Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

180.000 íbúar flýja kjarnorkuver/þetta er óhugnanlegt,og engin veit framhaldið!!!

180.000 íbúar flýja kjarnorkuver
Erlent | AP | 13.3.2011 | 23:00

Dai-ichi kjarnorkuverið í FukushimaAð sögn japanskra yfirvalda er hætt við að önnur sprenging verði í Dai-ichi kjarnorkuverinu í Fukushima, sem skemmdist í náttúruhamförunum sl. föstudag. Þau róa nú öllum árum að því að koma í veg fyrir að kjarnakljúfar bræði úr sér.

Yfirvöld hafa þó ekki gefið nákvæmar upplýsingar um hvernig sú vinna gangi.

Um 180.000 íbúar sem búa í nágrenni við kjarnorkuverið hafa yfirgefið heimili sín. Þá er talið að um 160 hafi orðið fyrir geislun.

Fjögur kjarnorkuver í norðausturhluta Japans hafa tilkynnt um skemmdir, en svo virðist sem að hættan sé mest í Fukushima Dai-ichi kjarnorkuverinu. Þar varð sprenging í gær og óttast menn að önnur sprenging verði í verinu. Stjórnendur þess segjast ekki útiloka neitt, en segja að afleiðingarnar muni ekki hafa áhrif á heilsufar fólks.////engin er í raun fróðari um afleiðingar kjarnorku en einmitt Japanir sem reyndu þetta á 2 sprengjum á borgir þarna 1945 svo um það er ekki deilt,en svo er fyrir þessu komið nú þess landi að þeir byggja kjarnorkuver sem auðvitað fyrirfram var vitað að ekki þola svona jarðskjálfta uppa´8,9 stig eða meira!! en það er svo að svo langi lærir sem lifir,en þetta er einum of dýr lærdómur og óhugnanlegur ,og engin endir á þvi ,það geta komið sterkir eftirskjálftar og þá ekki að sökum að spyrja meira getur skeð með kjarnorkuverin,og .það ekki gott ,ætli menn fari ekki að skoða þetta betur þarna ,þegar þessi linnir,tjónið strax orðið voðalegt og manntjónið einnig mikið engin getur en sagt um það en er saknað svo margra,en við verðum bara að vona það besta /Halli gamli


mbl.is 180.000 íbúar flýja kjarnorkuver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

City áfram og mætir Manchester United/Svona er þetta og það verður barsist,mínir menn Arsenal urðu að lúta í grasi fyrir M.U.N. og verða bara að berjast um úrvaldeildina og vinna!!!

City áfram og mætir Manchester United
Íþróttir | mbl.is | 13.3.2011 | 18:48

Brynjar Björn í baráttu við Carlos Tévez.Micah Richards tryggði Manchester City sæti í undanúrslium ensku bikarkeppninnar þegar hann skoraði eina mark leiksins í 1:0 sigri gegn Reading í kvöld. Það verður því sannkallaður stórleikur í undanúrslitunum en Manchester City mætir Manchester United. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Bolton og Stoke en leikirnir fara fram á Wembley 16. og 17. apríl.

Brynjar Björn Gunnarsson lék allan tímann með Reading en Ívar Ingimarsson var ekki í leikmannahópi liðsins.

90. Leiknum er lokið með 1:0 sigri Manchester City. ///////svona er knattspyrnan ,ekki á vísan að róa ,og það oft vel og gaman, til þessa er leikurinn gerður og spennandi!! en það er svo að maður hefur gaman af knattspyrnu,þá er maður samt svolítið sár þegar liðið man tekst ekki vel upp !! eins og með Arsenal sem hefur glatað 2 titlum i röð núna ,og það er eftir einn sem þeir ennþá munu  berjast um vonandi og vinna!! en samt er maður ekki svo eigingjarn að þarna eru lið að koma á óvart og það gaman mjög,manni hlakkar til að sjá þessa úrslitaleiki i Bikarkeppninni,og svo auðvitað,Úrvaldeild og Evrópukeppnina þó mitt lið sé þar dottið út/Halli gamli


mbl.is City áfram og mætir Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm sparisjóðir fengu milljarð að láni án trygginga/Nýtt og Nýtt sukk kemur fram daglega !!!!!

Fimm sparisjóðir fengu milljarð að láni án trygginga
Innlent | mbl.is | 13.3.2011 | 19:55

 Byggðastofnun lánaði fimm sparisjóðum tæpan milljarð króna á árunum 2005 og 2006 án nokkurra trygginga. Lánin hafa verið afskrifuð en sjóðirnir nýttu þau meðal annars til að bæta eiginfjárstöðu sína, þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Fram kemur að lánin hafi verið rökstudd með því að sparisjóðirnir færu ekki á hausinn frekar en aðrar fjármálastofnanir.

Fréttastofan RÚV segist hafa undir höndum skýrslu Ríkisendurskoðunar um mat á efnahagsreikningi og eignasafni Byggðastofnunar, sem unnin hafi verið að beiðni stofnunarinnar í lok árs 2009. Í skýrslunni sé sérstaklega fjallað um lán Byggðastofnunar til sparisjóða á árunum 2005 til 2006, en stofnunin hafi þá átt drjúga lausafjársjóði.

Segir að stofnunin hafi lánað fimm sparisjóðum  950 milljónir króna til að koma peningunum í vinnu, eins og það sé orðað í skýrslunni.

Umræddir sjóðir séu Sparisjóður Bolungarvíkur, Sparisjóður Vestfirðinga, Sparisjóður Norðlendinga, Sparisjóður Þórshafnar og Sparisjóður Norðfjarðar.////Nýtt og nýtt sukk kemur daglega i ljós,og það er svo að við erum bara gáttuð á þessu og varnarlaus ,er það ekki ? það eru komin meira en 2 ár frá hruni og en er að koma i ljós sukk og sukk ofan og það er en sama flókið mikið við völd þarna viða ,er ekki mal að þessu fari að linna og við getum tekið þetta alvarlega i gegn,þarf ekki bara að  skipta alveg um mannskap í öllu þessu kerfi okkur Bankakerfið er en að komast upp  .eð allt sem þeim sýnist,og eftir höfðinu dansa limirnir er sagt,er ekki ríkisstjórinn búinn að ger nóg i þessu, og skipta þarf þar út einnig ekki spurning um það!!!/Halli gamli


mbl.is Fimm sparisjóðir fengu milljarð að láni án trygginga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarnorkuslys ekki yfirvofandi/er þetta ekki bara friðþæfing,eða hvað???

Frétt af mbl.is

  Kjarnorkuslys ekki yfirvofandi
Erlent | mbl.is | 13.3.2011 | 16:13
Reyk leggur frá Fukushima-verinu.Sérfræðingar telja að kjarnorkuslys sé ekki yfirvofandi í Fukoshima Daiichi-kjarnorkuverinu þar sem þeir búast ekki við að kjarnakljúfar versins bræði úr sér. Brugðið hefur verið á það ráð að veita sjó á kjarnakljúfana til að kæla þá til að koma í veg fyrir að þeir bræði úr sér.
 Á meðan unnið hefur verið hörðum höndum við að halda geislun í skefjum og kæla kjarnakljúfana í Fukshima hefur verið lýst yfir neyðarástandi í Onagawa-kjarnorkuverinu en þar munu yfirvöld hafa stjórn á ástandinu og eru kjarnakljúfarnir þar ekki í hættu.

Að sögn sérfræðinga er það örþrifaráð að veita sjó á kjarnakljúfana og bendir til þess að yfirvöld hafi gefið verið sem slíkt upp á bátinn þar sem salt og önnur efni í honum tæri kjarnakljúfinn. Nú sé því einblínt á fólkið og umhverfið í kring. 

Að sögn Geislavarna ríkisins er vandamál nú vegna kælingar á kjarnakljúf númer 3 í Fukushima-1 í Japan. Ástandið telst vera alvarlegt þar til það það hefur verið leyst.

„Upplýsingar gefa þó ekki tilefni til að ætla að þetta leiði til að geislavirk efni losni til umhverfis í umtalsverðu magni, ekki frekar en gerðist fyrir kljúf númer 1. Varað hefur verið við að sprenging geti orðið, en hún er ekki líkleg til að hafa áhrif á sjálfan kjarnakljúfinn. Samanburður á mati Geislavarna við mat annarra norrænna geislavarnastofnana leiðir í ljós að það er sambærilegt,“ segir í frétt á vef Geislavarna ríkisins.///Það er að koma í ljós að essi kjarnorkuver eru mjög hættuelg ekki spurning ,það er að sanna sig nú,þetta að kælingar  bresta og annað fer úr böndum er ekki nógu gott!!! það ber eftir þessu eldraun sem yfir ganga að gera i því skurk mikinn!! við sem erum ekki inní þessu erum ekki ánægð með þessu svör fræðinga að engin hætta sé af kjarnorkuslysi það er þegar orðið ,og vonum við að þessi sjókæling eyðileggi ekki og tæri kljúfinn það er svo að þetta er Friðþæfing að segja svona, sem þeir hinir sérfróðu vita ekki betur/Halli gamli


mbl.is Kjarnorkuslys ekki yfirvofandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hríðarbyl spáð//það er spáð vestan vindi og éljum,og slæmu skyggni,svo sunnan15-20 m/s og riggningu á morgun!!

Hríðarbyl spáð
Innlent | mbl.is | 13.3.2011 | 18:43

Mynd 522513 Spáð er hríðarbyl í kvöld, vaxandi vindi og slæmu skyggni á fjallvegum eins og Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum. Eins á fjallvegunum á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi að sögn Vegagerðarinnar.

Þá fer veður og skyggni versnandi á Hellisheiði og í Þrengslum með kvöldinu sem og vestantil á Norðurlandi.

Útlit er fyrir mjög hvassa sunnan- og suðvestanátt. Geti vindhviður farið yfir 30 metra á sekúndu á norðanverðu Snæfellsnesi frá því um kl. 20 til 21 í kvöld og 40-55 metrum á sekúndu frá því um
miðnætti.

Snemma í fyrramálið má reikna með varasömum hnútum út með Eyjafirði, frá Akureyri og út undir Dalvík. Það nær að hlána á landinu og þar sem snjór er fyrir á vegum, verður flughált og þá er rétt að hafa í huga þann storm sem nú er spáð.

Á Suðurlandi eru hálkublettir á Sandskeiði en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum, hálkublettir og snjóþekja mjög víða á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir og snjóþekja á flestum leiðum. Hálka, éljagagnur og skafrenningur er á Fróðárheiði og á Vatnaleið. Snjóþekja, éljagangur og stórhríð á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er snjóþekja, hálka og mikill éljagangur.

Á Norðurlandi er hálka,hálkublettir eða snjóþekja.

Á Austurlandi eru hálkublettir eða snjóþekja á nokkrum leiðum. Vegir eru greiðfærir frá Reyðarfirði og með ströndin vestur að Hvalsvöllum.

Á Suðausturlandi greiðfært.//////þetta er spáin og gengur sennilega eftir og élja ,og hvessir vestan og svo á morgun sunnan 15-23 m/s og rigning það getur orðið viða hált og ýlt fyrir gangandi og hált fyrir bifreiðar viða og að berað fara verlega mjög,við erum öllu vön en þetta ber að taka alverlega/Halli gamli


mbl.is Hríðarbyl spáð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verstu hamfarir frá stríðslokum/maður er slegin mjög,og finnur til með með Japönum mjög!!!!

Verstu hamfarir frá stríðslokum
Erlent | AFP | 13.3.2011 | 11:21

Naoto Kan, forsætisráðherra Japans.Naoto Kan, forsætisráðherra Japans, segir að ekki hafi skapast jafn mikið neyðarástand í Japan í 65 ár, eða frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Gríðarleg eyðilegging hafi orðið í landinu í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni sem gekk á land.

Kan segir að búast megi við rafmagnsleysi á mjög stóru svæði næstu daga eftir að kjarnorkuver skemmdust í hamförunum. Landsmenn verði að fara sparlega með rafmagnið.

Staðan varðandi kjarnorkuverið í Fukushima sé mjög alvarlegt, en hætt er við að kjarnakljúfar bræði úr sér.

 

  • Maður leitar að eigum sínum í rústum í Rikuzentakata í norðurhluta Japans.

    Maður leitar að eigum sínum í rústum í Rikuzentakata í norðurhluta Japans. Reuters

  • Slökkviliðsmenn að störfum í Minami Sanriku.

    Slökkviliðsmenn að störfum í Minami Sanriku. Reuters

  • Kona virðir fyrir sér mynd í rústum í Ofunato.

    Kona virðir fyrir sér mynd í rústum í Ofunato. Reuters

 

Þá er haft eftir Takashi Yokota, yfirmanni jarðskjálftasviðs japönsku veðurstofunnar, að það séu 70% líkur á því að mjög sterkir eftirskjálftar, sem geti mælst um 7 stig eða meira, muni ríða yfir á næstu þremur dögum.  

Frá 16. mars verði líkurnar á því að svo sterkir skjálftar ríði yfir komnar niður í 50%.
///þetta er alverlegt og verðum við að vona það að kjarnorkuverin haldi ef það verður leki mikill bíður maður ekki i framhaldið,þetta er mestu hamfarir sem maður hefur lifað síðan i heimstyrjöldinni að mati flestra og ekki búið ,við bar vinum það besta/Halli gamli 


mbl.is Verstu hamfarir frá stríðslokum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óánægðir foreldrar í Breiðholti/er það nokkur furða!!!!!

Óánægðir foreldrar í Breiðholti
Innlent | mbl.is | 12.3.2011 | 14:58

Oddný Sturludóttir í ræðustól á fundi með foreldrum í... Mikill hiti er í foreldrum á fundi, sem nú stendur yfir í Breiðholtsskóla, þar sem Oddný Sturludóttir formaður Menntaráðs Reykjavíkur og Jón Gnarr borgarstjóri kynna sparnaðartillögur fyrir skólana í hverfinu.

Foreldrarnir á fundinum gagnrýna að verið sé að verja peningum í miðborgarverkefni, þegar nær væri að standa vörð um grunn- og leikskólana í borginni.

Fundurinn hófst klukkan tvö og er þétt setinn. Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, þurfti ítrekað að biðja fundarmenn um hafa hljóð þegar Oddný Sturludóttir talaði í ræðustól.///Vér mótmælum öll Breiðhiltintingar ekki spurning um það/Halli gamli 


mbl.is Óánægðir foreldrar í Breiðholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Þurfum á góðum sigri að halda/það eru okkar væntingar einnig stuðnigsmanna!!!

Wenger: Þurfum á góðum sigri að halda
Íþróttir | mbl.is | 12.3.2011 | 10:04

Arsene Wenger.Arsenal hefur á skömmum tíma fallið úr leik í tveimur keppnum. Liðið tapaði fyrir Birmingham í úrslitaleik deildabikarkeppninnar og féll úr leik fyrir Barcelona í Meistaradeildinni í vikunni. Í dag á Arsenal það á hættu að missa af þriðja bikarnum en liðið sækir Manchester United heim í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar.

,,Við þurfum á þessum tímapunkti á góðum sigri að halda. Það myndi hjálpa til eftir vonbrigðin sem við höfum þurft að ganga í gegnum á skömmum tíma. Við förum í leikinn við United með því hugarfari að vinna. Ég sagði við upphaf tímabilsins að við ætluðum okkur að berjast um þá titla í sem í boði eru og við eigum enn möguleika á að vinna tvo.

Við töpuðum á síðustu mínútunni í úrslitaleiknum í deildabikarnum og töpuðu fyrir meistarakandítötunum í Meistaradeildinni. Við þurfum að fá heppnina með okkur í lið,“ sagði Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal við fréttamenn.

Fimm ár eru liðin frá því Arsenal hrósaði sigri gegn Manchester United á Old Trafford en leikur liðanna hefst klukkan 17.15.///við segjum það sama og Wenger stuðinigsmenn Arsenal og vonum það besta auðvitað eru þetta tvö mjög góð lið og M.U.N gott en við vinum bar það besta fyrir okkar menn,vest að ég sé ekki leikin ,verð i Skírn barnabarnabarns mínns/en samt fær maður vonandi góðar fréttir*//Halli gamli


mbl.is Wenger: Þurfum á góðum sigri að halda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti orðið annað Chernobyl/ hræðilegt að svona getur gerst,vonum það gerist ekki!!!!

Gæti orðið annað Chernobyl
Erlent | mbl.is | 12.3.2011 | 10:28

Reykur stígur upp frá Fukushima Daiichi 1 kjarnorkuverinu...Rýmingarsvæðið umhverfis kjarnorkuverið í Fukushima í Japan hefur verið stækkað og nær nú í 20 km geisla út frá verinu. Mikil sprengin varð í kjarnorkuverinu í morgun og steig hvítur reykur upp frá því í kjölfarið.

Geislunin frá kjarnorkuverinu er nú jafnmikil á hverri klukkustund og leyfileg heildargeislun er á einu ári. Slökkviliðið í Tokyo hefur sent sérstaka „úrvals björgunarsveit“ til kjarnorkuversins.

Hluti byggingarinnar hrundi og hvöttu japönsk stjórnvöld fólk í nágrenninu til að hylja vit sín og halda sig innandyra. Að sögn The Washington Post gæti verið í uppsiglingu alvarlegasta kjarnorkuslysið frá slysinu í Chernobyl. 

 

  • Samsett mynd úr myndskeiði sýnir hvernig reykurinn jókst sífellt eftir sprenginguna.

    Samsett mynd úr myndskeiði sýnir hvernig reykurinn jókst sífellt eftir sprenginguna. REUTERS TV

  • Fólk sem þurfti að yfirgefa heimili sín í nágrenni Fukushima Daiichi kjarnorkuversins fékk skjól í ...

    Fólk sem þurfti að yfirgefa heimili sín í nágrenni Fukushima Daiichi kjarnorkuversins fékk skjól í flóttamannamiðstöð. t Reuters

 

Ron Chesser, bandarískur sérfræðingur í geislavörnum, segir að kæla verði kjarnakljúfinn í verinu. Hann var fyrsti bandaríski vísindamaðurinn sem fékk að fara inn fyrir lokunarsvæðið í kringum Chernobyl kjarnorkuverið eftir slysið þar 1992.

„Sú staðreynd að þeir eiga í vanda með að kæla kjarnakljúfana mun valda neyðarástandi,“ sagði Chesser. Hann sagði að þótt tekist hafi að slökkva á kjarnorkuverinu á öruggan hátt verði stöðugt að kæla kjarnakljúfana til að koma í veg fyrir bráðnun kjarnans.

Hann sagði ákveðnar lykilforsendur fyrir því að lýsa yfir neyðarástandi vegna kjarnakljúfa. Ein er ef dregur úr kæligetu og önnur er aukin geislun. Chesser kvaðst hafa skoðað japönsk kjarnorkuver og dáðist að þeim varúðarráðstöfunum sem þar voru gerðar í ljósi jarðskjálftahættu.

Kjarnorkuverið í Fukushima varð illa úti í jarðskjálftanum í gær. Fjórir starfsmenn versins slösuðust er þeir unnu að viðgerðum eftir jarðskjálftann.///////þetta yrði hræðilegt ef yrði,en við skulum svona það besta en svo er þetta með kjarnorkuna,það þekkja Japanir best þeir fengu frystu kjarnorkusprengjurna 1945 á Naggsagi og Hírosíma og dóu milljónir manna þá,og bera þessa sem lifðu það af aldrei bætur,en það er önnur saga ,en ef þetta skeður er það hörmulegt ástand sem þarna skapast og ekki byggilegta´næstu árum,við skulum bara vona að svo varði ekki en þetta segir okkur margt,ekki byggja svona á þessu svæðum/Halli gamli


mbl.is Gæti orðið annað Chernobyl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samúðarkveðjur til Japanskeisara/Við gerum það öll !!!,en hann fyrir okkar hönd!!!!

Samúðarkveðjur til Japanskeisara
Innlent | mbl.is | 12.3.2011 | 11:02

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun Hans Háting Akhito Japanskeisara samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinniSamúðarkveðjur til Japanskeisara

„Hinar hræðilegu afleiðingar jarðskjálftanna og flóðbyljanna hafa vakið djúpa samúð og hugur okkar sé með fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hafa og einnig þeim sem misst hafa heimili sín og búa nú við óvissa framtíð.

Vinátta Íslands og Japans sé byggð á langvarandi samvinnu og Íslendingar þekkja jarðskjálfta og náttúruhamfarir af eigin raun þótt reynsla okkar hafi blessunarlega ekki verið eins sár og sú sem nú þjáir hina japönsku þjóð,“ segir fréttatilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands./////auðvitað ber okkur að gera þetta og hann, fyrir okkur öll sem finnum til samúðar með þessari þjóð og öllum sem verða fyrir svo hamförum nátturnnar,það er um sárt að binda hjá mörgum  þúsundum !!og ekki alt komið fram þaran ennþá/Halli gamli


mbl.is Samúðarkveðjur til Japanskeisara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1048571

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband