Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ný neysluviðmið kynnt í dag/ loksins þetta virðist erfitt verk mjög????

Ný neysluviðmið kynnt í dag
Innlent | Morgunblaðið | 7.2.2011 | 5:30

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mun kynna í dag skýrslu starfshóps um neysluviðmið. Er þessum viðmiðum ætlað að endurspegla mánaðarleg útgjöld landsmanna, skipt eftir fjölskyldugerð og aðstæðum.

Er þessum viðmiðum ætlað að endurspegla mánaðarleg útgjöld landsmanna, skipt eftir fjölskyldugerð og aðstæðum. Byggist skýrslan að nokkru leyti á nefndaráliti sem unnið var fyrir viðskiptaráðherra árið 2006 en hefur verið uppfært í meginatriðum.

Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir, að aðilar vinnumarkaðarins hafi beðið í ofvæni eftir þessum upplýsingum, sem talin eru skipta mjög miklu fyrir viðræður um endurnýjun kjarasamninga.///////// Það er skrítið og erfitt mal að koma þessu saman enda hækkar allt nánast daglega nema

 launin,svo hefur þetta verði því miður dregin ein og hlægt er vegna þessa að semja áttu áður en manni skilst

 rétt,en svo er þetta og það verður sennilega flókið ein og alt þegar það kemur að flækja allt er þeirra mottó svo

 maður helst ekki skilji hlutina,það er svo með mest af þessu öllu sköttum tryggingum virðisauka fjármagatekjum

 og fleiru og fleiru/en skoðum málið þegar þetta brestur á og semjum um laun sem menn get lifað af með/Halli gamli


mbl.is Ný neysluviðmið kynnt í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið opinbera standi vörð um tónlistarskóla landsins/þetta viljum við öll taka undir!!!

Hið opinbera standi vörð um tónlistarskóla landsins
Innlent | mbl.is | 6.2.2011 | 23:32

BÍL ályktar m.a. um tónlistarmenntun og er ljóst að... Bandalag íslenskra listamanna skorar á ríki og sveitarfélög að standa vörð um tónlistarskóla landsins og ganga nú þegar frá samkomulagi um kostnaðarskiptingu sem tryggir að tónlistarnemar þessa lands geti stundað tónlistarnám óháð aldri búsetu og efnahag. Þetta kemur fram í ályktun sem BÍL samþykkti á framhaldsaðalfundi sínum í gær.

Á fundinum var m.a. ályktað um tónlistarmenntun, Myndlistaskólann í Reykjavík, heiðurslaun listamanna, fyrirkomulag opinbers stuðnings við listir og menningu, stöðu listdansins og menningarhlutverk Ríkisútvarpsins ohf.

BÍL segir tónlistarmenntun hér á landi vera í uppnámi. 

„Það ástand sem ríkir í málaflokknum er með öllu óþolandi. Nú er svo komið að til stendur að skera niður framlög til tónlistarkennslu í Reykjavík allt að 18% til viðbótar þeim 14% sem nú þegar hafa komið til framkvæmda 2009-2010. Auk þess ætla borgaryfirvöld einungis að greiða með nemendum 16 ára og yngri. Ef þetta gengur eftir mun fjöldi tónlistarnema, sem ætla sér að verða tónlistarmenn að atvinnu, hrökklast frá námi og nýliðun stöðvast í tónlistarlífi þjóðarinnar,“ segir í ályktuninni. 

Þá ályktaði BÍL um menningarhlutverk Ríkisútvarpið, en það hvetur RÚV til að xla ábyrgð sem einn af hornsteinum íslenskrar menningar með því að veita íslenskri menningu aukið rými í dagskrá sinni og tryggja vandaða umfjöllun um störf listamanna./////þarna stöndum viðöll saman ,um að þetta má ekki fara

 svona ,als ekki,tónlist er okkur i blóð borin og verður það,ef ekkert er gert til þessa deyr allt út sem er skemmtan og

 gaman og litrænt á þessu sviði ,við erum heldur maður ein af  mest tónelskandi þjóðum, og á nú að drepa það

 niður,við neitum því öll/Halli gamli


mbl.is Hið opinbera standi vörð um tónlistarskóla landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cameron: Bretland er enn leiðandi afl/ til dæmis með að sigra Islendinga,og segja okkur að taka upp 12 mílu fikveiðilögsögu aftur!!!

Cameron: Bretland er enn leiðandi afl
Erlent | AFP | 6.2.2011 | 18:48

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, vísar því á bug að niðurskurður í hernaðarmálum landsins hafi leitt til þess að að Bretar séu ekki lengur leiðandi afl í heiminum.

„Undir engum kringumstæðum get ég samþykkt það. Ég vil nýta þetta tækifæri í bandarísku sjónvarpi til að koma þeim skilaboðum skýrt á framfæri, að staða Bretlands sem leiðandi afls í heiminum er óbreytt,“ sagði Cameron í samtali við CNN.

„Þú þarft ekki eins marga skriðdreka þegar þú stendur ekki lengur frammi fyrir sovéskum her sem hyggst þramma yfir Evrópu. Það er rétt ákvörðun að gera breytingar. Breytingar styrkja þig, gefa þér aukið vægi og efla þig í heiminum. Og þetta höfum við gert,“ segir hann.

Í október sl. kynnti ríkisstjórn Bretlands meiriháttar endurskoðun á varnarmálum, en meðal þess sem stjórnvöld hafa gert er að taka alla Harrier-herþotur úr umferð sem og Ark Royal flugmóðurskipið.

Varnarmálaráðuneytinu var gert að skera niður um 8%. Alls munu um 17.000 missa vinnuna á næstu fimm árum, og á það jafnt við land-, sjó- og flugher.////minnugir þorskastríðum eigum við myningar

 ennþá um her Breta!! en samt er maður ekki að lasta þá nema svona i gríni nokkru,en þeir geta sagt að þeir sigri

 okkur ,nú ef við borgum þetta Icesave ,og svo tala þeir um að við eigum að færa fiskveiðilögsögu okkar aftur i 12

 mílur, og svo framvegis,en Bretar eru góðir hermenn það sýndi sig i seinni heimstyrjöldina ekki spurning,en svona

 er þetta samt fallandi veldi!!! En við áttum einnig þátt i þeirra  baráttu á stríðsárunum færðum þeim ómældan fisk

 allan tíman sem kostaði okkur mörg mannslíf/Halli gamli


mbl.is Cameron: Bretland er enn leiðandi afl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilbúinn að mynda nýja ríkisstjórn um atvinnumálin/Þetta gæti gengið fram að kostningum,ef Jóhanna er ekki um borð!!!

Tilbúinn að mynda nýja ríkisstjórn um atvinnumálin
Innlent | mbl.is | 6.2.2011 | 14:36

Sigmundur Ernir Rúnarsson. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segist vera reiðubúinn að mynda ríkisstjórn með nýjum flokkum sé það þjóðinni til framdráttar. Hann segir að það sé óþolandi að starfa með flokki sem segist ekki lengur kannast við stjórnarsáttmála sem hann skrifaði undir fyrir aðeins fáeinum mánuðum.

Þetta sagði Sigmundur Ernir í þættinum Silfri Egils, sem er sýndur í Ríkissjónvarpinu. 

„Við erum að kljást við gríðarleg vandamál við að endurreisa samfélagið. Og mér finnst ekki öllu máli skipta hvaða flokkar séu saman. Mér finnst fara betur á því að vinna saman heldur en að vera í sundrungu og sundurlyndi. Meginverkefni stjórnvalda núna er að koma atvinnulífinu af stað. Ég bara tala fyrir því að þeir flokkar sem geta með mestum og bestum hætti komið atvinnulífinu af stað, að þeir taki höndum saman,“ sagði hann. 

 

  • Tryggvi Þór Herbertsson.

    Tryggvi Þór Herbertsson. mbl.is/Valdís

 

Spurður hvort hann væri að biðla til Sjálfstæðisflokksins sagði Sigmundur Ernir: „Ég er að biðla til þeirra flokka sem geta mest og best komið af stað atvinnulífinu og við megum ekki koma í veg fyrir að meginverkefnið komist af stað. Ég er í samvinnu við stjórnmálaflokk sem skrifaði fyrir fáeinum mánuðum undir stjórnarsáttamála sem hann kannast ekki lengur við. Og mér finnst það óþolandi í mannlegum samskiptum. Þannig að ég er alveg tilbúinn til að leiða hér saman nýja flokka í nýrri ríkisstjórn ef það er þjóðinni til framdráttar,“ sagði Sigmundur Ernir.

„Enginn díll í gangi“

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem einnig var gestur í þættinum, sagði „enginn díll“ væri í gangi á milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar.

„Við höfum engan áhuga á því að fara með þessum flokkum í ríkisstjórn. Engan áhuga. Það sem við höfum fyrst og fremst áhuga á er að hér verði kosningar. Valdajafnvægið í þinginu er rangt og valdajafnvægið í þinginu, sem varð fyrir sögulegar orsakir, hefur leitt yfir okkur mikla ógæfu, sem birtist í því að ráðstöfunartekjur heimilanna hafa verið lækkaðar með skattlagningu. Það hefur verið algjört úrræðaleysi í endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja. Menn delera hérna, tala um þjóðnýtingu og annað slík. Ísland er að breytast í Alþýðulýðveldið Ísland, og það er undir stjórn þessara tveggja flokka. Að láta sér detta það í hug að við höfum einhvern áhuga á að vinna með þessu fólki, það er algjör misskilningur. En við viljum kosningar,“ segir Tryggvi Þór./////Ekki láta svona Tryggvi ,þetta gæti gengið af

 Jóhanna færi frá borði, fram að kosningum,það varðar þjóðarhag er allt til vinnandi ekki náttferlega öðruvísi en að

 bíða með ESB fram að kosningum sem ekki er heldur neitt sem á liggur,fyrr en skoða hvað við fáum fram að

 því ,svo bara koma atvinnulífinu i gang það er númer eitt siðar lækka skatta aftur svo alt fari i betra horf og menn

 geti lifað sæmilegu lífi svo kjósa siðar um bæði stjórnaskrá og einnig semja um Sjálfaútveg i sátt,annars er engin

 von um þetta samstarf i bili allavega/en ekki útiloka neitt ,það er svo afbrigðilegt að vilja ekki hugsa fyrst um

 þjóðarhag!!!/Halli gamli


mbl.is Tilbúinn að mynda nýja ríkisstjórn um atvinnumálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið í Bláfjöllum/ gott fyrir skíðafólk og einnig útivistarfólkið!!!!

Opið í Bláfjöllum
Innlent | mbl.is | 6.2.2011 | 10:43

Eflaust munu fjölmargir grípa tækifærið á meðan það gefst...Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnaði kl. 10 í dag og verður opið á svæðinu til kl. 17. Þetta er í fyrsta sinn sem skíðasvæðið opnar á þessu ári. Forsvarsmenns skíðasvæðisins segja að veðrið sé ágætt en líkur séu á eljum. Búið sé að troða allar brekkur og nýr snjór sé yfir öllu.

Búið er að leggja fimm kílómetra langan gönguhring og þá verður frí skíðakennsla við kaðallyftuna milli kl. 11-15 í dag. /////mikil ánægja fyrir þetta blessað fólk sem stundar skíða og snjáþotur,það er gaman á

skíðum ,það er manni bara í mynni frá fyrri tíð þó margur ekki viti það þá var maður mikið á skíðum sem unglingur

 og að 16 ára aldri,en stein hætti svo sem aldrei hefi átt að vera,þetta eitt það heilbrigðasta sem stundað er"!! en

 það komu því miður mörg önnur áhugamál,og ek bara vona að fólk sem eru skíðafólk haldi þessu og hætti ekki,Eitt

 mitt skemmtilegasta skíðaár voru árim mín á Árskógshrepp í Eyjafirði veturna 1944-46 þar var maður a´skíðum

 alla daga og var maður skíðalandsmóti á Akureyri 1946 og síðan efir heimkomu oft i Jósepsdal og kolviðahól,þetta

 með mínum bestu minningum og þetta ættu við öll að stuna,samt efast maður um að maður stæði sig núna bara

 detta !!!! en það lærði maður einnig/Halli gamli


mbl.is Opið í Bláfjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glitnir áfrýjar í New York/hvar stjórna þessu? er það Steinun? ein,er þetta ekki orðið mogu dýrt!!!!!

Glitnir áfrýjar í New York
Viðskipti | mbl.is | 5.2.2011 | 13:35

 Slitastjórn Glitnis banka hefur tilkynnt formlega að hún áfrýi þeirri niðurstöðu dómara á Manhattan í New York, að vísa beri skaðabótamáli á hendur sjö einstaklingum og endurskoðunarfyrirtæki frá.

Dómarinn vísaði málinu frá dómi í New York í desember en setti þau skilyrði að sjömenningarnir og PricewaterhouseCoopers myndu ekki mótmæla lögsögu íslensks dómstóls í málinu. Einnig að þeir lýsi því yfir, að því yrði ekki mótmælt að dómur, sem kunni að falla í sambærilegu máli á Íslandi, yrði aðfararhæfur í New York.

Málsaðilar hafa síðan tekist á um hvort þessi skilyrði hafi verið uppfyllt. Í áfrýjun slitastjórnarinnar, sem birt er á vef dómstólsins, segir að mótaðilarnir hafi ekki enn fallist á þessi skilyrði.

Áfrýjunin byggist þó á þeim skilningi slitastjórnar Glitnis, að niðurstaða dómarans að vísa málinu frá dómi í New York sé röng. Ítrekað er, að sjömenningarnir hafi sammælst um að láta Glitni gefa út skuldabréf í New York haustið 2007 með það að markmiði að afla fjár í eigin þágu og fyrirtækja sinna.

Áfrýjunin er send til áfrýjunardeildar sama dómstóls í New York og málið var höfðað fyrir. Í málinu krefur slitastjórn Glitnis einstaklingana sjö og endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers á Íslandi um 2 milljarða dala, rúmlega 230 milljarða króna, í bætur   .///hvernig geta menn varið svona peningaeyðslu !!

 þetta eru orðar miljónir á milljónir ofan og ennþá mátti sjá þessar muhörpur af hörku i gær i sjónvarpi

  
í gær hjá þessu skiptastjóra Steinuni og C/o en í þetta hafa farið miklir peningar og .að er ekki i lagi ef þeir vilja ekki

 halda þetta þarna ,en hún hugsar það skal hvað sem það kostar,er engin sem getur eða vill stoppa þetta af ,og reka

 þetta bara á Íslandi,það er ekki furða þótt nú Íslandsbanki geti ekki gert það sem við sem erum viðskiptamenn ,gert

 betur við okkur allir peningar skipatanna fara i þetta,og það er látið viðgangast,engin að verja þá sem um er stríð

 en þetta er til að bita hausinn ef skömminni,hver voru launin þessa lögfræðinga og skiptastjórnana séðasta ár??? við

 viljum vita það/Halli gamli


mbl.is Glitnir áfrýjar í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil afturför lýsi Bandaríkin stuðningi við Mubarak/þetta ekki góð laustn,jafnvel afarslæm!!!

Mikil afturför lýsi Bandaríkin stuðningi við Mubarak
Erlent | mbl.is | 6.2.2011 | 8:13

Skilaboð mótmælenda eru skýr.Stjórnarandstæðingurinn Mohamed ElBaradei sagði í gær að það yrði meiriháttar afturför ef bandarísk stjórnvöld myndu styðja það að Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, eða varaforsetinn myndu leiða nýja ríkisstjórn í landinu. ElBaradei sagði jafnframt að meiri harka geti færst í mótmælin.

Ég gær lýsti bandaríski sendifulltrúinn Frank Wisner því yfir að Mubarak yrði að sitja áfram sem forseti. Bandaríska utanríkisráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem fram kemur að Wisner lýsi ekki skoðunum bandarískra stjórnvalda. 

ElBaradei, sem er handhafi friðarverðlauna Nóbels og reyndur stjórnmálamaður, var spurður út í ummæli Wisners í gær.

„Ef þetta er satt [...] þá yrði þetta meiriháttar afturför, svo mikið get ég sagt,“ sagði hann í samtali við Reuters í gær. Hann bætti við því að ummælin hefðu valdið sér vonbrigðum. 

Bandarísk yfirvöld hafa sagt að þau vilji að stjórnar- og valdaskipti muni eiga sér stað með skipulegum hætti og að þau hefjist þegar í stað. Mubarak hefur sagt að hann sé reiðubúinn að fara frá völdum í september, en mótmælendur vilja að hann fari þegar í stað./////þetta virðist við fyrstu sýn alveg ófært og

 mun auðvitað ekki lægja öldur ,als ekki bar magna ´þær ekki spurning , það er svo að Bandaríkjamenn og Ísraelar

 vilja hafa hönd bagga og það er skiljanlegt en ekki lyðræðisrett en þetta er svo að það ber auðvitað að hafa með

 þessu auga og passa heimsfriðinn,Ísraelar eiga kjarnorku og mundi ekki hika við að nota ef þeir halda að þetta ógni

 þeim, sem a´að vara ástæðulaus,en aldrei hlægt að segja  það hvað skeður!! en það er komin tími til að þessu

 einræðiskriki þarna verði frjáls þau eru nokkur þarna sem muni fylgja,en semsagt þetta er ekki alslæmt ,og verður

 að lata kallin hætta ekki spurning og mynda nýja bráðaábyrgðarstjórn fyrir kosningar/Halli gamli


mbl.is Mikil afturför lýsi Bandaríkin stuðningi við Mubarak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kína nýtur aukinna vinsælda meðalferðamanna/þetta óvænt en gaman!!!

Kína nýtur aukinna vinsælda meðal ferðamanna
Erlent | mbl.is | 6.2.2011 | 9:46

Sífellt fleiri ferðamenn sækja Kínverja heim með hverju árinu sem líður. Kína hefur tekið fram úr Spáni og eru nú í þriðja sæti yfir þau lönd sem eru vinsælust á meðal ferðamanna. Frakkland trónir á toppnum og Bandaríkin koma næst á eftir.

Skoðanir ferðamanna á Kína eru skiptar, en flestir virðast vera sammála um að landið sé einstakt í heiminum. 

Kanadískur ferðamaður segir í samtali við Reuters að Kínverjar séu mjög vingjarnlegir og það hafi komið sér ánægjulega á óvart. „Ég átti í vandræðum með að kaupa lestarmiða, því ég tala nánast enga kínversku. Þá kom einhver náungi og keypti miða handa mér og afhenti mér hann.“

Austurrískur ferðamaður segir að Kínverjar horfi ekki á annað fólk og að þeir hlægi aldrei. „Þú sérð aldrei bros, þeir eru bara að flýta sér. Þetta er öðruvísi. Þið verðið að sjá þetta sjálf,“ segir hann.

Kínversk stjórnvöld hyggjast auglýsa landið í nýju myndskeiði sem verður sýnt í kínverskum sendiráðum og ræðismannsskrifstofum um allan heim.

„Alþjóðafjármálakreppan, veiking evrunnar og styrking júansins hafa haft áhrif á ferðamannamarkaðinn. En þar sem við erum ferðamannastaður sem hópar heimsækja, og Sameinuðu þjóðirnar segja að Kína verði vinsælasti ferðamannalandið í heiminum, þá teljum við að mikið verði að gera í ferðaþjónustu. Við erum sannfærð um að markaðurinn muni stækka hratt á hverju ári,“ segir Julia Zhao, aðstoðarframkvæmdastjóri Inbound E-Travel./////láng sótt en gaman að þetta skuli vera opnað svona og

 vonandi að við getum farið Íslendingar farið þarna ,sennilega dýrt með millilendingum,og svo framvegis,en landi

 ekki dýrt,það er mikið að sja´þarna segir fólk sem þarna fer Íslendingar eru þarna nokkrir eins og við höfum séð i

 sjónvarpi,en að "Iceland er "er ekki með flugvélar til að fara svona langt okkar vélar of litlar og þröngar i svona

 langa ferð/en kannski stendur það til bóta,kannski ,því vonandi aukast viðskipti okkur við Kínverja það er

 málið/Halli gamli


mbl.is Kína nýtur aukinna vinsælda meðal ferðamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víða snjóþekja og þæfingsfærð/ber að aka rólega ekki annað í spilunum!!!

Víða snjóþekja og þæfingsfærð
Innlent | mbl.is | 6.2.2011 | 7:43

Þæfingsfærð hefur verið á götum borgarinnar. Mynd úr safni. Vegagerðin segir að það sé hálka og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir séu á Reykjanesbraut. Víða á Suðurlandi sé snjóþekja og þæfingsfærð, en unnið sé að hreinsun.
Á Vestfjörðum er snjóþekja og hálka, Mokstur er hafin á Klettshálsi og á Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norður- og á Norðausturlandi er víða hálka eða hálkublettir og sumstaðar éljagangur.

Á Austur og á Suðausturlandi er víða hálka eða snjóþekja og unnið er að hreinsun.

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur á Austurlandi við mikilli umferð hreindýra/////þetta er svo og menn eiga að taka á þessu mark,ekki spurning og keyra varlegar,en það er svo að

 hlákan kemur ekki fyrr en á Þrijud. -miðvikud.svo við því verður að búast að'þá hláni mikið og bleyti og verði

kannski flóð,skoðast bara sagt gott skíðafæri við Dalvik og viðar og fólk hlýtur að freistast í það/Halli gamli


mbl.is Víða snjóþekja og þæfingsfærð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Rauða spjaldið vendipunktur/það ber bara að taka því,en segi það sama !!!

Wenger: Rauða spjaldið vendipunktur
Íþróttir | mbl.is | 5.2.2011 | 18:04

Wenger lýsir yfir óánægju sinni í leiknum gegn Newcastle í dag.Arsene Wenger stjóri Arsenal segir það hafa verið vendipunkt fyrir sína menn þegar Abou Diaby fékk að líta rauða spjaldið á 50. mínútu í leiknum gegn Newcastle. Arsenal var þá 4:0 yfir en liðin skildu að lokum jöfn, 4:4.

„Þetta var góður leikur með fjölda athyglisverðra atvika og vendipunkta, en brottreksturinn réði úrslitum fyrir okkur og sumar ákvarðanir í leiknum voru á móti okkur,“ sagði Wenger sem var ekki alveg nægilega ánægður með dómara leiksins.

„Í stöðunni 4:1 fórum við aðeins á taugum. Við vorum líka óheppnir. Það þarf bara að taka því og líta á björtu hliðarnar. Ég sá ekki alveg nægilega vel hvað gerðist þegar rauða spjaldið fór á loft en Barton átti líka að vera rekinn af velli. Við lítum á þetta sem svo að við höfum tapað tveimur stigum,“ bætti Wenger við./////auðvitað er þetta kallað væl og afsökun ,en menni finnst hún á rökum reyst og vel það,þetta skipti sköpun

ekki spurning ,en svo er knattspyrnan það er ekki óvisa að ráð með dóm og oft haf slæmir dómar slík áhrif,"en það

þýðir ekki að gráta Björn Bónda heldur safna lið" ein og maltækið segir og það gerum við i Arsenal/Halli gamli


mbl.is Wenger: Rauða spjaldið vendipunktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1048606

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband