði og dollar lækkað,þetta þarf bara að vera meira og það gerir vonandi ,það munar mikið um Japani ekki spurning og ekki er það nú gott nema síður sé,en þetta er mikið spursmál fyrir okkur öll,ekki bar að tala um einkabilin það er allur fiskiflotin og flutningar á landi, og vistölur upp og lánin hækka allt hækkar/Halli gamli


mbl.is Orkan og Atlantsolía lækka verð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvissa og misvísandi fréttir/það er von að það sé panik þarna ,hver skilur það ekki??

Óvissa og misvísandi fréttir
Innlent | mbl | 15.3.2011 | 10:58

Tómar hillur í matvöruverslun í Tókýó. „Mér leist ekki á blikuna vegna þess að fyrir tveimur dögum var maturinn farinn að hverfa úr hillunum í búðunum þar sem ég bý og alltaf að berast óhugnanlegar fréttir frá þessu kjarnorkuveri, en fréttirnar eru mjög misvísandi," segir Árni Björn Árnason, skiptinemi í Japan.

Árni ákvað að fara burt frá Tókýó um tíma til að hafa vaðið fyrir neðan sig og er nú staddur á Okinawa, sem er syðsta eyjan sem tilheyrir Japan. Hann segir mikla óvissu ríkja um hversu alvarlegt ástandið sé en engu að síður haldi fólk ró sinni. „Orðið á götunni var að það væri ekki endilega allt að koma fram sem væri raunverulega að gerast og jafnvel að þeir viti það ekki sjálfir sem eru við stjórnina. Það sem mér fannst óþægilegast í gær var að þá strax var rosalega erfitt að komast út á flugvöll. Lestarsamgöngur liggja niðri að hluta þannig að ég þurfti í staðinn að taka marga strætóa og það tók fjórum sinni lengri tíma en venjulega að komast út á flugvöll."

Árni segist vita af fleiri íslenskum skiptinemum í Tókýó og sumir þeirra ætli einnig að færa sig um set suður á bóginn þar til ástandið skýrist, en einhverjir ætli að halda kyrru fyrir í höfuðborginni. „Geislavirknin mælist núna tuttugufalt meiri í Tókýó en eðlilegt er samkvæmt japanska ríkisútvarpinu. En það er líka tekið fram að það er samt langt frá því að vera skaðlegt, en þegar maður heyrir þetta þá finnst manni það ekkert þægileg tilhugsun."

 

  • Frá japanska eyjaklasanum Okinawa þar sem Árni Björn dvelst nú.

    Frá japanska eyjaklasanum Okinawa þar sem Árni Björn dvelst nú. Reuters

 

Eins og gefur að skilja hafa hamfarirnar djúpstæð áhrif á japanskt samfélag. Árni hefur verið í Japan síðan haustið 2010 en segist nú upplifa mjög sérstaka stemningu hjá þjóðinni. „Það er eins og það hafi kviknað einhver gömul taug hjá þjóðinni og það er greinilega eitthvað í loftinu, næstum eins og maður sé að bíða eftir loftárás en samt er fólk ótrúlega rólegt. Þau taka þessu með miklu jafnaðargeði, en það er eins og það sé búið að vekja eitthvað upp, ég veit ekki hvort það eru minningar frá seinni heimsstyrjöldinni eða hvað en það er mikil samstilling meðal fólksins."

Sem dæmi nefnir Árni að á flugvellinum í Tókýó í gær hafi verið þúsundir manna, ys og þys og læti, þangað til skyndilega hófst útsending á ávarpi forsætisráðherra. „Þá bara fraus öll flugstöðin og enginn hreyfði sig eða talaði á meðan hann var að tala. Þá sá maður að þetta er það sem allir eru að hugsa um." Greinilegt sé að hamfarirnar þjappi Japönum saman. „Ég get ekki sagt annað. Ég er núna hérna á Okinawa, þúsund kílómetrum frá meginlandinu og hér er fullt af fólki úti á götu að safna til styrktar leitarhópum. Þannig að samstaðan er mikil."////það er meira en að segja að halda ró sinni við svona aðstæður ,ekki spurning um það en þetta fólk þjappar sér saman þegar þessi mikla vá gengur yfir og ekki séð fyrir endann á!! en það er vonandi að þetta með kjarnorkuna komist ekki lengra og það hætti að leka út geislavirk efni sem hefur gert ,og engin veit i raun hvap mikið mælingar segja það um hættumörk og vel það,en hvað sem skaður er hugur allra með þessu fólki öllu og vonum það besta  ekkert annað sem við getum gert,jú safnað pening fyrir það sem er mikil þörf fyrir/Halli gamli


mbl.is Óvissa og misvísandi fréttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arsenal í viðræðum við Lehmann/þetta lýst menni vel á !!!!

Arsenal í viðræðum við Lehmann
Íþróttir | mbl.is | 14.3.2011 | 15:49

Jens Lehmann.Sky fréttavefurinn hefur heimildir fyrir því að Arsenal sé í viðræðum við Jens Lehmann um að koma aftur til félagsins. Þrír af markvörðum Arsenal er á sjúkralistanum, Wojciech Szczesny, Lukasz Fabianski og Vito Mannone, og er Manuel Almunia eini markvörðurinn sem Arsenal hefur úr að spila.

Lehmann er 41 árs gamall sem lék með Arsenal í fimm ár og lék um 200 leiki fyrir félagið. Hann gekk til liðs við Stuttgart árið 2008 en lagði markmannshanska á hilluna síðastliðið sumar.

,,Ég er í London en ég hef ekki heyrt neitt um þessa áætlun en maður veit aldrei hvað verður,“ sagði Lehmann við þýska blaðið Bild.////kallin er góður og þessi virði að notann og vel það vonum bar að hana taki þessu það er ekki vinnandi nem hafa goðann markmann og það er Lehmann mjög góður í  eldri kantinum sé/Halli gamli


mbl.is Arsenal í viðræðum við Lehmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Róttæk breyting á nefndum þingsins/var að lesa tillöguna í heild,það þarf mikið mynni til að muna allt þetta lesið það sjálf og sjáið!!Þetta er sko ekki einfaldað!!!

Róttæk breyting á nefndum þingsins
Innlent | mbl.is | 14.3.2011 | 18:43

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er forseti Alþingis. Forseti Alþingis og formenn þingflokka hafa lagt fram frumvarp, sem gerir ráð fyrir róttækri breytingu á nefndakerfi þingsins. Er m.a. lagt til að nefndum verði fækkað verulega eða úr 12 í 7.

Er lagt til að nefndum verði fækkað verulega eða úr 12 í 7 og ekki verði bein samsvörun milli ráðuneyta stjórnarráðsins og málefnaskiptingar nefndanna, heldur ráði álag í nefndastarfi meira um verkefnaskipulag þingsins.

Ýmsar aðrar breytingar verða gerðar á þingsköpum samkvæmt frumvarpinu. Þannig verður heimilt að birta þingskjöl á heimasíðu Alþingis á milli þingfunda 

Þá verða einnig gerðar breytingar á reglum um umræður utan dagskrá, sem munu raunar heita  „sérstakar umræður" verði lagafrumvarpið samþykkt.///maður verur að skora á fólk að lesa þetta allt ,það er sko ekki einfaldað að mínu mati þetta er svo flókið að menn læra þetta ekki á einu þíngi  ,það er næsta víst,það er alltaf svo ef einfalda hlutinn verða þeir oftast mikið flóknari,en samt var nokkur ástæða til breytinga  þarna, sem kemur þarna út er að mínum dómi sumt gott, annað ekki, vald forseta er alltof mikið og verur bara að hluta til einræði og ekki er að gott en við skulum sjá hvort þetta verður samþykkt svona/Halli gamli


mbl.is Róttæk breyting á nefndum þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1048553

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband